Þjóðviljinn - 28.08.1991, Page 7
Ehlendar ls$s fretiir
A Umsión: G.Pétur Matthíasson
Sífellt fleiri viðurkenna
sjálfstæði Eystrasaltsríkja
Þrjú ríkl, ísland, Noregur og Danmörk, höfðu í gær komið á
fullum stjórnmálalegum tengslum við Eystrasaltsríkin þrjú.
Önnur 24 ríki voru tilbúin til að gera slíkt hið sama. Þar á
meðal eru allar þjóðir Evrópubandalagsins, en EB þjóðir
tóku sameiginlega afstöðu í málinu í gærdag. Gorbatsjov, forseti
Sovétríkjanna, sagði í gær að þjóðir heims hefðu flýtt sér um of að
lýsa yfir sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna sem einnig hefðu flýtt sér um
of. Þetta er í nokkurri andstöðu við það sem forsetinn sagði í fyrra-
dag um að þau ríki sem ekki vildu samþykkja sambandssáttmála
væri frjálst að hverfa úr Sovétríkjunum.
Svíar viðurkenndu sjálfstæði
þjóðanna í gær en á sínum tíma
urðu Svíar íyrstir til að viðurkenna
yfirráð Sovétríkjanna á Lettlandi,
Eistlandi og Litháen. Við það tæki-
færi komst sovétstjómin yfir gull-
forða Litháens og Eistlands í Sví-
þjóð sem jafngildir nú þrem mil-
jörðum íslenskra króna. Svíar
sendu Moskvustjóminni gullið en
eiga nú von á endurkröfu þjóð-
anna. Fulltrúar ríkjanna munu
ferðast til Svíþjóðar á morgun og
undirrita yfirlýsingu um formlegt
stjómmálasamband. Utanríkisráð-
herramir undirrituðu slíkar yfirlýs-
ingar i Kaupmannahöfn og Osló í
gær áður en þeir héldu til Þýska-
lands.
Einsog Janis Jurkans, utanrík-
isráðherra Eistlands, sagði við
Þjóðviljann á mánudag þá em
efnahagsmál aðaláhyggjuefni ríkj-
anna þriggja. Sérfræðingar em
honum sammála, til dæmis telur
EB að ríkin þurfí 120 til 180 mil-
jarða íslenskra króna á ári í aðstoð
frá Vesturlöndum ef takast á að
koma efnahagslífi þjóðanna í við-
unandi horf.
Þá er tekið mið af þeirri aðstoð
sem Austantjaldslöndin fyrrver-
andi þarfnast. Eystrasaltsríkin em
háð Sovétríkjunum um hráefhi og
orku og allur iðnaður hefur verið
byggður upp í kringum þau að-
fong. Rikin verða annaðhvort háð
Sovétríkjunum eða Vesturlöndum
og em þannig í mjög þröngri
stöðu, sagði Sovétsérfræðingurinn
John Barber hjá háskólanum í
Cambridge í gær.
Hann býst við erfiðum samn-
ingum um eignarhald iðnfyrirtækja
í ríkjunum.
Reuter
Litháar hafa þegar hafið að gefa út vegabréf og að prenta eigin gjaldmiöil.
Króatía skipar þjóð-
inni í bardagastellingar
Borgarastyrjöldin í Júgó-
slavíu siglir hraðbyri í það
að verða fullkomið stríð j
stað staðbundinna átaka. í
gær bjó Króatía alla íbúa lýðveld-
isins undir stríð en harðir bardag-
ar hafa staðið í lýðveldinu í fjóra
daga. Stjórn Króatíu staðhæfði
einnig að það væri aðeins dags-
spursmál hvenær að því kæmi að
sjálfstæði lýðveldisins yrði viður-
kennt á alþjóðavettvangi. Króatía
og Slóvenía lýstu yfir sjálfstæði
25. júní.
Á morgun mun stjóm lýðveldis-
ins ákveða með hvaða hætti allir
íbúar landsins verði látnir taka þátt í
vömum lýðveldisins, að sögn for-
sætisráðherrans, Mate Granic. Hann
sagði þó að það þýddi ekki að hver
íbúi myndi fá byssu í hönd en að
allir myndu taka einhvem þátt í
vömunum.
Vukovar, borgin sem lenti í stór-
skotaárás í fýrradag, lenti aftur í
skotárás í gær._ Vukovar er í austur-
hluta Króatíu. I lýðveldinu búa fjór-
ar og hálf miljón manna og þar af
em um 600 þúsund Serbar. Króatar
ásaka Serba um að reyna að krækja
sér í aukið landsvæði en Serbía er
stærsta lýðveldið af sex lýðveldum í
Júgóslavíu. Sambandsherinn styður
Serba leynt og ljóst - að einhveiju
marki að minnsta kosti þrátt fyrir að
hlutverk hans eigi að vera að halda
vopnahlé sem lýst var fyrir vikum
síðan. A móti ásaka Serbar Króata
um að reyna að kljúfa útúr Júgó-
slavíu landsvæði sem séu aðallega
byggð Serbum.
Þýskaland, Austum'ki og Italía
hafa öll fordæmt sambandsherinn
fyrir að styðja Serba. Ríkin hafa
varað Serba við og sagt að þetta geti
Átökin ( Júgóslavíu fara sffellt
leitt til alþjóðlegrar viðurkenningar
á sjálfstæði Króatíu og Slóven-
íu.Talið er að um 300 manns hafi
verið drepin í átökunum síðastliðna
tvo mánuði og hafa Ungveijar styrkt
landamæri sín síðustu daga. Evrópu-
bandalagið hyggst senda hollenska
sendinefnd til Júgóslavíu til að
reyna að stilla til friðar. Seint í gær
bað George Bush Bandaríkjaforseti
Júgóslava um að semja um skilyrð-
islaust vopnahlé nú þegar. Forsetinn
lýsti því að stjóm sín hefði sívax-
andi áhyggjur af ástandinu í landinu.
Reuter
Fátækum bömum af rómönskum
uppmna fjölgaði um miljón
a áttunda áratugnum fjölg-
aði börnum af rómönskum
1 JLuppruna sem lifa í fátækt í
Bandaríkjunum um miljón.
Fjölskyldur af rómönskum
uppmna með böm, bæði innflytj-
endur og innfæddir, em hlutfalls-
lega einn fátækasti minnihlutahóp-
urinn i Bandarikjunum og eiga í
baráttu við lækkandi laun, mis-
munun vegna atvinnu og sífellt
minnkandi aðstoð frá hinu opin-
bera. Árið 1989 lifðu 2,6 miljónir
fólks af rómönskum uppmna i fá-
tækt af 7,2 miljónum. Þetta em
miljón fleiri en árið 1980. Böm
þessa fólks em um 11 prósent allra
bama í Bandaríkjunum.
En þrátt fyrir að hlutfall fá-
tækra í þessum hópi hafi aukist um
þriðjung á tímabilinu, upp í 36,2
prósent þá er það samt 7,5 prósent-
ustigum lægra en sama hlutfall hjá
bömum blökkumanna.
Efnahagsbandalag Sovétríkjanna
Mikhaíl Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna hefur komist að
samkomulagi við leiðtoga þriggja Sovétlýðvelda um Efna-
hagsbandalag Sovétríkjanna, Rússlands, Kazakhstans og
Kirgistans sem Rússar kalla Kirgisíu.
Gert er ráð fyrir að efnahags-
bandalagið verði opið öllum lýð-
veldum Sovétríkjanna, hvort sem
þau kjósa að vera áfram innan
ríkjabandalagsins eða verða sjálf-
stæð riki. Það var forsefi Kirgist-
ans, Askar Akajev, sem greindi frá
þessu á þriðjudag. Hann sagði enn-
fremur að í framhaldinu yrði að
vinna að nýjum sambandssáttmála,
en valdaránstilraunin kom í veg
fyrir undirritun sáttmálans á
þriðjudag í síðustu viku. Nú er gert
ráð fyrir að sáttmálanum verði
breytt í þá vem að lýðveldin fái
meira sjálfstæði og forræði yfir
auðlindum sínum en áformað var í
fyrstu.
ívan Sílajev, forsætisráðherra
Rússlands, sagði í samtali við
bandarísku sjónvarpsstöðina ABC
í gær að ný ríkisstjóm Sovétríkj-
anna myndi ekki stjóma landinu
með tilskipunum, ætlunin væri að
innleiða markaðshagkerfi hið allra
fyrsta. Hann sagði ennfremur að
hagkerfi flestra lýðvelda Sovétríkj-
anna væm svo nátengd að þau
hlytu að hafa náið samstarf í fram-
tíðinni á svi
-Reuter/áþs
Samið um herstöð á Filipseyjum
Bandaríkjamenn og Filipsey-
ingar undirrituðu samkomu-
lag um áframhaldandi rekst-
ur þeirra fyrrnefndu á flotastöð í
Scubic- flóa á Filipseyjum. Samið
var til tíu ára og munu Banda-
ríkjamenn greiða heimamönnum
203 miljónir dollara á ári eða sem
samsvarar 12 og hálfum miljarði
íslenskra króna.
Embættismenn á Filipseyjum
sögðu þó von á því að eríitt muni
reynast að fá samkomulagið sam-
þykkt í filipseyska þinginu. Corazon
Aquino, forseti Filipseyja, sagði
samninginn skynsamlega íjárfest-
ingu í efhahagslegri framtið eyj-
anna. Vamarm;'' aráðherrann, Raul
Manglapus, undirritaði samkomu-
lagið ásamt sendiherra Bandaríkj-
anna, Frank Wiesner, en það kallast
samningur um vinskap, samvinnu
og öryggi. Síðastliðna 15 mánuði
hafa rikin átt í ágreiningi um her-
stöðvar Bandaríkjamanna og setti
eldgosið í Pinatubo-fjalli strik í
reikninginn með því að eyðileggia
eina herstöð Bandaríkjamanna, ekki
Qarri Scubic-flóa. Vamarmáíaráð-
herrann sagði samninginn munu
tryggja öryggi í Suðaustur-Asíu
næsta áratug. Reuter
+
FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ
RAUÐA KROSS ÍSLANDS
Á haustönn standa Rauði kross íslands,
Rauða kross deildirnar og
Ungmennahreyfing Rauða kross íslands
fyrir eftirfarandi námskeiðum:
RKÍ og deildir:
Aðhlynning aldraðra og sjúkra
Endurmenntun fyrir leiðbeinendur í skyndihjálp
Námskeið fyrir víetnamska foreldra
Námskeið fyrir fólk frá ólíkum menningarsvæðum
Leiðbeinendanámskeið í skyndihjálp
Rauði krossinn á alþjóðavettvangi
Rauði krossinn - saga og störf
Skyndihjálparnámskeið
Sjúkraflutninganámskeið
Slys á börnum
Starfslok
Ungmennahreyfing RKÍ:
Grunnnámskeið í starfi Rauða krossins
Hús - og vettvangshópur
Vinalínan - símaþjónusta
Alþjóðastarf - ungir sjálfboðaliðar erlendis
Alþjóðastarf - sjálfboðaliðaverkefni í Gambíu
Bæklingur með upplýsingum um námskeiðin
fæst á skrifstofu Rauða kross íslands
Rauðj kross íslands
Rauðarárstíg 18 - Reykjavík - sími 91-26722
Síða 7
ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 28. ágúst 1991