Þjóðviljinn - 14.06.1991, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 14.06.1991, Blaðsíða 16
Lækurinn okkar Hrafn Jónsson með pabba sínum og Vatnsberanum. Börnin á Furuborg komu sér upp spennandi verkefni, þegar >au fundu lítinn læk í nágrenninu. >au ákváðu að kynnast þessum æk nánar og fóru og heimsóttu hann í hverri viku og fylgdust með breytingunum sem hann tók á ein- um vetri. Á sýningunni birtu þau nokkur brot úr dagbókinni, sem þau héldu um ferðir sínar að lækn- um. Dagbókarbrotin koma hér á eftir: 30. okt. Fundum læk skammt frá Furuborg. Hann var frosinn og fullur af rusli, aðallega plastpokum. Við ákváðum að fara og hreinsa hann við fyrsta tækifæri og fylgjast með hon- um fram á sumar og sjá breytingarn- ar sem verða á honum og nánasta umhverfi. 9. nóv. Nú var komið þetta fína veður, hiti og hláka, og þá ákváðum við að drífa okkur af stað niður að læk og athuga hvort við næðum ekki ruslinu upp úr. Sum börnin voru á kafi við hreinsunina og skítug upp fyrir haus meðan önnur horfðu á og söfnuðu kjarki. 28. nóv. Það var snjór yfir lækn- um og hann hálffullur af krapa. Tveir duttu í lækinn. Það var gaman að fylgjast með háttalagi barnanna. Þau sem stóðu og horfðu á síðast voru nú niðursokkin í leik við lækinn. 7. des. Kalt í veðri (-7 gráður) en blanka logn og sólskin. Lækurinn var botnfrosinn, við sáum niður á botn - lágum á maganum og nutum fegurð- arinnar. Renndum okkur og duttum á rassinn. 18. jan. Mikill snjór yfir öllu, en hlýtt í veðri. Lækurinn var ekki fros- inn, heldur lágu snjór og krapi yfir honum. Það var mikið stokkið og stiklað á steinum. Margir komu blaut- ir í fæturna til baka. 23. apr. Vor í lofti og náttúran að vakna til lífsins. Andahjón voru við lækinn og vöktu áhuga barnanna. Þeim fannst að hreinsunin á læknum hefði orðið til þess að öndunum leist vel á að búa við hann. 10. maí Lékum okkur við lækinn. Tókum með okkur sýni úr honum og skoðuðum í víðsjánni í Furuborg. Þá komu í Ijós örsmáar lífverur í vatninu. Ruslið úr læknum. Myndir Kristinn Sæfinnur með sextán skó sækir vatn og ber inn mó I tuttugu og fimm ár bar hann vatn í hús og var ókrýndur konungur vatnsberastéttarinnar. Þegar Sæfinnur var ungur maður þótti hann bera af öðrum ungum mönnum vegna þess að hann var bæði fríður og föngulegur, hafði krafta í kögglum og var auk þess geðgóður, prúður og vel greindur. Líka var hann reglusamur og iðinn. ( æsku var Sæfinnur fátækur og ákvað snemma að temja sér sparnað og nýtni. Leið nú tíminn og Sæfinnur kynnt- ist ungri og fallegri stúlku, þeim leist vel hvoru á annað og ákváðu að gift- ast. Sæfinnur vann og sparaði til að þau gætu eignast heimili. En þá dundi ógæfan yfir. Kærastan sagðist ekki vilja giftast honum og yfirgaf hann. Upp frá því varð Sæfinnur ann- ar maður, hann settist að í útihúsi og þar sankaði hann að sér alls konar dóti og drasli sem hann staflaði upp með veggjum og tróð í bælið sitt þar sem hann svaf. Hann vann fyrir sér með því að bera vatn og vinna smáverk fyrir fólk. Alltaf var hann að spara og safna af wí að hann trúði því að elskan hans <æmi aftur einn daginn. Aldrei keypti lann sér neitt; át matarleifar sem honum voru gefnar eða hann hirti og gekk í ónýtum fötum sem aðrir höfðu fleygt. Vatn á sýningu Á þriðjudaginn var, var opnuð um- hverfissýning leikskólabarna í fjórum leikskólum Borgarspítalans. Leik- skólarnir heita Birkiborg, Greniborg, Furuborg og Skógarborg. En sýning- in þeirra er kölluð: Við og umhverfið. Börnin á leikskólunum hafa verið að undirbúa þessa sýningu í heilt ár.Þau stefndu að því að hafa hana tilbúna, þegar stóra norræna ráð- stefnan um umhverfismennt yrði haldin í Reykjavík. Sú ráðstefna stendur yfir einmitt núna og hún er kölluð: Miljö 91. Miljö er útlenska og þýðir: Umhverfi. Sýning leikskólabarnanna er í einu orði sagt frábær. Og norrænu gestirnir fara margir saman að skoða hana og dást að henni. Sjálf var kon- an á Hænsnaprikinu lengi að skoða hana, því það var svo margt fróölegt, sem bömin höfðu uppgötvað og full- orðnir vita kannski ekkert um. Eða eru búnir að gleyma. Vatn er lífið Börnin fjölluðu um sitt hvort efnið. Einn hópurinn fjallaði um verkið. Ann- ar Ijallaði um steina. Sá þriðji fjallaöi um fjöruna. Og sá fjórði fjallaði um vatnið. Ég ætla að segja ykkur dálítið frá vinnu barnanna með vatnið. VATNIÐ er nefnilega undirstaða alls lífs á jörðinni. Vissuð þið það? Þar sem ekki er vatn, þrífst ekki líf. Við sem erum vön að fá vatnið úr krana, hvenær sem okkur dettur í hug að skrúfa frá, erum alveg hætt að velta því fyrir okkur, hvílíka fyrirhöfn það myndi kosta að ná í vatn, ef ekki væri vatnsveita. Vatnveitan safnar vatni úr ótal lindum og dælir því út í kranana okkar, og við lítum á það sem sjálfsagðan hlut. En fyrir daga vatnsveitunnar urðu fátækir menn og konur að vinna fyrir sér með því að bera vatn í hús annarra. Það var bæði kuldalegt og erfitt starf. Á sýningunni eru sögur af svoleið- is fólki, og ég ætla að birta eina þeirra hér á síðunni. Strákur á sýningu Þegar konan á Hænsnaprikinu var að skoða líkan af Vatnsberanum á sýningunni, rakst hún á fjögurra ára strák, sem var að sýna pabba sínum og mömmu söguna um lækinn. Strákurinn heitir Hrafn Jónsson og ég spurði hann, hvort hann vildi segja mér, hvað hann hefði lært um vatnið. Hvaðan kemur vatnið, spurði ég: Hrafn: Úr lækjunum. Hænsnaprikið: Hvað voruð þið að gera við lækinn? Hrafn: Við tókum ruslið úr honum. Hænsnaprikið: Til hvers voruð þið að því? Hrafn: Til þess að vatnið verði hreint. Hp: Af hverju þarf vatnið að vera hreint? Nú var Hrafn orðinn dálítið feiminn við þessa ókunnugu og spurulu konu og hann grúfði sig niður í hálsakot á pabba sínum. Hp: Verður maður að hafa hreint vatn til að drekka? Hrafn: Já. Hp: En verður maður líka að hafa hreint vatn til að baða sig úr? Hrafn: Nei. Ég vil ekki baða mig úr læknum. Nei, Hrafn vildi ekki baða sig úr köldum læk. Hann baðar sig úr heitu laugavatni, og hann veit líka hvaðan það kemur. Það kemur frá Reykjum og Nesjavöllum. ^ 16.SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 14. júní 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.