Þjóðviljinn - 20.12.1991, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 20.12.1991, Blaðsíða 12
S k á k Hannes Hlífar Hannes Hlífar Stefánsson varð í 5.-7. sæti á allsterku móti sem haldið var í Budapest í Ung- verjalandi og lauk fyrir skömmu. Mótið var í 9. styrkleikaflokki FIDE, og þar sem Iokuð mót, sem svo eru kölluð ef allir kepp- endur tefla innbyrðis, eru ekki á hverju strái fyrir unga og metn- aðarfuiia skákmenn fékk hann kjörið tækifæri til að ná áfanga að alþjóðlegum stórmeistaratitli. Hann hefur nýlega gert sam- komulag við skákfélag Malmö, sem hefur innan sinna vébanda nokkra íslenska skákmenn t.a.m. Gunnar Finnlaugsson og Amþór Einarsson, um taflmennsku fyrir félagið í sænsku deildarkeppninni gegn framlagi nokkurra farseðla sem vitanlega skipta miklu íyrir menn á faraldsfæti. Eftir að hafa teílt nokkrar skákir í sænsku deild- inni í nóvember sl. hélt Hannes með lest frá Malmö til Budapest og tók það ferðalag nálega 30 klst. Mótið innihélt 12 skákmeistara, hófst 25. nóvember og lauk 6. des- ember. Það var að mestu skipað ungum og efnilegum skákmönnum þó innan um væru kappar á borð við Istvan Csom sem staðið hefur í fylkingarbrjósti ungverskrar skák- listar um langt skeið. Hannes byrjaði ekki vel og hafði hlotið 2 vinninga að loknum sex umferðum eftir fremur slysaleg töp. Lokaspretturinn var hinsvegr velheppnaður, 3 1/2 vinningur úr fímm síðustu skákunum. Frammi- staða hans á þessu ári hefur valdið nokkrum vonbrigðum, en hann hefur þó heyjað sér mikilsverða reynslu sem án efa mun skila sér í betri árangri á næstunni. Hann hyggur á aðra Ungverjalandsferð eftir nokkra mánuði, en þar eru haldin mörg eftirtektarverð mót ár hvert, og má geta þess að Héðinn Steingrimsson tefldi í Ungverja- landi sl. sumar. með ágætum ár- angri. Lokaniðurstaðan: 1.-2. Lutz (Þýskalandi) og Ba- burin (Sovét.) 3. Loginov (Sovét.) 7 1/2 v. 4. Csom (Ungv.land) 6 1/2 v. 5.-7. Hannes Hlífar, Schlosser (Þýskaland) og Almasi (Ungv.Iand) 5 1/2 v. 8.-9. Petran (Ungv.land) og A. Petrosjan (Armeníu) 5 v. 10. Stem (Þýska- land) 4 1/2 v. 11. Horvath (Ungv.land) 4 v. 12. S. Farago (Ungv.land) 1 1/2 v. Við skulum líta á tvær skákir Hannesar frá lokasprettinum. I þeirri fyrri er tekið til meðferðar afbrigði Skandinaviska leiksins sem Hannes gjörþekkir. Dreka-af- brigðið verður upp á teningnum í seinni skákinni og þar kemur nafni stórmeistarans Ivan Farago ekki að tómum kofunum hjá Hannesi: Zoltan Horvath - Hannes Hlífar Stefánsson Skandinavíski leikurinn 1. e4 d5 2. exd5 Rf6 3. d4 (Ekki þykir hættandi á „ís- lenska bragðið“ sem kemur upp eftir 3. c4 e6!? Það hefur fengið all rækilega umfjöllun í skáktímaritum heims.) 3... Rxd5 4. RO g6 5. Be2 Bg7 6. 0-0 0-0 7. h3 c5! (Horvath hefur sennilega ekki verið kunnugur því, að hér er að koma upp staða sem Hannes þekkir frá fyrri skákum. Hann vann t.d. hinn öíluga þýska stórmeistara Lo- bron á úrtökumóti GMA í Moskvu 1989, en þar var hrókur hvíts á el í stað peðs á h3. Að öðm Ieyti teflist skákin eins fram að 10. leik hvíts.) 8. dxc5 Ra6 9. Bxa6 bxa6 10. c4?! (Eftir þennan leik sem veikir hvítu reitina um of lendir hvítur í í 5.-7. sæti í Budapest hartnær óyfirstíganlegum erfiðleik- um.) 10.. . Rb4 11. Rc3 Bf5 12. Rel Dxdl 13. Rxdl Hac8 14. Be3 Be6 15. a3 Rc6 16. RO (Hvítur getur ekki varið c4 - peðiðt.d. 16. Hcl Ra5! o.s.frv.) / 16.. . Bxc4 17. Hel Bd5 18. Rd2 f5 19. O Hfd8 20. Hcl a5! (Svartur ræður lögum og lof- um. Þetta má kallast draumastaða unnenda Skandinavíska leiksins.) 21. Rc3 Bf7 22. Ra4 Hd3 23. Rc4 Hcd8 24. Kfl Bf6 (Hvítu mennimir eiga enga reiti og svartur getur hagað upp- byggingu stöðu sinnar á hvem þann hátt sem hann lystir.) 25. Hc2 Rd4! 26. Bxd4 H8xd4 27. Hecl Be8! (Nú fellur peð og síðan annað.) 28. b3 Hxb3 29. Rab2 Hd5 - Hvítur gafst upp því hann tap- ar öðm peði til viðbótar og frekara viðnám er gjörsamlega vonlaust. Hannes Hlífar Stefánsson Sandor Farago Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. ROd6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 g6 6. Be3 Bg7 7. O Rc6 8. Dd2 0-0 9. Bc4 Bd7 10. 0-0-0 Re5 11. Bb3 Hc8 12. h4 h5 13. Bg5 Hc5 14. Kbl b5 15. g4 a5 16. Bxf6 Bxf6 17. gxh5 a4 18. Bd5 e6 19. hxg6 exd5 20. h5 Bg5 21. f4 (Þetta mun allt saman hafa sést áður. Hannes hefur kynnt sér Dreka-afbrigði Sikileyjar- vamar- innar rækilega. Eftir að við Hannes höfðum skoðað skákir frá Buda- pestar-mótinu tefldi Hannes nokkr- ar hraðskákir við forrit sem ég hef undir höndum, knúið áfram af geysiöflugri einkatölvu. Svo fúrðu- lega vildi til að strax í fyrstu skák kom þessi staða upp, forritið er greinilega vel matað upplýsingum og mddi út úr sér þessari löngu te- óríu án þess „að depla auga“. A þessum punkti skildu leiðir, tölvan lék 21. .. Rc4 sem er betra, en ég rek ekki framhaldið frekar né held- ur niðurstöðuna!) 21... Bh6 22. Rxd5 Rc4 23. Dg2 Hxd5 (Það er erfitt að benda á mistök svarts sem hyggst létta á stöðunni með þekktri skipta- munsfóm, en Hannesi liggur ekkert á að hirða hrókinn.) 24. gxf7+ Kh8 25. Dg6! (Geysiöflugur millileikur. Hót- unin er vitaskuld 26. Dxh6 mát. Svartur á engra kosta völ.) 25.. . Hxf7 26. Dxf7 Hc5 27. Hdgl De8 28. Df6+ Kh7 29. Dg6+! (Byggir á 31. leiknum sem ger- ir út um taflið í einu vetfangi.) 29.. . Dxg6 30. hxg6+ Kg7 31. Hxh6! Kxh6 32. g7 Hc8 33. g8(D) Hxg8 34. Hxg8 Rd2+ 35. Kcl Rxe4 36. f5 Kh7 37. Hd8 Rf6 38. Re6 Be8 39. Hxd6 Re4 40. Hd4 Rf6 41. Rc7 Bd7 42. Hd6 Kg7 43. Rd5 - og svartur gafst upp. B r i d g e____________ Með (Bermuda)bros á vör Bridgesambandið hóf dreif- ingu „Bermudakrossins“, bók um heimsmeistaramótið i Yoko- hama, sl. fostudag. Fyrstu ein- tökin voru afhent Davíð Odds- syni forsætisráðherra og Stein- grimi Hermannssyni fv. forsætis- ráðherra á Alþingi. Sala bókarinnar hefur gengið mjög vel til þessa, og er hún til sölu í öllum helstu bókabúðum landsins, auk þess sem hcnni cr dreifi af BSÍ til allra aðildarfélaga sambandsins. Er vonandi að bókin fari sem víðast um þessi jól. Það em Guðmundur Sv. Hermannsson og Guðmundur Páll Arnarson (heimsmeistari) sem skrá viðburði frá ævintýrinu í Yokohama í októ- ber, er lslendingar urðu í fyrsta skipti heimsmeistarar í flokka- íþrótt. Bemódus Kristinsson og Ámi Loftsson urðu sigurvegarar í Opnu móti L.A. Café, sem spilað var sl. laugardag. í 2. sæti urðu Sverrir Ármannsson og Matthías Þorvalds- son og í 3. sæti, Jón Baldursson og Aðalsteinn Jörgensen. Aðeins 24 pör mættu til leiks, en yfir 30 pör vom skráð. Enn á ný sannast kenningin um morgun- spilamennsku. Að hefja kcppni kl. 10 árdegis í móti sem þessu er svipað og að verðlauna menn fyrir að aka ófullir í umferðinni. Ég veit ekki hvor ákvörðunin er vitlausari. Hlýtur þó að lýsa nokk þeim sem taka slíkar ákvarðanir. Um framtak L.A. Café er þó gott eitt að segja. Meira af siíku.- Rcykjavíkurmótið í sveita- keppni hefst mánudaginn 6. janúar, í Sigtúni 9. _ Skráning er m.a. á skrifstofu BSÍ. Spiladagar 8. jan., fimmtudag 9. jan., laugardag 11. jan., sunnu- dag 12. jan., miðvikudag 15. jan. og mánudag 22. jan. Til vara: laug- ardag 18. jan. og sunnudag 19. jan. Af þessari upptalningu sýnist mér að fyrirkomulagið sé 2 leikir á kvöldi, allir v/alla. 11 efstu sveit- irnar ávinna sér rétt til þálttöku í Islandsmótinu, en 4 efstu spila til úrslita um Reykjavíkurhomið. Mótið verður reiknað út eftir Butl- er- fyrirkomulagi (porin) af Krist- jáni Haukssyni, sem jafnfamt mun stýra spilamennsku. Bridgcfélag Hafnarfjarðar stendur (að venju) fyrir Opnu stór- móti milli jóla og nýárs. Áð þessu sinni verður spilað laugardaginn 28. descmber. Spilað verður í Viði- staðaskóla. Góð peningaverðiaun í boði. Sögur af Snorra Sturiusyni, þeim aldna heiðursmanni íslenskr- ar bridgesögu, munu birtast í jóla- blaði Þjóðviljans 21. desember (á morgun). Þar segir af karlinum inni á spítala, en þangað var hann flutt- ur í október á þessu ári. Eins og glöggir lesendur muna, var það einmitt um það leyti scm við vor- um að berja á andstæðingum okkar í Japan. Állt það bankarí tók ansi mikið á karlræfilinn. Sveit Steingríms Steingríms- sonar sigraði aðalsveitakeppni Skagfirðinga, sem lauk sl. þriðju- dag. Auk Steingríms spiluðu í sveitinni: Sigtryggur Sigurðsson, Magnús Torfason, Hrólfur Hjalta- son og Friðrik Vigfússon. Röð efstu sveita varð: 1. sveit Steingríms Steingríms- sonar 237 stig 2. sveit Sigmars Jónssonar 221 stig 3. sveit Magnúsar Sverrissonar 219 stig 4. sveit Sigurðar Ivarssonar 218 stig 5. sveit Rúnars Lárussonar 214 stig 6. sveit Hjálmars S. Pálssonar 212 stig Einnig var tekin létt jólasveina- keppni seinni hluta kvöldsins. Efstu skorir Jóku: (N/S) Ármann J. Lárusson - Ólafur Lárusson 100 og (A/V) Hrólfur Hjaltason - Stein- grímur Steingrímsson 112. Auk þess voru veitt önnur þenn kon- fektverðlaun, sem hlutu: Árni Loftsson - Þröstur lngimarsson 100, Jens Jensson - Jón St. Ingólf- son 98 og Helgi Hermannsson - Kjartan Jóhannsson 97. Skagfirðingar óska spilurum gleðilegra jóla. Starfsemin hefst þriðjudaginn 7. janúar, á nýju ári, með eins kvölds tvímennings- keppni. Og minnt er á skilafrest brons- stiga og félagsgjalda til BSÍ. Þau verða að hafa borist fyrir 10. janú- ar, til birtingar í næstu meistara- stigaskrá, sem væntanlega kemur út í byrjun febrúar. Umsjónarmaður óskar lesend: um þáttarins gleðilegra jóla. I næsta þætti (milli jóla og nýárs) verður valinn bridgemaður ársins ogannáll 1991 rakinn. Umsjónarmaður „hakkaði“ í sig Bermúdabrosið (bók um HM sem BSÍ gaf út í síðustu viku) á mánudagskvöldið. Takk, Ella. Bókin er afar eiguleg, í vönd- uðu broti, samtals 152 bls., með fjölda áður óbirtra mynda og spila. Við hæfi er að taka fyrir eitt spilið úr bókinni. Það spil er ekki lýsandi dæmi um þá velgengni sem liðið átti að fagna í Japan. En spennandi hlýtur það að hafa verið. 4 : G53 ¥: 103 ♦ : G10963 ♦ : 532 4: ÁK872 ♦: D6 ♦:8742 ♦: ÁG965 ♦: 74 ♦: Á82 *: ÁIO ♦: K84 4: 1094 ♦: KD ♦ : KD5 ♦: DG976 Sagnir gengu í Opna salnum (með þá Aðalstein í Vestur og Jón Baldursson í Austur): Vestur Norður Austur Suður 1 spaði 1) pass 2 lauf pass 2 grönd pass 3 lauf pass 3 tíglar 2) pass 3 hjörtu pass 4 lauf 3) pass 4 tíglar pass 4 spaðar 4) pass 4 grönd pass 5 tíglar 5) pass 6 hjörtu pass pass pass Allar sagnir Austurs eru spum- arsagnir (biðsagnir). Og Vestur hefur sagt frá: 1. 5 spaðar og 4 hjörtu. 2. 2 tíglar og 2 lauf. 3. 5 kontról (ás er tvö og kóng- ur eitt). 4. kontról í spaða, ekki hjarta. 5. kontról í laufi, ekki tígli. Slemman vinnst ef ekki kemur út tígull, en Pólverjinn átti hjónin, og fór ekki hjá því að tígukóngur kæmi út. Tekið á ás og hjartaás lagður niður. Drottning ffá Suður og Jón fylltist vonarglætu. Ekki versnaði staðan þegar báðir fýlgdu með í spaðanum þrisvar og tígli hent í. Meiri spaði, tromptía fiá Norður, gosi hjá Jóni... og nú er spilið unnið ef Norður hefur átt KlOx í trompi í byijun. En, því miður. Pólverjinn í Suður yfirtr- ompaði og tók á tíguldömu. Einn niður. Á hinu borðinu voru spiluð 4 hjörtu. 11 slagir og 11 stig út. NYTT HELGARBLAÐ 1 2 FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER I99l

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.