Þjóðviljinn - 14.06.1991, Qupperneq 8
Útgefandi: Útgáfufélagiö Bjarid h.f
Framkvœmdastjóri: Hallur Pá« Jónsson
Ritstjórar: Ámi Bergmann,
Helgi Guömundsson
Umsjénartnaöur Heigarblaðs: Bergdís Ellertsdóttir
Fréttastjóri: Siguröur Á. Friðþjöfsson
Auglýsingastjóri: Steinar Haröarson
Afgrelðsla: tr 6613 33
Auglýslngadelld: n 68 1310-8813 31
Símfax: 68 19 35
Verð: 150 krónuf I lausasöfu
Setning og umbrot: Prentsmiflja Þjóöviljans hf.
Aðsetun Siöumúla 37,108 Reykjavík
Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis
Ný framsóknaraðferð
Framsókndrflokkurinn átti sem kunn-
ugt er aðild að ríkisstjórnum svo lengi
að nú þegar hann lenti í stjórnarand-
stöðu hafði aðeins einn þingmaður
flokksins einu sinni komið nálægt stjórn-
arandstöðu: Steingrímur Hermannsson.
Framsóknarflokkurinn átti fyrst aðild að
stjórninni 1971 til 1974 með Alþýðu-
bandalaginu. Sumarið 1974 var reynt
að mynda vinstri stjórn, en tókst ekki
vegna afstöðu Alþýðuflokksins. Fram-
sókn myndaði þá ríkisstjórn með íhald-
inu. Og Tíminn og Framsóknarforystan
hóf sönginn um það að aldrei eða sjald-
an hefði setið hér verri stjórn en sú síð-
asta. Framsókn sat svo stjórn með
íhaldinu til vors 1978. Þá beið hún af-
hroð í kosningabaráttunni, sneri við
blaðinu og heimtaði vinstristjórn og
samvinnu við samtök launafólks. Ekki
var sú stjórn fyrr farin frá og svo stjórnin
vorið 1983 en Framsóknarforystan
sneri enn við blaðinu og taldi allt hafa
veriö í kalda koli þegar ríkisstjórnin
skildi við. Þá hafði tekið við forystu í
Framsóknarflokknum Steingrímur Her-
mannsson sem er svo mikill snillingur
að hann getur ekki einasta verið með og
á móti sömu ríkisstjórninni; hann fer létt
með að vera með sama málinu og á
móti því í sömu málsgreininni.
í lok stjórnarinnar frá 1983 til 1987
taldi Framsókn enda allt með miklum
blóma, en fór samt inn í ríkisstjórn með
íhaldinu. Sú stjórn skildi við í beinni út-
sendingu í sjónvarpi í sláturtíðinni miðri
haustið 1988. Hún skildi við allt í kalda
koli. Það lag söng Framsókn sem þó
hafði verið í stjórninni og hælt sér af því.
En þann söng fór Alþýðuflokkurinn líka
með sem þó hafði verið í stjórninni frá
1987. Mátti ekki á milli sjá hvor var
snjallari í að svívirða þessa stjórn Fram-
sóknarforystan eða Alþýðufflokkurinn.
Mátti þó hlutur Alþýðuflokksins teljast
athyglisverðari þar sem hann hældi sér
af því að hafa samið handa stjórninni
stærsta stjórnarsáttmála sem stjórn
hafði gert sér frá því að sögur hófust.
Alþýðuflokkurinn sat svo í ríkisstjórn
með Alþýðubandalaginu til vors 1991. í
kosningabaráttunni hældi Alþýðuflokk-
urinn stjórninni á hvert reipi á öllum
sviðum og vildi eigna sér geislabauga
hennar samanlagða. En á kosninga-
nóttina sneri hann við blaðinu og nú var
mynduð stjórn með íhaldinu. Skipti það
engum togum að samstundis var fyrri
stjórn orðin óalandi og óferjandi.
Þessi aðferð á sér gamla sögu og
langa; frægt var það þegar 1]ármálaráð-
herra Framsóknarflokksins kvaðst í
kosningunum skilja við blómlegt bú.
Myndaði svo sjálfur ríkisstjórn og varð
aftur fjármálaráðherra og sagðist aldrei
hafa tekið við öðrum eins hryllingi. Þessi
aðferð var um áratugi kenndi við Fram-
sóknarflokkinn. Nú hefur hann fengið
skæðan keppinaut í hræsni og yfir-
drepsskap, sem því miður hefur svo að
lokum þau áhrif að enginn tekur mark á
stjórnmálamönnum. - S.
r /
8.SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 14. júní 1991