Þjóðviljinn - 24.08.1991, Qupperneq 4
Ráðstefna
um
tölvunotkun
í námi
Skýrslutæknifélag (s-
lands heldur í samstarfi við
aðila menntakerfisins ráð-
stefnu um tölvunotkun í
námi á Hótel Loftleiðum
næstkomandi mánudag 26.
ágúst. Ráðstefnunni er ætl-
að að höfða til kennara,
skólastjórnenda, fræðsluyf-
irvalda, sveitarstjórnenda
og sérfræðinga á sviði hug-
búnaðar og vélbúnaðar, og
er hún öllum opin. Jafnframt
er henni ætlað að verða
hvatning til skynsamlegrar
og árangursríkrar notkunar
og að skapa farveg til sam-
skipta og þekkingarmiðlun-
ar um þessi mál. Á ráð-
stefnunni verða flutt mörg
stutt erindi um tölvunotkun í
mismunandi kennslugrein-
um, sem og tölvunotkun í
námi sem gengur þvert á
námsgreinar.
Breytingar á
mófaskrá
Þær breytingar hafa ver-
ið gerðar á mótaskrá Sam-
skipadeildar að leikur
Breiðabliks og Eyjamanna
sem átti að verða föstudag-
inn 30. ágúst næstkomandi,
hefur verið fluttur um einn
dag og fer fram laugardag-
inn 31. ágúst og hefst
klukkan 16. Þá hefst leikur
Breiðabliks og Vals þann 8.
september klukkan 14.
Kirkjumið-
stöcf Austur-
lands vígð
Á morgun, sunnudag,
vígir biskup (slands Kirkju-
miðstöð Austurlands að
Eiðum. Kirkjumiðstöðin er
sjálfseignarstofnun á veg-
um Prestafélags Austur-
lands, en húsnæði hennar
hefur verið í byggingu í ein
15 ár, en er nú fullbúið. Mið-
stöðin er reist til þess að
efla samkirkjulegt starf í
fjórðungnum. Hún mun taka
við sumarbústaðastarfi því
sem rekið hefur verið að
Eiðum frá árinu 1968, or-
lofsbúðum aldraðra, dvalar-
búðum fatlaðra og fleiru því
sem fram fer á vegum kirkj-
unnar á sumrin. Á veturna
er ætlunin að nýta húsnæð-
ið undir námskeiðahald,
ráðstefnur, fermingarbarna-
búðir, æfingarbúðir kóra svo
eitthvað sé nefnt. Allir vel-
unnarar Kirkjumiðstöðvar-
innar eru því hvattir til að
koma og taka þátt í þessum
sögulegu tímamótum í safn-
aðarstarfi á Austurlandi.
íris á HM í
frjálsum
f frétt blaðsins i gær um
þátttakendur (slands á
heimsmeistaramótinu í
frjálsum íþróttum í Tokyo í
Japan, féll niður nafn (risar
Grönfeldt sem keppir í
spjótkasti. Eru hlutaðeig-
endur hér með beðnir vel-
virðingar á þessu klúðri.
Fkétter
Það mun án efa mæða mikið á fyrirliðum Vals og FH á morgun, þeim Sævari Jónssyni t.v.
ingin hvor þeirra muni lyfta bikarnum í leikslok. Verða það Valsmenn f sjöunda sinn eða
Kristinn.
Kristjánssyni FH. Það er siðan stóra spurn-
FHingum að vinna hann í fyrsta skipti? Mynd:
Valur og FHí
úrslitum Mjólkurbikarsins
morgun, sunnudaginn
A 25. ágúst klukkan 14,
verður blásið til leiks í
JL JLúrslitaleik Mjólkurbikar-
keppninnar á milli Vals og FH á
Laugardalsvellinum. Þetta er í
32. skipti sem leikið er úrslita í
bikarkeppninni sem að ððrum
knattspyrnuleikjum ólöstuðum er
sá stærsti í fótboltanum ár hvert.
Úrslitaleikurinn á morgun er sá
tíundi hjá Valsmönnum, sem eru
núverandi bikarhafar. Fari svo að
þeir fari með sigur af hólmi gegn
FH verður það í sjöunda sinn sem
þeir hampa bikamum. Þar með hafa
þeir unnið hann jafn ofl og Fram og
KR. Hinsvegar er þetta í annað sinn
sem FHingar leika til úrslita í bikar-
keppninni. Þeir komust í úrslitaleik-
inn árið 1972, en töpuðu þá 0:2 fyr-
ir ÍBV.
Valur lék fyrst til úrslita I bikar-
keppninni árið 1956 og sigraði þá
lið IA 5:3, en ári síðar tapaði liðið
fyrir KJR 0:1. Á þjóðhátíðarárinu
1974 jéku Valsmenn á ný til úrslita
gegn í A og unnu þann leik 4:1. Ár-
ið 1976 unnu Valsmenn úrslitaleik-
inn gegn Skagamönnum 3:0 og
einnig árið eflir, 1977 þegar þeir
lögðu Fram að velli _2:l. 1978 töj>-
uðu Valsmenn fyrir ÍA 0:1, en það
var I níunda skipti sem Skagamenn
voru í úrslitum og árið eftir 1979
tapaði Valur og þá fyrir Fram 0:1.
Síðan liðu níu ár, eða til ársins 1988
þar til Valur náði að komast í úr-
slitaleik bikarkeppninnar. Þá sigraði
liðið ÍBK 1:0. í fyrra léku svo Vals-
menn tvo úrslitaleiki gegn KR, eins
og frægt er, og í síðari leiknum
náðu þeir að knýja fram sigur í víta-
spymukeppni.
Leið Vals og FH í úrslitaleikinn
var býsna erfið, en liðin hófu þátt-
töku i 16 liða úrslitunum. FH vann
þá sigur á IBV, síðan gegn Leiflri
Ólafsfírði og síðasta hindrunin var
svo gegn Víði í Garði. Valsmenn
hófu titilvömina gegn ÍK, síðan
léku þeir gegn Breiðabliki og síðast
gegn Þór frá Akureyri. í síðast-
nefndu leikjunum varð að knýja
fram úrslit í vítaspymukeppnum.
Fari svo að úrslit fáist ekki 1 leikn-
um á sunnudag verður Ieikinn annar
leikur, samkvæmt lögum KSÍ.
Ef að líkum lætur má búast við
hörkuviðureign I Laugardalnum á
morgun, því liðin hafa verið áþekk
að getu í sumar. Þegar þremur um-
ferðum er ólokið í Samskipadeild-
inni er Valur með 20 stig en FH 19
stig. En þar sem Hafnfírðingamir
hafa aldrei unnið bikarinn má ætla
að þeir muni leggja allt í sölumar til
að leggja Valsmenn að velli. Að
sama skapi munu þeir rauðklæddu
mæta grimmir til leiks því stórliðið
á Hlíðarenda er ekki vant því að
standa uppi titilslaust í lok knatt-
spymutímabilsins.
Þá er ekki annað vitað en að all-
ir leikmenn liðanna séu við bestu
heilsu og leikfærir. Á blaðamanna-
fundi, sem efnt var til vegna bikar-
leiksins, kom fram að Valsmenn
munu safna kröftum fyrir leikinn í
Bláa lóninu, en FHingar munu
dveljast fram að leik á Hótel Örk í
Hveragerði. En þar dvöldu Vals-
menn í fyrra fyrir leikinn gegn KR.
Hvort dvölin í Hveragerði verður
FH til framdráttar 1 leiknum eða
ekki, skal ósagt látið, en óneitan-
lega munu þeir hjátrúarfullu trúa
því að það verði þeim til góða.
Undirbúningur vegna Fjöl-
miðiamótsins í knatt-
spyrnu 1991 er þegar haf-
inn, en að þessu sinni verður
keppt á nýja sandgrasvellinum í
Kópavogi laugardaginn 21. sept-
ember næstkomandi.
Keppni hefst klukkan níu um
morguninn og verður leikið í 2 X
15 mínútur eða 2 X 12 og fer það
eftir Qölda þátttökuliða. Sömu
Heiðursgestur leiksins verður
Davíð Oddsson forsætisráðherra, en
hann var það einnig í fyrra, en þá
sem borgarstjóri. Auk hans verða
sérstakir gestir á leiknum þeir
Markús Öm Antonsson borgarstjóri
og Guðmundur Ámi Stefánsson
bæjarstjóri í Hafnarfirði og eldheit-
ur FHingur. Til stóð að bjóða Albert
Guðmundssyni sendiherra á leikinn,
en hann gat ekki komið því við
vegna anna. En eins og kunnugt er
þá þjálfaði hann Hafnfirðingana á
sínum tíma og spilaði með Val á
sínum yngri árum.
Til frekari upplýsinga má minna
á að stuðningsmenn FH munu
verða í norðurenda stúkunnar, en
Valsmenn í þeim syðri.
-grh
reglur munu gilda og á fyrri mót-
um. í hvetju liði verða sjö menn en
hámarksfjöldi skráðra leikmanna
og aðstoðarmanna verður tólf
manns.
Dregið verður I riðla mánudag-
inn 9. september næstkomandi
klukkan 11.00, en þátttökugjald
fyrir hvert lið hefúr verið ákveðið
sex þúsund krónur.
-grh
Fjölmiðlamót í knattspymu
P
m
Til þess að villa um fyrir
menntapakkinu!
Dulbúinn
spamaður
dugir
best!
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 24. ágúst 1991
Síða 4