Þjóðviljinn - 02.10.1991, Side 3
IBAG
2. október
er miðvikudagur.
Leódegaríusmessa.
275. dagur ársins.
Sólarupprás í Reykjavík kl.
7.38 - sólarlag kl. 18.55.
Viðburðir
Þjóðhátíðardagur Gíneu. Bisk-
upsstóllinn á Hólum lagður
niður 1801. Verkalýðsfélag
Austur- Húnvetninga á
Blönduósi stofnað 1930.
Tækniskóli (slands settur (
fyrsta sinn 1964.
Þjóðviljinn
fyrir 50 árum
Bæjarstjórn er að láta flytja þá
húsnæðislausu til Valhallar. 40
húsnæðislausar fjölskyldur
leituðu á náðir fátækrafulltrúa
í gær. Allir fullorðnir karlmenn
í Sovétríkjunum hefja vopna-
burð og heræfingar.
fyrir 25 árum
Borgarstjóri viðurkennir eftir
margra vikna þögn: Vanskil
borgarsjóðs eru tugmiljónir.
Engin bilbugur á fjármálaráðu-
neytinu: Reynt að halda uppi
ioftskeytaþjónustu í Gufunesi.
Sá spaki
Skoðanir almúgans eru ekki
eins heimskulegar og ef hann
færi að hugsa sjálfur.
(Bertrand Russel)
MÍN
SKOÐBN
á hugmyndum um
skólagjöld og breytt lög
um Lánasjóð
ísl. námsmanna
Hrafnhildur Harðar-
dóttir og Kristín
Bjartmars
námsmenn
Við mótmælum bæði skóla-
gjöldum og tillögunum um
breytt lánakerfi. Þessar hug-
myndir um skólagjöld eru bara
fáránlegar. Það er ekki hægt að
leggja á skólagjöld og í ofaná-
lag að fækka árunum sem fólk
má taka námslán og taka vexti
af lánunum. Ef þetta verður
gert getur maður ekki lengur
farið í doktorsnám á námslán-
um. Þakið á námstímanum
verður fimm ár ef þessar til-
lögur verða samþykktar. Okkur
stendur ekki á sama um hvað
verður gert og við mætum í
mótmælastöðu til að sýna það.
Bræðslur á
köldum klaka
Afkoma loðnubræðslna
var afar slæm á síð-
asta ári og ekki er út-
litið betra í ár að öllu
óbreyttu. Jón Olafsson fram-
kvæmdastjóri Félags íslenskra
fiskimjölsverksmiðja segir að
þetta eigi ekki að koma óvart í
ljósi þess að verksmiðjurnar
bafa ekki fengið „loðnupöddu"
til vinnslu frá því í mars; á ver-
tíð sem brást að mestu leyti.
Þetta kom fram á aðalfundi
FIF sem haldinn var nýlega þar
sem rædd var hin bágboma af-
koma atvinnugreinarinnar. Eins
og kunnugt er þá brást haustver-
tíð að mestu á síðasta ári og á
vetrarvertíð veiddust aðeins um
200 þúsund tonn af loðnu, eða
um þriðjungur þess afla_ sem
fyrri vertíðir hafa skilað. í dag
ríkir fullkomin óvissa um hvort
eða hvenær loðnuveiðar hefjast
að nýju. Alls eiga hér hlut að
máli hátt í tuttugu loðnuverk-
smiðjur víðs vegar um landið, út-
gerðir um fjöratíu loðnubáta, en
síðast en ekki síst þeir Qölmörgu
bæir og sveitafélög sem hafa haft
umtalsverðar tekjur af veiðum og
vinnslu loðnuafurða. A venju-
legri loðnuvertíð vinna um 300-
500 manns í verksmiðjunum til
viðbótar við þá 600 sjómenn sem
eru á loðnuskipunum, auk þeirra
margföldunaráhrifa sem loðnan
hefur á aðrar atvinnugreinar.
Þrátt fyrir þetta óvissuástand
í loðnu gera menn sér vonir um
að fá eitthvað að gera við
bræðslu síldar, en á síðustu ver-
tíð fór um helmingur síldarkvót-
ans til bræðslu. Náist ekki viðun-
andi samningar um sölu á síld til
söltunar og frystingar má ætla að
enn stærri hluti síldarkvótans
verði unninn í mjöl og lýsi. Fyrir
tonn af síldarmjöli fást nú um
33.500 krónur á móti 32.600
krónum á síðustu vertíð og lýsis-
tonnið á um 19 þúsund krónur á
móti rúmum 16 þúsundum í
fyrra.
Vegna vanda loðnuverk-
smiðja á síðustu vertíð ákvað þá-
verandi ríkisstjóm að beina þeim
tilmælum til banka og sjóða að
þeir skuldbreyttu eldri lánum og
vanskilum loðnuverksmiðja
þannig að greiðslubyrði þessa árs
verði í samræmi við fyrirsjáan-
legan samdrátt i tekjum. Til að
auðvelda þessar skuldbreytingar
lagði þáverandi ríkisstjóra til við
Alþingi að ríkissjóður veitti
sjálfskuldarábyrgð fyrir fjórð-
ungi slíkra skuldbreytingarlána,
að hámarki samtals 200 miljónir
króna. Þetta var samþykkt með
lánsfjárlögum á síðasta þingi en
hefur þó ekki enn komið til
framkvæmda a_f hálfu núverandi
stjóraar. Jón Ólafsson segir að
svo virðist sem hin almenna
stefna ríkisstjómarinnar sé að
láta „náttúruna“ um að fækka
verksmiðjum, í stað þess að að-
stoða þær yfír versta hjallann
vegna tímabundins hráefnis-
skorts.
-grh
V ér mótmælum allir
úsundir námsmanna
söfnuðust saman fyrir
utan Alþingishúsið í
gær þegar 115. löggjaf-
arþingið var sett, til að mót-
mæla fyrirhuguðum skóla-
gjöldum og vöxtum á námslán.
Formenn allra félagasamtaka
i Hafnarfirði söfnuðust saman í
Hafnarborg síðdegis í gær til
þess að stilla saman mótmæla-
strengi vegna áforma heilbrigð-
isráðherra um að leggja niður
St.Jósepsspítala.
Kratar í Hafnarfirði boðuðu
til fundar á mánudagskvöld með
heilbrigðisráðherra þar sem
áformum ráðherrans um St.Jós-
epsspítala var mótmælt ákaf-
lega.
Þingmenn Reykjaneskjör-
dæmis hafa fundað um spítalann
og heimsótt hann og allir utan
iðnaðarráðherra lagst gegn
áformum Sighvats Björgvins-
sonar.
Ungir Jafnaðarmenn sendu
um helgina frá sér mótmæli til
forystu Alþýðuflokksins þar
sem skattahækkunum ríkis-
stjórnarinnar er mótmælt og
einnig því að ekki sé tekið á bú-
vörusamningnum einsog kratar
höfðu lofað í kosningum. Þá
hvöttu þeir þingmenn og ráð-
herra Alþýðuflokksins til að
standa við stefnu flokksins.
Pétur Sigurðsson og Alþýðu-
samband Vestljarða sendu frá
sér ályktun um helgina þar sem
skattahækkunum rikisstjórnar-
innar í formi þjónustugjalda er
mótmælt. Þá mótmælir Pétur
ummælum Davíðs Oddssonar
um atvinnutryggingarsjóð og
segir að ef hann hefði ekki kom-
ið til á sínum tíma væru flest
þeirra fyrirtækja sem nú væru
öflugust í sjávarútveginum kom-
in á hausinn. Nefndi hann þar til
Granda, fyrirtæki Einars Guð-
finnssonar í Bolungarvík, Alla
ríka á Eskifirði og Einars ríka í
Vestmannaeyj um.
Matthías Bjarnason þing-
maður Sjálfstæðisflokksins á
Vestíjörðum hefur haft nægt til-
efni til mótmæla og ekki sparað
stóru orðin. Hann mótmælti dig-
urbarkalegum ummælum forsæt-
isráðherra um að Byggðastofnun
hefði látið undan pólitískum
þrýstingi við ákvarðanatökur
sínar. Hann mótmælti gerræðis-
legri tilskipun menntamálaráð-
herra þegar Ólafur Garðar ákvað
upp á sitt einsdæmi að leggja
Reykjanesskóla niður.
Þingmenn Vestfjarða að Sig-
hvati Björgvinssyni undanskyld-
um hafa allir mótmælt aðförinni
að Reykjanesskóla.
Forystumenn samtaka launa-
fólks hafa allir, að Karli Steinari
Guðnasyni undanskyldum, mót-
mælt íyrirhuguðum álögum á
launafólk í fjárlagafrumvarpi
ríkisstjómarinnar. Þá hafa þeir
mótmælt yfirlýsingu Friðriks
Sophussonar um að ekki verði
samið um neinar launahækkanir
núna.
Öll sjómannasamtök landsins
hafa mótmælt fyrirætlunum um
að skerða eða afnema sjómanna-
afsláttinn.
Geðlæknafélag íslands hefur
mótmælt vinnubrögðum Sig-
hvats Björgvinssonar við stofn-
un réttargeðdeilar að Sogni.
Heilbrigðisstéttirnar einsog
þær leggja sig hafa mótmælt
niðurskurðarhugmyndum Sig-
hvats í heilbrigðiskerfinu.
Nær öll þjóðin kvað upp
samróma mótmæli gegn lyíja-
skatti Sighvats í sumar.
Starfsfólk og nemendur við
Kennaraháskóla íslands mót-
mæltu tilskipun Ólafs Garðars
um að hætt yrði við lengingu
kennaranámsins í fjögur ár.
Nemendur og kennarar við
Hamrahlíðarskóla hafa mótmælt
tilskipun menntamálaráðherra
sem kollvarpaði stundaskrá
skólans í vetur.
Þrír fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins í útvarpsráði, þar með
talinn formaður ráðsins, hafa
mótmælt ráðningu menntamála-
ráðherra í stöðu útvarpsstjóra og
sagt af sér í ráðinu.
Þetta eru örfá af þeim mót-
mælum sem þjóðin hefur að
undanfömu sent frá sér til ríkis-
stjómarinnar. í skoðanakönnun
DV kvað þjóðin upp þann úr-
skurð að ríkisstjórain ætti að
fara frá.
Síða 3
ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 2. október 1991