Þjóðviljinn - 20.12.1991, Side 18

Þjóðviljinn - 20.12.1991, Side 18
B æ k u r_ Veruleiki stríðsins Læknir á vígvelli Reynslusaga Gísla H. Sig- urðssonar iæknis frá her- numdu Kúveit Ólafur E. Friðriksson skráði Bókaútgáfan Iðunn 1991 Eftir lestur lífsreynslusögu Gísla H. Sigurðssonar læknis frá Kúveit er það einkum þrennt sem eftir situr í huga lesandans: ógnir styijaldarinnar eru þess eðlis að þeim verður seint með orðum lýst, svo að jafnvel í þessari reynslu- sögu „beint frá skurðarborðinu" birtist okkur veruleiki stríðsins eins og martraðarkennt óráð sem erfitt er að trúa eftirá að hafi átt sér stoð í raunveruleikanum. Svo brjálaður getur veruleikinn orðið, að hann fer langt fram úr villtustu draumórum mannsins. í öðru lagi er það sú bitra stað- reynd, að Saddam Hussein og það ómennska valdakerfi sem hann hefur skapað, skuli eftir allt sem á undan er gengið fá að halda áfram að bjóða þegnum sínum og þjóð- um heimsins birginn með sömu lífslyginni og eitra þannig allt mannlíf í kringum sig. 1 þriðja lagi er lýsing Gísla á þeirri þraulagöngu sem það kost- aði hann, fjölskyldu hans, vini og velgerðarmenn að losna úr prí- sundinni í Bagdad, einhver þyngsti áfellisdórnur um dómgreindarleysi og mér liggur við að segja hug- leysi, sem ég minnist að hafa lesið um íslenskt stjómvald, en af þeirri frásögn kcmur i Ijós að myrkviðir íslcnska utanríkisráðuneytisins við Hverfisgötuna virðast í cngu auðr- ataðri fyrir venjulegt fólk en myrkviðir utanríkisráðuneytisins í Bagdad: á meðan Henrik Amneus sendiherra Svíþjóðar í Irak fór óteljandi erindisleysur í ráðuneyti Tarik Aziz í Bagdad til að greiða fyrir heimfararleyfi Gísla Sigurðs- sonar gekk Bima Hjaltadóttir eig- inkona hans álíka margar erindis- leysur í sama tilgangi í ráðuneyti Jóns Baldvins Hannibalssonar við Hverfisgötuna, og fékk engu skýr- ari svör, nema síður væri. Þó var öllum ljóst sem málinu tengdust, að eitt bréf eða skeyti frá ráðu- neytinu á Hverfisgötunni til ráðu- neytisins í Bagdad hefði leyst mál- ið á svipstundu. Lyktir þessa „gíslamáls“, í tvöfaldri merkingu þess orðs, em íslenska stjómkerf- inu einfaldlega til vansa og bera vott um vítaverða vanrækslu sem verður þeim mun augljósari þegar haft er í huga að brottfararleyfi Gísla Sigurðssonar frá Bagdad var orðið að alþjóðamáli þar sem Hussein Jórdaníukonungur hafði falið sendiherra sínum að reka á eftir málinu í utanríkisráðuneytinu í Bagdad fyrir beiðni Vigdísar Finnbogadóttur og Jassir Arafat hafði tekið málið upp í Bagdad fyrir beiðni Steingríms Hermanns- sonar. Einnig hafði sendiherra Sovétríkjanna í Bagdad beitt sér fyrir lausn málsins og fleiri sendi- fulltrúar auk sendiherra Svíþjóðar, sem eins og áður er getið fór ótal erindisleysur í utanríkisráðuneytið í Bagdad vegna Gísla, og fékk jafnan þau svör, að það vantaði til- mæli eða beiðni frá íslenskum stjómvöldum milliliðalaust. Gisli Sigurðsson lceknir. Mynd: Jim Smart. Til að kóróna þátt íslensku ut- anrikisþjónustunnar í málinu, þá kemur í ljós að íslenska sendiráðið í Stokkhólmi tekur á móti neyðar- skeyti frá sænska sendiherranum í Bagdad þann 1. desember 1990, þar sem bent er á að ísland eitt ríkja hafi ekki komið tilmælum til stjómvalda í Bagdad um lausn gisla, en slík tilmæli væri forsenda Ólcxfur Gíslason skrifar lausnar Gísla Sigurðssonar. Sendi- herra íslands í Stokkhólmi sat á þessu neyðarskeyti í sex daga áður en hann sendi það áfram til áfangastaðar á Hverfisgötunni með venjulegum pósti. Þegar skeytið barst loks á Hverfisgötuna þann 10. deseinber var það hunsað eins og önnur hliðstæð tilmæli. Eins og flestum er nú kunnugt var málið á endanum leyst þannig að íraskir embættismenn tóku það upp á sitt eindæmi að gera Jó- hönnu Kristjónsdóttur blaðakonu á Morgunblaðinu að sérstökum er- indreka íslenskra stjómvalda í málinu, og má það vera íslenska utanríkisráðuneytinu til ævarandi hneisu og háðungar að embættis- menn Saddams Hussein þyrftu þannig að hafa vit fýrir íslensku utanríkisþjónustunni. Gísli bendir á það í bókinni, að Bandaríkjastjóm hafi lagt ríka áherslu á það um þessar mundir, að vestræn ríki stæðu ekki i nein- um samningaviðræðum við Sadd- am Hussein eða ríkisstjóm hans, og að flest vestræn ríki hafi viður- kennt þá stefnu. Telur Gísli að Jón Baldvin hafi túlkað þessa stefnu þannig, að ekki kæmi einu sinni til greina að senda Saddam Hussein bréf þar sem farið væri fram á að Irakar stæðu við skuldbindingar sínar gagnvart Genfarsáttmálanum og slepptu eina Islendingnum í Ir- ak úr landi. Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra virðist hins vegar hafa túlkað málið öðm- vísi, því ágreiningur mun hafa orðið um málsmeðferðina á milli utanríkisráðherra og forsætisráð- herra, bæði vegna sambands hins síðamefnda við Jassir Arafat og einnig vegna tilboðs forsætisráð- herra um að senda Jón Sveinsson aðstoðarmann sinn til Bagdad. Agreiningur þessi verður ekki síst furðulegur í ljósi þess, að mörg vestræn ríki höfðu sína sendifull- trúa i Bagdad og vom þannig í daglegum tengslum við írösk stjómvöld, auk þess sem háttsettir stjómmálaleiðtogar íjölmargra ríkja höfðu gert sér sérstaka ferð til Bagdad til að fá gísla leysta úr haldi. Svo virðist því sem Jón Baldvin hafi túlkað stefnu Banda- ríkjanna í þessu máli svo bókstaf- lega, að réttara væri að beita ætt- ingja Gísla Sigurðssonar blekking- um með því að segja þeim að „allt væri gert“ til að fá hann lausan, á meðan stefnan í raun væri sú, að ekkert mætti gera. Meginefni frásagnar Gísla varðar þó ekki brottfórina, heldur er það lýsingin á því martraðar- kennda ástandi sem ríkti í Kúveit á meðan á hemámi íraka stóð, þar sem Gísli var eitt örfárra vitna ífá Vesturlöndum að því er þar gerð- ist. Vitnisburður hans er yfirveguð og einstök heimild, laus við alla tilfinningasemi. Frásögnin birtir okkur um leið mynd af manni sem bregst við ómanneskjulegum að- stæðum stríðsins af óvenjulegu hugrekki og þrjóskast við að standa sína plikt á sjúkrahúsinu allt þar til iraska leyniþjónustan setti honum úrslitakosti um að fara burt frá Kúveit síðastur Vestur- landabúa. Eftir á að hyggja hlýtur það að teljast sambland af heppni og yfirveguðu hugrekki að Gísli skyldi sleppa lifandi frá þessari reynslu. I síðasta kafla bókarinnar lýsir Gísli endurkomu sinni til Kúveit í september síðastliðnum og afleið- ingum stríðsins. Þar blasir ekki bara við honum land í rúst, heldur líka ný og breytt þjóð. Stríðið hef- ur að mati Gísla haft varanleg áhrif á þjóðina, gert hana grimm- lyndari og tillitslausari í umgengni og svipt hana því umburðarlyndi sem hún hafði gagnvart siðum og trúarbrögðum annarra þjóða. Sú velferðarparadís allsnægtanna þar sem glæpir og afbrot voru fátíð og enginn leið skort er liðin undir lok. Yfir rústum þessa samfélags stendur Saddam Hussein í reynd sem sigurvegari, segir Gísli: „Hann rændi kúvæskt þjóðfélag, lagði efnahagslífið í rúst og komst nálægt því að skapa það þjóðfélag grimmdar og mannfyrirlitningar, sem hann hefur skapað undir sinni stjóm í Irak. Hann kippti þróun- inni í Kúveit aftur um nokkra ára- tugi án þess að þurfa sjálfúr að bera á því nokkra ábyrgð.“ Bókin „Læknir á vígvelli“ er einstök heimild, samvinna þeirra Gísla og Olafs E. Friðrikssonar við skrásetningu bókarinnar hefur tekist vel í flestu, þótt sums staðar beri á þarflausum endurtekning- um. Þetta er bók sem á erindi til allra er láta sig málefni samtímans varða. S j ó n v a r p Föstudagur 17.40 Jóladagata! Sjónvarpsins Stjömustrákur eftir Sigrúnu Eld- járn (20). 17.50 Paddington Teiknimynda- flokkur um bangsann Padding- ton. 18.20 Beykigróf Breskur mynda- flokkur. 18.50 Táknmálsfréttir 18.55 Tíðarandinn Þáttur um vand- , aða dægurtónlist. Umsjón Skúli Helgason. 19.20 Magni mús Bandarísk teikni- mynd. 19.50 Jóladagatal Sjónvarpsins (20) Endurs. 20.00 Fréttir og veöur 20.40 Kastljós 21.10 Jól á íslandi. Jólatréð i stofu stendur Þáttur um jólahald á ís- landi fyrr og nú. Lokaþátturinn í syrpunni verður sýndur laugar- daginn 21. desember. Umsjón Hallgerður Gísladóttir. 21.40 Derrick Þýskur sakamála- þáttur. Aðalhlutverk Horst Tapp- ert. 22.45 Upptaktur. Lokaþáttur Sýnd verða ný tónlistarmyndbönd með íslenskum tónlistarmönn- um. Kynnir Björn Jr. Friðbjörns- son. Dagskrárgerð Erna Amar- dóttir. 23.10 Norðurljós Bandarisk bíó- mynd frá 1979. Hér er sögð saga af harðri lífsbaráttu bænda í Noröur- Dakóta i byrjun þess- arar aldar. Leikstjóri: John Han- son. Aðalhlutverk: Rob Nilsson, 1 Robert Behling og Susan Lynch. 00.55 Útvarpsfréttir í dagskrárlok. Laugardagur 14.45 Enska knattspyrnan Bein út- sending frá leik Liverpool og Manchester City á Anfield Road I Liverpool. Fylgst verður með öðrum leikjum og staðan í þeim birt jafnóöum og til tíðinda deg- ur. Umsjón Bjarni Felixson. 17.00 íþróttaþátturinn Fjallað verð- ur um íþróttamenn og iþróttaviö- burði hér heima og erlendis. Boltahornið verður á sínum stað og kl. 17.35 verða úrslit dagsins birt. Umsjón Logi Bergmann Eiðsson. 17.40 Jóladagatal Sjónvarpsins Stjörnustrákur eftir Sigrúnu Eld- járn.(21) 17.50 Múmínálfarnir Finnskur teiknimyndaflokkur, byggður á sögum Tove Jansson. 18.32 Kasper og vinir hans. Banda- riskur teiknimyndaflokkur. 18.50 Táknmálsfréttir 18.55 Poppkorn Glódis Gunnars- dóttir kynnir tónlistarmyndbönd af ýmsu tagi. 19.20 Úr ríki náttúrunnar. Skrifarinn Bresk fræðslumynd um arnar- tegund í Afriku. Þýðandi og þul- ur Jón O. Edwald. 19.50 Jóladagatal Sjónvarpsins 21. þáttur endursýndur. 20.00 Fréttir og veöur 20.40 Lottó 20.50 Jól á Islandi Ljós í myrkri Þáttur um jólahald á íslandi fyrr og nú. Umsjón Hallgeröur Gisia- dóttir. 21.10 Fyrirmyndarfaðir Bandarlsk- ur gamanmyndaflokkur. 21.40 Raunir jólasveinsins Banda- rísk sjónvarpsmynd. Jóla- sveinnninn er ósáttur við það að fólk skuli hafa gleymt hinum sanna jólaanda og ákveður að þetta árið verði engin jól. Hann veröur samferða átta ára stúlku yfir þver Bandaríkin og á leiöinni hitta þau fjölda fólks sem hefur misst trúna á jólin. 23.20 Perry Mason og slefberinn Sjónvarpsmynd frá 1988 þar sem lögmaðurinn Perry Mason á f höggi við afkastamikla og út- smogna fjárkúgara. 00.55 Utvarpsfréttir í dagskrárlok Sunnudagur 12.50 Meistaragolf Svipmyndir frá heimsbikarkeppni í höggleik sem fram fór í Róm. Umsjón Logi B. Eiðsson og Páll Ketils- son. 13.55 Hljómleikar æskunnar Ungir hljóðfæraleikarar leika verk eftir Mozart, Gershwin og fleiri. (Evr- óvision - Austurriska sjónvarpið) 15.25 Tónstofan - Hilmar Örn Hilmarsson Hilmar Örn Hilmars- son, sem nýverið fékk Felix- verðlaunin fyrir tónlist sína í kvikmyndinni Börn náttúrunnar eftir Friðrik Þór Friðriksson, er gestur í Tónstofu að þessu sinni. (Endurt.) 15.50 Flauturnar óma. Seinni hluti Kristil.egi ungmennakórinn á Sunnmæri I Noregi flytur tónlist frá Andesfjöllum við undirleik hljóðfæraleikara frá Ekvador. (Nordvision - Norska sjónvarp- ið) 16.25 Lífsbarátta dýranna. Fjórði þáttur: Sókn og vörn. Breskur heimildaflokkur i tólf þáttum. Þýðandi og þulur Öskar Ingi- marsson 17.15 I uppnámi Skákkennsla I tólf þáttum. Höfundar og leiðbein- endur eru stórmeistararnir Helgi Ólafsson og Jón L. Árnason. 17.30 Jóladagatal Sjónvarpsins Stjörnurstrákur eftir Sigrúnu Eld- járn (22) 17.40 Sunnudagshugvekja Flytj- andi er Guðrún Edda Gunnars- dóttir guðfræðingur. 17.50 Stundin okkar (9) Börn úr Lúðrasveit Mosfellsbæjar taka lagið. Ungt par sýnir dans. Kín- verskir töframenn leika listir sín- ar. Börn úr Hamraskóla syngja. Edda Heiðrún Backman syngur um jólaveininn og börnin verða frædd um fílinn. Umsjón Helga Steffensen. 18.20 Sögur Elsu Beskow Jól hjá Pétri og Lottu - fyrri hluti Lesari Inga Hildur Haraldsdóttir. 18.50 Táknmálsfréttir 18.55 Vistaskipti Bandarískur gam- anmyndaflokkur. 19.20 Fákar Þýskur myndaflokkur. 19.50 Jóladagatal Sjónvarpsins 22. þ. endursýndur. 20.00 Fréttir og veður 20.40 Jóladagskráin I þættinum verður kynnt hið fjölbreytta efni sem Sjónvarpiö synir um hátíð- imar. Umsjón og dagskrárgerð: Þorsteinn Ulfar Björnsson. 21.05 Siðasta blómið Leikhópurinn Perlan flytur Ijóð James Thur- bers í þýðingu Magnúsar Ás- geirssonar. Leikgerð og lestur: Sigríður Eyþórsdóttir. Tónlist: Eyþór Arnalds. 21.20 Fjör í Frans - jólaþáttur. 22.00 Jólahátíö flakkarans Banda- rísk sjónvarpsmynd frá 1987. Hér segir frá flakkara sem hittir fjölskyldu sina aftur eftir tuttugu ára aðskilnað. 23.35 Listaalmanakið Sænskur þáttur um myndlist. Þýðandi og þulur Þorsteinn Helgason. 23.40 Útvarpsfréttir og dagskrárlok Fostudagur 16.45 Nágrannar 17.30 Gosi Ævintýraleg teikni- mynd. 17.50 Sannir draugabanar Spenn- andi teiknimynd. 18.15 blátt áfram Endurtekinn þátt- ur frá þvi í gær. 18.40 Bylmingur Þungt rokk 19.19 19.19 20.15 Kænar konur Lífiö er ekki alltaf dans á rósum hjá þeim stöllunum. 20.50 Ferðast um timann Tima- flakkarinn Sam Beckett lendir í ótrúlegustu ævintýrum í hverjum ættí svo það er ekki að undra ó að þetta séu einir vinsælustu þættir sem sýndir eru hér á landi. 21.45 Makleg málagjöld Meinfyndin mynd þar sem gert er grín að svertingjamyndum áttunda ára- tugarins. (1989) Stranglega bönnuð bömum. 23.20 Skæruliöarnir Sovéskur skriðdreki veröur viðskila við herfylki sitt í Afganistan. Áhöfn drekans gerir örvæntingarfullar tilraunir til aö komiast i örugga höfn, en frelsisnermenn af- göngsku þjóðarinnar veita þeim eftirför. (1988) Stránglega bönn- uð börnum. 01.10 Samningurinn Hörkuspenn- andi sakamálamynd um lög- reglumann Schimanski en hann hefur einstakt lag á að koma sér i vandræöi, hvort sem er með glæpamönnum eða konum. 02.35 Dagskráriok Stöðvar 2 Laugardagur 09.00 Með afa Emanúel og Pási eru orönir miklir vinir. 10.30 Á skotskónum Teiknimynd um stráka sem finnst ekkert skemmtilegra en að spila fót- bolta. 10.55 Af hverju er himinninn blár? Fræðandi þáttur fyrir börn á öll- um aldri. 11.00 Dýrasögur Vandaður þáttur. 11.15 Lási og lögga Teiknimynd. 11.40 Maggý Falleg teiknimynd. 12.00 Landkönnun National Geo- graphic er heimsþekkt fyrir vandaða fræðslu um lönd og þjóðir. Þessir sjónvarpsþættir gefa þvl ekkert eftir. 12.50 Kærastinn er kominn Létt og skemmtileg mynd um þrjár kon- ur sem hittast og syngja saman eftir 25 ára þögn. 14.20 Borð fyrir fimm Hugljúf og falleg mynd um fráskilinn fri- stundaföður sem ákveður að taka sig á og fara með börnin sin þrju i Evrópuferð, grunlaus um hversu örlagarik þessi ákvörðun hans reynist. (1983) 16.20 Eðaltónar 17.00 Falcon Crest 18.00 Popp og kók Hress þáttur I skammdeginu. Þátturinn er einn- ig sendur út ( steríó á Stjömunni, FM 102,2 og FM 104. Umsjón Marín Ulfarsdóttir og Sigurður Ragnarsson. 18.30 Gillette sportpakkinn Skemmtilegur og fjölbreytilegur íþróttaþáttur. 19.19 19.19 20.05 Á norðurslóðum Sérstaklega vel og skemmtilega skrifaður þáttur um ungan lækni sem stundar iðn sína á framandi slóðum. 20.55 Glæpaspil. 21.50 Jólaleyfiö Rómantisk gaman- mynd um ungan mann sem fer i heimsókn til unnustu sinnar sem býr í Kanada. Þegar þangað er komiö kemst hann I fyrsta sinn í kynni við fjölskyldu hennar og er þar hveröðrum kyndugri. (1989) 23.25 Sendingin Hörkuspennandi njósnamynd þar sem enginn er þar sem hann er séður. (1989) Stranglega bönnuð bömum. 01.10 Guð skóp konuna... Róman- tisk og gamansöm mynd um unga stúlku, Robin Shay, sem er tilbúin að gera ýmislegt til að losna úr fangelsi. (1988) Bönnuð börnum. 02.45 Dagskráriok Stöðvar 2 Sunnudagur 09.00 Túlli 09.05 Snorkarnir Teiknimynd. 09.15 Fúsi fjörkálfur Teiknimynd. 09.20 Litla hafmeyjan Teiknimynd,. 09.45 Pétur Pan Ævintýraleg teiknimynd. 10.10 Ævintýraheimur NINTENDO Ketill og hundurinn hans, Depill lenda I nýjum ævintýrum. 10.30 Magdalena Skemmtileg teiknimynd. 10.55 Blaðasnáparnir Vönduð og skemmtileg teiknimynd. 11.25 Herra Maggú Teiknimynd fyrir alla fjölskylduna. 11.30 Naggarnir Vönduð og frá- bærlega vel gerð leikbrúðumynd fyrir alla fjölskylduna. 12.00 Popp og kók Endurtekinn þáttur frá þvl I gær. 12.30 Frið og fönguleg Þessi sér- kennilegi nútlmadans er eftir hinn kunna danshöfund Maguy Marin. 13.25 Italski boltinn Mörk vikunnar Endurtekinn þáttur frá sl. mánu- degi. 13.45 Toyota Cup Endurtekinn þáttur frá sl. mánudegi. 15.20 NBA-körfuboltinn Fylgst með leikjum i bandarlsku úrvalds- deildinni. 16.25 Stuttmynd 17.00 Listamannaskálinn I þetta skiptiö er viðfangsefni þáttarins amanleikarinn og háðfuglinn teve Martin. Hann sló fyrst í gegn sem skemmtikraftur þegar hann flutti Bandarikjamönnum rokkóperuna King Tut, um sam- nefndan fomkonung sem fædd- ist I Arizona og flutti slöan til Ba- bylóníu. 18.00 60 mlnútur. 18.50 Skjaldbökurnar. 19.19 19.19 20.05 Klassaplurr. 20.40 Islandsmeistarakeppnin í samkvæmisdansi Sýnt frá úrslit- um keppninnar. 21.45 Á refllstigum Gamanmynd um gleðikonu og flakkara sem ákveða að fylgjast að þvert yfir Bandaríkin til að komast til Kali- forniu. Á leiðinni kynnast þau ýmsum skrautlegum furðufugl- um og verða ferðalok önnur en áætlaö var. (1981) 23.15 Arsenio Hall Frábær spjall- þáttur þar sem gamanleikarinn Arsenio Hall fer á kostum sem sþjallþáttarstjómandi. 00.05 Þegar jólin komu Tveir ósamlyndT bræður eiga að flytja ógrynni af gjöfum til afskekkts staðar í Alaska. (1987) Lokasýn- ing. 01.25 Dagskráriok Stöðvar 2 NYTT HELGARBLAÐ 1 8 FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER I99l

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.