Þjóðviljinn - 02.07.1991, Page 4
Erlendar e® fmethr
Liðsmenn (júgóslavneska sambandshemum ( Slóveniu, t.h. blll sem skriðdreki hefur keyrt yfir. Króatar og Slóvenar hafa
takmarkaða trú á þv[ að sambandsherinn, sem er að mestu undir serbneskri stjórn, standi við vopnahléssamninginn.
Króatar og Slóvenar
vilja EB- eftirlit
með vopnahléi
Sendinefnd frá Evrópubandalagi hefur tekist að fá júgó-
slavnesku sambandsstjórnina og stjórn Slóveníu til að
gera með sér vopnahléssamning. Er eitt atriði í samningn-
um að stjórnir Króatíu og Slóveníu fresti um þrjá mánuði
að hrinda vikugömlum sjálfstæðisyfirlýsingum sínum í fram-
kvæmd.
Annað atriði er að stjóm Serb-
íu sættir sig við að Króatinn Stipe
Mesic taki við forsetaembætti
Júgóslavíu og þriðja að júgóslav-
neski herinn í Slóveníu hverfi til
stöðva sinna.
I EB-sendinefndinni, sem dreif
sig til Júgóslavíu á föstudag, eftir
að júgóslavneski herinn hafði ráð-
ist á Slóveníu, eru Hans van den
Broek, utanrikisráðherra Hollands,
Jacques Poos, utanríkisráðherra
Lúxembúrgar og Gianni de Mich-
elis, utanríkisráðherra Italíu. Mun
það ekki síst hafa verið íyrir fortöl-
ur þeirra, sem tókst að koma á
vopnahléi til bráðabirgða á föstu-
dagskvöld. Síðan tókst þeim á
fundi með júgóslavneska forsætis-
ráðinu, þar sem sitja fulltrúar allra
lýðvelda og sjálfstjórnarsvæða
landsins, að fá samþykktan áður-
nefndan vopnahléssamning. Stóðu
viðræður um hann yfir alla sunnu-
dagsnóttina.
Ætlast er til að júgóslavneska
sambandsstjómin og stjómir lýð-
veldanna noti þriggja mánaða
frestinn til að leysa deilumar sem
em að slíta hið rúmlega sjötuga
riki Júgóslavíu í sundur. En frétta-
skýrendur em ekki ýkja bjartsýnir
á að það gangi, enda tortryggni
mikil og hefur vitaskuld ekki úr
henni dregið við bardagana í síð-
ustu viku. Góðs viti þykir sumum
að Mesic er orðinn forseti sam-
bandslýðveldisins eftir að það
haföi verið forsetalaust í sex vikur,
en það ástand átti sinn þátt í að upp
úr sauð milli Króata og Slóvena
annarsvegar og sambandsstjómar-
innar og hers hennar hinsvegar. En
Mesic lýsti því yfir í gær að hann
stefndi sem áður að því Júgóslavía
yrði bandalag fullvalda lýðvelda
og það hefur Serbía hingað til ekki
tekið í mál.
Ljóst er að Króatar og Slóvenar
tortryggja mjög sambandsherinn,
enda hershöföingjar flestir Serbar.
Gefa ráðamenn Króatíu og Slóven-
íu í skyn að þeir telji engan veginn
víst að herinn hlýðnist skipunum
sambandsstjómariænnar og vilja
að erlendir eftirlitsmenn, og þá
helst frá EB, fylgist með því að
farið_ sé að vopnahlésskilmálunum.
Ýmsar fréttir benda til þess að
ekki megi mikið út af bera til að
upp úr sjóði á ný. Sjónvarpið í
Belgrad sagði að í gærmorgun
hefði verið háður harður bardagi í
rúma klukkustund í bænum Boro-
vo Selo, í Króatíu skammt frá
Iandamærum Vojvódínu. Heföu þar
ást við króatískir lögreglumenn og
vopnaðir borgarar annarsvegar og
hinsvegar að líkindum bæjarbúar
og júgóslavneski herinn. Nánari
fréttir af þessu vom ekki fyrir
hendi í gær. Ibuar í Borovo Selo
em serbneskir og í maí vom drepn-
ir í viðureign milli þeirra og króat-
ískrar lögreglu 16 menn, flestir
þeirra lögreglumenn.
„Sawyer er forseti
þar sem hann er“
eir Amos Sawyer og
Charles Taylor, sem báðir
segjast vera forsetar Vest-
ur-Afríkuríkisins Líberíu,
tókust í hendur og föðmuðust af
miklum kærleik í gær í Yamo-
ussoukro á Fílabeinsströnd.
Skyldi það tákna að borgara-
stríðinu í Líberíu, sem staðið
hefur í 18 mánuði með nokkrum
hvfldum, sé nú loksins iokið.
Svo er að sjá að ráðamenn ann-
arra Vestur-Afríkuríkja, einkum
þeir Ibrahim Babangida, forseti
Nígeríu og Felix Houphouet-Bo-
igny, forseti Fílabeinsstrandar, hafi
lagt fast að þeim Sawyer og Taylor
að sættast í bráðina að minnsta
kosti. Boðuðu þeir til fundar í
Yamoussoukro þar sem nú hefur
tekist að beija saman friðarsamn-
ing. Líberíustríðið er löngu orðið
vandræðamál fyrir þennan heims-
hluta sem heild, þar eð ríki þar eru
klofin í málinu. Búrkína Faso og
Fílabeinsströnd styðja Taylor en
hin flest, þar á meðal Nígería, það
voldugasta þeirra, Sawyer. Þar að
auki er stríð þetta öðrum þræði á
milli þjóðflokka og gæti því hafl
sprengingakennd áhrif á ríkjaskip-
an og landamæri í álfunni ef það
breiddist út.
Taylor, sem hefur mestan hluta
Líberíu á valdi sínu, hefur þegar
herjað inn í Sierra Leone, til að
valda andstæðingum sínum vand-
ræðum (Sierra Leone er Nígeríu-
megin í deilunni) en engu síður til
að ræna mat handa stríðsmönnum
sínum. Líbería er í sliku kaldakoli
eflir ófriðinn að fullerfitt er fyrir
lið Taylors að afla sér þar matar.
Sawyer hefur höfuðborgina
Monróvíu á valdi sínu og er þar
her frá Nígeríu og fleiri ríkjum
honum til vemdar.
„Eg er forseti stjómar hins
þjóðlega og föðurlandssinnaða
cndurreisnarþings," sagði Taylor í
gær. „Herra Sawyer er forseti þar
sem hann er.“
Skilmálar í friðarsamningnum
em óljósir og telja sumir stjómar-
erindrekar ólíklegt að hann verði
til langframa.
ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 2. júlí 1991
Kommúnistaflokkur
í klofningshættu
Igrein í Pravda, helsta blaði
sovéska kommúnistaflokks-
ins, segir að í flokknum geisi
nú harðar deilur milli íhalds-
manna og frjálslyndra. Séu horf-
ur á að þetta vatdi alvarlegum
klofningi í flokknum.
Undanfarið hafa sést merki
þess að Gorbatsjov forseti sé að
færa sig nær þeim frjálslyndu og
hefur hann gagnrýnt íhaldsmenn
harðlega. Og ftjálslyndir eru famir
að hvetja hann til að ganga úr
flokknum. Sumir þeirra frjáls-
lyndu, þeirra á meðal Eduard She-
vardnadze fyrrum utanríkisráð-
herra, vilja að stofnaður verði nýr
flokkur er nái yfir Sovétríkin öll og
standi þannig kommúnistaflokkn-
um jafnfætis. Eigi sá flokkur að
fylkja sér um umbótastefnu Gor-
batsjovs.
Sonarsonur
Sjang Kaí'séks látinn
Látinn er í Taipei, höfuðborg
Taívan, Chiang Hsiao-wu,
fyrrum ambassador Taívan
í Japan, 46 ára að aldri. Hann
var áhrifamikill um utanríkis-
mál eyríkisins.
Chiang var sonarsonur Chiang
Kai- sheks (Sjang Kaí-séks) yfir-
hershöföingja, leiðtoga kínverska
Þjóðemissinnaflokksins og æðsta
valdhafa I Kina í fjölda ára á fyrri-
hluta aldarinnar. Móðir Chiangs
Hsiao-wu var rússnesk. Faðir hans,
Chiang Ching-kuo, nam í Sovét-
ríkjunum eins og fleiri háttsettir
menn í Þjóðemissinnafiokknum,
þar eð flokkurinn var um hríð í
vinfengi við Sovétríkin, og kvænt-
ist þar innlendri konu. Chiang
Ching-kuo, sem tók við ríki af föð-
ur sínum á Taívan, lést 1988. Áður
haföi verið ráð fýrir því gert að
Chiang Hsiao-wu tæki við af hon-
um, en lýðræði var þá farið að auk-
ast á eynni og varð það til þess að
binda endi á ættarveldi Chiang-
fjölskyldunnar þar. Sú fjölskylda er
búin er að vera í fomstu í stjóm-
málum Kína og Taívans í um sjö
áratugi.
Eiginkona Sjang Kaí-séks, sem
í áratugi var mikið í heimsfréttun-
um ekki síður en hann, er enn á lífi
og býr í Taipei en heflir orðið lítil
völd, enda háöldmð orðin.
Árásamefnd
lögð niður
Á Taívan (Formósu) hefur ver-
ið lögð niður nefnd, sem í orði
kveðnu hefur starfað síðan 1954 og
haft sem verkefni ráðstafanir tii að
leggja Kína undir stjómina á Ta-
ívan. Sú stjóm telur sig enn vera
hina einu og löglegu fyrir Kina
allt, en segir að héðan i ffá skuli
leitað friðsamlegra leiða til að
sameina Kína og Taívan. Stjómir
kínverskra þjóðemissinna á Taívan
og kommúnista í Peking em sam-
mála um að Taívan sé óaðskiljan-
legur hluti af Kína og eigi því ein
og sama ríkisstjómin að ríkja yfir
báðum. Undanfarið hefur sam-
komulag stjómanna tveggja mjög
batnað og er sú ráðstöfun Taívans-
stjómar að leggja niður áminnsta
nefnd merki þess.
Kohl tekur svari
Króata og
Helmut Kohl, sambands-
kanslari Þýskalands, sagði
í gær að Þýskaland myndi
stöðva alla efnahagshjálp frá sér
til Júgóslavíu ef haldið yrði
áfram að beita ofbeldi til að
leysa deilur þar. Þýskaland er
eitt af helstu viðskiptalöndum
Júgóslavíu.
„Það gengur ekki að halda
landi sameinuðu með skriðdrekum
og ofbeldi,“ sagði kanslarinn og
kvað þýsku stjómina telja að þjóðir
Slóvena
Júgóslavíu heföu rétt til að ákveða
ffamtíð sina sjálfar. Ljóst er að
með þessu lætur Kohl í ljós stuðn-
ing við Króata og Slóvena í sjálf-
stæðisbaráttu þeirra. Sú barátta
nýtur mikillar samúðar í Þýska-
landi, ekki síst meðal kristilegra
demókrata, flokksmanna Kohls,
sem sumir saka stjóm hans um að
draga taum sambandsstjómarinnar
í Belgrad og vilja að Þýskaland
stefni að því að viðurkenna Króa-
tíu og Slóveníu sem sjálfstæð riki.
Annar Kínamúr
á döfinni
Kommúnistaflokkur Kína
hét því gær, af tilefni sjö-
tugsafmælis síns, að „hlaða
Miklamúr úr stáli“ í varnar-
skyni gegn kenningum um „frið-
samlega þróun“. Mun þar eink-
um átt við vestræn áhrif.
Á sömu lund var ræða Jiang
Zemins, aðalritara fiokksins, í til-
efni dagsins. Haföi hann fátt gott
um vestrænar hugmyndir og gildis-
mat að segja, hvatti fiokksmenn,
sem em um 50 miljónir, til að
„standa vörð um byltinguna“.
Hann viðurkenndi að kommúnism-
inn hefði orðið fyrir áföllum
nokkrum í heiminum síðustu ár, en
kvaðst sannfærður um að hann
næði sér á skrið á ný.
Miklimúr eða Kínamúrinn
mikli var sem kunnugt er í fymd-
inni hlaðinn á norðurmörkum Kína
því til vamar gegn þjóðfiokkum á
þeim svæðum sem nú heita Mong-
ólía og Mansjúría, en varð til lítils
sem vamarvirki.
Síða 4