Þjóðviljinn - 21.12.1991, Blaðsíða 3
JÓIAHLAÐ WÓfíVffMNS
Tvær litlar jólasögur
Sögurnar um jólasveininn sem villtist og strákinn sem gleymdi aö setja
skóinn út í glugga.
Höfundar þessara jólasagna eru sjö ára tvíburabræður, þeir Garpur og
Jökull Elísabetarsynir.
Jólasveinninn villist
Einu sinni var strákur. Strákurinn var
sendur út í búð.
En eitt sinn fór hann að sofa
klukkan ellefu og hann fékk ekki neitt í
skóinn.
Hann varð leiður og sagði við
mömmu sína:
- Ég fékk ekki neitt í skóinn.
- Ja, þú fórst of seint að sofa.
- Já, en gerðu eitthvað.
- Ég get ekkert gert í því.
- Jú, mamma.
- Eins og hvað?
- Bara eitthvað.
- Nei. ( nótt kemur Kertasníkir. Ef
þú vilt fá eitthvað í skóinn verður þú að
fara í rúmið strax klukkan níu í kvöld.
Strákurinn fór að sofa snemma en
hann fékk ekki neitt í skóinn.
Jólasveinninn hafði villst því hann fór
öfugu megin niður fjailið. Síðan sá
strákurinn jólasveininn um hábjartan
dag. Þá hljóp hann til jólasveinsins.
Hann spurði útafhverju hann kom ekki
í bæinn.
- Ég villtist sagði jólasveinninn.
- Geta jólasveinar villst? spurði
strákurinn.
- Já, stundum. Ég ætla að gefa þér
stóran pakka í staðinn.
Endalok.
Garpur.
Jólasaga
að voru einu sinni þrettán
jólasveinar. Það voru tólf búnir að
fara í bæinn. Hann Kertasníkir átti eftir
að fara í bæinn. Hann fór núna í
bæinn og fór í hús. Það var enginn
skór úti í glugga í einu húsinu. Hann
setti miða: Þú verður að setja skóinn
út í gluggann. Strákurinn í húsinu las
miðann og setti skóinn út í gluggann
og síðan fór strákurinn að sofa. Þegar
hann vaknaði þá gáði hann í skóinn.
Þar var lifandi hvolpur.
Endalok.
Jökull
Kyrrð
Eg vakna inn i kyrrð
morgunsins
heyri lágvœrt hvísl
lognöldunnar
úti fyrirtfaldinu
og suð flugunnar i sólskininu
og kyrrðin verður áfram
hjá mér
Júlí rauð sól
Brýtur á útskerjum
svalt er hafkulið
eftir heitan dag
I grœnt Jjarðarlognið
falla náttskúrir
utar hnigur júli rauð sól
i bláar unnir
Kvöldvísa
A lágþrepum dagsins
sefur nóttin á mjúkum þófum
eins og sœblátt Ijóð
liður kvöldlognið inn í
hvita þögn
íngólfur Sveinsson
^ 4 V*. ^
V 0 <£«. ^
Velkomin í verslunina Jötu, við Laugaveginn i
Hálft hundrað bílastæða norðan búðarinnar.
Það tilheyrir jólunum að fara í Jötuna.
Opið virka daga frá 9 - 22.00
Laugardaga frá 10 - 22.00
Sunnudaga frá 18-22.00
Sendum í póstkröfu. "
l/erslunin
Hátúni 2 © 25155
inusagnahófúnd
TO. N*» V.vV TIW »>«* _
etsölubókin
FYRSTAFLOKKS
SPENNUBÓK
Nýr spennusagnahöfundur Martin Cruz Smith kveður sér hljóðs á íslandi.
Einstök frásagnargáfa. Óvenjulegt sögusvið. Dularfullt dauðsfall á sovésku
verksmiðjuskipi. Rannsókn veldur árekstrum milli kerfisins og einstaklinganna.
10% af andvirði bókarinnar renna í þyrlukaupasjóð.
PÓLSTJARNAN - Pitt framlag til Þyrlukaupa.
PÓLSTJARNAN - 6 mánuði á metsölulista í Bandaríkjunum.
Bókaútgáfan
ALDAMÓT
Ssíi-
Síða 3
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 21. desember 1991