Þjóðviljinn - 17.12.1991, Page 12
Ragnar Guðmundsson, hafnarverkamaður er f verkfalli I dag. Hann telur að
aðgerðir Dagsbrúnar muni bera árangur, þvl fyrirtækin I landinu megi allra síst
viö verkföllum I núverandi kreppu. Mynd: Kristinn.
Verkföllin
skila sínu
lækkun á þessum tímum. Við vilj-
um halda okkar og gott betur.
Ragnar sagðist búast við að
launahækkun verkafólks myndi
felast í aukinni hagræðingu hjá fyr-
irtækjum. Nú þyrfti að semja á
svipuðum nótum og síðast, þvi
þjóðarsáttarsamningamir hafi verið
tif fyrirmyndar og í alla staði geng-
ið upp.
- Nú bíður maður bara eftir því
að samningsviðræðumar fari í
gang af einhverri alvöru. Það þýðir
ekkert fyrir þessa menn að halda
að sér höndum. Þeir verða að láta
hendur standa fram úr ermum og
klára þetta dæmi. Því fyrr því
betra, sagði Ragnar. -sþ
~r~ig er hlynntur þessum
H skyndiverkfollum hjá Dags-
JL/brún. Við vitum öll að samn-
ingsviðræður milli atvinnurek-
endanna og farmanna fóru ekki
að ganga fyrr en verkfall skall á.
Ég spái því að þannig verði það
líka núna, sagði Ragnar Guð-
mundsson, hafnvarverkamaður
um stöðu samningsmálanna.
Ragnar er félagi í Dagsbrún og
segist hann styðja sitt félag í þeim
aðgerðum sem ákveðnar em. Jafn-
vel þó ákveðið verði að fara í langt
verkfall á nýju ári, beri nauðsyn
til.
- Allt þetta tal um kaupmáttar-
lækkun er fáránlegt. Það mun eng-
inn launamaður samþykkja launa-
Skattleysismörkin
lækka
I^fréttatilkynningu frá Alþýðu-
sambandi íslands segir að
skattleysismörkin, sem ailir
þingflokkarnir lofuðu að hækka
fyrir síðustu alþingiskosningar,
munu lækka að raungildi um
t 2000 krónur á mánuði miðað við
I óbreytt skattalög. Fjármálaráðu-
> neytið segir að þetta sé ekki rétt,
því samkvæmt fyrirliggjandi spá
um verðlagsþróun muni hann
| „Á hraðri leið
til helvítis“
Rækjuframleiðendur halda
áfram viðræðum við sjávarút-
vegsráðherra um leiðir til bjarg-
ar atvinnugreininni i þessari viku
og segist formaður félags þeirra,
i Halldór Jónsson, vonast til að
: niðurstöður fáist mjög fljótlega,
enda lítill timi til stefnu.
t „Við vörpuðum fram nokkrum
hugmyndum sem mættu verða til
t að leysa þessi vandamál og þær eru
> í skoðun,“ sagði Halldór að af-
' stöðnum fundi með ráðherra síðast-
liðinn fostudag.
Rækjuverksmiðjan Arver á Ár-
skógsströnd var lýst gjaldþrota um
helgina og er hún önnur verksmiðj-
an í greininni sem fer undir hamar-
inn á skömmum tíma.
„Þetta er allt á hraðri leið til
helvítis,“ sagði Halldór um rekstr-
arstöðu annarra rækjuverksmiðja í
landinu. -vd.
hækka um 1,2 prósent um mitt
árið.
ASÍ segir að samkvæmt núgild-
andi lögum eigi pcrsónuafslátturinn
og þar með skattleysismörkin að
hækka til samræmis við hækkun
lánskjaravísitölu undangengina sex
mánaða. Samkvæmt þessu ætti per-
sónuafslátturinn að hækka um 3,4%
1. janúar n.k. Skattleysismörkin
sem nú eru rúmlega 60 þúsund
krónur á mánuði, ættu að hækka í
rúmlega 62 þúsund krónur um ára-
mótin. _
ASÍ segir að í frumvarpi um
tckju- og eignaskatt sem nú sé til
meðferðar á Alþingi sé hins vegar
ckki gert ráð fyrir neinni hækkun
pcrsónuafsláttar eða skattleysis-
marka um áramótin. Alþýðusam-
bandinu finnst það vera hart að
fyrsta skrefið í loforðunum um
hækkun skattleysismarka vcrði
raunlækkun þeirra um rúmlega 2
þúsund krónur á mánuði.
Fjármálaráðuneytið segir í til-
kynningu sem það sendi frá sér
vegna þessa, að það sé mishermt
hjá ASI að persónuafsláttur eigi
samkvæmt lögum að hækka nú um
áramótin.
„Samkvæmt gildandi lögum
breytist persónuafslátturinn um mitt
næsta ár í takt við lánskjaravísitöiu,
en samkvæmt lögum frá þvi í árslok
1988 er ákvörðun persónuafsláttar
fyrir fyrri hluta hvers árs sjálfstæð
aðgerð en ekki lengd vélrænt við
lánskjaravísitölu," segir í svari
ráðuneytisins. -sþ
Tvíhliða samninga strax
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra telur að tvær leiðir
komi til greina fyrir Efta- ríkin verði samningar um evrópskt
efnahagssvæði teknir upp vegna andstöðu dómstóls Evrópu-
bandalagsins við dómstól svæðisins. Annarsvegar að gangast undir
völd EB-dómsstólsins, sem sé ófær leið, og hinsvegar að minnka vægi
EES-dómstólsins sem væri sérstaklega slæm leið fyrir ísland sem
vegna smæðar treysti á þann dómstól.
Stjómarandstaðan á Alþingi vill
hinsvegar hætta við EES nú þegar
og taka upp tvíhliða viðræður.
Kristín Einarsdóttir, Kvl., sagði að
niðurstaða EB-dómstólsins fyrir
helgi hefði ekki komið sér á óvart.
En dómstóllinn var að svara spum-
ingum framkvæmdastjómarinnar
og komst að þeirri niðurstöðu að
samningurinn bryti í bága við Róm-
arsáttmálann í grundvallaratriðum.
Þannig að íyrir EB, og Jón Baldvin
segir málið vera þeirra vandamál á
þessu stigi, er tvennt til í stöðunni,
að breyta Rómarsáttmálanum eða
að taka upp að nýju viðræður um
EES við Efla-ríkin. Kristín sagði
það af og ffá að verða við þeirri
kröfu EB-dómstólsins að hann
fengi meiri völd. Ólafur Ragnar
Grímsson, Abl., tók undir þetta og
sagði að athugasemdir dómstólsins
um samninginn væm víðtækar og
að i áliti dómsins kæmi skýrt fram
að EB gæti ekki fallist á það gmnd-
vallaratriði sem EES- dómstólinn
væri og vildi að bandalaginu væri
fært endanlegt dómsvald. Það gæti
ísland aldrei samþykkt. Ólafur
Ragnar sagði höfuðatriði nú að
veija hagsmuni Islands og að
stjómmálamenn mættu ekki hugsa
um sína eigin hagsmuni þó þeir
væm búnir að fjárfesta pólitískt
mikið í því að samkomulag næðist.
Hann sagði að menn ættu ekki að
láta leiða sig út í málamiðlanir á
þessu stigi, heldur fara strax út tví-
hliða viðræður.
Steingrímur Hermannsson tók
undir að þegar ætti að fara að undir-
búa tvíhliða viðræður þótt hann
teldi að formlega gætu slíkar við-
ræður ekki hafist fyrr en endanlega
væri lokið viðræðunum um hið evr-
ópska efhahagssvæði.
Ólíklegt er talið að EB breyti
Rómarsáttmálanum þótt fram-
kvæmdastjómin hafi lagt mikla
áherslu á að niðurstaða dómsins
tefji ekki undirskrift EES- samn-
ingsins, sem fram átti að fara í
febrúar. Jón Baldvin taldi í gær lík-
legt að EB myndi leggjast undir
feld framyfir áramót en fara síðan
þá leið í viðræðum við Efla að
minnka vægi EES-dómstólsins í
samningnum. Víst er að Efta-ríkin
eiga mjög erfitt með að sætta sig
við skarðari hlut frá borði en nú er í
samningnum, nema þá Svíþjóð og
Austurríki sem þegar hafa sótt um
aðild að EB.
Jón Baldvin taldi ótímabært að
afskrifa EES núna, en sagði að ef
ekkert yrði af samkomulaginu ætti
að fara út í tvíhliða viðræður við
EB þó hann teldi og hefði oft lýst
yfir að við myndum ekki ná jafn
góðum samningi og EES- samn-
ingnum.
Kristín sagði að það væri mikið
mál að samningurinn um EES væri
talinn bijóta i bága við Rómarsátt-
málann, breytingar á sáttmálanum
tækju mikinn tíma sem og aðrar
breytingar og því ættu íslensk
stjómvöld „að viðurkenna þá stað-
reynd, hætta þessari vitleysu og
leita eftir tvíhliða viðræðum,“ sagði
hún. Og hún bætti við að hún varaði
við þvi að þessi niðurstaða leiddi til
þess að innganga í EB kæmi til
greina. Það er út í bláinn, sagði hún,
því við höfum þann kost bestan að
vera áfram fúllvalda og sjálfstæð
þjóð og gera samninga á þeim
grundvelli. -gpm
Skiptar skoðanir um orkusáttmála
Bæði stjórn og stjórnarandstaða eru sammála um að ísland eigi að
hafa óskoraðan rétt yfir orkulindum sínum og nýtingu þeirra.
Stjórnarandstaðan treystir hinsvegar Jóni Sigurðssyni iðnaðar-
ráðherra ekki fullkomlega, en hann mun í dag undirrita pólitíska
viljayfirjýsingu um evrópska orkusáttmálann. Andstaðan telur að fyr-
irvarar lslands um óskoraðan rétt yfir orkulindum séu ekki tryggðir í
yfirlýsingunni.
Þetta kom fram í utandagskrár-
umræðum á Alþingi í gær sem
Steingrímur Hermannsson, Frfl.,
hóf fyrir hönd stjómarandstöðunn-
ar. Steingrímur hafi farið fram á það
að Jón myndi í ræðu sinni í gær
hnykkja á því að Islendingar litu
svo á að við hefðu rétt yfir orku-
lindunum og nýtingu þeirra þrátt
fyrir jafnræðisreglu í yfirlýsing-
unni. Jón lagaði ræðu sína að þessu,
en Steingrímur taldi ekki nógu
langt gengið. Hann benti á að í
yfirlýsingunni, sem er undirbún-
ingur samnings, komi ekki skýrt
fram að heimaland orkunnar hafi
annan ræett en önnur ríki. Hann
sagði að í samningnum væri jafn-
ræðisreglan túlkuð þannig að þær
36 þjóðir sem undirrituðu hann
fengju meðferðina „bestukjarakjör"
hjá hinum þjóðunum. Þetta þýddi,
sagði Steingrímur, að við gætum
sagt að ekki mætti virkja Gullfoss,
og þá gæti enginn gert það. En þar
sem virkja átti Fljótsdalsvirkjun
fengju útlendingar jafnan rétt til
þess og við, sérstaklega ef erlent
fýrirtæki hefði heimilisfestu hér á
landi.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
var sammála túlkun Steingríms og
sagði að hann hcföi vel getað hugs-
að sér að hnykkt hefði verið á þessu
í ræðu Jóns. Jón Baldvin Hanni-
balsson utanríkisráðherra tók undir
með Davíð að ekki væri verið að af-
sala réttindum Islendinga í orku-
málum. Hann taldi að ekki væri
ágreiningur um fyrirvarana og að
þeir kæmu skýrt íram í ræðu Jóns
auk þess sem ekki væri um samning
að ræða heldur yfirlýsingu. Hann
túlkar samninginn þannig að
ákvæðin um bestukjör þýði að ekki
megi mismuna öðrum rikjum inn-
byrðis en að innlenda ríkið hafi
meiri rétt en þau ef ríkið svo vill.
Ólafúr Ragnar Grímsson, Abl.,
varaði við því að þó ekki væri um
samning að ræða væri verið að gefa
út yfirlýsingu og ef ekki væri getið
fyrirvara myndu aðrar þjóðir telja
að við myndum fallast á þeirra túlk-
un þegar kæmi að samningsgerð-
inni. Vegna þessa taldi Svavar
Gestsson, Abl., rétt að Jón Sigurðs-
son myndi færa fúlltrúum hinna
rikjanna afskrift af utandagskrárum-
ræðunum þannig að þær hefðu fyr-
irvara Islands á hreinu.
Kristín Einarsdóttir, Kvl., gagn-
rýndi málsfmerðferð Jóns og benti á
að iðnaðamefnd hefði einungis
fengið plögg um þessa yfirlýsingu
sem á væri losarabragur og mikið af
fyrirvörum, þannig hefði nefndin
varla getað tekið afstöðu til þessa.
Össur Skarphéðinsson, Alfl., for-
maður nefndarinnar sagði að ekki
væri hægt að kvarta undan samráði
við iðnaðarráðherra.
Jón Baldvin taldi ekki mikla
hættu hér á ferð þar sem i undirr-
skrift Jóns í dag fælist engin pólit-
ísk skuldbinding, auk þess sem
menn hefðu góðan tíma áður en að
samningsgerð yrði lokið sem tæki
að minnsta kosti hálft ár. -gpm
Hætt að endurgreiða tannréttingar
Ríkisstjórnin hyggst leggja af endurgreiðslur fyrir tannréttingar
nema þær séu framkvæmdar vegna alvarlegra afleiðinga með-
fæddra galla, slysa og sjúkdóma. Þó er ætlunin að endurgreiða
þeim sem fram að gildistíma nýrra laga hafa þurft á þjónustu tann-
réttingafræðinga að halda þar til aðgerðum þeirra er lokið. Gert er
ráð fyrir að aðlögunartími muni því a.m.k. verða út næsta ár. Óvíst
er enn hvort staðið verður við að endurgreiðslur nemi 50% eins og
þær gerðu áður en samningar við tannréttingafræðinga fóru í hnút
fyrir rúmum tveimur árum.
Með þessu hyggst ríkisstjómin
slá tvær flugur í einu höggi, þ.e.
spara umtalsverðar fjárhæðir og
losna um leið út úr hingað til óleys-
anlegri og hatrammri deilu við
tannréttingafræðinga. Heilbrigðis-
ráðherra mun gefa út reglugerð
vegna þessa í janúar og þá verður
auglýst hvernig endurgreiðslum
verði háttað og hvert umsækjendur
skuli snúa sér.
Óvíst er hversu mikið ríkisvald-
ið sparar árlega í almannatrygg-
ingagreiðslum við þetta. Auk þess
er ekki heldur ljóst hversu háar
upphæðir þarf að endurgreiða
vegna uppsafnaðra reikninga. Hjá
Tryggingastofnun liggja nú fyrir
rúmlega 600 umsóknir um endur-
greiðslu og til viðbótar má ætla að
annar eins fjöldi umsókna kunni að
berast. Meðalendurgreiðsla á um-
sókn er 200.000 krónur þannig að
heildarkostnaður vegna endur-
greiðsluákvæðisins getur numið um
240 milljónum króna. Því er ætlað
að dreifast á tvö ár, meirihlutanum á
næsta ár.
Sigbjöm Gunnarsson, formaður
heilbrigðis- og trygginganefndar,
segir augljósan kost við að endur-
greiðslum verði hætt að nú sé loku
fyrir það skotið að þeir sem hafi
notað tannréttingar sem „fegrunar-
aðgerðir“ geti fengið endurgreitt.
Hann segir að talið sé að sá hópur
sé um fjórðungur þeirra sem leita til
tannréttingafræðinga.
Landlækni tókst fyrir stuttu að
þvinga tannréttingafræðinga til að
samþykkja að fylla út eyðublöð sem
nota átti til að meta hversu mikið
skyldi endurgreiða í hverju tilviki.
Á því atriði hefur lausn málsins
strandað um langa hríð og tannrétt-
ingafræðingar hafa neitað að skrifa
undir samninga þar til það væri
leyst.
Samningur við tannlækna var
undirritaður í apríl síðastliðnum en
sagt upp affur af hálfú ríkisvaldsins
í ágúst, í þeim tilgangi að fá út úr
honum grein sem kveður á um að
endurgreiðslur fái aðeins viðskipta-
vinir tannlækna í Tannlæknafélagi
Islands, sem jafnframt séu samn-
ingsaðilar við Tryggingastofnun.
Ástæðumar fyrir því að ráðuneytið
vill losna við þetta ákvæði eru m.a.
þær að aðild að EES myndi banna
slíkt. -vd.