Þjóðviljinn - 01.10.1991, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 01.10.1991, Blaðsíða 2
Sjónvarp í 25 ár Aldarfiórðungur er liðinn síðan Sjónvarpið hóf út- sendingar, fyrst tvisvar í viku þrjá klukkutíma í senn. Síðan hefur útsendingartiminn lengst jafnt og þétt. Þar við bætist að hátækni nútímans gerir þjóðinni kleift að vera á vettvangi þar sem atburðir eru að aerast, fyrir tilstuðlan sjónvarps. A umliðnum áratugum nefur engin ein stofnun breytt gangverki þjóðlífsins á jafn afdráttarlausan hátt og sjónvarpið hefur gert. Samkeppnisstaða sjónvarps- ins, um athyali fólks, var þegar í upphafi ákaflega sterk. Eftir að vikulegum útsendingadögum fjölgaði í sex sótti fljótt í það horfið að mikill hluti félagslíts flutt- ist á fimmtudagskvöld þegar Sjónvarpið sendi ekki út. Um árabil var þetta fyrirkomulag séreinkenni á ís- lensku sjónvarpi og af mörgum talin mjög heppileg ráðstöfun. Nú sendir Sjónvarpið ekki aðeins út alla daga vik- unnar og alla mánuði ársins, til sögunnar er komin ný sjónvarpsstöð, Stöð 2, einkasjónvarpsstöðvar á þús- undir heimila í formi myndbandstækja og útbreiddrar leigu á myndböndum, og síðast en ekki síst má reikna með risastökkum á næstunni með stórauknum að- gangi almennings að sjónvarpsstöðvum í gegn um gervihnetti. Sjónvarpið reyndist aufúsugestur á heimilum lands- manna. Þó fer því fjarri að það hafi verið óumdeilt á undanförnum aldarfjórðungi. Ríkisútvarpinu ber að efla og verja íslenska menningu. I þeim efnum er samkeppnm eðlilega hörðust a vettvangi Sjónvarps- ins. Sjonvarpið tengir okkur við umheiminn og getur gefið okkur Kost á pví besta sem heimsmennmgin býður upp á. Enginn vafi er á að sjónvarpið hefur opn- að íslenaingum nýjar dyr að heiminum, aukið skilning landsmanna á menningu annarra þjóða. En með hin- um jákvæðu straumum skolar því miður inn í stofurnar allskyns rusli, þar sem ofbeldi og hverskonar lágkúra er aoalviðfangsefnið. Enda þótt gera verði þá kröfu til Sjónvarpsins í framtíðinni að innlend dagskrárgerð verði aukin, blasir við að dagskráin verður, og á að vera, blanda af inn- lendu og erlendu efni. Þegar erlenda efnið er valið skiptir ekki einasta máli að velja fjölbreytt efni og vandað, það þarf einnig að koma víða að. Á þetta hef- ur einatt skort og mikill meirihluti erlends efnis hefur komið frá hinum enskumælandi heimi, með þeim af- leiðingum að heimsmyndin sem áhorfendum er hleypt að er skekkt. í sjónvarpsheimi framtíðarinnar, verður úrval sjón- varpsstöðva vissulega mikið, en úrval efnis því miður ekki. Gervihnattasjónvarp verður á höndum tiltölulega fárra aðila, sömuleiðis framleiðsla og dreifing sjón- varpsefnis. Aðgangur að þessu efni verður ffiótlega auðveldur og kostnaður ekki meiri en svo, að þúsundir heimila munu geta nýtt sér erlendar sjónvarpsstöðvar. Svar Sjónvarpsins við þeirri samkeppnni sem og við samkeppni af hálfu innlendra einkastöðva er betri og flölbreyttari dagskrá, því reynslan sýnir að innlenda efnið nýtur mikíu meiri vinsælda en hið erlenda. Menntamálaráðherra hefur nokkrum sinnum viðrað hugmyndir um að breyta Ríkisútvarpinu í hlutafélag og í flokki hans er mikill ahugi á að koma stofnuninni i hendur einkaaðila. Þessar hugmyndir eru ekki settar fram vegna þess að boðendur þeirra telji að Ríkisút- varpið gegni ekki hlutverki sínu með sóma og þeim er ekki hreyft til þess að búa (slendinga undir harðnandi samkeppni á þessu sviði. Tilgangurinn með slíkri breytingu er sá einn að taka stofnunina úr umsjá þjóð- arinnar og fá hana fjársterkum einkaaðilum til eignar. Um leið og Þjóðviljinn óskar Ríkisútvarpinu til ham- ingju með 25 ára sjónvarp, og óskar starfsfólkinu vel- farnaðar í starfi, er látin í liós von um að þær fráleitu fyrirætlanir sem valdamikill hluti Sjálfstæöisflokksins hefur nú í huga verði ekki annað en vangaveltur einar. hágé. Þtóðvijltinn Málgagn sóslalisma þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Síðumúla 37 — 108 Reykjavík Sími: 681333 Símfax: 681935 Útgefandl: Útgáfufélagið Bjarki h.f.. Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson. Ritstjórar: Ámi Bergmann, Helgi Guömundsson Ritstjórnarfulltrúar: Árni Þór Sigurðsson, Sigurður Á. Friðþjófsson. Ritstjóm, skrifstofa, afgreiösla, auglýsingar: Slðumúla 37, Rvlk. Auglýsingar: 681310, 681331. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Oddi hf. Verð f lausasölu: 110 kr. Nýtt Helgarblað: 170 kr. Áskrlftarverö á mánuði: 1200 kr. Þegar kirkjan sefur í fyrri viku birtist hvassyrt heimsósómagrein í DV. Hún var eftir séra Sigurð Ægisson sóknar- prest í Bolungarvíkurprestakalli. Hann valdi grein sinni heitið „Sof- andi kirkja“ og á þar við íslensku þjóðkirkjuna. Tilefnið er það, að honum finnst skömm til þess að vita að kirkjan skuli ekki láta til sín heyra þegar „hinir smáu og veiku“ hafa „miskunnarlaust verið lagðir undir hníf ríkisstjómarinn- ar“. Bolvíkingaprestur teiur þetta enn eitt merkið um deyfð og sof- andahátt kirkju sem hefiir búið við öryggi ríkisstofnunar og um leið í náinni sambúð við ríkisvaldið: „í framhaldi af því hefur svefninn blíði lagst að klerkum, háum og lágum, og vafið þá sínum mjúku örmum. Og þannig hefúr margt innan þessarar stofnunar færst í bönd vanans og kannski runnið hálfgert í stein. Eldurinn slokknað og glóðin kulnað.“ Samfélagsguðspjallið Ádrepur af þeirri gerð sem nú síðast voru nefndar eru vitanlega ekki nýmæli. í hverri kynslóð presta rís upp einn eða fleiri til að vara við doða og drunga, við því að það vökni í andans púðri og eldurinn helgi slokkni. En það er fremur sjaldgæfl að slík ádrepa sé jafnt eindregið tengd við þjóðfé- lagsmál og í þeirri grein sem nú var nefnd. En þar segir Sigurður Ægisson m.a. - eftir að hann hefur sagt kirkjunni að vera ekki með allan hugann hinum meginn („taka augun af himninum í bráð og sjá hvað er að gerast við túnfótinn“): „Hún (kirkjan) má aldrei þegja ef hún sér á einhveijum brotið... Hún á að mótmæla þegar órétti er beitt. Mótmæla þegar kristnum boðskap er nauðgað. Mótmæla þegar öxin er lögð að rótum vel- ferðarkerfisins. Jafnvel þótt ein- hveijir misvitrir pólitíkusar sýni klær og tennur, og þá er sama hverra fiokka þeir eru.“ Pistill af þessu tagi er angi af þeirri hreyfingu sem víða sér stað: sú hreyfing vill taka það alvarlega sem kallað er stundum „hið félags- lega guðspjall“, m.ö.o. boðskap Krists um ríka og fátæka, um rétt- læti og ranglæti þessa heims. Þessi hreyfing er til í mörgum myndum og eitt er jafnan víst: að hvenær sem hún lætur á sér kræla, þá rísa upp íhaldssöm öfl, jafnt í kirkju sem þjóðfélagi, sem segja sem svo, að hér sé kirkjunnar maður (eða kirkjunnar menn) að fara út á hálan ís. Þeir séu að misbrúka Krist í pólitískum tilgangi. Gera hann að félagslegum umbóta- manni, gott ef ekki byltingarsinna. Og fylgir það með að þetta sé ekki það sem mestu skipti, heldur sál- gæsla einstaklinga, hugstyrking annars heims og fleira þesslegt. Hver eignar sér Krist? Vitanlega er hér um eilífðar- vanda að ræða sem menn munu seint hætta að takast á um. Á hveijum sögulegum tíma reynir hver og einn sem á kristnum vett- vangi starfar að færa Krist sem næst sjálfum sér: Einum verður kær sá Jesús sem velti borðum víxlaranna og sendi þann ríka mann sem ekki skeytti um eymd Lasarusar út í ystu myrkur. Áðrir hafa ekki augun af þeim Kristi sem sagði: Mitt ríki er ekki af þessum heimi. Og vilja halda sig „í öðrum heimi“. Og svo smíða menn brýr milli þessara skauta, hver með sín- um hætti. En taki menn eftir einu þegar þeir velta fyrir sér „pólitískum" vanda kristindómsins. Það er afar algengt, að sá sem ekki vill að hans eigin kirkja vasist í samfé- lagsvanda heima fyrir sé stórhrif- inn af þeirri kirkju sem gerir slíkt annarsstaðar - til dæmis ef hún berst fyrir mannréttindum og rétt- læti í ríkjum þar sem guðlausir kommúnistar stjóma. Eða þá áhangendur Múhameðs. Og þetta er reyndar hræsnin versta: menn ætlast til þess að kristnir menn, kirkjunnar menn, taki á sig háska og jafnvel píslarvætti einhvers- staðar annarsstaðar, en finnst það hneyksli ef ymprað er á hinu félagslega guðspjalli og „þegnlegu hugrekki" til að andæfa því í löndum þar sem kristni er op- inber trú og flestir þegnar kristnir, að minnsta kosti að nafninu til. Biskup og ríkisstjórn Nýlegt dæmi um þetta er frá Bretlandi. Þar hafa menn lýst áhyggjum af vaxandi ofbeldi ung- linga í borgum, þar sem rán og gripdeildir fara saman við að því er virðist blinda eyðileggingu. Stjómvöld hafa kallað á meiri lög- reglu og strangari aga og endur- vakningu margra alda refsinga við óspektum og fleira þesslegt. Þá gerist það að sjálfúr erkibiskupinn af Kantaraborg, George Carey, tek- ur til máls og gefúr til kynna að stefnu stjómvalda (þeas Ihalds- flokksins) sé að nokkru um að kenna. Hann mælti á þessa Ieið: „Mannlegar misgjörðir era með óaðskiljanlegum hætti tengd- ar illum félagslegum aðbúnaði, fá- tækt, lélegu húsnæði og menntun- arskorti.“ íhaldinu breska þótti sem and- legur leiðtogi ensku biskupakirkj- unnar hefði með þessu móti brugð- ist skyldum sínum herfilega. Hann væri með því að vísa til félagslegra aðstæðna í þeim borgarhverfum þar sem óeirðir hafa orðið grimm- astar, eins og að afsaka og réttlæta ofbeldið í stað þess að fordæma það. John Major forsætisráðherra vísaði til þess, að ekki væru allir óeirðaseggir úr umhverfi þar sem skortur rikir og sumar aðgerðimar væru rækilega undirbúrtar og því ekki eins og sjálfsprottnar af inni- byrgðri reiði. Tvö viðhorf Hér mætast í rauninni tvenns- konar lífsviðhorf. Annað segir (og þar hafa forystumenn Ihaldsins breska orðið) að hver sé sinnar gæfú smiður, beri ábyrgð á sjálfúm sér. Þegar verst lætur leiðir þetta viðhorf til þess að menn neita að skilja þá sem hafa „tapað“ í lífs- baráttunni, þá sem eru eiginlega fyrirfram undir í samkeppni vegna þess hve mikið forskot aðrir höfðu fram yfir þá. Erkibiskupinn minnir menn hinsvegar með fremur hóg- værum orðum á það að þeir verði að skilja baksvið tíðinda til að geta sett sig í annarra spor og falla ekki í gryfju kaldrifjaðrar og sjálfúm- glaðrar dómhörku. Vart mundi hann neita þvi að „ekki allir" óeirðaseggir séu úr slömmum breskra borga. En það skiptir ekki höfúðmáli heldur hitt: Það er ekki á góðu von þegar mjög stór hluti ungs fólks í borgum elst upp við fátækt og veit að þess bíður varla neitt annað en atvinnuleysi og ótrygg tilvera á jaðri samfélagsins. Þetta minnti erkibiskupinn lærisveina ffú Thatcher á. Og fékk skarpa skömm fynr. Og þá má spyija eins og stundum er gert í uppbyggilegum sögum: Hvað hefði Kristur sagt?... ÁB ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 1. október 1991 Síða 2

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.