Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1995, Blaðsíða 4
24
MÁNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1995
MÁNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1995
25
fþróttir
Ólafur Stelánsson skoraðl sjö mörk fyrír Valsmenn í Portúgal en þau
dugðu ekki og íslandsmeistararnir eru úr leik.
Islandsmeistarar Vals féllu út úr
Evrópukeppni meistaraliða í hand-
knattleik á laugardaginn þegar þeir
töpuðu fyrir ABC Braga i Portúgal,
29-25, eftir aö Braga hafði haft yílr-
höndinaí háifleik, 14-11. Fyrrí leik-
inn unnu Valsmenn með tveggja
marka mun, 25-23, og Braga vann
því samanlagt, 52-50.
„Það má kannski segja að við
höfum ekki náð aö halda haus síð-
ustu mínútumar í leiknum og lét-
um hávaöann í áhorfendum æsa
okkur of mikið upp. Munurinn í
síðari hálfleik var þetta 2-3 mörk
allan tímann og þetta stóð mjög
knappt,“ sagði Jón Kristjánsson,
þjálfari og leikmaður Vais, við DV
eftir leikinn.
Mikill hiti og
gríðarlegur hávaði
„Það var mikill hiti i höllinni og
hávaöinn gríðarlegur og mér
fannst þetta æsa okkur of mikið í
lok leiksins. Þaö var kominn
skjálfti i leikmenn Braga. Þegar 8
mínútur voru eftir höíðu þeir tvö
mörk yflr en voru einum leikmanni
færri og við áttum öll tök á að koma
þessu niður í eitt mark en þvi mið-
ur var óðagotið of mikiö hjá okkur.
Við erum ekki vanir að fá svona
mörg mörk á okkur og það gefur
augaleiö að varnarleikurinn var
ekki góöur. Auðvitaö getum við
nagað okkur í handarbökin frá því
í fyrri leiknum heima og með betri
leik þar hefðum við getaö farið í
síðari leikinn með fleiri mörk í
veganesti. En svona er þetta og við
verðum bara að taka þessu," sagði
Jón enn fremur.
• Mörk Vals: Ölafur Stefánsson
7, Dagur Sigúrðsson 7/1, Davíð Ól-
afsson 3, Jón Kristjánsson 3, Sigfús
Sígurðsson 3, Valggrð Thoroddsen
2.
Varin skot: Guðmundur Hratn-
kelsson 10.
Stórskyttan Carlos Resende var
langatkvæðamestur hjá Braga með
11 mörk, línumaðurinn Carlos Ga-
lambas skoraði 5 og Rússinnn
Vladimir Bolotskih 4.
-GH
Valsmenn úr leik í Evrópukeppni meistaraliða:
„Við héldum
ekki haus“
- sagði Jón Kristjánsson eftir 29-25 tap í Portúgal
Framstúlkur úr leik:
Töpuðu stórt
fyrir norsku
bikarmeisturunum
Bikarmeistarar Fram í kvenna-
flokki féllu úr leik í Evrópukeppni
bikarhafa í handknattleik í gær eins
og við var að búast enda andstæðing-
urinn gríðarlega sterkur. Framstúlk-
ur léku báða leikina gegn norska lið-
inu Byásen í Þrándheimi og urðu að
sætta sig við stórt tap í báðum leikj-
unum enda norskur kvennahand-
bolti mjög hátt skrifaöur í heiminum.
í fyrri leiknum, sem háður var á
föstudagskvöldið, sigruðu norsku
stúlkumar með 16 marka mun,
30-14, eftir að staðan í hálfleik hafði
verið 12-5. Fram hélt í við Byásen
fyrstu mínúturnar en í stöðunni 5-5
var Guðríður Guðjónsdóttir tekin úr
umferð og við það hrundi leikur
Framliðsins.
Guðríður var markahæst ásamt
Berglindi Ómarsdóttur en þær skor-
uðu báðar 5 mörk. Kolbrún Jóhanns-
dóttir átti góðan leik í markinu og
varði 16 skot.
í gærkvöld áttust svo liðin við aftur
og sigraði Byásen með 9 marka mun,
27-18, og vann því samanlagt, 57-32.
Aftuvelding - Lubin
(16-8) 30-18
3-3, 6-3, 10-3, 12-4, 14-5, (16-8),
19-9, 22-11, 26-13, 27-17, 30-18.
Mörk Aftureldingar: Bjarki Sig-
urðsson 8/2, Páll Þórólfsson 8, Þor-
kell Guðbrandsson 5, Róbert Sig-
hvatsson 5, Gunnar Andrésson 2,
Ingimundur Heigason 1, Jóhann
Samúelsson 1, Davíð B. Sigurðsson
ekkert mark.
Varin skot: Bergsveinn Berg-
sveinsson 17/2.
Mörk Lubiny Murawski 5,
Demczvk 4, Steczek 3, Skoyezdvzy
3, Tujka 2, Oerdonovski 1.
Varin skot: Vesniak 7.
Brottvísanir: Afturelding 6 mín.,
Lubin 8.
Dómarar: Stolk og Scholtens frá
Hollandi, ágætir.
Áhorfendur: 500.
Maður leiksins: Bergsveinn
Bergsveinson, Aftureldingu.
Róbert Sighvatsson átti góðan leik i vörn og sókn með Aftureldingu í gær og hér er eitt af fimm mörkum hans í fæðingu að Varmá í gærkvöld.
DV-mynd Brynjar Gauti
Borgakeppni Evrópu í handknattleik:
Áframhald er
formsatriði
hjá Aftureldingu
- eftir stórsigur á slöku pólsku liði að Varmá í gær
Sigurður Valur Sveinsson skriíar:
Það voru aðeins fyrstu mínúturnar
sem voru spennandi í leik Afturelding-
ar og pólska liðsins Zaglebie Lubin í
Borgakeppni Evrópu í handknattleik
en fyrri leikurinn fór fram að Varmá í
gær. Þaö verður að segja eins og er að
leikur pólska liðsins olli ijölmörgum
áhorfendum miklum vonbrigöum en
fyrir fram var reiknað meö nokkuö
jöfnum leik.
Leikurinn byrjaði frekar rólega. Gest-
irnir héldu aðeins i við heimaliðið
fyrstu 10 mínútumar en eftir það var
aldrei spurning hverjir væru miklu
betri og það á öllum sviöum. Heima-
menn byrjuöu í 6-0 vörn og áttu Pól-
verjarnir í hinu mesta basli með að
koma skoti á markiö. Enda kannski
ekki nema von því fátt var um hávaxn-
ar stórskyttur í liðinu. Eftir átta mín-
útna leik var staöan 3-3 og allt benti til
að fram undan væri spennandi leikur
en annað kom á daginn.
„Kjúklingarnir“
skiptu um gír
„Kjúklingarnir" skiptu um gír og á
næstu 15 mínútum breyttu þeir stöð-
unni í 13-4. Á þessum tíma voru heima-
menn að spila góöan bolta þar sem bolt-
inn gekk hratt á milli manna og vörn
gestanna sá aldrei til $ólar. En það var
furðulegt að sjá hvað Pólveriarnir spil-
uðu stuttar sóknir. Yfirleitt var búiö að
skjóta eða reyna vonlausar sendingar
eftir 10-15 sekúndur. Og þökkuðu
heimamenn fyrir sig með fjölda hraða-
upphlaupa.
En þau hefðu oft á tíðum mátt ganga
betur upp. Og verður Einar þjálfari að
útskýra betur fyrir mannskapnum að
aðeins er hægt að skora eitt mark í
hverri sókn. Staðan í hálfleik var 16-8,
heimamönnum í vil.
Pólverjanir byriuðu á að taka Bjarka
Sigurðsson og Gunnar Andrésson úr
umferð í seinni hálfleik. En það hafði
lítil áhrif og Afturelding jók forustuna
jafnt og þétt. Um miðjan seinni hálfleik
var munurinn orðinn 13 mörk, 26-13.
Þá slökuðu heimamenn á klónni og síö-
ustu 10 mínúturnar leystust upp í hálf-
gerða vitleysu. En lokatölur urðu 30-18.
Þetta pólska lið er frekar slakt, þrátt
fyrir að vera með tvo landsliösmenn
innanborðs. Og það verður aðeins
formsatriði fyrir Mosfellinga að komast
í næstu umferð. Bestu menn kvöldsins
voru Bergsveinn Bergsveinsson í mark-
inu, Bjarki Sigurðsson, Róbert Sig-
hvatsson, Páll Þórólfsson og Þorkell
Guöbrandsson.
Hjá Pólverjum voru allir jafn slaldr.
Þrátt fyrir að andstæðingamir heíði
ekki verið sterkir í kvöld spiluðu
heimamenn ekki sinn besta bolta. Mik-
ið var um klaufa mistök og þá sérstak-
lega í hraðaupphlaupunum. Þeir geta
gert miklu betur og það verður gaman
að fylgjast með leik þeirra að Varmá í
kvöld kl. 20.00.
íþróttir
Evrópukeppni bikarhafa í handknattleik:
KA var komið
ígóðastöðu
í Kosice
- en missti Slóvakana fram úr sér á ný og er úr leik
Bikarmeistarar KA eru úr leik í
Evrópukeppni bikarhafa í hand-
knattleik eftir að hafa beðið ósigur
fyrir Kosice, 31-24, í Slóvakíu í gær.
KA vann fyrri leikinn á Akureyri,
33-28, svo slóvakíska liöið komst í 3.
umferðina með samanlagða marka-
tölu, 59-57.
Þaö má segja aö Kosice hafi gert
út um leikinn í fyrri hálfleik en í leik-
hléi var munurinn 6 mörk, 17-11.
Þegar 10 mínútur voru til leiksloka
náði KA að minnka muninn í 3 mörk
en missti þá mann út af sem Kosice
nýtti vel og lokamínúturnai; voru
þeirra.
Lélegasti leikurinn
hjá KA í langan tíma
Að sögn tveggja stjórnarmanna KA,
sem DV náöi tal af eftir leikinn, var
KA-liöið langt frá sínu besta og lék
einn lélegasta leik sinn í langan tíma.
Liðið virkaði baráttulaust og menn
virtust ekki vera aö leggja sig fram.
Það var einkum varnarleikurinn
sem var slakur af hálfu KA-manna,
markvarslan lítil og eins fóru leik-
menn liösins illa með dauðafærin og
misnotuöu þrjú vítaköst.
Julian Duranona var atkvæðamestur hjá KA í Kosice og skoraði helming
marka liðsins, eða tólf.
Góð dómgæsla
KA-menn vildu ekki kenna póísku
dómurunum um hvernig fór eins og
oft tíðkast í Evrópukeppnmni. Þeir
hefðu yfirhöfuð dæmt leikinn vel og
Slóvakarnir hefðu verið dyggilega
studdir af um 800 áhorfendum.
•Kúbumaðurinn Julian Duranona
var langatkvæðamestur hjá KA-
mönnum. Duranona skoraði 12/2,
Patrekur Jóhannesson 5, Leó Örn
Þorleifsson 3, Björgin Björgvinsson 3
og Jóhann G. Jóhannsson. '
Markverðir Guðmundur A. Jóns-
son og Björn Björnsson vöröu sam-
tals 10 skot.
Stórskyttan Peter Jano var KA-
mönnurn erfiður eins og í fyrri leikn-
um og skoraöi 9 mörk eins og á Akur-
eyri. -GH
Einar Þorvaröarson:
Hefðum getað unnið
með stærri mun
„Þetta var stærri sigur en maður
reiknaði með. Okkar styrkleiki fólst
í sterkum varnarleik og mjög góðri
markvörslu. Þá náöum við mörgum
hraðaupphlaupum á þá. Við heföum
samt alveg geta unnið þennan leik
með meiri mun. Við gerðum svolítið
af mistökum í seinni hluta síöari
hálfleiks. Ég held að við getum alveg
verið sáttir og við náðum andstæð-
ingunum niður á mjög lágt plan,"
sagöi Einar Þorvarðarson, þjálfari
Aftureldingar, viö DV eftir leikinn.
Þaö getur allt gerst íþróttum og ég
ætla ekki að fagna sigri fyrr en hann
er í höfn. Þaö býr miklu meira í þessu
pólska liði og það hlýtur að vera að
það geri ákveðnar ráðstafanir í siðari
leiknum. Heimavöllurinn í Evrópu-
keppninni er mjög dýrmætur og það
hefði örugglega allt getað gerst ef síö-
ari leikurinn hefði verið leikinn ytra.
Úr því að Valur, KA og Fram féllu
úr leik kemur þaö í okkar hlut að
verja heiður íslands í Evrópukeppn-
inni og það ætlum við svo sannarlega
að gera,“ sagði Einar.
Geirog
félagar
úr leik
Geir
Svcinsson
og sam-
herjarlians
í franska
liöinu
Montpelli-
er eru úr
leik í Evr-
ópukeppni
meistaraliða eftir aö hafa tapað á
heimavelli fyrir svissneska liöinu
Wintertliur, 23-25, en liðið vann
einnig sigur á heimavelli sínum
i Sviss.
„Það ríkir mikíl sorg hér í bæn-
um eftir þessa niðurstöðu. Við
vorum undir í hálíleik, 8-11, en
náðum að komast í 13-12 í upp-
hafi síðari hálfleiks. Eftir þaö var
eins og allur vindur væri úr okk-
ur og þeir sigu hægt og bítandi
iram úr. Markvörðurþeirra gerði
gæfumuninn en hann varði 25
skot á meðan okkar markverðir
vörðu varla skot,“ sagði Geir við
DV í gær en haxm skoraði 2 mörk
íyrir Montpellier.
-GH
Jason skoraði níu
en Brixen tapaði
Eyjólfur Harðaison, DV, Svíþjóð:
Sænska liðiö Skövde sló út italska liðið Brixen, lið Jasonar Ólafssonar, í
Borgarkeppni Evrópu í handknattleik í gær. Skövde vann síðari leikinn á
Ítalíu í gær, 16-18, og haföi áður unnið fyrri leikinn í Svíþjóö, 22-15.
Jason var langmarkahæstur hjá Brixen með 9 mörk og hann skoraði að
jafnaði 9 mörk í fjórum Evrópuleikjum liðsins.