Þjóðviljinn - 08.10.1991, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 08.10.1991, Blaðsíða 12
Varað við frekari kísilnámi úr Mývatni Náttúrverndarráð hefur sent frá sér umsögn varðandi álit Sérfræðinganefndar um áhrif Kísiliðjunnar hf. á lífríki Mývatns. Þar er farið hörðum orðum um slæmar afleið- ingar sem kísiltaka úr vatninu hefur í för með sér. Arni Einars- son, starfsmaður náttúrurannsóknastöðvar við vatnið segir að samkvæmt alþjóðlegum samþykktun séu stjórnvöld ábyrg fyrir lífríki vatnsins og nú sé svo komið að það sé í hættu. Ami segir að kísiltakan leiði til breytinga á framboði lífrænna efna á vatnsbotninum. „Þetta stafar af víðtækri röskun sem verður á reki nýmyndaðs, líf- ræns sets við töku kísilgúrs úr vatninu. Það vill svo til að þetta lífræna set er undirstöðunæring flestallra smádýra á botni Mývatns og síðan lifa bæði fiskar og fuglar á þessum smádýrum," sagði Ami. Hann sagði og, að ef kísilgúr- námið yrði fært í svokallaða Bása hefði það enn meiri tap á lífrænum efnum í för með sér. „Þetta efni hagar sér þannig að þegar mikill öldugangur er í vatn- inu gruggast það upp og lífræna efnið Ieitast við að fara þangað sem dýpst er. Við námuvinnsluna eru grafnar djúpar holur og þangað leitar þá efnið og verður fáum líf- vemm til gagns,“ sagði Ami. Hann sagði að á síðasta ári hafi verið fjallað um vistkerfið á þingi erlendis og þar lýstu menn yfir áhyggjum af töku kísilgúrs úr vatn- inu. „Nú þegar skýrsla sérfræðinga- nefndarinnar liggur fyrir er ljóst að samkvæmt alþjóðlegum skuldbind- ingum okkar Islendinga verður að gera eitthvað róttækt til að koma í veg fyrir frekari_ röskun á lífríki Mývatns,“ sagði Ami. Eiður Guðnason umhverfisráð- herra sagði að hann væri búinn að fá umsögn Náttúrvemdarráðs í sín- ar hendur og mundi athuga það álit vandlega. „Það er ekkert hægt að segja um áframhaldandi rekstur Kísiliðj- unnar, enda er það ekki í mínum verkahring að gefa þeim starfs- leyfi. En umsögn Náttúruvemdar- ráðs verður að sjálfsögðu skoðuð vel og allir þættir málsins athugað- ir,“ sagði Eiður. Hjá iðnaðarráðuneytinu, sem gefur Kísiliðjunni starfsleyfi, sagði aðstoðarmaður ráðherra, Guð- mundur Einarsson, að málið væri í vinnslu og ekki komið á það stig að hægt væri að upplýsa um áframhald Kisiliðjunnar. „Við munum i nánu samráði við alla að- ila málsins meta það hvort verk- smiðjan verður rekin áfram eða ekki,“ sagði Guðmundur. Róbert B. Agnarsson, fram- kvæmdastjóri Kísiliðjunnar, sagði að ekki væri hægt að upplýsa neitt um hvað fram hafi farið á fundi hans með iðnaðarráðherra sl. laug- ardag. „Við ræddum um stöðu mála, en að öðru leyti vil ég ekki tjá mig hvað fram fór á þeim fundi,“ sagði Róbert. Hann sagði og það væri gjam- an með náttúruvemdina að oft á tíðum færi hún 50 prósent fram úr því sem eðlilegt mætti þykja. „Það sem við þurfúm að ná fram i þessu máli er skynsamleg niðurstaða, sem byggir á því að nýta námuna og að vemda náttúruna," sagði Ró- bert. Aðspurður um viðvörun Nátt- úmvemdarráðs um að fara á önnur svæði í vatninu, sagði Róbert að ef einhver framtíð ætti að vera fyrir fyrirtækið þyrivi það að vera í myndinni. „Á þessu svæði sem við höfúm verið að tala um er nægilegur kís- ilgúr fyrir 60- 70 ára vinnslu. Svæðið sem við höfúm verið á og horfum á núna til framtíðar nær ekki nema yfir 10 prósent af vatn- inu. Það hefúr enginn verið að tala um að ryksjúga vatnið af kísilgúr, enda myndi allur kísilgúr í vatninu duga til mörg hunduð ára ffam- leiðslu,“ sagði Róbert. -sþ Sjálfstæðisflokkurinn á móti sjálfstæðri þekkingaröflun -^Clafur Ragnar Grímsson varaformaður Öryggismálanefndar í Jtelur að sú ákvörðun að leggja Öryggísmálanefnd niður sé yf- irlýsing af hálfu Sjálfstæðisflokksins um að flokkurinn sé á móti óháðri þekkingaröflun á sviði utanríkismála. í fjárlagafrum- varpinu er gert ráð fyrir að fella niður framlag til nefndarinnar, sem heyrir undir forsætisráðuneytið, en það var 9,2 miljónir króna á síð- ustu fjárlögum. Bjöm Bjamason, Sjfi., sem einnig á sæti í nefndinni staðhæfir að ekki liggi annað að baki ákvörðuninni en almennar spam- aðaraðgerðir. Hann styður þessa ákvörðun en lelur hana ekki neinn áfellisdóm yfir störfum nefndar- innar. Olafur Ragnar bendir hins- vegar á að framlög til aðalskrif- stofu ráðuneytisins hækki á sama tíma um 19 prósent og telur sjálf- sagl að spara, en ekki þannig að sjálfstæð þekkingaröfiun sé skorin á meðan kontórútgjöld séu aukin. Starfsmaður nefndarinnar er Albert Jónsson, en nefndin var sett á iaggimar 1978 og hefur gefið út Ijölda rita um öryggis- og utanrík- ismál. „Það er merkilegt að Sjálfstæð- isfiokkurinn virðist ekki þola það að hér sé slarfandi sjálfstæður vett- vangur sem vinnur faglega og fræðilega að gagnaöfiun á sviði ut- anríkismála," sagði Ólafur Ragnar, sem segist furðulostinn yfir því að sjá þau kaldastríðsviðhorf sem séu innleidd með þessu. „Það er náttúrlega fullkomið gerræði að gera þetta án nokkurra viðræðna milli flokkanna, því þetta hefur verið samvinnuverkefni fiokkanna í nærri því 15 ár og ekki hægt að skilja þetta öðmvísi en svo, að Sjálfstæðisfiokkurinn vilji viðhalda gamla hleypidómakerfmu frá kaldastríðsámnum,“ sagði Ól- afur Ragnar. -gpm Námsmenn slegnir með blautri tusku Samband ungra Framsóknarmanna og Æskulýðsfylking Alþýðu- bandalagsins mótmæla harðlega fyrirætlunum ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar varðandi álagningu skólagjalda á náms- menn. Einnig harma þessi félög og skilja ekki að ungliðahrcyfingar stjórnarflokkanna hafi ekki viljað taka þátt í sameiginlegri ályktun gegn þessum gjöldum. I ályktun FUS og ÆFAB segir að með upptöku skólagjalda sé vikið frá fyrri grundvallarstefnu í menntamálum, þ.e. að fólk í þessu landi skuli hafa jafnan rétt til náms. Ennfremur hvetja þessar hreyfingar ungt fólk og námsmenn til að taka höndum saman og skera upp herör gegn þcssum áfomium rikisstjómarinnar. SUF og ÆFAB segja að ríkisstjómin megi ekki komast upp með að skerða náms- möguleika efnalítilla námsmanna. SUF og ÆFAB harma að Sam- band ungra Jafnaðannanna hafi ekki þorað eða getað trcyst sér til að standa að sameiginlcgri ályktun æskulýðshreyfinga stjórnmála- fiokkanna gegn álagningu skóla- gjalda á námsmenn. Hreyfingamar benda og á að Samband ungra Sjálfstæðismanna hafi heldur ekki séð sér fært að standa að ályktuninni, þar sem SUS hafi ályktað á fundi sínum á Isafirði fyrir skömmu að taka bæri upp „hófiegf1 árgjald í framhalds- skólum og allt upp í 25 þúsund króna gjald við Háskóla Islands. SUF og ÆFAB lýsa og furðu sinni á því að æskulýðssamtök eins og SUS skuli með slikum hætti ganga til liðs við þau öfi sem veitast að námsmönnum. Nær væri að æsku- lýðssamtök gættu hagsmuna ungs fólks og námsmanna í stað þess að slá þá með blautri tusku, segir í ályktunni. -sþ ABERG íj .•w<—^ Sigurður Guðmundsson myndlistarmaður við bronsmynd sína, Mynd 1991, sem Markús Örn Antonsson borgarstjóri Reykjavlkur afhjúpaði á torginu við Gerðuberg í Breiðholti I gær. Jafnframt vlgði borgarstjórinn torgið. Mynd: Kristinn. 2000

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.