Þjóðviljinn - 07.08.1991, Blaðsíða 3
I BAG
7. ágúst
er miðvikudagur.
219. dagur ársins.
Sólarupprás í Reykjavík kl.
4.51 - sólariag kl. 22.13.
Þjóðviljinn
fyrir 50 árum
Nýtt Dagblað: Neytendur I
Bretlandi verða að greiða tólf-
falt verð fyrir fiskinn móti því
er (slendingar fá fyrir hann.
Hér er hann seldur á 35 aura
kg. við skipshlið. ( búðum í
Englandi kostar hann kr. 4,30.
fyrir 25 árum
Lærisveinar dátasjónvarpsins
næmir á fyrirmyndir: Útvarps-
stjórinn brenndur á þjóðhátíð-
inni í Eyjum. Myndarlegt fé-
lagsheimili er nú í byggingu
við Lýsuhól í Staðarsveit.
Stríðsglæpir Bandaríkja-
manna í Suður- Vietnam:
Múgmorð úr lofti. Konur og
börn myrt. í fótspor þýzku
nasistanna.
Sá spaki
Þeir menn sem trúa í raun og
veru á sjálfa sig eru allir á
Kleppi.
(Chesterton)
MÍN
SKOÐIJM
Mtn skoðun á útkomunni
úr samningum um evrópskt
efnahagssvæði.
Bjami Einarsson,
aðstoðarforstjóri
Byggðastofnunar
Ég hef haldið því fram að ríkis-
stjómin ætti að hætta þessum
samningum eins og skot. og það
er ekki hægt annað en v. að
þetta séu endalokin á þeim, en
ég óttast að svo sé ekki. Sú
hætta er fyrir hendi að byijað
verði á þessu aftur. Þess vegna
verðum við sem erum andsnúin
því að þessi samningur verði
gerður að halda áfram af fullum
krafti. Við verðum að nota okk-
ur það svigrúm sem við höfum
fengið til að starfa að okkar
málefnum.
Við viljum fá tvíhliða samning
við Evrópubandalagið. Og við
viljum jafngóð viðskipti við
önnur stórveldi og þjóðir heims-
ins.
„Meðan er talið nauðsynlegt“
Fyrir nokkru var upprenn-
andi stjórnmálamaður, að
vísu krati, í viðtalinu hjá
Dagblaðinu og m.a. spurður um
afstöðuna til bandaríska hersins
hér á landi. Hann svaraði því til
að hann væri hlynntur aðildinni
að NATO og bætti svo við: „...og
meðan er talið nauðsynlegt að
hafa þessa eftirlitsstöð hér þá
verður svo að vera.“
Þessi fáu orð gefa tilefni til
ýmiss konar hugleiðinga, t.d. um
hlutverk NATO eða eðli herstövar-
innar og vígbúnaðaruppbyggingu
Bandaríkjamanna hér á landi. Það
er óneitanlega að vissu marki kost-
ur íyrir stjómmálamenn að geta
sett kíkirinn íýrir blinda augað
„Með öðrum orðum,
meðan Bandaríkja-
menn vilja hafa hér
herstöð þá verður svo
að vera og íslending-
ar eiga að sætta sig
við það þegjandi og
hljóðalaust“
þegar þeir horfa suður á völl til að
sjá ekki hvað þar fer fram en að
því skal ekki hugað að sinni. Öm-
urlegast við afstöðu þessa manns
er uppgjöfm og örlagahyggjan sem
svarið lýsir.
„Meðan er talið nauðsynlegt..."
Hver telur að það sé nauðsynlegt
að hafa hér bandaríska herstöð?
Ekki þessi upprennandi stjórn-
málamaður. Hann gefur í skyn að
hann hafi í sjálfu sér enga afstöðu
til hersins, sé sama þótt hann sé
hér meðan hann gerir ekkert stór-
vægilegra af sér en rusla svolítið út
náttúruna. Hann trúir bara því sem
honum er sagt. Og hver segir hon-
um hvað hann á að hugsa um her-
inn? Það mætti ætla að það sé for-
ysta Alþýðuflokksins. Ekki eru þó
allir kratar það miklar beyglur að
kokgleypa allt sem þeim er skipað,
margir Alþýðuflokksmenn eru her-
stöðvaandstæðingar, vinna sam-
kvæmt því og rökstyðja málflutn-
ing sinn.
Raunar eru það fyrst og fremst
Bandaríkjamenn sjálfir sem segja
nauðsynlegt að hafa hér herstöð og
þeir vinna markvisst að því að inn-
ræta landsmönnum þá skoðun.
Herinn reynir að draga upp þá
mynd af sér að þeir séu fyrst og
frcmst björgunarsveit með þyrlu og
svo er bömum boðið í heimsóknir,
keppt við Islendinga í íþróttum,
herhljómsveitir látnar spila í
Kringlunni o.s.frv. Þá hafa Banda-
ríkjamenn hamrað á ógninni frá
Sovétríkjunum i fimmtíu ár og nú,
þegar þau eru í hálfgerðri upp-
lausn, segja þeir að hættan sé sé
síst minni, þar geti brotist til valda
illviljáðir óþokkar eða styrjöld haf-
•ist íyrir slysni, segir Kaninn og
varla búið að jarða fómarlömb
þeirra í Panama og Irak. En, eins
og svar stjómmálamannsins efni-
lega sýnir, þá hefur þeim tekist að
læða því inn hjá allt of mörgum að
það sé óeðlilegt að hafa hér á landi
til langframa erlent herlið, því eins
og hann bætti við í algeiTÍ uppgjöf
„...þá verður svo að vera.“ Með
öðmm orðum, meðan Bandaríkja-
menn vilja hafa hér herstöð þá
verður svo að vera og Islendingar
eiga að sætta sig við það þegjandi
og hljóðalaust.
Það er mikil íurða að nokkur
skuli sætta sig við að hafa í landi
sínu mörg þúsund manna erlendan
her. Þjóð er ekki fullvalda nema
hún ráði öllu landi sínu. Sumar
þjóðir em beittar ofbeldi til að taka
á móti herstöðvum en aðrar ginntar
með gulli og er hvomgt hlutskiptið
gott. Verst er þó þegar hersetan
hefur sljóvgað menn svo að þeir
gefast upp og fara að hugsa þannig
að meðan hersetan sé talin nauð-
synleg verði svo að vera.
Jón Torfason er
íslenskufræðingur
Það er mikil furða að
nokkur skuli sætta sig
við að hafa í landi
sínu mörg þúsund
manna erlendan her.
Þjóð er ekki fullvalda
nema hún ráði öllu
landi sínu.
Síða 3
ÞJÓÐVILJINN Mlðvikudagur 7. ágúst 1991