Þjóðviljinn - 14.06.1991, Qupperneq 19

Þjóðviljinn - 14.06.1991, Qupperneq 19
Evrópumótið Kefst á morgun íslenska karlalandsliðið i Opnum flokki, sem tekur þátt í Evrópumótinu á Irlandi, er skipað eftirtöldum spilurum: Aðalsteinn Jörgensen, Jón Baldurson, Guð- laugur R. Jóhannsson, Öm Am- þórsson, Guðmundur Páll Amar- son og Þorlákur Jónsson. Fyrirliði án spilamennsku er Bjöm Ey- steinsson. Mótið hefst á morgun. Yfir 20 þjóðir taka þátt í því að þessu sinni og spila allir v/alla, 32 spila leiki. Raunhæft er að gera kröfur um að landinn nái að halda sér um miðjan hóp, en allt þar fyrir ofan verður að teljast mjög góður ár- angur. Nánar síðar. I síðasta þætti nefndi ég at- hyglisverða ftindargerð (óform- lega minnispunkta) sem ættuð er ffá Magnúsi Olafssyni, stjómar- manni í BSÍ. Við skulum líta á hvemig Magnús afgreiðir hlutina. 1. kafli: NBU-fréttir 1. Island skuldar gjöld sín fyrir árin 1988, 1989, 1990. Gjöldin vom 10 aurar sænskir per félagsmann á ári, þ.e. innan við 10 þús. ísl. alls. Mjög hallærislegt að skulda þessa aura. 2. Á ftmdinum var samþykkt að hækka gjaldið upp í SK 1,00 per félagsmann á ári. Gjalddagi fyrir þetta ár er 1. júní í allra síð- asta lagi. 3. Lausleg athugun gefur til kynna, að heildartekjur séu um 550.000 kr. á ári (íslenskar???) 4. Samþykkt á fundinum að nota þetta fjármagn á eftirfarandi hátt: 50% til þess sambands, sem heldur NM það árið; 25% til þess sambands sem heldur NM yngri spilara það árið; 25% til að halda úti Rottneros keppninni og þekja kostnað við NBU (Norðurlanda- sambandið). 5. Þetta þýðir, að BSÍ fær ca. ISK 550.000 til að halda NM og 275.000 til að halda NM yngri spilara. Aðildarfélög beðin um að safna þó ekki í fjarmögnun íyrir utan þessa aura... Fyrsta mótið sem verður styrkt á þennan hátt er NM yngri spilara i Finnlandi í sumar, ca. ISK 137.500. 6. í raun þýðir þessi sam- þykkt, að stærri þjóðimar era að aðstoða þær minni. Líklegt er, að stærri löndin vilji fá þessu breytt er ffam líða stundir. Neita öllu slíku... 7. Dagsetningar og tímasetn- ingar fýrir NM 1992 í Svíþjóð liggja fýrir: 28. júní-3. júlí í Um- ea. Hefðbundið form. 8. Komst yfir skemmtilega og vel unna skýrslu ffá danska sam- bandinu: Status of the Bridge in Denmark. Legg til að sambærileg skýrsla verði unnin fýrir ísland, bæði á íslensku og ensku. Sú síð- amefhda þyrfti að vera tilbúin fýrir EM... Danska formatinu má stela. Eg fékk leyfi... 9. Eystasaltsþjóðimar era að pressa á að komið verði á laggim- ar móti, sem er sambærilegt og NM. Ekki er mikil hrifhing i gangi, því kostnaðurinn er að fara úr böndum: EM, NM, EB (sem allir munu á endanum verða þátt- takendur í!). ísland er ekki inni í þessari mynd. Hins vegar er stuðningur við bridge í Eystra- saltslöndunum mjög vel séður! Bjóðum fulltrúum þaðan á bridgehátíð með aðstoð stjóm- málanna. 10. TiIIaga ffá norska sam- bandinu: a) Aldursmörk yngri spilara verði 20 ár. b) Öll kerfi leyfð hjá NM unglinga nema „Highly Artificial" kerfi. Beðið um ákvörðun stjómar BSI. Norð- mennimir segja, að þetta sé hið sama og gildi í EM umglinga. 11. Næsta NM á Islandi var sett árið 2002. Eg mótmælti og fékk árið 2000 í staðinn. Næsta NM unglinga var sett 1999. Ég mótmælti ekki. Færeyingamir era að bætast við og þeir taka 1997 og era ffændur okkar og bræður. Þar að auki gætum við staðið í því að halda Bermunda-keppnina 1997. 2. kafli: EBL-fréttir 12. Lichtenstein er komið í EBL. Þjóðunum fjölgar hratt og skriða er ffamundan eftir að jám- tjaldið gufaði upp. Vandamál fýr- ir sérfræðingana: EM verður að ljúka á 2 vikum og helst með ein- um frídegi. Lengri mót ekki vin- sæl. Varla mögulegt að allir spili við alla. Heftir BSI stefhu? Verð- um að móta hana. Ákvörðun lík- lega tekin á Irlandi. Norrænir fundir verða haldnir um málið þar, til að móta sameiginlega af- stöðu. 13. Norðurlöndin hafa alla burði til að verða eitt mikilvæg- asta aflið innan EBL - sé staðið saman. Vandamál: Phillip Morris er orðinn enn stærri sponsor en áður fýrir EBL. Þeir ráða nú enn meira en áður. Norðurlönd hafa staðið sig slaklega í að taka þátt í Phillip Morris-mótum. Ætlum við að hafa áhrif á Phillip Morris, verðum við að sýna lit. Ékkert ís- lenskt par tók þátt í EM í tví- menning, tvö dönsk, örfá norsk, engin sænsk eða fmnsk!!! Þátt- taka í „simulataneous" mótinu þeirra er ekki betri. EBL, gegnum stuðning frá PM, er að fara af stað með enn eitt EM mótið: Mixed pairs annað hvert ár (!). Legg til, að BSI geri eflirfarandi: Auglýsi vel PM mótið í nóvember n.k. og láti öll félög taka þátt í þvi af full- um þunga. Mótanefnd athugi einnig, að 3. helgi hvers mars- mánaðar er Phillip Morris mót (EM í tvímenning/ EM i blönduð- um flokki). 14. Með aðstoð Phillip Morris er EBL að byggja upp sjóð, sem má aldrei fara undir 1 miljón svissneskra ffanka. Komnir í um 900 þús. í dag. Ná miljóninni í sumar! Síðan á að nota aurana, sem era umfram milluna auk vaxtra í óljós verkefni. Eitthvað fýrir ísland? 15. Vandamál í EBL: Með- limum fjölgar ansi hægt. Norður- löndin í sömu jötu. Getum vakið veralega athygli með því að fara í fararbroddi bæði hvað varðar fjölda spilara per landsmann svo og fjölda nýrra spilara. Þá gleðst neffiilega hr. Phillip Morris. Ég greindi nokkram fundarmönnum ffá Bridgefélagi byijenda. Vakti mikla athygli. 16. Nokkrir nýir fulltrúar í framkvæmdanefnd EBL verða valdir á Irlandi. Jens Auken gefur kost á sér. Vill fá stuðning bærðra sinna! Góður maður, virðist mér, og ffamagjam. Ekki vitlaust að eiga hönk upp í bakið á honum. En eiga Islendingar að stefha að því að eignast fulltrúa í ffamtíð- inni? Um næstu aldamót? 17. Promotion vika nr. 2 verð- ur haldin í Amsterdam í byijun janúar (eins og síðast), en ekki í París, eins og áður hafði verið ákveðið. Isak Óm sat fundinn síð- ast. 3. kafli: WBF-fréttir 18. EBL hefur farið ffam á breytingar: Annað hvort eða hvorttveggja verði gert: Að dreg- ið verði úr valdi forsetans og/eða EBL fái meiri áhrif í fram- kvæmdanefhd WBF í gegnum fleiri fulltrúa. Ljóst er, að Evrópu- þjóðimar munu standa fast á þessu í ljósi fyrri reynslu. 19. Denis Howard hætti 15. april s.l. D'Orsi tekur við ffam á haustið 1992, en þá kemur Bobby Wolf til sögunnar ffam á haustið 1994. 20. OL 1992 átti að verða á Spáni. Gáfust upp. Bretamir lof- uðu Brighton, hafa nú bakkað. Nær öruggt, að mótið verði nú haldið aftur á Italíu í Salsomaggi- ore. Ágætur staður. 21. Næstu stórviðburðir líta þannig út: 1991: Bermuda í Japan 1992: OLáítalíu 1993: Bermuda í Chile 1994: New Mexico í USA 1995: Bermuda í Kina 22. Mikið rætt um Bermuda á íslandi.Ákveðið að leyfa D'Orsi að setja sig imi í jobbið áður en við færum að pesta hann. Halda mikið af fundum á Irlandi. Pressa mikið. Stuðningur Norðurlanda- þjóðanna við okkur er algjör og 100% heill. Þeir vilja þó enga action fýrr en á írlandi. Þar vilja þeir, í samvinnu við okkur, fara formlega fram á 1997 og biðja um 1995 til vara, sé ekki um breyt- ingu að ræða hjá WBF og Kína. I Bridge-Tidningen aprílheffi 1991 (Svíþjóð) rakst ég á eftirfar- andi spil: S: 862 H: Á742 T:G7 L: K854 S: ÁK5 H: KG863 T: 5 L: ÁD102 Sagnir hafa gengið: Suður Vestur Norður Austur 1 hj. pass 2 hj. pass 3 lauf pass 4hj. allirpass Utspil Vesturs er tígulás og síðan tígulkóngur. Austur sýnir ójafha tölu í litnum (3-5-7 spil). Hvað nú? Fyrsta þrautin, eftir að hafa trompað í öðrum slag, er trompí- ferðin. Svíinn í blaðinu minnir á „gullnu“ regluna: Svína með átta, toppa með níu. (Hann á við tromplengdina milli handa). Trúr þessari reglu (sem hann segir gefa 52% möguleika á móti 48% að svína, sem er nú ekki nákvæmt, samkvæmt alfræðibókinni ffá USA. Þar segir, að vanti 4 spil í litinn, sé skiptingin: 2-2 er 50%, 3-1 er 48% og 4-0 er2%). Nú, jæja, Svíinn okkar í sög- unni semsagt spilar lágu að hjart- ásnum, og síðan meira hjarta og stingur upp með kóng (með döpr- um árangri, því daman er þriðja fyrir framan kóng-gosa). Segjum BRIDGE Olafur Lárusson Föstudagur 14. júní 1991 NÝTT HELGARBLAÐ — SlÐA 19 að þú hafir spilað þetta eins. Þá ertu kominn með tapara í tígli, í hjarta, og spaðataparinn er ekkert á forum. Óg þá er það laufið. Hvemig verkar þú það? Bókin segir okkur (Svíinn er raunar sammála alfræðibókinni frá USA, sem kom mér á óvart) að að spila að tveimur háspilum, í þessu til- viki ás og dömu, gefl okkur um- talsvert betri möguleika. En gleymum ekki sögnum. Vestur á tæplega einspil í hjarta og einnig í laufi. Við leggjum niður laufaás, litið ffá báðum í vöminni og spil- um laufi að kóng. Austur trompar með hjartadömu og skilar spaða- drottningu til baka. Við tökum snarlega á spaðakóng, siðan spaðaás og meiri spaða. Austur er fastur inni og á ekkert nema tígul eftir, í tvöfalda eyðu. Hendur A/V vora: Vestur S: 943 H: 9 T: ÁK1062 L: G963 Austur S: DG107 H: D105 T: D9843 L: 7 t-4-4 SAMTÖK ÁHUGAFÓLKS UM ÁFENGISVANDAMÁUD Auglýsing um aðalfund Aðalfundur SÁÁ (Samtök áhugafólks um áfengisvanda- málið) verður haldinn 21. júní n.k. kl. 20.00, að Síðumúla 3-5, 108 Reykjavík. Dagskrá 1. Skýrsla stjórnar um framkvæmdir og starfsemi Sam- takanna á liðnu starfsári. 2. Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga til um- ræðu og samþykktar. 3. Lagabreytingar. 4. Kosning stjórnar, varastjórnar, endurskoðenda og vara endurskoðenda. 5. Ákvörðun um félagsgjöld. 6. Önnur mál. Stjórn SÁÁ Samtaka áhugafólks um áfengisvandamálið Holtaskóli í Keflavík Kennara vantar að Holtaskóla næsta skólaár. Kennslugreinar; Danska, íslenska, stærð- fræði, líffræði, tónmennt. Einnig vantar sér- kennara. Upplýsingar gefa skólastjóri í síma 92-15597 og yfirkennari í síma 92-15652. Blaðburður er heilsubót! Okkur vantar blaðbera í: Smáíbúðahverfi Hafnarfjörð Hafið samband við afgreiðslu í síma 681333 ÞJÓÐVIIJINN

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.