Þjóðviljinn - 02.07.1991, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 02.07.1991, Blaðsíða 6
Frétttr Torben Lind, stýrimaður: Nei. Mér leiðist frekar í bíó. Elfa Guðnadóttir, sjúkraliðanemi: Já. Ég fór síðast á mynd- ina Ralph konungur og hún var svona allt í lagi. Ég vil frekar fara á góðar myndir. Lára Gunnarsdóttir, húsmóðir Nei, ég held að það sé heilt ár síðan ég fór síð- ast í bíó. Eria Ingvarsdóttir, 9 ára: Einstaka sinnum. Ásmundur Ríkharðs- son, ráðgjafi: Nei, ég fer ekki oft. Ég bý á Egilsstöðum og þar er ekkert bíóhús. Nokkrir af þeim frábæru gæðingum sem kepptu á Fjórðungsmóti Sunnlenskra hestamanna. Kynbótahrossin hápunktur mótsins Fjórðungsmóti sunnlenskra hestamanna á Rangárvöii- um lauk í blíðskaparveðri á sunnudag. Um fjögur þúsund manns sóttu mótið og þótti það í aUa staði vel heppnað. Hápunktur mótsins var að flestra mati sýning kynbótahrossa, einkum þó hryssumar. Flipa firá Nýjabæ fékk hæstu einkunn 8.27. í öðru sæti var Venus firá Skarði með 8,26 og í þriðja sæti Sprengja frá Ytra Vakkholti með 8,21. Af stóðhestum fékk Toppur ffá Eyjólfsstöðum hæstu einkunn 8,44. í gæðingakeppninni féllu 16 verðlaun til hestamannafélagsins Fáks, 8 til Harðar, 5 til Geysis, 2 til Sleipnis og ein til Smára. í A- flokki sigraði Gýmir sem Trausti Þ. Guðmundsson sat. í B-flokki sigraði Pjakkur ffá Herði í _Mos- fellsbæ en knapi var Ragnar Ólafs- son. Sigfus B. Sigfusson tíu ára, ffá Vestra Geldingaholti í Gnúpveija- hreppi sigraði i bamaflokki á Skenk. Maríanna Gunnarsdóttir var eini þátttakandinn sem fékk yfir 9 í gæðingakeppninni, en hún sat Kol- skegg í unglingaflokki og sigmðu þau með 9,03,. Ragnar Ólafsson og Pjakkur sigmðu töltkeppnina. Kappreiðar em alltaf vinsælar á svona mótum. Hólmi ffá Kvía- bekk sigraði í 150 metra skeiði, Leistur frá Keldudal í 250 metra skeiði. Háfeti sigraði í 350 metra stökki Lótus ffá Götu sigraði í 800 metra stökki og Daði ffá Syðra Skörðugili í 300 metra brokki. Ahorfendur fylgdust spenntir með þvf sem fram för á vellinum. Mjög gott veður var flesta var veðrið einsog best verður á mótsdagana, örlitla rigningu gerði kosið. Öll aðstaða á mótsstað var reyndar á laugardeginum en annars til fyrirmyndar. -Sáf Sigurbjörn Bárðarson og Kraki á fljúgandi tölti, en þeir urðu I öðru sæti I tölt- keppninni. Ragnar Ólafsson á Pjakk eftir verölaunaafhendinguna. Myndir G.T.K. ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 2. júlí 1991 Síða 6

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.