Þjóðviljinn - 11.06.1991, Blaðsíða 11
Mmmng
Pennavinir
Nítján ára þýsk stúlka
óskar eftir íslenkum penna-
vini. Hún getur skrifað á
ensku, frönsku og þýsku.
Áhugamál hennar eru jass-
ballett, tennis, tónlist, bóka-
lestur og bíóferðir. Heimilis-
fang hennar er:
Tanja Sievers
Schlierbachstr. 19
5423 Braubach
Þýskalandi
Félag ungra stúlkna í
Þýskalandi óskar eftir því að
kynnast íslenskum stúlkum
ffá 15-25 ára til að ffæðast um
Island og menningu þess. Þær
sem hafa áhuga skrifi til:
Claudia Deisenhofer
Herbststr. 8
D-8900 Augsburg 21
Þýskalandi
Atvinna óskast
Guðmundur Valdimarsson
bifreiðarstjóri
Fæddur ll.febrúar 1910 — Dáinn 29. maí 1991
Fimmtudaginn 6. júní 1991, var
til moldar borinn Guðmundur
Valdimarsson biffeiðarstjóri, sem
lést í Reykjavík 29. maí s.l. Guð-
mundur var fæddur 11. febrúar
1910 á Sóleyjarbakka í Hruna-
mannahreppi, sonur Valdimars
Brynjólfssonar bónda þar og konu
hans, Helgu Pálsdóttir. (Niðjar afa
Guðmundar, Biynjólfs Einarssonar
á Sóleyjarbakka, halda ættamót á
Flúðum um helgina.) Asamt yngsta
bróður sínum vaim Guðmundur bú-
verk hjá foður sínum ffam á stríðs-
árin, en á vetrum ffá ofanverðum
þriðja áratugnum ffam yfir miðjan
hinn fjórða var hann á báti í Kefla-
vík, lengstum landmaður, að ég
held.
Til Reykjavíkur fluttist Guð-
mundur Valdimarsson haustið 1940
eða 1941. Fyrstu ár sín þar vann
hann ýmis tilfallandi stöif, en ók
síðan fólksbíl liðlega aldarfjórðung.
1 sambúð gekk hann með Guðrúnu
Jóhönnu Ragnarsdóttur (f. 25.8.
1918, d. 8.3. 1969). Síðar tók hann
að sér og sá um Guðrúnu Sóleyju
Karlsdóttur (f. 11.9. 1950) ffá Isa-
firði.
1 bemsku dvaldist ég tvö sumur,
1936 og 1937, tvær vikur á Sóleyj-
arbakka, sem lifa í minningu minni.
Hófust þá kynni mín við Guðmund
og yngsta bróður hans, Sigurð, og
yngstu systumar. Eftir að Guð-
mundur fluttist til Reykjavíkur, sá
ég hann allreglulega ffam yfir 1960,
en síðan örsjaldan, síðast fyrir 5
vikum, er við drukkum saman kaffi
á veitingastað. Guðmundur var
góður meðalmaður á hæð, mjög ljós
á hár, ljós- bláeygur, grannleitur og
skarpleitur, og samsvaraði sér vel.
Hann var léttur í skapi, en þó ör-
geðja. Kimnigáfu hafði hann góða.
Bjartar em minningar mínar um
þennan foðurbróður minn.
Reykjavík, 6. júní 1991
Haraldur Jóhannsson
Karl J* Sighvatsson
Fimmtán ára Norskur
strákur óskar eftir sumarat-
vinnu á íslandi. Starfið getur
verið allt mögulegt því hann
hefur áhuga á svo mörgu. Þeir
sem hafa áhuga skrifi til:
Alexander Sommerstad
Sommerstad
3240 Andebu
Noregi
í töskunni hans Kalla vom ótrú-
legustu hlutir. Eg minnist hvítra ull-
arsokka, granóla, döðlupakka,
ávaxtasafa og svo eðal vítamína,
smyrsl til að smyija hendumar með
og olía á orgelið. Þama var og orgel
partur úr Te deum eftir Berlioz,
skór, uppkast af hans eigin ópusum,
burstar af öllum gerðum, að
ógleymdum sundfatnaði, og enn er
ekki allt talið.
Við skemmtum okkur við að
geta okkur til um hve lengi mætti
halda sér uppi með þvílíkan kost í
farteskinu og komumst að þeirri
niðurstöðu að miðað við nútíma
farkosti, mætti fara í góða hnatt-
reisu með viðkomu á fáeinum völd-
um stöðum, án þess að þiggja annan
kost. I hans tilfelli mátti ferðast í
gegnum allt lífið ef aðeins fáein
Hammond orgel og/eða pípuorgel
yrðu á veginum. En nú er Kalli far-
inn í annað ferðalag án töskunnar
góðu og ég ásamt svo mörgum ást-
vinum hans og aðdáendum stend
eftir og kveð „Papa Karlos“ eins og
við kölluðum hann.
Nestor og uppalandi var hann í
minum augum og eyrum. Osínkur
að miðla af mikilli reynslu sinni í
músíkinni.
Ekki var músíkin í hans tilfelli
eingöngu fengin með námi og
reynslu, heldur var hún og í blóð-
inu, sérhverri hreyfmgu, heitri og
hvikri. Innsæi hans var sérstakt, og
þó hann væri elstur okkar og búinn
að ganga í gegnum tímabil sem við
aðeins horfðum á sem unglingar, þá
var hann alltaf yngstur, ferskastur,
frumkrafturinn óyggjandi og galdur
hans hóf sig hátt. - Við stöndum
eftir ráðþrota og spyijum hver ræð-
ur mönnum slík örlög. En okkur
hefur verið kennt að sættast við
æðri mátt og þá um leið styrkjast
fýrir ókominn dag. - Ég þakka að
hafa átt þess kost að starfa með
Kalla, kynnast drengskap hans, og
veit að ég á alltaf eftir að búa við
það ljós, er stafaði af nærveru hans
og sköpun. Það ljós styrki nú ungan
son hans og ástvini í sorg og missi.
Egill Ólafsson
AUGLÝSINGAR
Utboö
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Bygg-
ingadeildar Borgarverkfræðings, óskar eftir til-
boðum í viðhald á Bækistöð SVR á Kirkjusandi.
Helstu verkjjættir eru:
1. Steypuviðgerðir
2. Háþrýstiþvottur
3. Málun
4. Málmklæðningar á lárétta fleti.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík gegn kr. 15.000,- skila-
tryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn
25.júní 1991, kl. 11:00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Sími 25800
Löndunarkrani á bryggju
Hjá Hafnarfjarðarhöfn er til sölu löndunarkrani,
sem notaður hefur verið á Óseyrarbryggju til
iöndunar úr smábátum. Kraninn er boltaður nið-
ur og er snúið um lóðréttan ás með handafli.
Rafdrifin vinda er læst við 500 kg þunga. Hæð
undir bómu er 4,1 m og lengd bómu 3,1 m.
Nánari upplýsingar á hafnarskrifstofu, Strand-
götu 4, sími 91-53444 eða 91-652300.
Hafnarljarðarhöfn
Félagsmálastofnun Hafnarfjarðar
Rekstrarstjóri
Við óskum eftir rekstrarstjóra í 50% starf til af-
leysinga í eitt ár. Æskilegt er að viðkomandi
geti hafið störf um miðjan ágúst nk. Skilyrði er
að viðkomandi hafi reynslu í bókhaldsstörfum.
Megin verksvið rekstrarstjóra er að sjá um fjár-
reiður Félagsmálastofnunar Hafnarfjarðar og
undirstofnana hennar. .
Upplýsingar gefa Kolbrún Oddbergsdóttir,
rekstarstjóri, og Marta Bergmann, félagsmála-
stjóri, alla virka morgna í síma 53444, milli kl.
11.00 og 12.00.
Umsóknum skal skilað á skrifstofu Félags-
málastofnunar Hafnarfjarðar fyrir 15. júní nk.
Umsjónarfóstra
Umsjónarfóstra óskast í 50% starf á Félags-
málastofnun Hafnarfjarðar.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1.
ágúst nk.
Megin verksvið er í umsjón með dagvistun
barna í heimahúsum.
Upplýsingar gefa María Kristjánsdóttir, dagvi-
starfulltrúi, og Marta Bergmann, félagsmála-
stjóri, alla virka morgna í síma 53444, milli kl.
11.00 og 12.00, fyrir 15. júní nk.
Félagsmálastjórinn í Hafnarfirði
Flensborgarskólinn i Hafnarfirði
Kennarar í frönsku,
stærðfræði og
eðlisfræði
Flensborgarskólinn auglýsir eftir frönskukenn-
ara í hálft starf frá og með haustönn 1991. Um-
sóknarfrestur er til 3. júlí.
Jafnframt er framlengdur til sama tíma um-
sóknarfrestur um áður auglýsta kennarastöðu í
stærðfræði og eðlisfræði.
Allar nánari upplýsingar veitir skólameistari í
síma 650400 eða 50560 næstu daga eða eftir
21. júní.
Skólameistari
Félagsmálastofnun
Hafnarfjarðar
Fóstrur
þroskaþjálfar
Okkur á Leikskólanum Víðvöllum vantar fóstru
á almenna deild og þroskaþjálfa á sérdeild.
Einnig vantar okkur uppeldismenntað fólk til
stuðnings við börn með þroskafrávik.
Leikskólinn er vel mannaður fagfólki, hefur
börn á aldrinum 6 mán. til 6 ára á þremur ald-
ursskiptum deildum, auk sérdeildar.
Nánari upplýsingar er að fá hjá leikskólastjóra í
síma 52004 og á sérdeild í sima 54835.
Fóstrur!
Fóstru vantar á leikskólann Arnarberg, sem er
einnar deildar leikskóli fyrir börn á aldrinum 3ja
til 6 ára.
Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri í síma
53493.
Félagsmálastjórinn í Hafnarfirði
Síöa 11
ÞJÓÐVIUINN - Þriðjudagur 11. júní 1991