Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1995, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1995
27
DV
Spánn
Real Madrid - Atl. Madrid.1-0
Barcelona - Albacete.......3-0
Betis - R. Sociedad........3-1
Zaragoza - Sevilla.........0-1
Compostela - Salamanca.....0-0
Valencia -Tenerife.........2-2
Oviedo - Racing.......... 2-1
Vallecano - Sp.Gijon.......2-0
Merida - Espanol...........0-1
Valladolíd - Celta.........1-1
Atl. Bilbao - Coruna.......1-0
Barcelona....l3 9 3 1 33-10 30
Atl. Madrid .13 9 3 1 21-4 30
Espanol....13 9 3 1 20-6 30
Compostela.13 7 1 5 18-16 23
R.Madrid....l3 6-3 4 23-17 21
Raul Gonzales skoraöi mark
meistaranna í Real Madrid á 9.
mínútu og batt þar með enda á
sigurgöngu Atletico Madrid. Ro-
bert Prosinecki, sem nýlega var
keyptur til Barcelona, skoraði
eitt af mörkum Börsunga en hin
tvö skoruðu rúmensku landsliðs-
mennirnir, Hagi og Popescu.
Sviss Grasshopper - Lausanne.. Xamax - St.Gallen Basel - Aarau l-l 3-0 2-1
Luzern - Yorn Böy s 3-1
Servette - Zúrich 0-0
Sion - Lugano 5-2
Grasshopper
..........19 12 4 3 34-16 40
Xamax.....19 11 3 5 35-20 36
Luzern ...19 10 6 3 2 32-21 36
Sion......19 11 3 5 33-25 36
Belgía
Standard - Harelbake.......2-1
Charleroi - Searing........4-2
Lierse - Anderlecht........3-2
ClubBrúggel6 10 4 2 36-13 34
Lierse....16 9 5 2 29-17 32
Anderlecht.,16 9 3 4 35-19 30
Molenbeek ..16 7 6 3 18-14 27
Sonur Passarella lést
Sebastian Passarella, eldri son-
ur argentínska landsliðsþjálfar-
ans í knattspyrnu, Daniels Pass-
aralle, lést í umferðaslysi í Buen-
os Aires á föstudagskvöldið.
Hann var 18 ára gamall.
Þær dönsku unnu
Danska kvennalandsliðið í
knattspymu vann Spán, 0-1, í
Cordoba i gær þegar þjóðirnar
mættust þar í Evrópukeppninni.
Viborgáfram
Dönsku meistararnir í hand-
knattleik kvenna, Viborg, kom-
ust í gær í 8-liöa úrslit Evrópu-
keppmnnar með þvi að sigra
Ljubljana frá Slóveníu, 22-15. Sló-
venska liðið hafði unnið fyrri
leikinn með sama mun en Viborg
komst áfram á fleiri mörkum á
útivelli.
Drammen kom á óvart
Norska liðið Drammen sló
franska liðið Paris Asnieres, út
úr borgakeppni Evrópu í Noregi
í gær, 21-18. Liðin höfðu áður
gert jafntefli í París svo Drammen
vann samanlagt 43-40. Þessi úr-
slit komu nokkuð á óvart enda
var Parísarliðiö eitt af þeim liðum
sem var spáð velgengi í keppn-
inni.
Royle seldi Barlow
Joe Royle, stjóri Everton, gekk
um helgina frá sölu á Stewart
Barlow til Oldham fyrir 45 millj-
ónir króna. Royle var í Rússlandi
á dögunum til að fylgjast með
rússneska landsliðsmanninum
Viktor Onopko sem er lykilmaö-
urinn í liði Sparta. Royle sagði
við blaðamenn við heimkomuna
að hann heföi mjög hrifist af leik
Rússans.
íþróttir
ítalska knattspyman:
17 ára strákur stal senunni
- í toppslag Parma og AC Milan sem gerðu markalaust jafntefli
Toppliðin AC Milan og Parma
gerðu stórmeistarajafntefli, 0-0, í
uppgjöri toppliðanna í ítölsku 1.
deildinni í knattspyrnu í gær. Bæði
lið hugsuðu fyrst og fremst um að
verjast og tóku litla áhættu. 17 ára
strákur, Gianluigi Buffon, vara-
markvörður Parma, sem var að leika
fyrsta deildarleik sinn, skyggði á
stórstjörnur á borð við Roberto
Baggio, George Weah og Gianfranco
Zola en strákurinn sýndi á köflum
stórglæsilega markvörslu og stal
senunni.
Fyrsti sigur Juventus
í tæpa tvo mánuði
Alessandro Del Piero færði meistur-
um Juventus fyrsta sigur sinn í ít-
ölsku 1. deildinni í tvo mánuði þegar
hann skoraði sigurmarkið með
skalla í fyrri hálfleik. Með sigrinum
komst Juventus upp í 5. sæti og er
liðið fjórum stigum á eftir toppliðun-
um.
Hollendingurinn Aron Winter og
Pierluigi Casiraghi skoruðu mörk
Lazio gegn Cremonese og Lazio er í
toppslagnum aðeins tveimur stigum
á eftir efstu liðunum.
Inter á uppleið
Inter Milan færist hægt og sígandi
upp stigatöfluna og liðið vann góðan
sigur á Udinese þar sem Marco
Branca, sem var að leika sinn fyrsta
leik með Inter, og Benito Carbone
skoruðu mörkin.
Hvorki gengur né rekur hjá
Sampdoria og liðið er komið í botn-
baráttuna eftir tap gegn Atalanta,
3-2. Herrera, sjálfsmark frá Kerebeu
og Tovalieri gerðu mörk Atalanta en
Maniero og Seedorf skoruðu fyrir
Sampdoria.
Úrslit leikja á Ítalíu: Parma-AC Milan... 0-0 Fiorentina.... 10 6 0 4 16-12 18
Atlanta-Sampdoria 3-2 Piacenza-Roma 1-0 Juventus 10 5 2 3 15-10 17
Inter-Udinese 2-1 Cagliari-Torino 1-0 Napoli 10 4 5 1 11-7 17
Juventus-Fiorentina 1-0 Staða efstu liða: Atalanta 10 4 4 2 13-12 16
Lazio-Cremonese 2-1 ACMilan 10 6 3 1 16-9 21 Udinese 10 4 3 3 11-10 16
Napoli-Viacenca 1-1 Parma 10 6 3 1 16-9 21 -GH
Padova-Bari 3-0 Lazio 10 5 4 1 18-9 19
Argentinski landsliðsmaðurinn Gabriel Batistuta komst lítt áleiðis gegn varnarmönnum Juventus í leik liðanna i
gær þar sem Juventusfór með sigur af hólmi, 1-0. Símamynd Reuter
HM á skíðum:
Fyrsti sigurinn
hjá Elfi Eder
Elfl Eder frá Austurríki sigraði í
sinni fyrstu heimsbikarkeppni á
skíðum á laugardaginn þegar'hún
vann fyrsta svigmót vetrarins í
kvennaflokki í Colorado.
Elfi hafði aldrei áður komist á
verðlaunapall í heimsbikarnum og
ekki einu sinni verið fyrst eftir
fyrri ferð á fimm ára ferli sínum
meðal þeirra bestu. Þó tókst henni
að ná í silfurverðlaun á ólympíu-
leikunum 1994. Hún hefur staðið í
skugga eldri systur sinnar, Sylviu
Eder, og stundum veriö ruglað
saman við hana.
Sigurinn hjá Elfl Eder var örugg-
ur en næstar á eftir henni voru
Marianne Kjörstad frá Noregi og
Gabriella Zingre-Graf frá Sviss.
Frábær seinniferð
hjá Von Grunigen
Michael Von Grúnigen frá Sviss
renndi sér glæsilega í síðari ferð
stórsvigs karla 1 Colorado aðfara-
nótt laugardagsins. Hann var tæpri
sekúndu á eftir Lasse Kjus frá Nor-
egi eftir fyrri ferðina en vann það
forskot upp í þeirri síðari. Kjus varð
annar og Urs Kálin frá Sviss þriðji.
Tomba er óhress
með nýjar reglur
Alberto Tomba mætti til leiks en
tilkynnti ekki fyrr en á síðustu
stundu að hann yrði með. Tomba
er óhress með nýjar reglur um að
þrjátíu efstu renni sér í öfugri röð
í síðari ferð í mótum heimsbikars-
ins. ítalinn frægi varð að gera sér
sjöunda sætið að góðu.
Tritscher vann
fyrsta svigmótið
- Tomba hafnaði í þriðja sæti
Austurríkismaðurinn Michael
Tritscher sigraði á fyrsta svigmóti
vetrarins í heimsbikarkeppninni en
mótið fór fram í Beaver Creek í.Col-
orado í gærkvöldi. Tritscher hafði
forystu eftir fyrri ferðina og sýndi
mikið öryggi í síðari ferðinni. Þetta
var aðeins þriðji sigur Austurríkis-
mannsins á skíðabrautinni á 10 ára
ferli hans. Frakkinn Sebastien Amiez
varð í öðru sætinu eftir frábæra síð-
ari ferð en hann var í 10. sæti eftir
fyrri umferðina. ítalinn Alberto
Tomba náði þriðja sætinu.
Svisslendingurinn Michael Von
Grúningen, sem vann sigur í stórs-
vigskeppninni aðfaranótt laugardag-
ins, missti úr hlið og var dæmdur
úr leik. Norðmaðurinn Kjetil Andre
Ámodt hafnaði í fjórða sætinu og var
sekúndubroti á undan landa sínum,
Lasse Hamre.
Becker sigurvegari
Boris Becker sigraði Bandaríkja-
manninn Michael Chang í úrslitaleik
á ATP-heimsmeistaramótinu í tennis
sem fram fór í Frankfurt í Þýska-
landi í gær. Dyggilega studdur af
9.000 löndum sínum náði Becker að
vinna öll settin, 7-6, 6-0 og 7-6.
Chang vann glæsilegan sigur á Pete
Sampras, tennisleikara númer eitt í
heiminum, í undanúrslitum mótsins
á laugardaginn, 6-4 og 6-4Eftir þá
frammistöðu var jafnvel búíst við því
að hann myndi sigra Becker en það
tókst ekki. Becker vann Thomas
Enqvist frá Svíþjóð í hinum undan-
úrslitaleiknum, 6-4, 6-7 og 7-5.
Becker fagnar hér sigri sínum á Michael Chang.
Símamynd Reuter