Þjóðviljinn - 20.12.1991, Blaðsíða 3
Myndasögur
Jóla-Gisp!
Gisp! lofar lesendum sínum
geispalausum jólum með
spánnýju myndasögublaði
með jólabragði.
í blaðinu er að fínna fjölbreytt
efni að vanda.
Útlendir og innlendir jóla-
sveinar láta sig ekki vanta; Grýla,
Leppalúði, guð, englar og djöfull-
inn eru meðal sögupersóna og fjöl-
margir nýir höfúndar eiga efni í
blaðinu, s.s. Erró, Guðjón Ketils-
son, Lára Valentino og Stígur
Steinþórsson.
Sigurður Öm Brynjólfsson
(SuB) er í Gispl-viðtali og birtir
hluta úr dagblaðsseríunni Bísa og
Krimma sem Sigurður gerði fyrir
DV á sínum tíma. Þá er í tímarit-
inu einnig greint frá úrslitunum í
verðlaunasamkeppni þeirri sem
efnt var til í síðasta Gispi! Ekki má
gleyma að geta þess að hinni ný-
stárlegu Hetjuþjónustu er hleypt af
stokkunum og Unglingasíðan hef-
ur göngu sína.
Ristjóm Gisp! lofar því að ekki
sjái fyrir endann á
Gisp!-bylgjunni. Á nýju ári
mun tímaritið koma sjaldnar út en
í staðinn verður það stærra og ör-
ugglega vandaðra. Til viðbótar við
birtingu myndasagna er ætlunin að
halda áfram á þeirri braut sem
mörkuð hefir verið í tveimur síð-
ustu blöðum; að birta greinar og
fréttatengt efni, einnig um skyld
málefhi s.s. tölvugrafík og mynd-
bönd. Þá verða einnig kynntir
teiknarar með viðtali og birtar
þýddar sögur erlendra höfunda.
Ritstjómin vill einnig hvetja les-
endur til að senda myndasögur, lo-
frnllur, níðbréf og annað skemmti-
legt sem þeim dettur í hug til
blaðsins.
Flestir ættu nú fyrir löngu að
hafa sent öll jólakort, en þeir sem
eiga það eftir geta fest kaup á jóla-
kortum eftir teiknara blaðsins í
Hlaðvarpanum og Kolaportinu.
Þetta fjórða tölublað Gisp! er
68 síður og kostar 420 krónur. Það
má fá í öllum helstu bókabúðum
og sölutumum landsins.
HEtrAR N/tVIQ
H£fíE Wf
CotAE...
I NÆ’ÍIA 6ÍSPJ: HPlTAR NÆ1<JR
KAFFI MARINO
góða kaffið <fonmxa*wt« eo.
í rauðu dósurjum vj* Skútuvogi 10a - Sími 686700
frá MEXÍKO
TÓMAS R. EINARSSON
f M
ISLANDSFOR
TÓMAS R. EINARSSON bassi
FRANK LACY básúna/flygilhorn/söngur
SIGURÐUR FLOSASON altó/baritónsaxófónn
EYÞÓR GUNNARSSONpíanó
PÉTUR ÖSTLUND trommur
ELLEN KRISTJANSDÓTTIR söngur
UMMÆLI GAGNRÝNENDA:
“íslendingar eru orðnir gjaldgengir í djassútflutningi”
Vernharður Linnet Morgunblaðið.
“þetta er áreiðanlega besta djassplata okkar til þessa”
Guðmundur Andri Thorsson Þjóðviljinn.
“er það skoðun margra að þar sé að fínna bestu djasstónlist
sem komið heíur út eftir íslenskan kómpónista”
Hilmar Karlsson DV.
"En glimrende rytmegruppe"
Boris Rabinowitsch Politiken