Þjóðviljinn - 01.10.1991, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 01.10.1991, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 1. október 1991 56. árgangur 187. tölublað um ekki Yfírlýsingar Friðriks Sophussonar fjármálaráðherra og Einars Odds Kristjánssonar um að ekkert svigrúm sé til samninga um launahækkanir, hvað þá kaupmáttarhækkun, við þær að- stæður sem ríkjarnú í efnahagslífínu, hafa mælst mjög illa fyrir meðal launafólks. Ásmundur Stefánsson, forseti ASI, og Ög- mundur Jónasson, formaður BSRB, segja að samningsgerð sem ekki feli í sér neinar kauphækkanir eða kaupmáttaraukningu jafngildi því að engir samningar verði gerðir. Ögmundur sagði það lykilatriði að rætt yrði um tekjuskiptinguna hjá þjóðinni. Hann sagði það óraun- sætt að leggja til að samið yrði um kaupmáttarrýmun. „Enginn mun sampykkja slíkan samning auk þess sem pað fæli í sér að menn hefðu gefíst upp á að breyta tekjuskipting- unni. Samkvæmt skattaupplysing- um hefur fjöldi manna mörg hundir- uð þúsund króna í mánaðarlaun. Það skýtur þvf skökku við, þegar menn tala um að þjóðin deili byrð- unum vegna afiasamdráttar, að menn tali a sama tíma um að halda niðri fólki sem er á kauptaxta og býr við lélegustu kjörin,“ sagði Ög- mundur. „Það er ljóst að það fer ekki saman að semja til langs tíma og að neitt semja um ekki neitt. Þá er alveg eins gott að láta það vera,“ sagði Ásmundur Stefánsson og bætti við að viðsemjendum þeirra ætti að vera Ijóst að það er engin forsenda til þess að rökræða um að gera samning um engan kaupmátt á næsta ári. „Ég sé ekkert nýtt í þessum söng atvinnurekenda. Ekkert af þessu er sérlega merkilegt að mínu mati, því það er venja atvinnurek- enda að barma sér og bjóða upp á samninga um ekki neitt þegar menn tygja sig til samninga. Ögmundur sagði að það ætti að taka til hendinni í vaxtamálum frek- ar en að reyna að halda kaupi taxta- fólks niðri. Hann benti á að við- skiptakjörin hefðu verið mun betri en menn reiknuðu með í upphafi þjóðarsáttar, eða 15 prósent við- skiptakjarabati í stað 5 prósenta. Flestir atvinnurekendur stæðu því vel. Þau fyrirtæki sem berðust í bökkum væru almennt mjög skuld- sett, þannig að það væri vaxtapólit- íkin sem níddi skóinn af fyrirtækj- unum en ekki kjör launafólks. „Það verður ekki samið á sömu nótum núna og í febrúar 1990 því forsendur hafa breyst. Þá var allt á niðurleið og því var ákveðið að semja um að koma á stöðugleika með loforði um kaupmáttaraukn- ingu þegar því væn lokið. Það verður ekki samið um slíkt aftur,“ sagði Ögmundur. -gpm Fjörugt þing í vændum í dag verður 115. löggjafar- þingið sett að lokinni guðsþjón- ustu í Dómkirkjunni sem hefst klukkan 13:30. „Það er sjaldgjæfl að í upphafi þings sé úr svo miklu að moða einsog verður núna, sé að marka yfirlýsingar ríkisstjómarinnar. Hún hefur verið með eindæmum yfirlýsingaglöð og ef allt gengur eflir með hótanir um niðurskurð og annað, þá verður þetta ömgg- lega fjömgt þing því við munum ekkert gefa eftir,“ sagði Margrét Frímannsdóttir, þingflokksformað- ur Alþýðubandalagsins, í gær. „Fjárlögin verða númer eitt, tvö og þrjú,“ sagði hún aðspurð um hvaða mál bæri hæst í byrjun þings. „Síðan verður skemmtilegt að bera stefnuræðu forsætisráð- herra núna saman við þá sem hann flutti í vor. Eg á von á því að það kveði við annan tón miðað við vinnu stjómarinnar í sumar. -gpm pPtiSi laii1 11H; Kristfn Ástgeirsdóttir, Anna Ólafsdóttir Bjömsson og Ingibjörg Sólrún Gfsladóttir á gangi fyrir utan Alþingishúsið í gær. Mynd: Kristinn. LÍÚ óskar eftir fiskifræðingi „Aðalástæöan fyrir þvi að við höfum auglýst eftir físki- fræðingi er einfaldlega sú að við viljum vera betur upplýstir og efla og bæta faglega þekk- ingu okkar,“ segir Kristján Ragnarsson formaður Lands- sambands íslenskra útvegs- manna. Viðkomandi fiskifræðingur mun þó ekki stunda neinar gmnd- vallarrannsóknir á ástandi nytja- stofna við landið, heldur mun hann, með samþykki Hafrann- sóknastofnunar, fá þar aðstöðu til að fylgjast með starfsemi stofn- unarinnar og fá aðgang að öllum upplýsingum. Ennfremur er ætl- unin að fiskiffæðingurinn fari til sjós til að kynnast sjómannaslíf- inu af eigin raun og viðhorfúm þeirra sem þar vinna, svo og sjón- armiðum útvegsmanna. -grh Meistari Miles Davis allur Bandaríski trompetleikarinn Miles Davis lést aðfaranótt sl. sunnudags á 65. aldurs- ári. Banamein hans var lungna- bólga. Hann hafði átt við heilsu- brest að stríða alllengi, en var þó nýkominn úr hljómleikaferð um Evrópu er hann lést. I stuttu simtali við Þjóðviljann hafði Tómas R. Einarsson þetta að segja um Miles Davis og pýðingu hans jyrir djassheiminn: „I mínum huga situr Miles Da- vis á stalli með 4 snillingum, sem mótað hafa djassinn umfram aðra á þessari öld, þeim Luis Armstrong, Duke Ellington, Charlie Parker og John Coltrane. Snilld hans var ofin úr mörgum þáttum og kom snemma í ljós, eða strax þegar hann tók við af Dizzy Gillespie í hljómsveit Charlie Parkers. Miles Davis gat ekki náð sömu háu tón- unum og Gillespie, en um hann var sagt að hann hefði kunnað að velja fallegustu nótumar og gefa þeim dramatíska þyngd. Hann gerði aldrei kröfú til þess að sýna mesta leikni í hraða eða tónhæð, en það voru fáir sem stóðu honum á sporði í tónlistarlegu innsæi. Ferill hans stóð næst á árunum 1955-1970, en þá stýrði hann hljómsveitum sem vom leiðandi um alla þróun djassins í heiminum og bám allar mjög sterkt svipmót hans sjálfs. Margir fremstu jazz- leikarar heimsins léku með honum á þessum ámm. Miles Davis átti við veikindi að stríða á ámnum 1975-80, en hann byrjaði aftur að leika 1981 og þá í djassrokkuðum anda og lék alltaf vel, þótt tónlist hans hefði ekki lengur Jþá sögulegu þýðingu sem hún hafði haft. Hann samdi einnig djasslög, en hans verður þó fyrst og fremst minnst fyrir pá geislun og það innsæi sem mótaði allan þann tónlistarflutning sem hann kom nálægt.“ ólg.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.