Þjóðviljinn - 21.12.1991, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 21.12.1991, Blaðsíða 15
- „Þetta var klókur skratti i suður og þegar hann bað um spaðagosann úr blindum leyndi eimyrjan í loftinu sér ekki.“ Hjartalækninum var ekki rótt. Oráð? eða hélt öldungurinn að hann væri prestur? - „Ég fór upp með ás og skil- aði trompi til baka. Félagi minn kom út með tromp, sérðu. Vani.“ Snorri þagnaði um leið og sír- enuvælið dó út, ískrið í hemlun- um var lokatónninn í þessum flutningskonsert. Sjúkrabifreiðin hvarf inn í ið- ur Borgarspítalans. Hjartaslæknirinn varpaði önd- inni léttar. Hann kunni ekkert í Bridge. Það korraði í Snorra á börunum. Læknirinn tók við- bragð. —“Spilið var samt auð- velt... þú tókst kannski eftir því?“ Sjúkrakastalinn mikli gleypti ógnvald bridgespilara, ... en með afleitum meltingartruflunum; Heimsmeistaramótið i Yokohoma var vel á vegi þótt Bermudabros- ið sjálft væri enn bara í munnvik- unum. (Meðan verið er að innrita Snorra Sturluson skulum við skoða spilið sem botninn datt úr. ♦ G943 ♦ KD75 ♦ 106 ♦ AKD ♦ A865 ♦ 43 ♦AD9 ♦G983 ♦ K ♦ A862 ♦K542 ♦10742 Sagnir voru einfaldar 1-Gr (15-17) í norður, 2-laufí suður, og 2- hjörtu hækkuð í fjögur. Vestur spilaði út trompi, kóngur úr borði og spaðagosi. Snorri óð upp með ás og spilaði meira trompi, hleypt á drottningu. Tí- gull úr blindum og aftur stakk Snorri upp réttu spili, drottningu! Sagnhafi drap á kóng. Fór inná blindan á lauf og spilaði meiri tígli. Snorri lét níuna duga. Vestur velti vöngum en komst ekki hjá því að rata á framhaldið, yfirtók með gosa og spilaði síð- asta trompinu. Þegar laufið féll ekki var ekki nema níu slagi að hafa uppúr krafsinu. Eftirá að hyggja sé ég ekki betur en vestur hafi spilað út frá rangri hendi og staðfestir það þráhyggjukenningu Snorra mæta vel. En þar sem ég sé ekki vinn- ingsleiðina, svona í fljótu góðu bragði að sjálfsögðu, nenni ég ekki að leita til hennar.) Kerfissvindl - „Það var uppselt á hjarta- deildinni." Sagði Snorri mér þegar ég furðaði mig á að honum hafði verið holað niður á skurðlæknis- deild. Hið rétta var að Snorri hafði unnið orustu við deildarhjúkrun- arfræðing, fyrstu nóttina. Þannig: - „Þetta er G-J-Ö-R-sam-l-e- gAAA ...óþolandiástand! - Þau stóðu sjö þétt saman kringum rúm Snorra. Svala deild- arhjúkrunarfræðingur hafi orðið. Klukkan var tvö að nóttu, morgunn í Youkohama. - „Við höfum reglur hér á spítalanum sem ætlast er til að farið sé eftir,“ lauk hún máli sínu. - „Helgi! HELGI!! Hvað er að gerast?" Röddin var Bjama Fel., þótt hún hljómaði kæfð undan sæng Snorra. 5. lotu gegn Svíunum var að ljúka og Bjarni var með beina lýsingu á rás 2. „Strákarnir okk- ar“ voru vel yfir. - „Við erum að mala andskot- ♦ D1072 ♦ G109 ♦G873 ♦ 65 JÓ1ABLA3Ð WÓPVn JAWS stingur sér niður ans baunana!“ Sjúklingur í næsta rúmi reyndi að rísa upp við dogg en valt í ákefðinni úr rúminu ofan á gólf. Það hnussaði í Snorra. - „Getið þið ekki hlustað annars staðar svo einhver lifl til morg- uns?“ - ...“Fóru þeir i sex..? ... og unnu. AUÐVITAÐ! Eru það ekki 13 impar til okkar?“ Bjami aftur. - „Flott," hraut út úr ungum kandidat í þyrpingunni, en hann náði ekki að beygja sig nógu skjótt, enda höfðinu hærri en aðr- ir, undan eyðandi augnaráði Svölu. En fylkingin lét undan síga, enda hafa engar reglur verið sniðnar sérstaklega til að halda aftur af Snorra. í versta falli beygði hann sig fyrir náttúmlög- málum og sér betri spilurum. En þeir fundust vart. Og ef dauðinn var á hans dyrabjöllu... „var hann ekki heima í augna- blikinu." „Strákarnir“ virtust óstöðv- andi og á meðan ætlaði Snorri ekki að sleppa takinu. Hvað sem það kostaði! Snorri var i skyndi fluttur á aðra deild. Með mestu leynd, og fyrir áverkan yfirlæknis sem var forhertur bridgeari, vom þrír aðr- ir sjúklingar í hasti fluttir milli deilda. (Reyndar vom þeir fjórir, sagði Snorri mér síðan í trúnaði, því einn þoldi ekki flutninginn.) - „Ég var búinn að eyða drjúgum tíma á hann í kerfís- kjaftæði," kvartaði Snorri. Með einfaidri brellu hafði Snorra tekist að stórbæta aðbún- að bridgesjúklinganna á stofunni. Hann skoraði yfirlækninn og Svölu (sem orð fór af sem ,,heimaspilara“). - „Hún er of hrokafull til að keppa. Þolir ekki að tapa spili,“ fullyrti Snorri. Svala átti að baki tvö rústuð hjónabönd og þrjá beygða spila- félaga (tvo fyrrverandi) á hólm. Þau bitu á agnið. ♦ 1087 ♦ AK104 ♦A94 ♦A62 Deildarhjúkrunarfræðingurinn stóðst ekki brýninguna. Þau urðu ásátt um skilmálana og afleiðingamar gat nú að líta um alla stofuna. (Yfirlæknirinn kom út með tromp. Snorri hleypti heim og spiiaði tíguldrottningu. Atti slag- inn. Tígulgosi, lagt á og drepið á ás. Laufás hirtur og bæði fylgdu lit með lægsta spili. Þá tigulnia og laufi kastað heima. Trompið hirt af vestri, lauftvistur trompað- ur. Tromp á ásinn og loks var laufsexunni spilað. Svala fylgdi lit með áttunni, en yfirlæknirinn fann ekkert lægra spil en tíuna, sem átti slaginn því Snorri hafði gefið af sér spaða. Læknirinn gat nú valið hvomm láglitnum hann spilaði í þefalda eyðu; trompað yrði í blindum og síðari spaðinn hyrfi að heiman.) Það var af þessum sökum að á stofunni voru nú nokkur sjón- varpstæki af stærstu gerð, tvö myndbandstæki og póstfax, bein- tengt við Bridgesambandið. Allt var klárt fyrir úrslitaleik- inn við Pólverja. Deilan á skurðstofunni Á 3. degi mátti heita að óreið- an sem fylgdi legu Snorra væri í sæmilega fðstum skorðum. Það bar þó við að sjúklingar sem bún- ir vom undir aðgerð hyrfu, en það vandist. Þeir vom framseldir jafnharðan af stofu 5. Það var verra með læknana. Þeir vom vansvefta. F.n eins og sönnum bridgemm sæmir ýttu þeir úr hugskotinu misheppnuð- um tilfellum og tóku til við ný. Úrslitaleikur íslands og Pól- lands var taugaslitandi. I miðri kviðarhols skurðaðgerð hitnaði í kolunum. Ástæðan var þetta spil: Af rúmstokk Snorra. Svæfingar- læknirinn hafði verið i vöminni ásamt Snorra. Svala hafði orðið að játa sig sigraða í 6-gröndum, þrátt fyrir hetjulega baráttu. En það var athugasemd Snorra eftir spilið... ♦AK952 ♦AKI03 ♦4 ♦K84 4 D876 ♦ G43 ♦ DG86 ♦ 954 ♦G10 ♦8765 ♦G7 ♦ D62 ♦ 10 ♦ 72 ♦AK932 ♦A10953 Svala fékk út tiguldrottningu gegn 6-gröndum og gaf eftir slag- inn! - „Ég var alveg sofandi, hélt bara áfram með litinn," sagði svæf- ingarsérfræðingurinn afsakandi, „en ég bjargaði mér fyrir hom síð- ar. Karlinn var ánægður með mig. Þegar hún fór í hjartað stakk ég upp drottningu. Bingó!“ Flestir vom með á nótunum, enda var mikið búið að ræða þetta spil á spítalanum. Vestur hafði eyðilagt samganginn á hárréttu augnabliki. - „Svala ar of flott á því.“ Unga skurðstofuhjúkkan var ákveðin. Hendur stöðvuðust. (Ekki gátu ÞEIR vitað að hún þekkti Snorra vel, enda var hún ekki félagi í 5- klúbbnum.) Karlrembur! Vafinn þykknaði í loftinu. - „Spaði út er betri byrjun fyrir vömina.“ (Snorri hafði fullyrt að þeir myndu gleypa beituna. Svæf- ingalæknirinn var umdeildur.) - „Jæja?“ Svæfingasérfræðing- urinn var þrjóskur að eðlisfari. „Útspilið skiptir annars litlu máli, nema það sé lauf,“ laug hún bláköld. „Með tígli út svínum við strax í hjarta og dúkkum lauf til vesturs. Það er nægur samgangur við blindan." (Blekking 2: Hjarta til baka frá vestri eyðilagði tímasetninguna.) - „Nú, nú,“ úrskurðaði yfir- læknirinn. „Út kemur spaði og svo?“ - „Vestur fær á laufgosa í öðr- um slag. Spilar meiri spaða, sama hvað hann gerir.“ (Satt; hjúkmnar- fræðingurinn ungi var kominn yfir þröskuldinn.) „Drepið. Tígull á ás og hjarta á tíuna Síðan snúum við okkur að laufinu. Þegar við spilum því siðasta í 5- spila lokastöðu á vestur hjarta DG8 og tígull DG. Hann er 1 kastþröng. Tígulnían heima er lykilspilið eins og Svala raunar sá.“ Bakstur á bmnasár. Þær störf- uðu á sömu deild. - „Stórkostlegt! Tvöföld kast- þröng!“ Skipun frá yfirskurðlækni. Einfold, leiðrétti Helgi aðstoð- arlæknir, í huga. um, - „Ékki satt?“ Augu skurð- læknisins hvildu á sjúklingnum. - „En hvað meinti karland.... þá með því að 7-lauf væm miklu léttara spil?“ Kliður á stofúnni. Aðgerðin hélt áfram. Tókst eftir atvikum. En Spilið yrði tekið til 2. um- ræðu. Undir botnlangaskurði. Og það er ekki mitt að rekja hvað fór úrskeiðis. - „Einkennilegt,“ varð mér að orði. Það var komið undir morgun og sigurinn á Pólverjum var í höfn, eftir ólýsanlega lokalotu. Mann- mergð á stofunni. Algjört írafár. - „Þama moka þeir upp stigum með „Qöldjöflinum" og á sama tíma...“ „Á þessi ári ekki að snúast aft- ur á bak?“ Snorri sat upp í rúminu og beindi fjarstýringu útí bláinn. „Ég ætlaði að kíkja aðeins aftur á... allt klabbið." Ég kveikti á fjarstýringunni, en það vom of margir í veginum. „...eins og ég var að segja, svo ger- ir þú allt...“ - „SÁSTU sagnimar?" Enginn hafði frætt hann um passkerfið, svo hann kenndi kann- ski blekkisögnum um öll ósköpin sem fyrir augu höfðu borið. En það gat beðið. Hitt var heimsblaðamatur. - „DJÖFLABRAGÐIÐ." Ég er ekkert sérstaklega þolinmóður. - „Ha?“ - „Það em allir að segja mér frá þessum 7-laufum sem þú spil- aðir og vannst og...?“ Ég einblíndi á Snorra. - Hvað þá?“ Snorri dæsti. - „Ááá. Þ-A-ÐÐÐ. Varla frá- sagnarvert? Ha?“ Augngotur. Þögn. Smáglott. „Er það meinið... og þú kall- aðir það, ... djöfuls hvað?“ - H.L. - Ó.L. 4 - ♦ AKDG6432 ♦ 97 ♦- ♦ K76532 ♦108 ♦ KD1097 ♦ 843 4 95 ♦ DG86532 ♦DG ♦ G5 Snorri hafði raðað upp þess- um höndum. - „Skoðið þau vel. Félagi minn í fyrrakvöld, áður en ég var narraður hingað, gaf, og vakti á grandi (15-17). Við erum á gegn utan. Þú,“ Snorri otaði fingri að Svölu, „stekkur í 4-spaða.“ - „Vitaskuld". - „Ég segi 5-hjörtu...“ - „Góð fóm á öfugum hætt- um,“ greip yfirlæknirinn fram í. - „...þvæla,... En félagi minn hækkar i 6-hjörtu.“ Snorri dæsti. Áhorfendur, sem voru all- margir nú, skelltu uppúr. - „Sagnmiðinn hafði límst undir kaffibolla hans, hann sá bara það sem við blasti og lyfti vitanlega." Hláturinn hækkaði. - „Ekki að undra að þú fengir hjartaáfall." Yfirlæknirinn var ekki annálaður fyrir viðkvæmni. - „Og boðskapurinn?“ spurði Svala. - „Boðskapur?" Snorri hneggjaði. „Þetta var bara spil sem ég spilaði. Vann. Nú ætla ég að veðja að sagan endurtekur sig.“ Snorri glotti. - „Hvað er lagt undir?“ JOLIN eru tími hvíldar og friðar. í dlefni þeirra sendir Alþýðusamband íslands launafólki og samherjum þess óskir um gleðileg jól og farsæld á komandi ári.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.