Þjóðviljinn - 20.12.1991, Blaðsíða 19

Þjóðviljinn - 20.12.1991, Blaðsíða 19
Happdrætti Þjóóviljans 1991: U t v a r p Föstudagur Rás 1 FM 92.4/93.5 6.45 Veðurfregnir. Bæn. 7.00 Fréttir. 7.03 Morgunþáttur Rásar I. 7.30 Fréttayfiriit. 7.45 Kritik. 8.00 Fréttir. 8.10 Að utan. 8.15 Veðurfregnir. 8.30 Fréttayfiriit. 8.40 Helgin framundan. 9.00 Fréttir. 9.03 „Ég man þá tíð“. 9.45 Segðu mér sögu „Agúrka prinsessa" (15). 10.00 Fréttir. 10.03 Morgunleikfimi. 10.10 Veðurfregnir. 10.20 Mannlifið. II. 00 Fréttir. 11.03 Tónmál Jóla- og stemmningardjass. 11.53 Dagbókin. 12.00 Fréttayfiriit á há- degi. 12.01 Að utan. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veðurfregnir. 12.48 Auðlindin. 12.55 Dánarfregnir. Aug- lýsingar. 13.05 Útíloftiö Rabb, Rás 1 FM 92.4/93.5 6.45 Veðurfregnir. Bæn. 7.00 Fréttir. 7.03 Músik aö morgni dags. 8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. 8.20 Söngvaþing. 9.00 Fréttir. 9.03 Frost og funi. 10.00 Fréttir. 10.03 Umferðarpunktar 10.10 Veðurfregnir. 10.25 Þingmál. 10.40 Fágæti. 11.00 I vikulokin. 12.00 Útvarpsdagbókin og dagskrá laugardagsins. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veöurfregnir. Aug- lýsingar. 13.00 Yfir Esjuna. 15.00 Tónmenntir - Is- lenskar tónminjar. 16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir. Rás 1 FM 92.4/93.5 8.00 Fréttir 8.07 Morgunandakt 8.15 Veðurfregnir. 8.20 Kirkjutónlist. 9.00 Fréttir. 9.03 Morgunspjall á sunnudegi. 9.30 Tónlist á sunnudags- morgni. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. 10.25 Uglan hennar Min- ervu. 11.00 Messa I Langholts- kirkju. 12.10 Dagskrá sunnu- dagsins. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veðurfregnir. Aug- lýsingar. Tónlist. 13.00 Ljóðatónleikar. 14.00 Bókaþing. 15.00 Kontrapunktur (7). 16.00 Fréttir. gestir og tónlist. 14.00 Fréttir. 14.03 Útvarpssagan _Ástir og örfok" (13). 14.30 Út i loftið. 15.00 Fréttir. 15.03 Aðventan. 16.00 Fréttir. 16.05 Völuskrin. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Tónlist á síðdegi. 17.00 Fréttir. 17.03 Brotabrot. 17.30 Hérog nú. 17.45 Eldhúskrókurinn. 18.00 Fréttir. 18.03 Átyllan. 18.30 Auglýsingar. Dánar- fregnir. 18.45 Veðurfregnir. Aug- lýsingar. 19.00 Kvöldfréttir. 19.32 Kviksjá. 20.00 Kontrapunktur. (6). 21.00 Af öðru fólki. 32.30 Harmoníkuþáttur. 22.00 Fréttir. Orð kvölds- ins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Dagskrá morgun- dagsins. 22.30 I rökkrinu. 23.00 Kvöldgestir. 16.20 Útvarpsleikhús barnanna: „Þegar fellibyl- urinn skall á", framhalds- leikrit eftir Ivan Southall (11). 17.00 Leslampinn. 18.00 Stélfjaörir. 18.35 Auglýsingar. 18.45 Veðurfregnir. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Djassþáttur. 20.10 Langt í burtu og þá. 21.00 Saumastofugleði. 22.00 Fréttir. Orð kvölds- ins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Dagskrá morgun- dagsins. 22.30 „Mannæturnar, eins dauði er annars brauð", smásaga eftir Sigurð Á. Friöþjófsson. Höfundur 24.00 Fréttir. 00.10 Sveiflur Létt lög í dagskráriok. 01.00 Veðurfregnir. 01.10 Næturútvarp. 16.15 Veðurfregnir. 16.25 Yngismær verður þunguð. 17.00 Síðdegistónleikar. 18.00 Brot úr „Býkúpunni". 18.30 Tónlist. Auglýsing- ar.Dánarfregnir. 18.45 Veðurfregnir. Aug- lýsingar. 19.00 Kvöldfréttir. 19.32 Frost og funi. 20.30 Hljómplöturabb. 21.10 Brot úr llfi og starfi Önnu Sigurðardóttur for- stööumanns Kvennasögu- safns fslands. 22.00 Fréttir. Orð kvölds- ins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Dagskrá morgun- dagsins. 22.25 Á fjölunum - leik- hústónlist. 23.00 Frjálsar hendur. 24.00 Fréttir. 00.10 Stundarkom I dúr og moll. 24.00 Fréttir. 00.10 Tónmál. 01.00 Veðurfregnir. 01.10 Næturútvarp. Rás 2 FM 90,1 7.03 Morgunútvarpið - Vaknað tif lifsins. 8.00 Morgunfréttir. 9.03 9-fjögur. Slminn er 91-687123. 12.00 Fréttayfirtit og veð- ur. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 9-fjögur - heldur áfram. 16.00 Fréttir. 16.03 Dagskrá: Dægur- málaútvarp og fréttir. 17.00 Fréttir. - Dagskrá heldur áfram. 17.30 Hér og nú. 18.00 Fréttir. 18.03 Þjóðarsálin. 19þ00 Kvöldfréttir. 19.30 Ekki fréttir. 19.32 Vinsældalisti Rásar 2 - Nýjasta nýtt. 21.00 Gullskífan. 22.07 Stungið af. 01.10 Fimm freknur. 02.00 Næturútvarp. Rás 2 FM 90,1 8.05 Laugardagsmorg- unn. 10.00 Helgarútgáfan. - 10.05 Kristján Þorvalds- son lítur í blööin. Vikupist- ill Jóns Stefánssonar. - 11.45 Viðgerðarllnan - sími 91-68 60 90. 12.20 Hádegisfréttir 12.40 Helgarútgáfan. 16.05 Rokktlðindi. 17.00 Með grátt i vöngum. 19.00 Kvöldfréttir 19.32 Vinsældalisti göt- unnar. 21.00 Lög úr kvikmynd- um. 22.07 Stungið af Margrét Hugrún Gústavsdóttir spil- ar tónlist við allra hæfi. 24.00 Fréttir. 00.10 Vinsældartisti Rásar 2 - Nýjasta nýtt. 01.30 Næturtónar. Nætur- útvarp. 01.00 Veöurfregnir. 01.10 Næturútvarp. Rás 2 FM 90,1 8.07 Vinsældalisti götunn- ar. 9.03 Sunnudagsmorgunn með Svavari Gests. 11.00 Helgarútgáfan. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Helgarútgáfan - heldur áfram. 13.00 Hring- borðiö. 14.00 Hvervará frumsýningunni? 15.00 Mauraþúfan. 16.05 Söngur villiandar- innar. 17.00 Tengja. 19.00 Kvöldfréttir. 19.32 Djass. 20.30 PÍötusýnið: Ný skífa. 22.07 Landið og miöin. 00.10 I háttinn. 01.00 Næturútvarp. Laugardagur Sunnudagur Mánudagur Þorláksmessa Rás 1 FM 92.4/93.5 6.45 Veðurfregnir. 7.00 Fréttir. 7.03 Morgunþáttur Rás- ar 1. 7.30 Fréttayfiriit. 7.45 Krítík 8.00 Fréttir. 8.10 Að utari. 8.15 Veðurfregnir. 8.30 Fréttayfiriit. 8.31 Gestur á mánudegi. 9.00 Fréttir. 9.03 Út í náttúruna. 9.45 Segðu mér sögu - Af hverju, afi? Sigurbjórn Einarsson biskup segir börnunum sögur. 10.00 Fréttir. 10.03 Morgunleikfimi. 10.10 Veðurfregnir. 10.20 Fólkiö I Þingholtun- um. 11.00 Fréttir. 11.03 Tónmál. 11.53 Dagbókin 12.00 Fréttayfirfit á hádegi 12.01 Að utan. 12.20 Hádegisfréttir 12.45 Veðurfregnir. 12.48 Auðlindin. 12.55 Dánarfregnir. Aug- lýsingar. 13.00 Jólablanda I skötu- líki. 14.00 Fréttir. 14.03 Útvarpssagan: Ástir og örfok. 14.30 Ný svrpa af lögum Jóns Múla Árnasonar. Sinfóniuhljómsveit Islands frumflytur útsetningu Ólafs Gauks. Umsjón: Vem- haröur Linnet. 15.00 Fréttir. 15.03 Jólakveðjur. Al- mennar kveðjur og óstað- bundnar. 16.00 Fréttir. 16.05 Völuskrln. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Jólakveðjur. 17.00 Fréttir. 17.03 Jólakveðjur. 18.00 Fréttir. 18.03 Jólakveöjur. 18.30 Auglýsingar. Dánar- fregnir. 18.45 Veðurfregnir. Aug- lýsingar. 19.00 Kvöldfréttir 19.32 Jólahugleiðing. Vil- hjálmur Árnason heim- spekingur hugleiðir merk- ingu jólanna i nútimasam- félagi. 20.00 Jólakveðjur. Kveðj- ur til fólks I sýslum og kaupstööum landsins. 22.00 Fréttir. Orð kvölds- ins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Dagskrá morgun- dagsins. 22.30 Jólakveðjur til fólks I sýslum og kaupstööum. Siðan almennar kveðjur. Leikin jólalög milli lestra. 24.00 Fréttir. 00.10 Jólakveöjur. 01.00 Veðurfregnir. 01.10 Næturútvarp. Rás 2 FM 90,1 7.03 Morgunútvarpið. 8.00 Morgunfréttir,- Morgunútvarpiö heldur áfram. - lllugi Jökulsson I starfi og leik. 9.03 9 - fjögur. 9.30 Sagan á bak við lag- ið. 10.15 Furðufregnir utan úr hinum stóra heimi. 11.15 Afmæliskveðjur. Sfminn er 91 687 123. 12.00 Fréttayfiriit og veð- ur. 12.20 Hádegisfréttir 12.45 9 - fjögur. Umsjón: Margrét Blöndal, Magnús R. Einarsson og Þorgeir Ástvaldsson. 12.45 Fréttahaukur dags- ins spurður út úr. Afmæliskveöjur klukkan 14.15 og 15.15. Síminn er 91 687 123. 16.00 Fréttir. 16.03 Dagskrá: Dægur- málaútvarp og fréttir. 17.00 Fréttir. - Dagskrá heldur áfram,- Meinhorn- ið: Óðurinn til gremjunnar. Þjóðin kvartar og kveinar yfir öllu því sem aflaga fer. 18.00 Fréttir. 18.03 Þjóðarsálin. Sigurð- ur G. Tómasson og Stef- án Jón Hafstein sitja við slmann, sem er 91 - 68 60 90. 19.00 Kvöldfréttir 19.30 Ekki fréttir. Haukur Hauksson endurtekur fréttirnar sinar frá þvl fyrr um daginn. 19.32 Rokkþáttur Andreu Jónsdóttur. 21.00 Gullsklfur: Ellý og Vilhjálmur synpja jólalög og Með eld I hjarta með Brunaliöinu 22.07 Bubbi Morthens á Borginni. Bein útsending frá Hótel Borg. 00.10 I háttinn. Gyða Dröfn Tryggvadóttir leikur Ijúfa kvöldtónlist. 01.00 Næturútvarp á báð- um rásum til morguns. VINNINGAR Hágæöatölva, Silicon Valley 486, frá Kjama hf. á kr. 300.000. kom á miða nr. 28283 Dregið var í happdrætti Þjóðviljans 5. des. s.l. Vinn- ingar eru 30 talsins, auk sérstaks aukavinnings, samtals að fjárhæð kr.1.765.000. Vinningar komu á eftirtalin númer: 1. Hágæðatölva, Silicon Valley 486, frá Kjarna hf. á kr. 300.000. kom á miða nr. 28283 2. Tölva, Silicon Valley 386, frá Kjarna hf. á kr. 145.000. kom á miða nr. 4647 3. -4. Ferð fyrir tvo að eigin vali með Samvinnuferð- um/Landsýn, hvor vinningur á kr. 140.000., kom á miða nr. 7533 og nr. 29128 5.-6. Vidéoupptökuvél, Nordmende, frá Radíóbúðinni, hvor vinningur á kr. 85.000, kom á miða nr. 24098 og nr. 29572 7.-8. Heimilistæki að eigin vali frá Smith & Noriand, hvor vinningur á kr. 85.000., kom á miða nr. 9275 og nr. 22749 9.-10. Myndsegulband, Panasonic, frá Japis, hvor vinningur á kr.80.000, kom á miða nr. 25894 og nr. 28587 11.-12. Örbylgju- og grill- ofn, frá Einari Farestveit hf. hvor vinningur á kr. 70.000, kom á miða nr. 1638 nr. 5192 13-30. Bókaúttekt hjá bókaforlaginu Máli og menn- ingu, hver vinningur á kr. 10.000, kom á eftirtalda miða: nr. 362 nr. 655 nr. 2635 nr. 2753 nr. 3430 nr. 4700 nr. 8128 nr. 8202 nr. 13514 nr. 13626 nr. 15676 nr. 16945 nr. 19227 nr. 19781 nr. 21152 nr. 22451 nr. 24832 nr. 25983 Bónusvinningurinn, mál- verkið „Lífsblik" eftir Tolla, að verðmæti kr. 230.000., kom á miða nr. 9909 Vinningshöfum er bent á að hafa samband við skrif- stofu Þjóðviljans í dag, föstu- daginn 20. desember frá kl. 9- 17 og á Þorláksmessu frá kl. 10-12. Á milli jóla og nýárs verður skrifstofan opin föstudaginn 27. desember og mánudaginn 30. desember. Þjóðviljinn þakkar áskrif- endum sínum góðar undirtekt- ir við happdrættið, en mun fleiri happdrættismiðar seldust að þessu sinni en árið áður. M a t u r____ Kæst skata - iðrahreinsun Skötuát er lenska, sem maður fær óbeit á í æsku, en grípur svo til fegins hendi á fullorðinsárum til þess að auka ögn á fjöl- breytni í siðvenju þessa siðvenjusnauða ættstofns, sem hefur alið mann. Allar okkar hefðir í matarvenjum eru einkar fábrotnar og flestar hvort eð er tengdar súrri ýldu. Ég vandist á skötuát við illan leik á unglinsárum fyrir vestan. Þar var talið þessum sérstæða rétti til hollustuauka, að menn og skepnur hefðu migið á hann vik- um saman. Helst átti að verka hann í fjóstaði eða úldnu þangi, var manni sagt. Líklega hafa þess konar lýsingar þó einkum verið til þess ætlaðar að auka óhörðnuðum unglingum og viðkvæmu kven- fólki lyst á krásunum. Það mun sönnu nær að menn hafi verkað þetta af natni og þrifnaði, ekki ósvipað hákarli, það er að segja, látið þetta úldna og þrána í eigin legi og ekki gert sér far um að míga í þá kös öðrum fiskkösum fremur. Á Þorláksmessu angaði hvert eldhús í þorpinu heima af þessari ammoníaksblöndnu ýldu, sem var magnaðri en sú stækasta keytu- lykt, sem nokkur hlandfor gat státað af. Skötubörðin voru soðin í hæfilega stórum stykkjum, kart- öflur með og hamsatólg brædd til viðbætis, nema á stöku stað hnoð- mör. Sumir átu allt upp til agna, brjóskið með. Ýldan var kannski ekki það örðugasta við skötuátið, ekki heldur að anda að sér ammoníak- inu. Það sem fór kannski verst með menn, sem voru viðkvæmir, var útlitið á skepnunni. Landinn hefur alla tíð átt erfitt með að leggja sér til munns ófríðar skepnur. Skata þótti naumast fag- ur fiskur úr sjónum, og ekki fríkk- aði hún við meðferðina: Gulleit, rauðbleik slepjan, sem leit út eins og maðkaveita á disknum. Það var semsagt útlitið sem gerði manni erfiðast fyrir við neysluna. Ekki hefðum við boðið í það ég og mínir kumpánar að leggja okk- ur tindabykkju til munns, eins og nú þykir fínt. Hins vegar blandaðist manni aldrei hugur um að þetta væri hollt, meinhollur andskoti. Þess vegna kannski, fyrst og fremst, lét maður sig hafa þetta. Enda var þessi matur ekki alla jafna á borð- um nema á Þorláksmessu og hver nennti að vera með múður, svona rétt fyrir jólin? Það var líka til í dæminu að húsmæður gerðu úr tólg og fiski stöppu, skötustöppu, og gæfu þrumara með. Slíkt smúlaði iðrin vel og rækilega og verkaði eins og þrýstilofTt innanvert. Það var einmitt talið þessum rétti til ágætis að hann hreinsaði iðrin og væri því ákjósanlegur til neyslu, rétt áður en átveislan mikla hófst. Sennilega hefur skat- an skilað gömunum skrúbbuðum innan og allri iðraveitunni harla hressari fyrir jólaátið. En alla jafna hefði manni fundist þetta óæti hið mesta og hreinn og klár afarkostur að leggja sér það til munns. Löngu eftir að ég fluttist á mölina, neyddist ég svo eins og fleiri samkynja til þess að taka ögn til hendi í eigin eldhúsi. Verður manni þá ekki hugsáð heim og viti menn: Gerðar eru til- raunir á blásaklausu fólki, ungu sem öldnu, sem aldrei hefur reynt þetta lyktsterka mataræði. Og mér hefur, á heilsufars- og hollustu- forsendum, í nafni sjálfsaga - að ég segi ekki meinlæta - og með margvíslegum öðrum fortölum og brennivíni, tekist að koma þessu ofan í ótrúlegasta fólk: þenkjandi sunnlenska bókmenntaunnendur, gljápíur sunnan frá sjó, hafnfirsk jafnréttisfrik, reykvíska menning- arfussara og rauðvínsþefjara, sunnlenska alþýðufræðara, við- skiptamenn með smekk fyrir menningu og listum, hagmæltar borgfirskar sveitakonur, og svo mætti lengi telja. Örfáir útlend- ingar hafa meira að segja lagt sér þetta til munns, ekki raunar marg- ir. Það þarf þrátt fyrir allt íslenskt siðleysi, eða eigum við ekki að segja siðmenningu, til þess að skilja hvað þetta úldna tros er gott - og hollt - útlendingar hafa líka sitt óæti. NÝTT HELGARBLAÐ 1 9 FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.