Þjóðviljinn - 11.06.1991, Side 15
Rekinn út af
(viðureign FH og Eyja-
manna á Kapplakrikavelli í
Hafnarfirði um helgina var
einn leikmaður rekinn út af
vellinum sem ekki hafði ver-
ið skráður til leiks. Þetta
gerðist í seinni hálfleik.
Dæmd hafði verið auka-
spyma á FH nærri vítateig
þeirra. Leikmenn stilltu sér
upp. Þá laumaðist einn smá-
peyi inn á völlinn og stillti sér
upp aftan við vöm FH. Dóm-
ari leiksins tók ekki eftir
neinu, en varnarmenn FH
voru betur vakandi og vildu
að þessi óvænti liðsauki yrði
fjarlægður af vellinum áður
en aukaspyrnan var tekin,
enda stórhættulegt fyrir
smákrakka að verða fyrir
föstum skotum knattspyrnu-
mannanna.
Falsaður
rottugangur
[ Víkurblaðinu er sagt frá
rottugildru sem blaðamenn
og heilbrigðisfulltrúinn á
Húsavík voru leiddir í. Ný-
lega fannst nefnilega dauð
rotta á planinu við síldar-
verksmiðjuna, en að sögn
Víkurblaðsins eru rottur jafn
sjaldséðar á Húsavík og
krókódílar, aðeins til heimild-
ir um að í tvígang á öldinni
hafi íbúar þar orðið varir við
rottur. Þegar rottan var skoð-
uð nánar kom (Ijós að hún
hafði verið skotin og að ein-
hver prakkari hafði plantað
rottunni á planið til að gera
mönnum smágrikk.
Afsakanir
íþróttamanna
Áfram með menningarrit-
ið Víkurblaðið. Þar er fjallað
um afsakanir íþróttamanna
og sagt að Einar Vilhjálms-
son hafi náð góðum árangri í
þeirri grein „...en þegar hann
er ekki í sínu besta formi
stafar það yfirleitt af því að
hann hefur æft of mikið, of
lítið, atrennan var of löng, of
stutt, vöðvasamdráttarkippir
(vinstri kasthandlegg náðu
ekki að samræmast útkast-
geiranum miðað við ríkjandi
vindátt o.s.frv.“ Síðan er rætt
um afsakanir landsliðsins í
fótbolta eftir hrakfarirnar í Al-
banía, en ástæðan var sögð
ömurlegt þjóðfélagsástand í
Albaníu sem hafi dregið all-
an mátt úr landsliðinu. Víkur-
blaðið leggur því til að þegar
Völsungar tapa í Reykjavík
segi þeir það stafa af
áhyggjum út af ástandinu í
miðbæ Reykjavíkur og fíkni-
efnavandanum syðra. Og
Reykjavíkurliðin geti á móti
afsakað sig með því að vísa
til greiðsluerfiðleika fisk-
vinnslunnar úti á landi, tapi
þeir leik á landsbyggðinni.
Kraftajötnar
austur á fjörðum
Ungmenna- og íþrótta-
samband Austurlands efnir
tii veglegrar afmælis- og
sumarhátíðar sambandsins í
júlí, en 50 ár eru liðin frá
stofnun þess. Stefnt er að
því að halda mikla aflrauna-
keppni þar sem bandaríska
vöðvafjallið O. D. Wilson
tekst á við þá Jón Pál, _
Magnús Ver og Hjalta Úrsus.
Hefur Sjónvarpið sýnt því
áhuga að gera 40 mínútna
langan þátt um keppnina.
Kostnaður við aflrauna-
keppnina er um miljón krón-
ur og er nú unnið að því að
selja vöðvabúntin fyrirtækj-
um og stofnunum, þ.e. að
auglýsa á klæðnaði kapp-
anna.
RÚSINAN...
Ársrit Kvenréttindafélagsins kom út um helgina og hér má sjá Ellen Ingvadóttur, ritstjóra 19. júní, bjóða viðskiptavinum I
Kringlunni blaðið til sölu, enn heitt úr prentsmiðjunni. Mynd: Þorfinnur.
Konur ræða málin
í „ 19. júní“
19. júní, ársrit Kvenréttinda-
félags Islands, kom út á fostudag.
Að venju er blaðið upnið að öllu
leyti af konum, að frátaldri
vinnu í prentsmiðju, og hefur að
geyma fjölda greina og viðtala
um ólík málefni sem eiga það
sameiginlegt að snerta hagsmuni
kvenna á einn eða annan hátt.
Um nokkurt skeið hefúr 19.
júní verið tileinkaður tilteknu tema
hvert ár, en svo er ekki nú, heldur
fjölbreytnin látin ráða í efnisvalinu.
Sem dæmi um það má nefna
greinar um konur í sveitarstjómar-
málum, konur og fjölmiðla, konur
og kynlíf, konur og mataræði, og
svo framvegis.
Viðtal er í blaðinu við Guðrúnu
Erlendsdóttur íyrstu konuna sem
gegnir embætti hæstaréttardómara
og einnig við Sigríði Snævarr,
fyrsta kvensendiherra íslands. Þá
er einnig fjallað um umhverfismál,
rætt við Auði Sveinsdóttur for-
mann Landvemdar og „græn“ fjöl-
skylda heimsótt.
Hildur Viðarsdóttir læknir ritar
athyglisverða grein um ástir aldr-
aðra þar sem ffarn kemur m.a. að
talið er að reglubundið kynlíf
hækki magn kynhormóna í blóði
kvenna og megi því ætla að þær
konur haldi sér betur sem eiga gott
kynlíf. Hildur segir ýmsar rann-
sóknir sýna að stór hluti 75 ára og
eldri ástundi kynlíf og þeir sem
hafa hætt, hafa látið af því vegna
líkamlegs heilsubrests, en ekki
vegna getuleysis eða kynkulda.
Bryndís Kristjánsdóttir skrifar
fjögurra siðna grein um þjálfun ást-
arvöðvans, þ.e. hvemig þjálfun
grindarbotnsvöðva getur bætt úr
blöðru- og legsigi og um leið kom-
ið að góðu gagni í kynlífmu.
Skýringarteikningar fylgja og
ættu að koma að góðu gagni fyrir
þær konur sem ekki þekkja þessar
æfingar og hvemig á að „lyfta
hnetunni upp á fimmtu hæð“.
„Kvennaráðgjöfin- leið til
sjálfshjálpar" er yfirskrift greinar
eftir Onnu Gunnarsdóttur. Þar er
sagt frá kvennaráðgjöf sem rekin
hefúr verið í átta ár af lögffæðing-
um, félagsráðgjöfúm og nemum í
þessum fogum. Ráðgjöfin hefur
það að markmiði að liðsinna kon-
um sem þurfa á aðstoð að halda,
t.d. vegna hjónaskilnaðar, og er
konum að kostnaðarlausu.
19. júní fjallar um Evrópu-
bandalagið með viðtali við Ingi-
björgu Sólrúnu Gísladóttur undir
fyrirsögninni „Er kvenfrelsi í fjór-
frelsinu?“. Þar gagnrýnir Ingibjörg
m.a. karlaveldið í valdakerfi EB og
segir að: „eins og í öðmm valdap-
ýramidum fækkar konum eftir því
sem nær dregur toppnum. Konur
em mjög sjaldséðar í ráðherraráð-
inu, þær em innan við 5% meðal
æðstu embættismanna EB og ég
held að mér sé óhætt að fúllyrða að
engin kona eigi sæti i fram-
kvæmdastjóminni. A EB-þinginu
emþærum 18%.“
Ritstjóri 19. júní að þessu sinni
er Ellen Ingvadóttir blaðamaður.
Blaðið er 84 síður að stærð og er
sent áskrifendum en einnig selt í
lausasölu.
-vd.
I ■
Síða 15
ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 11. júní 1991