Þjóðviljinn - 16.08.1991, Qupperneq 21
Styttist í heimsmeistaramótið
Það líður óðum, og færist
nær sá timi þegar stærsta stund
íslenskra bridgespilara rennur
upp. Þátttaka í sjálfu heims-
meistaramóti landsliða. Eins og
kunngt er af fréttum, verður
mótið spilað að þessu sinni í
Yokohama í Japan, dagana 29.
september til 11. október.
Búið er að draga í þá 2 riðla,
sem þátttökuþjóðum er skipt í.
Þeir eru: (Austur-riðill) Brasilía
(nv. HM), USA 2, Svíþjóð, Pól-
land, Pakistan, Surinam, Hong
Kong og Kanada. (Vestur-riðijl)
USA 1, Argentína, Bretland, ís-
land, Egyptaland, Venezuela, Jap-
an og Astralía.
Fjögur lið úr hvorum riðli
komast í fjórðungsúrslit, eftir að
þjóðimar hafa spilað tvöfalda
umferð innbyrðis með 20 spil í
leik. í íjórðungsúrslitum mætast
svo lið nr. 1 í Austur-riðli gegn nr.
4 í Vestur-riðli o.s.frv. Þar verða
spiluð 96 spil milli þjóða, mð út-
sláttarfyrirkomulagi. Eftir standa
þá fjórar þjóðir, sem mætast í
undanúrslitum. Þar verða einnig
spiluð 96 spil milli þjóða, en í
sjálfúm úrslitaleiknum verða spil-
uð 160 spil milli þjóða.
Ef við lítum á skipan riðlanna,
þá verðum við að viðurkenna, að
drátturinn lítur óneitanlega vel út
fyrir okkur. ísland á raunhæfa
möguleika á að ná einu af fjórum
Spilastaður heimsmeistaramóts-
ins f Japan, Yokohoma alþjóðlega
hótelið.
efstu sætunum. Brasilía og USA
2, auk Svía og Pólverja (Pakistan
gæti gert strik í reikningin) ættu
að klóra sig í gegn í hinum riðlin-
um. í okkar riðli ættu einungis
USA 1 og Bretar að vera öruggir
með sæti í fjórðungsúrslitum.
Slagurinn um hin tvö sætin ætti
því að standa á milli okkar, Arg-
entínu, og Astrala, en ekki má
gleyma Egyptum, sem gætu gert
strik í reikninginn. Þeir stóðu sig
með mestu ágætum á síðasta
heimsmeistaramóti.
Annars er erfitt að meta getu
þjóða eins og Japana, Surinam og
Venezuaela, vegna fjarlægðar
þeirra í alþjóðlegum bridge.
Þeirra íþrótt getur verið eins vel
þróuð og þeirra sem telja sig best-
ir, en líkt og með okkur Islend-
inga, stendur það þeim fyrir þrif-
um, hve fá tækifæri þeirra bestu
menn öðlast í alþjóðlegri keppni.
Spilamennska í heimsmeist-
aramótinu hefst mánudaginn 30.
september, og lýkur spila-
mennsku í riðlum föstudaginn 4.
október. Þá taka við fjórðungsúr-
slit, sem hefjast strax laugardag-
inn 5. október. Samhliða spila-
mennsku í úrslitum, fyrir þær
þjóðir sem „detta“ úr leik, hefst
Yokohama Bikarmót laugardag-
inn 5. október, sem lýkur þriðju-
daginn 8. október. Undanúrslit
hefjast svo mánudaginn 7. októ-
ber og lýkur daginn eflir. Urslit
hefjast svo miðvikudaginn 9.
október og lýkur svo fostudaginn
11. október. Sem sagt, tveggja
vikna erfið vinna fyrir þá sem ná
alla leið.
Það segir mér svo hugur um,
varðandi þetta heimsmeistaramót,
að andstæðingar okkar munu
koma fram við okkur sem fall-
byssufóður. Að þeirra mati eru
möguleikar okkar nánast engir og
því alger eyðsla á tíma og fjár-
munum, að þetta litla eyland í
norðri skuli hafa fyrir því að
senda lið manna um hálfan hnött-
inn, til þess eins að „dást“ að
þeim hinum, sem tvímælalaust
standa okkur mun framar (að eig-
in áliti) í íþróttinni. Einnig munu
starfsmenn mótsins vera okkur
fjandsamlegir, sem er viðtekin
venja við „minor“ sem okkur.
Með allt þetta í huga, og
meira til (við erum jú nánast
óskrifað blað í bridgesögunni) tel
ég að möguleikar okkar eflist til
muna.
Ég hef trú á að liðið okkar,
undir öruggri stjóm Bjöms Ey-
steinssonar fyrirliða, muni leysa
þetta verkefni með sóma. 1 Japan
bíður einnig annað verkefni, að
tryggja að heimsmeistaramótið
1997 verði spilað hér á landi.
Leiðin til Japans er jú álíka löng
og leiðin frá Japan til íslands.
Ekki satt?
Hjá mörgum toppspilurum
gildir sú regla, að segja á spilin
sín. Því meira, því betra. Banda-
ríkjamennimir heimsfrægu,
Meckstroth og Rodwell em dæmi
um slíka spilara. Félagar þeirra,
Kit Woolsey og Ed Maifield (eða
Robinson, hinn félagi Woolsey)
em að sama marki brenndir. Lít-
um á dæmi ffá þeim síðamefndu:
KDG93
♦: ÁG106
♦: 873
•!•* 6
4: 108752 4:-----
♦: 8742 ♦; D953
♦ : 6 ♦; ÁKD92
*: K104 *: D872
4: Á64
♦: K
♦: G1054
*: ÁG953
N/S á hættu. Austur gefur.
Vestur Norður Austur Suður
Woolsey Manifield
1 tígull Pass
1 spaði Pass 2 lauf Pass
Pass 2 spaðar 3 lauf? 4 spaðar
Dobl Pass Pass Pass
Suður nennti ekki að eltast við
sektina í spilinu, vegna stöðunnar
(N/S á hættu). Nú, Manifield tók
3 efstu í tígli og Woolsey í Vestur
henti 2 hjörtum. Þá kom lykil-
vömin, fjórði tígullinn. Gosi, og
enn henti Woolsey hjarta. Snjöll
vöm og raunar það eina sem ban-
ar spilinu. Ath.
Það þarf víst ekki að taka
fram að Woolsey telur sig albesta
spilara síns heimalands. A stund-
um, hefur hann rétt fyrir sér. Því
verður ekki neitað, hvað sem
Lawrence segir um það..
NÝTT HELGARBLAÐ — S(ÐA 21
BRIDGE
Olafur
Lárusson
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Byggingardeild-
ar borgarverkfræðings, óskar eftir tilboðum í jarðvinnu
vegna fyrirhugaðrar frjálsíþróttaaðstöðu í Laugardal.
Helstu magntölur eru:
Gröftur 8.500 rúmm
Fylling 12.100 rúmm
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi
3, Reykjavík, gegn kr. 10.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 5. sept-
ember 1991, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frlkirkjuvegi 3 - Sími 25800
Starfsleyfistillögur
fyrir álver Atlantsáls
á Keilisnesi
í samræmi við ákvæði 8. kafla í mengunarvarna-
reglugerð nr. 389/1990, liggja frammi á skrifstofu
Vatnsleysustrandarhrepps, til kynningarfrá 16. ág-
úst til 27. september 1991, starfsleyfistillögur fyrir
álver Atlantsáls, Vatnsleysustrandarhreppi.
Rétt til að gera athugasemdir við starfsleyfistillög-
urnar hafa eftirtaldir aðilar.
1. Sá sem sótt hefur um starfsleyfi svo og forsvars-
menn og starfsmenn tengdrar eða nálægrar starf-
semi.
2. íbúar þess svæðis, sem ætla má að geti orðið
fyrir óþægindum vegna mengunar.
3. Opinberir aðilar, félög og aðrir þeir, sem málið
varðar.
Skriflegar athugasemdir við starfsleyfistillögurnar
skulu hafa borist Hollustuvernd ríkisins fyrir 1. októ-
br 1991.
Reykjavík, 6. ágúst 1991
Hollustuvernd ríkisins
Mengunarvarnir
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Síðumúla 39- 108 Reykjavík - Sími 678500 - Fax 686270
Félagsráðgjafi
Laus er staða félagsráðgjafa á félagsráðgjafasviði
öldrunarþjónustudeildar í Síðumúla 39.
Starfið er fólgið í ráðgjöf og aðstoð við aldraða, mat á
húsnæðis- og þjónustustörf og meðferð umsókna um
húsnæði og fjárhagsaðstoð.
Nánari upplýsingar veita yfirmaður öldrunarþjónustu-
deildar Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir og forstöðumaður
félagsráðgjafasviðs Ásta Þórðarsdóttir í síma 678500.
Umsóknarfrestur er til 30. ágúst n.k.
Þroskaþjálfi - meðferðarfulltrúi
Fjölskylduheimili fatlaðra barna, Akurgerði 20, óskar
eftir að ráða þroskaþjálfa og/eða meðferðarfulltrúa.
Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af starfi með
fötluðum börnum. Um er að ræða dag, kvöld og helg-
arvaktir.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma
681311 og 21682. Umsóknarfrestur er til 30. ágúst
n.k.
Umsóknum skal skila til Félagsmálastofnunar
Reykjavíkurborgar, Síðumúla 39, á umsóknareyðu-
blöðum sem þar fást.
Frá menntaskólanum
við Hamrahlíð
Stöðupróf verða haldin í skólanum sem hér segir:
í ensku þriðjudaginn 20. ágúst kl. 18.00.
í frönsku og spænsku miðvikudaginn 21. ágúst kl.
18.00.
í þýsku fimmtudaginn 22. ágúst kl. 18.00.
í dönsku, norsku, sænsku og stærðfræði föstudaginn
23. ágústkl. 18.00.
Stöðupróf í tungumálum eru aðeins ætluð nemendum
sem hafa verulega þjálfun í málinu umfram grunn-
skólanám og geta ekki staðfest hana með skírteini.
Stöðuprófin eru fyrir nemendur allra framhaldsskóla (í
dagskóla eða öldungadeild) nema dönskuprófið, sem
aðeins er opið nemendum innrituðum í Menntaskól-
ann við Hamrahlíð.
Tilkynna verður þátttöku í stöðuprófum á skrifstofu
skólans, þar sem jafnframt eru veittar upplýsingar um
prófin. Prófgjald er 600 krónur fyrir hvert próf.
Innritun í öldungadeild fyrir haustönn 1991 verður í
skólanum 27. til 29. ágúst. Nánar auglýst síðar í dag-
blöðum.
Rektor
IED
KENNARASAMBAND ÍSLANDS
Umsóknir um námslaun
Verkefna- og námsstyrkjasjóður Kennarasambands
(slands hefur ákveðið að úthlulta námslaunum til
kennara sem hyggjast stunda framhaldsnám skólaár-
ið 1992 - 1993. Um er að ræða styrkveitingar sam-
kvæmt a. lið 6. greinar um Verkefna- og námsstyrkja-
sjóð Kennarasambands (slands.
Væntanlegir styrkþegar munu fá greidd laun á náms-
leyfistíma í allt að 12 mánuði eftir lengd náms. Hlutfall
launagreiðslna verður í samræmi við umfang náms-
ins.
Umsóknum ber að skila á skrifstofu Kennarasam-
bands íslands, Grettisgötu 89, 105 Reykjavík.
Eyðublöð liggja frammi á skrifstofu Kennarasam-
bandsins, skrifstofu BKNE á Akureyri, fræðsluskrif-
stofum og hjá trúnaðarmönnum í skólum.
Umsóknarfrestur rennur út 10. september 1991.