Þjóðviljinn - 17.12.1991, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 17.12.1991, Blaðsíða 1
242. tölublaö Þriðjudagur 17. desember 1991 56. árgangur Mjólkurverkfalli aflýst kaupskipin stöðvast Skyndiverkfalli Dagsbrúnar hjá Mjólkursamlagi Reykjavíkur hefur verið aflýst. Samkomulag náðist, síðla í gær, milli trún- aðarmanna félagsins í Mjólkursamlaginu og forsvarsmanna fyrirtækisins um sérkjaramál starfsmanna. Þessi lausn kom þó ekki í veg fyrir verkfall hafnarverkamanna, en þeir hófu þriggja daga skyndiverkfall á miðnætti. 1 samkomulagi Mjólkursam- lagsins og Dagsbrúnarmanna i fyr- irtækinu, byggist á svokölluðu ábótakerfi þar sem báðir aðilar eiga að hagnast á hagræðingu inn- an fyrirtælasins. Að öðru leyti er samkomulagið mikið til á sömu nótum og Mjólk- ursamlögin fyrir norðan gerðu við sitt starfsfólk. Auk ábótakerfisins náðist sam- komulag um veikindaréttindi, þar sem sérstaklega er horft á þá starfsmenn sem eiga við langvar- andi veikindi að stríða. Einnig var samið um að fyrirtækið láti starfs- mönnum, sem þess þurfa, í té ör- yggisskó. Þrátt fyrir að samkomulag hafði náðst í Mjólkursamlaginu, hófst þriggja daga verkfall hafhar- verkamanna á miðnætti. Þar hafa engar viðræður átt sér stað milli trúnaðarmanna og forsvarsmanna skipafélaganna. Mikil örtröð myndaðist í af- greiðslum skipafélaganna í gær, þar sem fólk kærði sig greinilega ekki um að brenna inni með vörur næstu þijá daga. Sigurður Bessason, starfsmað- ur Dagsbrúnar, sagði að með sam- komulaginu í Mjólkursamlaginu hafi eining Vinnuveitendasam- bandsins um að semja ekki um sér- kjaramálin verið rofin. - Mjólkursamsalan hefur sem hluti af Vmnuveitendasambandinu séð ástæðu til að kljúfa sig út úr stífhi þeirra til samninga. Þetta er sigur Dagsbrúnar, því Vinnuveit- endasambandið hefúr reynt allt hvað það getur til að koma í veg fyrir þennan samning. Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ, skrifaði undir samkomulagið fyrir hönd VSI. Hann sagði það langt í frá að þeir væru ósáttir við þetta samkomulag. - Við höfúm verið að stikla í kringum samkomulag Mjólkur- samlaganna við starfsfólk sitt fyrir norðan. Að vísu fannst Dagsbrún- armönnum framkvæmdaratriði þess samning vera til baga, þar sem allt er í óvissu hvenær það kemst á. Við erum hins vegar vissir um að undirbúningurinn við ábóta- kerfið sé það vel á veg kominn að hægt sé að setja það í gang 1. júní, sagði Þórarinn. Aðspurður hvort þama væri um brest hjá VSÍ að ræða, sagði Þórarinn það rangt. - Þetta samkomulag er í anda þess sem við höfum viljað. Við höfúm sagt að við viljum ekki auka útgjöld fyrirtækjanna vegna launakostnaðar. Taki starfsmenn hins vegar þátt í hagræðingarmál- um er sjálfsagt að semja þannig að þeir njóti þess eins og fyrirtækin. Þessi samningur felur þetta í sér, því þama er verið að tala um ábataskipti, sagði Þórarinn. Bjöm Grétar Sveinsson, for- maður Verkamannasambandsins, sagði að sérkjaraviðræður deilda innan sambandsins hafi gengið illa. Nú séu menn famir í jólafrí og því ekki líklegt að sainkomulag náist fyrir jól. Hvað samkomulagi Dags- brúnar og Mjólkursamlagsins við- kemur sagðist Bjöm Grétar vera ánægður með að einhversstaðar væri hægt að finna lausnir. Aðspurður hvort þetta hafi brotið ísinn í sérkjaraviðræðunum, sagði hann að svo væri ekki. Isinn er þykkur og félögin em með mismunandi áherslur á borð- inu. Þó það sé búið að semja á ein- um stað þýðir það ekki að búið sé að semja á linuna. Það þarf að leysa marga hnúta áður en það verður gert, sagði Bjöm . -sþ Starfsmenn Ríkisskipa unnu höröum höndum I myrkrinu f gær við aö koma vörum um borð I skipiö Heklu áöur en verk- fall hafnarverkamanna kæmi til framkvæmda á miðnætti. Mynd: Kristinn. Sj ávarútvegsrisi í Vestmannaeyjum Fyrirtækin Fiskiðjan og Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum samþykktu á laugardag að sameina fyrirtækin í eitt. Sam- anlagt mun nýtt fyrirtæki ráða yfir rúmum 10.000 þorsk- ígildistonnum, þremur togurum, tveimur loðnuskipum og fimm tog- og línubátum. Náttúrufræðingar hóta verkföllum Allsherjaratkvæðagreiðsla mun fara fram hjá Félagi ís- lenskra náttúrufræðinga um timabundin verkföll í janúar og desember ef ekkert miðar í samningsviðræðum. Forsvars- menn félagsins telja að með þessu megi vænta stigharðnandi aðgerða af hálfu félagsins. Fjölmennur félagsfúndur Fé- lags íslenskra náttúruffæðinga í gær, þar sem staða „eða stöðnun" samningsmálanna var rædd, sam- þykkti að hefja allsheijaratkvæða- greiðslu innan félagsins um verk- fóll. Þungt hljóð var í fúndarmönn- um og undirrituðu flestir við- staddra mótmælaskjal til Starfs- mannaskrifstofu fjármálaráðu- neytisins vegna einhliða ákvörð- unar hennar um að neita félaginu um samstarfsneíndarfúndi, sem halda skal einu sinni í mánuði. í mótmælaskjalinu var fúnda í nefndinni krafist strax. -sþ Starfsmenn fyrirtækisins eru samanlagt 470 talsins. „Islands- banki er mjög jákvæður gagnvart þessu,“ segir framkvæmdastjóri Fiskiðjunnar, Guðmundur Karls- son, en vill ekkert um það segja hvort að bankinn hafi beitt fyrir- tækin miklum þrýstingi í þessa veru, en skuldastaða þeirra hefúr verið slæm. Stefnt verður að því að byggja upp og endumýja gamla fiskimjölsbræðslu sem fyrirtækin hafa átt saman, en bankinn hefur fram að þessu ekki samþykkt lán- veitingar til nýrrar. Bæði félögin boða til hluthafafunda 30. desem- ber. Hraðfrystistöðin og Isfélagið í Eyjum hafa einnig verið í viðræð- um um sameiningu en óljóst er enn hvernig þeim mun ljúka. I raun sameinast fjögur fyrir- tæki. Það eru Fiskiðjan, Vinnslu- stöðin, Fiskimjölsverksmiðjan í Vestmannaeyjum og Lifrarsamlag- ið. Togarar hins sameinaða fyrir- tækis em þrir: Breki, Klakkur og Sindri. Loðnubátamir era tveir, Krapi og Sighvatur. Togbátar og línubátar eru fimm: Styrmir, Krist- björg, Sleipnir, Sigurfari og Frigg. Guðmundur Karlsson fram- kvæmdastjóri Fiskiðjunnar segist sjá fyrir sér mikla hagræðingu í framhaldinu. Fiskvinnslustöðvam- ar tvær verði sérhæfðar, kvótar sameinaðir og færðir til eflir þörf- um. Eftir hagræðingaraðgerðir er gert ráð fýrir að einhvetjar eignir verði seldar. Guðmundur segir að uppsögnum verði haldið í lág- marki, en ljóst sé að fækka verði í yfirbyggingunni, sérstaklega í stjómunarstöðum. Almennum starfsmönnum verður hins vegar ekki fækkað. -vd. /1\

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.