Þjóðviljinn - 24.08.1991, Síða 5
Fkéttik
Fyrirtæki gagnrýna Sorpu fyrir
háan kostnað við eyðingu efna
Fyrirtækjum sem vilja sinna
breyttum viðhorfum til nátt-
úrunnar með því að koma
umhverfísspillandi efnum í eyð-
ingu blöskrar kostnaðurinn sem
er því samfara. Dæmi eru um að
fyrirtæki hafi borgað mörg
hundruð þúsund króna fyrir eyð-
ingu á algengum efnum, og óttast
menn að einstök íyrirtæki losi sig
við hættuleg efni á ódýrari og þá
venjulega á ólöglegan hátt, enda
eru refsiákvæði vegna þess ekki
mikil. Ásmundur Reykdal, stöðv-
arstjóri Sorpu, segir viðbrögð íyr-
irtækja nokkuð góð og sagnir um
gífurlegan kostnað hljóti að vera
orðum auknar.
Alfreð Þorsteinsson, varaborgar-
fulltrúi og framkvæmdastjóri Sölu-
deildar vamarliðseigna, segir að fyr-
irtækið sem hann stýri hafi hent
ýmsum umhverfisspillandi efhum
fyrir skömmu.
- Við þurftum að losa okkur við
málningarvörur, olíusíur og sápuefhi
sem safnast höfðu fyrir á lager. Ætli
Eetta hafi ekki verið um niu vöru-
retti sem fóm upp i Sorpu. Mér
hreinlega brá þegar ég sá reikning-
inn. Fyrir losun á efnum sem hingað
til hefur verið urðað eða fara í smá-
skömmtum í niðurfallið eins og
sápuefnin gera við notkun, var okkur
gert að greiða yfir 700 þúsund krón-
ur. Ef þetta er raunin að kostnaður-
inn sé svona gífurlegur þá held ég að
mörg fyrirtæki freistist til að hella
hættulegum efhum í niðurfollin. Það
má búast við því að sumir veigri sér
við að setja þennan kostnað sem
kannski skiptir miljónum á rekstrar-
reikninginn, sagði Alffeð.
Þau fyrirtæki er Þjóðviljinn
hafði samband við vegna þessa vom
almennt sammála um mikinn kostn-
að samfara eyðingu á umhverfis-
S'" ídi efnum. Hilmir Hilmisson,
væmdastjóri málningardeildar
Slippstöðvarinnar, sagði verðskrá
Sorpu.ofháa.
-1 allri umræðunni um umhverf-
ismálin hendir fyrirtækið ekki hættu-
legum efnum í sjóinn eða á slíka
staði. Það verður því að fara með
þau í Sorpu sem kemur þeim síðan í
eyðingu. En reikningur upp á 70
þúsund krónur fyrir nokkrar dollur af
málningu finnst mér of mikið af því
góða. Núna erum við t.d. með stafia
af málningu sem við þurfum að Iosa
okkur við og erum við alvarlega að
íhuga að flytja hana út sjálfir til eyð-
ingar eða þá til þess framleiðanda
sem við keyptum hana af, sagði
Hilmir.
Vangaveltur manna um að fyrir-
tæki losi sig við hættuleg efni úti á
víðavangi frekar en að fara með í
eyðingu fékk byr undir báða vængi
er nokkrar tunnur með hættulegmn
efhum fundust í sjónum við Reykja-
víkurhöfh. Lögreglan upplýsti að um
væri að ræða efhi sem notuð eru við
múrverk og greinilegt væri að efnun-
um hafi venð hent þama af ásettu
ráði.
Páll Líndal, ráðuneytisstjóri í
umhverfisráðuneytinu, upplýsti að
refsiákvæði vegna losunar á hættu-
legum efnum út í náttúruna væri
helst að finna í 32. grein laga um
hollustuhætti og heilbrigðiseflirlit frá
1988. Þar segir að fyrir brot gegn
lögunum skuli refsa með sektum, en
með varðhaldi séu sakir miklar.
Sama segir í lögum um eiturefhi
og önnur hættuleg efni ffá 1988. Páll
Lindal segist ekki vita að þessum
refsiákvæðum hafi verið beitt.
- Það hefur allavega ekki verið
gert síðan þetta ráðuneyti var stofn-
að. Annars þarf ekki að vera að öll
mál komi hingað inn á borð.
Páll segir að ætlunin sé að koma
á einhveiju eftirliti með fyrirtækjum
er ffamleiða og vinna með hættuleg
efni og bráðlega megi vænta könn-
unar innan þessara fyrirtækja á því
hve mikið fellur af þessum efnum
sem úrgangur.
Aðspurður hvort stjómvöld hafi
íhugað að taka þátt í þeim kostnaði
vegna eyðingar efnanna, sagðist Páll
hafa heyrt um mikinn kostnað fyrir-
tækja og það sé ljóst að við því þurfi
að bregðast.
- Það hefur verið rætt um að
setja ákveðin umhverfisgjöld á þessi
efni við innflutning. Þá myndu þau á
einhvem hátt dekka þann kostnað
sem er samfara eyðingunni, sagði
Páll.,
Ásmundur Reykdal sagði að töl-
ur um eyðingu umhverfisspillandi
efna væm eitthvað orðum auknar.
- Sá kostnaður sem við inn-
heimtum beinist eingöngu að fyrir-
tækjum. Orð eins borgarfulltrúa i
Qölmiðlum um daginn em t.a.m. út í
hött. Þar var sagt að borga þyrfti um
fimm þúsund krónur vegna örfárra
málningardósa. Almenningur sem
kemur á söfnunarstöðvamar með
umhverfisspillandi efni þarf ekki að
borga neitt fyrir það og óhætt er að
hvetja fólk til að koma með sem
mest af þeim efhum sem til falla á
heimilunum og það telur vera um-
hverfisspillandi, sagði Ásmundur.
Aðspurður um 700 þúsund krón-
ur sem Söludeildin hefði þurft að
greiða sagði hann að þar hefði verið
um nokkur tonn að ræða.
- Það sér það hver maður að eft-
ir þvi sem magnið eykst því meiri
verður kostnaðurinn. Eg get nefnt að
við höfum sent fyrirtækjum upplýs-
ingar um hver raunverulegur kostn-
aður er við losun. Þar kemur ffam að
betra er að safna efnum saman þar til
ákveðnu magni er náð. Yfirleitt er
viðmiðunin, að ódýrara er að koma
með efhi ef þau eru meira en 50 kíló.
Greiðsla á eyðingu úrgangsolíu í
fljótandi formi er t.d. 34 laónur á
hvert kíló. Ef olíuúrgangur er í fostu
formi t.d. olíusíur o.þ.h. er verðið
hærra eða um 71 króna á hvert kíló.
Leysiefni og efni í þeim flokk eru
aðeins dýrari. Mörg mjög hættuleg
efni eins og úrgangur úr kvikasilfn,
PCB o.fl. eru dýrari, og þarf að
borga eitthvað yfir 100 krónur á
hvefy kíló.
Ásmundur sagði að hugmyndir
um gjöld á hættuleg efiii við inn-
flutmng gætu reynst tvíbent.
- Stefnan í Danmörku t.d. er að
minnka notkun umhverfisspillandi
efna svo sem kostur er. Einnig hvetja
Danir til endumýtingar. Ef ekkert
þarf að greiða fynr eyðingu efnanna
er hætta á að fyrirtæki taki ekkert til-
lit til þessara sjónarmiða. Það þarf
því að íhuga þennan málaflokk mjög
gaumgæfilega áður en farið er út í
breytingar á löggjöf og tollum, sagði
Ásmundur.
-sþ
Það er ekki gefins fýrir fyrirtæki að losa sig við mengandi úrgangsefni en almenningur sleppur. Mynd: Jim Smart.
Alvarlegt
Framkvæmdastjórn Bandalags
háskólamanna - BHM - lýsir
þungum áhyggjum yfír þeim
Dómarar sögðu alla
umsækjendur hæfa
Pétur Kr. Hafstein , sýslu-
maður og bæjarfógeti á Isafirði
hefur verið skipaður hæstarétt-
ardómari frá og með 1. október.
Forseti íslands skipar í embætt-
ið að fenginni tillögu dóms-
málaráðuneytisins.
Samkvæmt lögum skiluðu
hæstarréttardómarar umsögn
gm umsækjendur og að sögn
Olafs Walters skrifstofustjóra í
dómsmálaráðuneytinu var álit
þeirra að allir umsækjendur
væru hæfir. Aðrir umsækjendur
um stöðu hæstarréttardómara
voru Auður Þorbergsdóttir og
Gísli Garðarsson borgardómar-
ar.
Hæstaréttardómarar eru átta
og lætur Guðmundur Jónsson af
störfum nú. Hann er á 67. ald-
ursári.
-vd.
skref stigið, af framfarabraut
fregnum að menntamálaráðuneyt-
ið hafi fyrirvaralaust fallið frá fyr-
irhugaðri lengingu kennaranáms
við Kennaraháskóla Islands í
haust úr þriggja ára námi í fjög-
urra ára nám. Skólaráð Kennara-
háskólans harmar ákvörðun ráð-
herra frá 20. ágúst og vekur at-
hygli á því virðingarleysi sem skól-
anum se sýnt með þessu.
Með skyndiákvörðun ráðuneyt-
isins er að engu gert það undirbun-
ingsstarf sem unnið hefur verið, seg-
ir framkvæmdastjóm BHM.
I ályktun bandalagsins segir að
enginn ágreiningur sé um það meðal
vestrænna þjóða að menntun muni
skilja á milli feigs og ófeigs i upplýs-
inga- og tækniþjóðfelögum framtíð-
annnar. „Hver sú þjóð sem ætlar sér
sess á bekk með velferðarþjóðum
hlýtur þess vegna að leggja alít kapp
á hvort tveggja í senn, almenna
menntun og sérftæði. Lenging kenn-
aranáms á Islandi er löngu timabær
og með frestun hennar er stigið al-
varlegt skref af ffamfarabraut"
Lýsir framkvæmdastjóm BHM
yfir undmn með að ráðuneyti
menntamála skuli taka þessa ákvörð-
un aðeins nokkrum dögum áður en
skólastarf Kennaraháskólans á að
hefjast. „Með því er kennurum
Kennaraháskólans og væntanlegum
nemendum stofhunarinnar sem ínn-
ritaðir hafa verið á fölskum forsend-
um sýnt virðingarleysi sem ekki
verður látið óátalið," segir í ályktun
BHM.
Skólaráðið í sinni ályktun bendir
á að undirbúningur að fjögurrra ára
námi hafi staðið í þijú ár, að samin
hafi verið reglugerð, námskrá og
kennsluskrá fyrir þetta nám auk þess
sem mannaráðningar, stundatafla og
allur undiibúningur hafi miðast við
fjöguira ára nám. Þannig verður ein-
ungis hægt að bregðast við með
neyðarúrræðpm, segir í ályktun
skólaráðs KHI.
-rk/gpm
Engar háspennulínur í Fljótsdalinn
Aðalfundur Náttúruverndar-
samtaka Austurlands átel-
ur áform um að leggja há-
spennulínur á möstrum eftir endi-
löngum Fijótsdalnum vegna fyrir-
hugaðrar Fljótsdalsvirkjunar.
Lagt er til að lína verði lögð í jarð-
streng eða að öðrum kosti uppá
Fljótsdalsheiði. Þetta kemur fram
í ályktunum frá fundinum sem
haldinn var um síðustu helgi.
Fundurinn hvatti einnig til að
lega annarra raflína verði þegar tekin
til athugunar með tilliti til umhverf-
issjónarmiða. Fundurinn mótmælti
línustæði Fljótsdalslínu 1 til ,Akur-
eyrar um Krepputungu og Ódáða-
hraun milli Herðubreiðar og Öskju
og hvatti fólk til að mótmæla því
línustæði.
Þá skoraði aðalfundurinn á Nátt-
úruvemdarráð og aðra hlutaðeigandi
að hraða friðlýsingu Snæfells og ná-
grennis. Þetta er talið brýnt vegna
Fljótsdalsvirkjunar og vegna þeirrar
virkjunar er Náttúmvemdarráð einn-
ig hvatt til að standa vörð um frið-
lysingu Lónsöræfa sem sé í hættu
þegar aðliggjandi svæði opnast
vegna Fljótsdalsvirkjunar.
„Mco Fljótsdalsvirkjun er fómað
miklum náttúmverðmætum. Það er
þvi lágmarkskrafa að gætt verði ítr-
ustu aðgæslu við framkvæmdir og
umhverfi og náttúm ekki raskað
meira en nauðsyn ffekast krefur,“
segir í ályktun NÁUSTs.
-gpm
Heilla-
óskir til
Jeltsín
Jón Baldvin Hannibals-
son utanríkisráðherra sendi
Boris Jeltsín forseta Rúss-
lands heillaóskir á fímmtu-
dag i gegnum Andrej Kos-
irev utanríkisráðherra sam-
bandslýðveldisins Rússlands.
„Leyfið mér að tjá yður
einlæga aðdáun mína yfir
hversu einurðlega Boris Jeltsín
hefur hmndið tilraunum til
valdaráns og varið lýðræðisleg
réttindi þjóða Ráðstjómarríkj-
anna á örlagastundu. Fram-
ganga Jelstíns þessa örlagariku
daga er ógleymanlegt dæmi
um það, hvemig hugrakkur
leiðtogi sem nýtur trausts
þjóðar sinnar getur breytt
gangi mannkynssögunnar.
Þjóðir heims standa i þakkar-
sículd við Boris Jeltsín," hljóð-
ar skeytið.
-gpm
RAFRÚN H.F. Smiðjuvegi 11 E Alhliða rafVerktakaþjónusta Allt efni til raflagna Sími641012 BÍLSKURS wwmMmwiw
GLÓFAXI HF. ÁRMÚLA 42 108 PJ' JAVlK SlMI: 3 42 36
'UR HF.
Innflutnlngur — Tscknlpjónuit*
Orkumælar
frá
wAMHTHtrp MirrRO ajh
Rennslismælar
Sími652633
Síða 5
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 24. ágúst 1991