Þjóðviljinn - 18.10.1991, Side 17
Helgarrúnturinn
Ljóðadúett-
ar og ein-
songslog i
Gerðubergi
Ljóðatónleikar í
Gerðubergi hefjast nú
um helgina. A íyrstu
tónleikum vetrarins á
morgun kl. 17 og á
mánudag kl. 20.30
syngja þær Ema Guð-
mundsdóttir sópran og
Sigríður Jónsdóttir
mezzósópran. Á efnis-
skrá þeirra em ljóða-
dúettar og einsöng-
slög. Má þar nefna
Hljóma ffá Mæri eftir
Dvorak og kunna dú-
etta eftir Henry Purc-
ell. Þá mun Sigríður
syngja Bamagælur eft-
ir Atla Heimi Sveins-
son og Ema lagaflokk-
inn Lög handa litlu
fólki eftir Þorkel Sig-
urbjömsson, svo eitt-
hvað sé neíht af dag-
krá þessara ungu
söngvara. Að vanda
leikur Jónas Ingi-
mundarson með á pí-
anó.
Gerðuberg hefúr
staðið fyrir ljóðatón-
leikum í þijú ár og
hefúr aðsókn að þeim
farið ört vaxandi.
Þeim sem ætla sér að
mæta reglulega á tón-
leikana býðst að kaupa
áskriftarkort, sem er
að sjálfsögðu mun
hagstæðara.
Ema Guðmundsdóttir og
Sigríður Jónsdóttir syngja
dúetta og einsöngslög í
Gerðubergi á morgun og
á mánudag.
Anna um hálsinn
Á hverjum sunnudegi er hægt að ganga að sovéskum
kvikmyndum i bíósal MIR við Vatnsstiginn.
Næstkomandi sunnudag verður sýnd kvikmyndin Anna
um hálsinn, byggð á samnefndri smásögu Antons Tsjek-
hovs. Myndin er ffá árinu 1954 og segir ffá Önnu, dóttur
drykkfellds kennara, sem ung var gift til fjár sér miklu
eldri manni, embættismanninum Modest Aleksjeits. Saga
Tsjekhovs birtist fyrst á prenti fyrir tæpum 100 árum, árið
1895. Myndin er með enskum skýringartextum og hefst
sýning hennarkl. 16. Aðgangur að kvikmyndasýningum
MÍR er ókeypis og öllum heimill.
„Vouíez
vous diner
avec moi?7/
-Menu-
Helgin 17.-20. október
Kokteillinn er borinn
ffam í Eden Hveragerði um
helgina og samanstendur af
18 „12 ára“ grafíkmyndum
og fáum ferskum gróður-
verkum. Ljúf blanda um
helgina. Eden.
Mánuðurinn 20. okt.-
20. nóv.
í tískuversluninni 17 við
Laugaveg er fram borinn í
einn mánuð „Kaffi 17 for-
réttur“ Olíumálverk að hætti
Ástu Guðrúnar með ijúkandi
kaffinu...Things that make
you go ummmmm... Kaffi
17.
Veturinn 27. okt. og
fram á vor.
Að gömlum og góðum
sið tökum við allan þann
tíma sem við þurfúm í aðal-
réttinn á þessu „myndlista-
menu“ því þar liggur jú
kjami málsins, ekki satt? Á
Bemhöftstorfúnni, þar sem
andinn er „réttur“, þar sem
hjartað slær, þar sem við-
skiptin blómstra, þar sem
lífið í iistinni er listin að lifa.
Gjörið þið svo vel. Torf-
an.
Sigurður Einarsson listmálari er um þessar mundir að
sýna verk sín í listasalnum á effi hæð Bókaverslunar Braga.
Sýningin er opin virka daga á sama tíma og verslunin, á
laugardögum kl. 10-17 og á sunnudögum kl. 14-17. Þeim
sem vilja virða fyrir sér verk listamannsins er bent á að
sýngingu hans lýkur síðasta dag sumarsins, þann 24. október
næstkomandi. Mynd: Jim Smart.
íslensk
píanótónlist
Öm Magnússon píanó-
leikari heldur tónleika í
Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi á sunnudag kl.
15.
Hann mun leika íslenska
píanótónlist eflir tónskáldin
Hjálmar Ragnarsson, Misti
Þorkelsdóttur, Jón Leifs,
Hilmar Þórðarson, Pál
Isólfsson, Sveinbjöm Svein-
bjömsson
og Þorkel
Sigur-
bjömsson.
Efnis-
skrá þessa
mun Öm
flytja á
þriggja
vikna tón-
leikaferða-
lagi um Jap-
an nú í nóv-
ember.
Stiklað á stóru
Göngum létt í lund
Göngu-Hrólfa kallar sig hress hópur sem hittist
hvern einasta laugardag, hvernig sem viðrar, í Ris-
inu við Hverfisgötu á slaginu 10. Eftir að safnast hef-
ur verið saman er þrammað af stað út um borg og
bý til að hressa og létta vetrarlundina. í Kópavogin-
um gefst Hana-nú hópurinn heldur ekki upp þótt
kuldaboli ygli sig. Hópurinn hittist upp úr hálftíu á
laugardagsmorgnum að Fannborg 4, skellir í sig
kaffi og arkar af stað. Ferðafélagið og Útivist bjóða
einnig upp á göngur um hverja helgi. Á sunnudag
verður Póstgöngunni haldið áfram á vegum Útivist-
ar. Genginn verður 21. áfangi og lagt af stað kl.
10:30. Svavar Sigmundsson dósent verður fylgdar-
maður þeirra sem kynnast vilja leið landpóstanna
um síðustu aldamót. Eftir hádegi á sunnudag verður
farið í ferð að Stóra- Reykjafelli og lagt af stað kl.
13. Brottför er frá BSÍ, bensmsölumegin. Kl. 13 á
sunnudag býður Ferðafélag íslands upp á ferð á
Seltanga, sem ku vera einstakur staður milli Grinda-
víkur og Krísuvíkur. Tendrað verður bál á ströndinni,
hellar, byrgi og sérstætt hraunlandslag skoðað, svo
eitthvað sé nefnt. Á sama tíma verður farin önnur
ferð. Liggur sú leið upp á Stórahrút, sem er rúmlega
þrjú hundruð metra hátt fjall í nágrenni við (sólfs-
skála. Brottför í ferðirnar er frá BSÍ, austanmegin.
Rússnesk og íslensk verk á fjölunum
Á ég hvergi heima eftir Galín verður sýnt í allra síð-
asta sinn í kvöld á litla sviði Borgarleikhússins. Ann-
að rússneskt leikrit er tekið við á litla sviði Þjóðleik-
hússins, Kæra Jelena, og mun það ekki vera síðra.
Það er sýnt bæði laugardag og sunnudag. í Þjóð-
leikhúsinu er líka verið að sýna Búkollu blessaða og
Gleðispilið hans Kjartans Ragnarssonar. Nýlega var
frumsýnt nýtt, íslenskt leikrit eftir Sveinbjörn I. Bald-
vinsson á litla sviði Borgarleikhússins. Þétting heitir
jað og verður sýnt um helgina. Þá má ekki gleyma
Oúfnaveislunni á stóra sviði Borgarleikhússins. ís-
enska óperan er eins og kunnugt er að sýna Töfra-
lautuna eftir Mozart við góðan orðstír, og er tæki-
æri til að njóta hennar á laugardag og sunnudag.
Þá má enginn láta hjá líða að bregða sér til Akureyr-
ar og sjá Stálblómin hjá LA.
Frá landi mannanna
Grænlandsmánuður stendur nú yfir í Norræna hús-
inu og gefst íslendingum þar kostur á að kynnast
menningu nágranna sinna. Á morgun kl. 16 munu
þau Benedikta og Guðmundur Þorsteinsson segja
frá lífi og starfi á Grænlandsgrund. Þá mun Bene-
dikta fjalla sérstaklega um stjórnmál á Grænlandi. Á
sunnudag heldur Bodil Kaalund listmálari fyrirlestur
með litskyggnum um grænlenska myndlist kl. 16. Kl.
17.30 sama dag heldur Christian Berthelsen fyrir-
lestur um bókmenntir Grænlendinga. í sýningarsaln-
um í kjallara Norræna hússins stendur yfir sýningin
Grænlensk myndlist, og eru öll verkin úr safni Astri
Heilmans. ( anddyrinu stendur yfir fræðslusýning um
land og þjóð; Grænland samtímans, og í bókasafni
hússins eru til sýnis grænlenskar bækur frá Lands-
bókasafninu í Grænlandi og Det Grönlandske For-
lag.
Djasstrommarinn
Charlie Watts
Þar sem síðustu tveir
sveiflupistlar voru upphaf-
lega ein grein sem klippt var
í sundur sakir óhóflegrar
lengdar, rímuðu lokaorð þess
fyrri ekki alveg við það sem
á undan var gengið, og i
þeim seinni var þess hvergi
getið hvar geisladiskurinn
með Johnny Hodges og fé-
lögum fengist. Það skal hér
með upplýst að hann fæst i
Japis í Brautarholti ásamt
fleiri endurútgáfúm frá Ver-
ve.
I októberhefli bandaríska
tímaritsins DownBeat tekur
Suzanne McElffesh viðtal
við einn af kunnustu tromm-
urum rokksins, Charlie Watts
úr Rolling Stones. Það er tek-
ið daginn eftir að hann lék
með bebop-kvintett sínum á
klúbbnum Blue Note í New
York, en auk þess hélt sveitin
tónleika í Lundúnum og Tók-
íó. Það cr ekki óforvitnilegt
að lesa hvað þessi fimmtugi
rokkari hefúr að segja um
sjálfan sig og djassinn og því
birtist viðtalið hér á eflir, ei-
lítið s,tytt.
„I gærkvöldi var ég
Kenny Clarke (frumkvöðull í
bíboppskum trommuleik,
aths. TRE). Um þetta hafði
enginn annar hugmynd, en
það sem ég gerði var að stæla
tvo af mínum eftirlætis-
trommuleikurum, Kenny
Clarke og Max Roach,“ sagði
Charlie Watts hógvær að
vanda og bætti við: „þó
hljómaói þetta að sjálfsögðu
betur hjá þeim en hjá mér.“
Um leið og tónleikamir
vom haldnir í New York
kom út platan From One
Charlie (Continuum 19104), í
minningu Charlie Parker, og
hefur að geyma sjö lög ásamt
„bamabók“ ejns og Watts
nefnir hana, Óður til fuglsins
sem flýgur hátt (Ode To A
High-Flying Bird - Bird var
gælunafn Charlie Parker,
aths. TRE). Þar er sagt frá lífi
Parkers, tónlistargáfu hans og
ótímabærum dauðdaga, en
bókin var skrifúð og mynd-
skreytt af Watts árið 1960,
fimm ámm eftir lát Parkers.
Charlie Watts hefúr nefnilega
dáð bebop-tónlistina og Par-
ker þar með að sjálfsögðu,
síðan hann var 13 ára, en þá
byrjaði hann að spila með 12
ára strák, David, sem bjó
skammt frá honum.
„U ppáhaldsbassaleikari
Davids var Jimmy Blanton,
bassaleikari Ellingtons
(1939-1941), sem var fyrsti
bassaleikarinn sem spilaði la-
grænar bassalínur; hann var
frábær," sagði Watts. Chico
Hamilton var fyrsti trommu-
leikarinn sem Charlie Watts
heyrði í og það var á fyrstu
hljómplötunni sem hann
eignaðist, plötunni Walking
Shoes með Gerry Mulligan.
„Hún kom mér til að byrja að
spila á trommur," og hann
hófst handa jafnvel áður en
hann eignaðist trommusett.
„Ég átti banjó og ég tók háls-
inn af og spilaði með burst-
um á belginn.“
Charlie Watts veit sínu
viti um djassmúsík og í
plötusafni hans er að finna
allar plötur Charlie Parkers.
Árið 1985 kom hann á fót 36
manna stórsveit, þar sem
mátti fínna flesta kunnustu
djassmenn Breta og sú sveit
hljóðritaði plötu og fór í tón-
leikaferðalag. En skýringin á
þessu ffamtaki hans nú er að
kunningi hans fékk leyfi til
að endurprenta bókina um
Charlie Parker, sem upphaf-
lega kom út 1964. Watts
ákvað að bókinni skyldi
fylgja plata og fékk altósax-
ófónleikarann Peter King, 19
ára trompetleikara, Gerard
Presencer að nafni, píanist-
ann Brian Lemon og bassa-
leikarann David sem hann
spilaði með fyrstum manna,
til að spila með sér tónlistina.
Rokkarinn og djassarinn
Charlie Watts sér ekki
ástæðu til að hólfa niður tón-
list. „Þú gegnir
sama hlutverkinu.
Þegar ég hlusta á
tónlist, þá er ég
ekkert að hólfa
hana niður í djass,
ryþmablús og svo
framvegis." Hann
notar sama trommu-
settið hvort sem
er í rokkinu eða
djassinum, Gretsch
ffá 1958. „Ég er
ekki mikiíí tækja-
kall og hef aldrei
verið. Ég á ekki
mikið af trommum
og þær sem ég- á
eru allar eldgaml-
ar. Svona eins og
fötin mín.“
'0
0
O)
Charlie Watts
þekkir vel til allra
helstu trommuleik-
ara djassins. „Að
slá með kjuðanum
á snerilinn er ein-
fold líkamleg
hreyfmg. En að
heyra Tony Willi-
ams gera það, er
andleg upplifun.
Að sitja fyrir fram-
an Art Blakey og
horfa á hann þyrla
á snerilinn sló
mann gjörsamlega
kaldan.“
Og það sem
Charlie Watts nam
af trommuleikur-
um djassins skilar
sér líka þcgar hann
spilar rokk.
„Stundum þegar
ég spila, hefúr mér
dottið í hug að
gera eitthvað í
anda Elvins Jones
- þyrla af fltons-
krafti. Ég hcf gert
það á plötum með
Rolling Stones. Þú
myndir aldrei
heyra það, en ég
sat þama og
ímyndaði mér að
ég væri hi nn. Þetta
var Elvin - að spila
gegnum mig.“
D
C
0
0
>
C/D
Q1 o
rn
ro í2
E ™
'O -E
1— LLI
NÝTT HELGARBLAÐ
17 FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1991