Þjóðviljinn - 19.06.1991, Side 2
Góóur matur
á góðu verói
hrínginn
í kríngum landió
v eitingastaóir víóa um landinnan Sambands
veitinga- og gistihúsa bjóöa ísumar sérstakan
matseöil, SumarréttiSVG, þarsem áhersla er lögó á
________EEMÐABLáÐ__
Kirkjubær:
Helgidómur
færeyskrar sögu
Enginn sem tíl Færeyja kemur má láta hjá líða að bregða sér tíl
Kirkjubæjar, þess fræga höfuðseturs færeyskrar sögu og menningar.
Reyndar eru ekki miklar líkur á því að útlendingar sem á land stíga
í Færeyjum eigi nokkurrar undankomu auðið með að sækja Kirkju-
bæ heim. Því er nefnilega líkt farið með frændur okkar og granna
Færeyinga og okkur að leggja sig í líma við að gefa gestum sinurn
nokkra innsýn í sögu lands og þjóðar. Kirkjubær er þá nærtækt sýn-
ishorn líkt og Þingvellir og Bessastaðir eru hjá okkur.
Á mjórri undirlendisræmunni
suðvestan til á Straumey skammt
sunnan Velbastaðar, neðan hömrum
girtrar hlíðar, hvílir Kirkjubær:_ Bik-
uð bæjarhúsin, hvítkölkuð Olafs-
kirkjan og ófullgerður múr Magnús-
ardómkirkjunnar stinga skemmtilega
í stúf við hafblámann og grasgrænk-
una á sjávarbakkanum.
Þar er sagan við
hvert fótmál
Kirkjubær hefur frá aldaöðli ver-
ið höfúðból og höfðingjasetur, og
hvergi í Færeyjum er að finna merk-
ari og fleiri fomminjar á einum og
sama stað: Það er eiginlega sama
hvar stungið er niður fæti, sagan er
þar við hvert fótmál. Enda heftir þar
margt andansmennið sprangað um
grandir. Munnmæli herma að þar
hafi til að mynda Sverrir Noregskon-
ungur Sigurðar-son fæðst og alist
upp.,
I Kirkjubæ höfðu Færeyjabisk-
upar aðsetur til ársins 1557. Reyndar
er ekki vitað fyrir víst hvenær stað-
urinn var gerður að biskupsstóli, en
ljóst er þó að það hefúr verið fljót-
lega eftir að Færeyjar vora gerðar að
sérstöku biskupsdæmi um eða rétt
eftir 1100.
Kunn era nöfn 33 biskupa sem
sátu Kirkjubæ. Þar af er sögufræg-
astur Erlendur, kanúki frá Björgvin,
sem sat staðinn frá 1269 og þar til
hann lést 1308. Hann er sagður hafa
verið „lýtalaus og dyggðum prýdd-
ur“ og að hafa lagt sig fram um að
rétta hlut kirkjunnar gagnvart verald-
legum höfðingjum og að auðga hana
að jarðeignum og öðra góssi.
Dómkirkjurústin, eða Múrinn í
Kirkjubæ, sem svo er nefndur, er til
vitnis um stórhug Erlendar. Reyndar
var smiði kirkjunnar aldrei lokið, en
eftir standa múrar kirkjuskipsins, í
hágotneskum stíl.
Niður undir flæðarmáli stendur
stílhrein bygging, sóknarkirkja
þeirra Kirkjubæjarmanna, helguð
Ólafi helga Noregskonungi. Ekki er
vitað fyrir víst hvenær kirkja þessi
var reist, en af öllum sólarmerkjum
að dæma telja menn hana vera
nokkra eldri heldur en Múrinn. Að
öllum stíl og gerð sver kirkjan sig í
ætt við þá kirkjugerð sem algengust
var á Norðurlöndum á síðari hluta
13. aldar. Að vísu hefúr Ólafskirkj-
unni verið breytt og hún endurgerð
Sumarréttamatseóillinn
gildir frá I. júní til 15. september.
Hádegisv. Kvöldverður
Forréttur eða súpa, kjöt- eóa fiskréttur, katfi. 750- 900 kr. 1000- 1500 kr.
Börn 0 til 5 ára: Ókeypis Börn 6 til 12 ára: 50% afsláttur
Veitingastaðir á Reykjavíkursvæðinu sem bjóða Sumarrétti SVG:
ASKUR, Suðurlandsbraut 4
ASKUR,, Suðurlandsbraut 14
CITY HÓTEL, Ránargötu 4a
FÓGETINN, Aðalstrætl 10
GAFL-INN, Dalshrauni 13, Hafnarfirði
GAUKUR Á STÖNG, Tryggvagötu 22
GULLNI HANINN, Laugavegi 178
HÓTEL BORG, Pósthússtræti 11
HÓTEL HOLIDAY INN, Sigtúni 38
HÓTEL LIND, Rauðarárstíg 18
HÓTEL LOFTLEIÐIR, Fíeykjavíkurflugvöllur
HÓTEL ÓÐINSVÉ, v/Óðinstorg
LAUGA-ÁS, HÓTEL ESJA, Suðurlandsbraut 2
LAUGA-ÁS, Laugarásvegi 1
NAUST, Vesturgötu 6-8
PIZZAHÚSIÐ, Grensásvegi 6-8
Veitingastaðir utan Reykjavíkur sem bjóða Sumarrétti SVG:
HÓTEL BORGARNES, EgUsgötu 14-16, Borgamesi
HREÐAVATNSSKÁLI, Borgarflrði
HÓTEL EDDA, ReykholU
HÓTEL BÚÐIR, SnæfeUsnesi
ARNARBÆR, Ámarstapa, SnæfeUsnesi
ÁSAKAFFI, Gmndargötu 59, Gmndarflrði
HÓTEL STYKKISHÓLMUR, Vatnsási, Stykkishólmi
HÓTEL EDDA, Laugum, Sællngsdal
HÓTEL FLÓKALUNDUR, Patreksflrði
HÓTEL ÍSAFJÖRÐUR, Silfurtorgi 1, ísaflrði
HÓTEL EDDA, Reykjanesi, ísafirði
STAÐARSKÁLI, Hrútaflrði, V-Húnavatnssýslu
HÓTEL EDDA, Reykjum, Hrútafirði
HÓTEL EDDA, Laugabakka, Hvammstanga
HÓTEL EDDA, HúnavöUum
HÓTEL ÁNING, Sæmundarhlíð, Sauðárkróki
HÓTEL VARMAHLÍÐ, Seyluhreppi, Skagaflrði
HÓTEL KEA, HafnarstræU 87-89, Akureyri
BAUTINN, HalharstræU 92, Akureyri
HÓTEL STEFANÍA, HaínarstræU 85, Akureyri
HÓTEL EDDA, HraftiagUi, Eyjaflrði
HÓTEL EDDA, Stóm Tjörnum
HÓTEL HÚSAVÍK, Ketilsbraut 22, Húsavík
HÓTEL REYNIHLIÐ, Mývatnssveit. Reykjahlíð
HÓTEL EDDA, Eiðum
HÓTEL VALASKJÁLF, v/Skógarströnd, EgUsstöðum
HÓTEL EDDA, HaUormsstað
HÓTEL EGILSBÚÐ, Egilsbraut 1. Neskaupsstað
HÓTEL BLÁFELL, Breiðdalsvík
HÓTEL FRAMTÍÐ, Vogalandi 4, Djúpavogi
HÓTEL HÖFN, Höfii, Homafirði
HÓTEL EDDA, Nesjaskóla, Höfn
HÓTEL EDDA, Kirkjubæjarklaustri
HÓTEL EDDA, Skógum
HÓTEL HVOLSVÖLLUR, HUðarvegi 5, HvolsveUi
HÓTEL EDDA, Húsmæðraskólanum, Laugarvatni
HÓTEL EDDA, Menntaskólanum, Laugarvatni
MUNINN, HÓTEL ÞÓRSHAMAR, Vestmannabraut 28, V-ey]um
SKÚTINN, Kirkjuvegi 21, Vestmannaeyjum
HÓTEL SELFOSS, Eyrarvegl 2, Selfossi
HÓTEL LJÓSBRÁ, Breiðamörk 25, Hveragerði
GLÓÐIN, Hafnargötu 62, Keflavik
ilSl
Múrinn, rústir dómkirkjunnar sem Erlendur biskup ætlaði sér að reisa guði til dýrðar. Munnmælasögur segja að skatt-
bændur hafi gert uppreisn og neitað að standa straum af þeim kostnaði sem var kirkjusmlðinni samfara.
ÞJOÐVILJINN
Síða 2