Þjóðviljinn - 18.10.1991, Side 18
Krumminn á skjánum
Valdemar og Maria
Landslag og spenna
Kvikmyndin Foxtrot verður á
dagskrá Sjónvarpsins á sunnu-
dagskvöldið. Hálfbræðurnir
Tommi og Kiddi standa í
peningaflutningum milli lands-
hluta, átökum, karpi og drykkju.
Á leið þeirra veröur stelpuræfillinn
Lisa og kynnin við hana verða
bræðrunum örlagarík eins og
gengur.
Myndin var á sínum tíma aug-
lýst sem fyrsta íslenska spennu-
myndin, en skoðanir eru mjög
skiptar um það hversu spennandi
hún er. Eins í flestum íslenskum
myndum leikur landslagið eitt að-
alhlutverkið, og á það er svo sem
alltaf hægt að góna. Höfundur
handrits er Sveinbjöm I. Baldvins-
son, Karl Oskarsson kvikmyndaði,
en leikstjóri er Jón Tryggvason.
Með aðalhlutverk fara þeir Valde-
mar Öm Flygenring og Steinar Ól-
afsson. Með hlutverk Lísu fer hin
gullfallega leikkona María Ellings-
en sem nú ku gera það gott sem
Austur-Þjóðverji í sápuóperunni
Santa Barbara í Kalifomíu. Þá ber
þess að geta að Norðmenn hafa
rænt Foxtrot eins og öðmm menn-
ingarverðmætum. A þýskri kvik-
myndaleigu sem Kmmminn rakst
inn á var myndin á áberandi stað í
hillu og stóð skýmm stöfum á
spóluhulstrinu: Norsk spennu-
mynd.
Úr draumaverksmiðjunni
Eina kvikmynd Sjónvarpsins í
kvöld er ekki af verri endanum ef
menn eru fyrir breskar sakamála-
myndir. Þeir félagar Wexford og
Burden reyna að leysa dularfullt
morðmál, sem höfundur þeirra,
Ruth Rendeli, hefur lagt þeim í
hendur.
Ekki em merkilegar kvikmynd-
ir kvöldsins á Stöðinni. Þær
skreyta engar stjömur eða þekktir
leikstjórar. Ekki er samt úr vegi að
telja þær upp hér fyrir þá sem eiga
afmglara.
Götudrottningar er fyrst á dag-
skránni. Lífið er sagt hafa aldeilis
leikið við hana Katarínu þar til
betri helmingurinn finnst myrtur í
rúmi gleðikonu. Kata hefur upp á
drósinni og taka kellumar höndum
saman og ákveða að leysa málið.
Til þess að það megi verða telja
þær stöllur nauðsynlegt að breyta
húsmóðurinni Kötu í drottningu
næturinnar. A eftir Götudrottning-
unum tekur myndin Fallinn engill
við og virðist heiti hennar gefa í
skyn að efnisþráður hcnnar sé ekki
ósvipaður og þeirri fyrri. Fallinn
engill segir frá dularfullu hvarfi
stúlku nokkurrar. Hálftíma eftir
miðnætti fara ýmsar kynjaverur á
stjá í myndinni Skrímslasveitin.
Segir þar af hugrökkum krökkum
sem reyna að bjarga heimabæ sín-
um frá blóðsugum og forynjum.
Allar myndir Stöðvarinnar í kvöld
eru bannaðar bömum, líka sú um
krakkana, enda löngu komið fram
yfir háttatíma.
Blaðasnápar er fyrri mynd
Sjónvarpsins á laugardag. Snápam-
ir eru breskir og starfa fýrir gulu
pressuna, og svífast að sjálfsögðu
einskis í sorafréttaleit sinni. A eflir
pressunni fáum við hvíta hrafna á
skjáinn. Þar er á ferðinni frönsk
verðlaunakvikmynd eftir Maurice
Pialet, sem kallast Æska og ástir
(A nos amours). Segir þar frá hinni
15 ára, bráðþroska Suzanne og vin-
konum hennar.
Lítum þá yfir bíómyndir Stöðv-
arinnar annað kvöld. Líf að láni um
jakkafatamann í Afríku og undur-
fagra, fáklædda górilluáhugakonu
lofar vissulega góðu. Lokaáminn-
ing er næst, þar er einkaspæjarinn
Harry Stoner á ferð í bókasafni.
Vitfirring er sögð vera bresk sál-
fræðihrollvekja og er hún, eins og
hrollvekjum ber, á dagskrá eftir að
klukkan slær tólf. í myndinni em
sagðar íjórar dularfullar sögur, sem
fá hárin til að rísa á höfði sófakart-
aflna. Síðasta mynd Stöðvarinnar
(Kræfir kroppar!) fjallar um karla
sem komnir em af léttasta skeiði,
en lenda heldur betur í heitum æv-
intýmm með ungum og fagurlega
sköpuðum gellum á strönd í Kali-
fomíu. Eins og allir vita em gaml-
ir, feitir karlar ómótstæðilegir í
augum ungra, fallegra kvenmanna.
Mynd sem eflaust er hin besta
skemmtun fyrir miðaldra konur.
S j ó n v a r p
Ljúfsárar
minningar
Manstu gamla daga er á
dagskrá Sjónvarpsins annað
kvöld. Gestgjafi er gamli
Ríó-tríarinn Helgi Pé, en í
þættinum er fortíöarþráin í fyr-
irrúmi og tónlist gömlu, góðu
daganna rifjuð upp.
Að þessu sinni verður
blómatíminn allsráðandi og
söngkonumar Ingibjörg Guð-
mundsdóttir, Erla Stefánsdóttir,
Þuríður Sigurðardóttir, Mjöll
Hólm og Anna Vilhjálms
syngja sín ljúfustu lög. Þá
verða í þættinum sýndar mynd-
ir frá ámnum kringum 1970 af
ungu fólki í útvíðum buxum
með túberað hár, og munu þær
eflaust vekja kátínu þeirra sem
tímann lifðu, en aðdáun tán-
inga.
Föstudagur
18.00 Paddington (1)
18.30 Beykigróf (5) Nýr, breskur
myndaflokkur þar sem segir frá
uppátækjum unglinga í félags-
miðstöð í Newcastle á Englandi.
18.55 Táknmálsfréttir
19.00 Hundalíf (5)
19.30 Shelley
20.00 Fréttir og veður
20.35 Kastljós og veður
20.35 Fjársjóður hefur tapast, finn-
andi vinsamlegast hafi samband
(4) Félagar úr Flugbjörgunar-
sveitinni og hjálparsveit skáta á
Akureyri leita að verðmætum úr
sögu þjóðarinnar. Umsjón Jón
Bjórgvinsson. Kynnir ásamt hon-
um Jón Gústafsson.
22.10 Samherjar (7)
22.35 Klækjavefur Bresk sjón-
varpsmynd frá 1990 byggð á
sakamálasögu eftir Ruth Ren-
dell. Hér eru á ferð góökunningj-
ar sjónvarpsáhorfenda, lögreglu-
mennirnir Wexford og Burden,
og leysa enn eina dularfulla
morðgátuna.
00.55 Útvarpsfréttir í dagskrárlok
Laugardagur
13.45 Enska knattspyrnan Bein út-
sending frá leik Manchester Un-
ited og Arsenal I fyrstu deild
ensku knattspyrnunnar. Umsjón
Bjarni Felixson.
16.00 Iþróttaþátturinn I íþróttaþætt-
inum verður að vanda fjölbreytt
efni úr ýmsum áttum, þar á með-
al: 16.00 Manarrallið 1991 Öku-
þórinn Steingrímur Ingason var
á meðal keppenda. 17.00. Al-
þjóðlegt fimleikamót. 17.50 Úrslit
dagsins. Umsjón Samúel Öm
Eriingsson.
18.00 Múminálfarnir (1) Teikni-
myndaflokkur um álfana í Múm-
índal þar sem allt mögulegt og
ómögulegt getur gerst. Leikradd-
ir Kristján Franklín Magnús og
Sigrún Edda Björnsdóttir.
18.25 Kasper og vinir hans (26)
(Casper & Friends) Bandarískur
myndaflokkur um vofukrílið Ka-
sper. Leikraddir Leikhópurinn
P anlacía
18.55 Táknmálsfréttir
19.00 Poppkom Glódis Gunnars-
dóttir kynnir tónlistarmyndbönd
af ýmsu tagi. Dagskrárgerð Þið-
rik Ch. Emilsson.
19.30 Úr rlki náttúrunnar Risakol-
krabbar Bresk fræöslumynd um
leiðangur sem farinn var út af
vesturströnd Norður-Ameriku.
Þýðandi og þulur Óskar Ingi-
marsson.
20.00 Fréttir og veöur
20.35 Lottó
20.40 Manstu gamla daga? Annar
þáttur: Á útvíðum buxum með
túberað hár i þættinum koma
fram fimm söngkonur sem voru i
sviðsljósinu um og eftir 1970.
Þær eru Ingibjörg Guðmunds-
dóttir, Erla Stefánsdóttir, Þuríður
Sigurðardóttir, Mjöll Hólm og
Anna Vilhjálms. Úmsjónarmenn
eru Jónatan Garðarsson og
Helgi Pétursson sem jafnframt
er kynnir.
21.20 Fyrirmyndarfaöir (2)
21.50 Blaðasnápar Bresk/kanadisk
sjónvarpsmynd frá 1990. Grá-
glettnisleg mynd um líf og störf
slúöurblaöamanna í Fleet Street.
Leikstjóri Les Blair.
23.25 Æska og ástir Frönsk bíó-
mynd frá 1984. I myndinni segir
frá Suzanne, 15 ára stúlku, og
vinkonum hennar sem styðja
hver aðra þegar foreldranna nyt-
ur ekki við. Þær hafa hugann all-
an við stráka og loks kemur að
því að ástin knýr dyra. Myndin
vann til Césarverðlaunanna i
Frakklandi 1984.
01.15 Útvarpsfréttir i dagskráriok
Sunnudagur
14.00 Rudolf Serkin leikur Beethov-
en (Klavierabend - Rudolf Serk-
in) Upptaka frá tónleikum hins
heimsfræga pianóleikara Rud-
olfs Serkins i Vinarborg í októ-
ber 1987. Verkin sem hann leik-
ur eru sónötur ópus 109, 110 og
111 eftir Ludwig van Beethoven.
15.15 Tónlist Mozarts Salvatore
Accardo og Bruno Canine flytja
sónötu fyrir fiðlu og pianó eftir
Wolfgang Amadeus Mozart.
15.45 Bak við grindverkið ( - og
bak gjerdet bor Claudia) I mynd-
inni segir frá Claudiu, 15 ára
stúlku sem á heima i smáþorpi i
regnskógum Norður-Brasiliu.
Myndin er sýnd i tengslum við
söfnun sem sérskóla-, fram-
haldsskóla- og iðnnemar standa
fyrir 24. október ásamt Hjálpar-
stofnun kirkjunnar, en söfnunar-
fénu á að verja til að auka
menntunarmöguleika barna og
unglinga i Brasiliu og Chile.
(Nordvision - Norska sjónvarpið)
16.20 Svipmynd úr lífi gleriista-
manns Þáttur um Leif Breiðfjörð.
Umsjón Bryndís Schram. Stjórn
upptöku Viðar Vikingsson. Aður
á dagskrá 30. apríl 1983.
16.40 Ritun Þriðji þáttur: Ritgerðir
Hvernig skrifa á ritgeröir og
greinar. Umsjón Ólina Þorvarð-
ardóttir. Áður á dagskrá í
Fræðsluvarpi 16. 11. 1989.
16.50 Nippon - Japan síöan 1945.
Þriðji þáttur: Efnahagsundrið og
byrðar þess. Breskur heimilda-
myndaflokkur í átta þáttum um
sögu Japans frá seinna stríði. I
þessum þætti er m.a. fjallaö um
fólksflutninga úr sveitum i borgir,
tilstandið í kringum Ólympiuleik-
ana 1964 og efasemdaraddir
þeirra sem töldu þjóðina of háða
Bandaríkjamönnum. Þulur Helgi
H. Jónsson.
17.50 Sunnudagshugvekja Ármann
Kr. Einarsson rithöfundur flytur.
18.00 Sólargeislar (26) Blandaöur
þáttur fyrir börn og unglinga.
Umsjón Bryndís Hólm.
18.30 Babar (4) Frönsk/kanadisk
teiknimynd um filakonunginn Ba-
bar. Leikraddir Aöalsteinn Berg-
dal.
18.55 Táknmálsfréttir
19.00 Vistaskipti (7) Ný syrpa um
nemendur Hillman-skóla.
19.30 Fákar (10) Þýskur mynda-
flokkur um fjölskyldu sem rekur
búgarð með íslenskum hrossum
í Þýskalandi. Leikstjóri Christian
Kabisch.
20.00 Fréttir og veöur
20.35 Gull í greipar Ægis. Annar
þáttur af þremur um sokkin skip
við strendur landsins og lifríkið i
kringum þau. Að þessu sinni er
kafað niður að breska olluflutn-
ingaskipinu El Grillo sem liggur á
40 meta dýpi i Seyðisfirði. Um-
sjón Sveinn Sæmundsson. Dag-
skrárgerð Björn Emilsson.
21.15 Ástir og alþjóöamál (7)
Franskur myndaflokkur.
22.10 Foxtrott Islensk bíómynd frá
1988. Tveir bræður taka að sér
að flytja peninga frá Reykjavík
austur á land. Á leiöinni taka þeir
unga stúlku upp I bílinn og hún á
eftir að hafa afdrifarík áhrif á lif
þeirra. Leikstjóri Jón Tryggva-
son. Aðalhlutverk Valdimar Örn
Flygenring, Steinarr Ólafsson og
María Ellingsen.
23.45 Listaalmanakið Þýðandi og
þulur Þorsteinn Helgason.
23.50 Útvarpsfréttir í dagskráriok.
Mánudagur
18.00 Töfraglugginn (24)
18.20 Drengurinn frá Andrómedu
(6) Lokaþáttur. Breskur mynda-
flokkur fyrir börn og unglinga.
18.55 Táknmálsfréttir
19.00 Á mörkunum (44)
Frönsk/kanadisk þáttaröð sem
gerist í smábæ á landamærum
Bandaríkjanna og Kanada um
1880.
19.30 Roseanne (10).
20.00 Fréttir og veöur
20.35 Fólkið í Forsælu (6).
21.00 Iþróttahornið.
21.20 Hugsaö heim til Islands
Seinni þáttur Þáttur um Vestur-
Islendinga. Rætt er við Mæju Ár-
dal leikhússtjóra, leikara og leik-
stjóra og Pál Árdal heimspeking.
Dagskrárgerö Marteinn St. Þórs-
son.
21.55 Nöfnin okkar. Lokaþáttur I
þessum siðasta þætti syrpunnar
verður fjalað um nafnið Ingi-
björg. Umsjón Gísli Jónsson.
Dagskrárgerð Samver.
22.00 Hjónbandssaga (2) Annar
þáttur. Breskur myndaflokkur
sem gerist i byrjun aldarinnar og
segir frá hjónabandi rithöfund-
anna Vitu Sackville-West og
Harolds Nicolsons. Aðalhlutverk:
Janet McTeerog David Haig.
23.00 Ellefufréttir
23.00 Þingsjá
23.30 Dagskráriok
Föstudagur
16.45 Nágrannar
17.30 Gosi Falleg teiknimynd um
ævintýri litla spytustráksins.
17.55 Umhverfis jörðina. .
18.20 Herra Maggú
18.25 Á dagskrá
18.40 Bylmingur.
19.19 19.19
20.10 Kænar konur.
20.40 Ferðast um tímann.
21.30 Götudrottningarnar Lifið lék
við Catharine Cramer þar til dag-
inn sem eiginmaöur hennar
heittelskaður finnst myrtur á
heimili gleðikonu. Aðalhlutverk:
Cindy Wiliams og Markei Post.
Leikstjóri Jack Bender. (1989)
Bönnuð börnum.
23.05 Fallinn engill Spennumynd
um föður sem leitar dóttur sinn-
ar, en hún hvarf á dularfullan
hátt eftir skotárás (1988)00.35
Skrímslasveitin Létt hrollvekja
um krakkahóp sem reynir að
bjarga heimabæ sínum þegar
hópur blóðsuga og annarra
kynjavera ætlar að raska ró bæj-
arins. Aðalhlutverk: André Go-
wer, Robby Kieger. (1987)
Stranglega bönnuð börnum.
01.55 Dagskrárlok Stöðvar tvö En
við tekur næturdagskrá Bylgj-
unnar.
Laugardagur
09.00 Meö afa
10.30 Á skotskónum.
10.55 Af hverju er himinninn blár?
11.00 Fimm og furöudýrið.
11.25 Á ferð með New Kids on the
Block Teiknimynd.
12.00 Á framandi slóðum Óvenju-
legir staðir um víða veröld sóttir
heim.
12.50 Á grænni grund Endurtekinn
þáttur frá sl. miðvikudegi.
12.55 Tapað - fundið Myndin segir
frá fráskilinni konu sem kynnist
ekkjumanni í fjallshlið á skíða-
svæði i Frakklandi. Þau fella
hugi saman og gifta sig hið snar-
asta. Aðalhlutverk: Glenda Jack-
son, George Segal. Leikstjóri
Melvin Frank. (1979) Lokasýn-
ing.
15.00 Litli folinn og félagar hans.
16.30 Sjónaukinn Endurtekinn þátt-
ur þar sem Helga Guðrún bregö-
ur sér i leiðangur um heim
hestamanna á höfuðborgar-
svæðinu.
17.00 Falcon Crest
18.00 Popp og kók Tónlistarþáttur.
18.30 Bllasport Endurt. frá sl. mið-
vikudagskvöldi.
19.19 19.19
20.00 Morðgáta Léttur spennu-
myndaflokkur með Angelu Lans-
bury I aðalhlutverki.
20.50 Á norðurslóöum Lífið og til-
veran þarna i Cicely er ekki al-
veg það sem hann bjóst við og
gengur svona nokkurn veginn
sinn vanagang með einhverjum
undantekningum.
21.40 Llf að láni Rómantísk ævin-
týramynd. Aðalhlutverk: Matt Sa-
linger, Joanna Pacula og John
Kani. Leikstjóri Camilo Vila.
(1989)
23.15 Lokaáminning Einkaspæjar-
inn Harry Stoner fær það verk-
efni að leysa mál sem kemur
upp á bókasafni. Aðalhlutverk
Gil Gerard, Steve Landesberg
og Melody Anderson. (1989)
Bönnuð börnum.
00.45 Vitfirring Bresk sálfræðihroll-
vekja þar sem sagðar eru fjórar
dularfullar sögur sem virðast
ekki eiga við neina stoð að styðj-
ast í raunveruleikanum. Aðal-
hlutverk: Donald Pleasence,
Jack Hawkins, Joan Collins.
Leikstjóri Freddie Francies.
Stranglega bönnuð börnum.
02.15 Kræfir kroppar Það er ekki
amalegt að vera innan um fallegt
kvenfólk á strönd Kaliforníu. Sér
í lagi þegar grái fiðringurinn er
farinn að hrjá mann, eða hvað?
Aöalhlutverk: Grant Cramer, Te-
al Roberts og Gary Wood. Leik-
stjóri Mark Griffiths. (1984)
03.45 Dagskráriok.
Sunnudagur
09.00 Litla hafmeyjani.
09.25 Hvutti og kisi
09.30 Túlli
09.35 Fúsi fjörkálfur
09.40 Steini og Olli
09.45 Pétur Pan Teiknimynd.
10.10 Ævintýraheimur Nintendo .
10.35 Ævintýrin I Eikarstræti. (10)
10.50 Blaöasnápamir.
11.20 Geimriddarar.
11.45 Trýni og Gosi
12.00 Popp og kók Endurtekinn.
12.30 Anthony Quinn Þessi ein-
stæða heimildarmynd fjallar um
leikarann og listamanninn Ant-
hony Quinn..
13.25 ítalski boltinn Bein útsending.
15.15 Rikky og Pete Rikky er söng-
elskur jarðfræðingur og bróðir
hennar Peter er tæknifrík sem
elskar að hanna ýmiss konar
hluti sem hann notar siðan til að
pirra fólk. Aðalhlutverk Stephen
Kearney og Nina Landis. Leik-
stjóri Nadia Tass. (1988) Loka-
sýning.
16.55 Þrælastriðið I þessum þætti
fylgjumst við með viöburöaríkum
atburðum vorsins 1863. Þá vinn-
ur Lee sinn áhrifamesta sigur,
en kostnaðurinn reynist honum
dýrkeyptur.
18.00 60 mínútur Fréttaskýringa-
þáttur.
18.40 Maja býfluga Teiknimynd
með íslensku tali.
19.19 19.19
20.00 Karpov - goðsögn í lifanda
lífi - Þáttur um skáksnillinginn A-
natoly Karpov, sem hefur verið (
fremstu röð skákmanna f mörg
ár. Hallur Hallsson ræðirvið Kar-
pov og skyggnist yfir farinn veg
og jafnvel aðeins inn I framtíð-
ina. Umsjón Hallur Hallsson.
Dagskrárgerð Maria Mariusdóttir
(1991)
20.30 Hercule Poirot Poirot og
Hastings þýðast boð manns um
að koma á korraveiðar. Veiöi-
mennskan fær skjótan endi þeg-
ar slysaskot særir einn veiði-
manninn á hendi. En þetta skot
er aðeins byrjunin á flóknu saka-
máli.
21.25 Konumorð við Brewster
stræti Átakanleg framhaldsmynd
I tveimur hlutum um hóp kvenna
sem tók höndum saman I barátt-
unni gegn afskiptaleysi þjóðfé-
lagsins gagnvart minnihlutahóp-
um. Seinni hluti er á dagskrá
annaö kvöld. (1989)
23.00 Flóttinn úr fangabúðunum
Fimmti þáttur.
23.55 Allan sólarhringinn Gene
Hackman er hér i hlutverki
manns sem hefur ástarsamband
við eiginkonu nágranna síns
þegar hann er lækkaður I starfs-
tign og látinn stjórna lyfsölu sem
opin er allan sólarhringinn.
01.20 DagsLrárlok.
Mánudagur
16.45 Nágrannar
17.30 Litli folinn og félagar.
17.40 ( frændgarði Þessi einstaka
fallega og vel gerða framhalds-
mynd er byggð á samnefndri
sögu rithöfundanna D. H. Lawr-
ence og Mollie Skinner. Jack er
átján ára gamall þegar hann er
sendur á ástralskan bóndabæ.
Þetta er fyrsti hluti af fjórum.
18.30 Kjallarinn
20.10 Dallas
21.00 Ættarsetrið Lokaþáttur.
21.50 Konurnar við Brewster stræti
Seinni hluti þessarar átakanlegu
framhaldsmyndar sema fjallar
um einstaka baráttu kvenna,
sem tilheyra minnihlutahópnum,
fyrir rétti sínum sem konur og
samfélagsþegnar. Það er einnig
athyglisvert að myndin er gerð af
konum um konur. (1989).
23.10 italski boltinn Mörk vikunnar.
23.30 Fjalakötturinn. Maður með
myndavél Þetta er mynd frá ár-
inu 1929. I myndinni koma ekki
fyrir neinir leikarar. Myndin er
sérstæð að þvl leyti að áhorf-
andinn fylgist með daglegu lifi
venjulegs fólks með kvikmynda-
tökuvélinni. Myndin er án tals en
tónlist skipar í staðinn töluverð-
an sess. Myndin þykir vera af-
burða vel gerö, og á sínum tlma
nýjung I kvikmyndagerö og hefur
markað spor sin I kvikmynda-
söguna. Leikstjóri Dziga Vertov.
00.35 Dagskrárlok
NÝTT HELGARBLAÐ
1 8 FÖSTUDAGUR I8. OKTÓBER 1991