Þjóðviljinn - 07.08.1991, Síða 6
Fréttir
Námskeiðin hafa verið mjög vinsæl og ættu allir að finna eitthvað við sitt
hæfi þar sem boöið er upp á mjög fjölbreytta dagskrá.
m
Ætlar þú í berja-
mó í sumar?
Jóhanna Þórðardóttir,
húsmóðir:
Já, það getur vel verið að
ég fari í berjamó. Það er
líka svo stutt í hraunið frá
heimili mínu í Garðabæn-
um.
Leifur Óskarsson,
nemi:
Já, alveg hiklaust. Ég fer
oft í berjamó, og ætli ég
fari ekki eitthvað norður í
ár.
Ingólfur Sigurðsson,
nemi:
Nei, ég hef ekki tíma til
þess. En móðir mín fer ör-
ugglega.
Hildur Gunnarsdóttir,
sjúkraliði:
Ja, ég er nú ekki búin að
ákveða það. Kannski að ég
skreppi í Heiðmörkina.
Marteinn Jónsson,
ræstitæknir:
Nei, ég fer voða sjaldan í
berjamó. Ég kemst ekki
þótt ég hafi áhuga.
íðastliðin ár hafa verið
haldin námskeið fyrir fatl-
aða í samráði við Lands-
samtökin Þroskahjálp og
Öryrkjabandalag íslands. Þetta
starf er nú í fullum gangi í formi
Útilífsskóla, sem rekinn er af
skátafélögunum Dalbúum og
Skjöldungum úr Laugarnes- og
Vogahverfi, og reiðnámskeið sem
haldin eru að Reykjalundi.
Markmið skólans er að þroska
böm og unglinga til að verða sjálf-
stæðir, virkir og ábyrgir einstak-
lingar.
A dagskrá eru þroskandi við-
fangsefni af ýmsu tagi þar sem
áherslan er fyrst og ffemst lögð á
útilíf.
Starfsemi skólans hefur fram
að þessu verið tvíþætt. Annars
vegar hefur verið um að ræða
námskeið fyrir ófatlaða einstak-
linga og hins vegar sérstök nám-
skeið fyrir fatlaða. I sumar var hins
vegar valinn sá kostur að sameina
námskeiðin svo fatlaðir og ófatlað-
ir fengju tækifæri til að starfa sam-
an.
Lengd hvers námskeiðs er tvær
vikur. Dagskráin hefst kl. 10.00 á
öllum virkum dögum og stendur til
kl. 16.00.
Aðalbækislöð skólans er í
skátaheimili Skjöldunga að Sól-
heimum 21a og þar er hist á hverj-
um degi. Síðustu dögum nám-
skeiðsins er eytt í útilegu.
1 sumar hafa verið haldin þrjú
námskeið og voru þátttakendur
u.þ.b. 50 talsins, þar af 10 fatlaðir.
Dagskráin á násmskeiðunum er
mjög fjölbreytt og ættu allir að
geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Til dæmis er fyrsta deginum eytt í
að kynnast innbyrðis og er bömun-
um skipt í fjóra flokka. Bömin
finna svo nafn á flokkinn sinn. I
hveijum flokki em 1-2 flokksfor-
ingjar. Eflir hádegi em litlu Ól-
ympiuleíkamír og éf þar tnargt til
gamans gert t.d. kartöfluhlaup,
langstökk, pokahlaup, líflínukast,
vatnsblöðrukeppni, dósakast o.fl.
Annar dagurinn er Indiánadag-
ur. Þá em búnar til gifsgrímur og
fjaðrabönd og mála sig þá allir í
framan að sið Indíána. Einnig em
búnir til bogar og örvar og farið í
smákeppni með þeim. Eftir hádegi
er svo kveiktur varðeldur og grill-
uð pinnabrauð á eldi.
Á þriðja degi er farið í fjömna
í Krýsuvík. Byijað er á að fara í
gönguferð og leyst ýmis verkefni á
leiðinni. Eftir hádegishlé er farið í
ýmsa leiki, sjórinn og fjaran skoð-
uð, sullað í sjónum, auk þess sem
haldin er grillveisla þar sem grill-
aðir em bananar með súkkulaði.
Fyrirætlað er að halda næsta
námskeið 6.-16. ágúst. Enn sem
komið er em örfá sæti laus og em
fatlaðir sérstaklega velkomnir.
Þeir sem hafa áhuga hafi sam-
band við skátaheimili Skjöldunga í
síma 686802 alla virka daga milli
9 og 17.
Reiðnámskeiðin verða haldin
við Reykjalund í Mosfellsbæ fyrir
böm og unglinga sem þufa á sér-
stakri aðstoð að halda. Farið er í
reiðtúra, auk þess sem undirstöðu-
atriði varðandi reiðmennsku og
meðferð hesta em kennd. Miðað er
við að hvert námskeið standi yfír í
fimm daga. Fjöldi þátttakenda og
lengd námskeiðs á daginn fer eftir
getu einstaklinga, en er þó á bilinu
1- 3 klukkustundir. Verð á nám-
skeiðið er 6.000 kr. Nánari upplýs-
ingar em í síma 620223.
Markmið Útilífsskólans er að þroska börn og ungt fólk til að verða sjálf-
stæðir, virkir og ábyrgir einstaklingar.
-KMH
Námskeið fyrir fatlaða og ófatlaöa eru sameinuð þannig að allir fái tækifæri til að starfa saman.
ÞJÓpvlLJlNN Miðvikudagur.Z.^ágúst 1991
Síða6,,