Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1995, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1995
11
Fréttir
Hugmynd utanrlkisráöherra á gagnkvæmum skiptum á veiöiheimildum:
Fær misjafnar móttökur
í sjávarútvegsnefnd
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra varpaði fram þeirra hugmynd
í erindi sem hann Qutti á fiskiþingi
að tekin yrði upp samvinna þjóða í
norðurhöfum. Þar á meðal gagn-
kvæm skipti þeirra á veiðiheimild-
um. Hann sagðist líta á hugmynd
sína sem gagnkvæmt tryggingakerfl
þjóða í norðurhöfum, það er skipti á
veiðiheimildum sem eðlilegan þátt í
samvinnu fiskveiðiþjóða á svæðinu.
Hugmynd Halldórs gengur meðal
annars út á það að ef illa árar á ís-
landsmiðum en vel í Barentshafi
megi fiskiskip okkar veiða þar en ef
illa árar þar en vel hjá okkur megi
fiskiskip þeirra veiða í íslenskri
landhelgi.
Þessi hugmynd fær misjafnar
móttökur hjá fulltrúum flokkanna í
sjávarútvegsnefnd Alþingis.
Steingrímur J. Sigfússon,
for maður sjávarutvegs-
nefndar
„Ég hef viljað
fara mjög varlega
í þessum efnum.
Það hefur lengi
reynst okkur
styrkur að geta
varið okkar efna-
hagslögsögu nokk-
um veginn fyrir
erlendum skipum og hafa hana
óumdeilt til okkar afnota. Við vitum
af miklum áhuga og ásókn ýmissa
aðila, þar á meðal Evrópusambands-
ins, að koma sínum skipum hingað
inn. Ég hef séð það fyrir mér að sú
víglína sem viö reyndum að verjast
á væri sér efnahagslögsaga. Það
væri þá ekki nema í algerum undan-
tekningartilfellum og þá á grund-
velli samninga um nýtingu á sam-
eiginlegum stofnum, eins og dæmið
um loðnuna sýnir, að erlend skip
kæmu hér inn fyrir til veiða. Ég ótt-
ast að ef við víkjum frá þessu getum
við verið að veikja langtímavígstöðu
og samningsstöðu okkar og auka
hættuna á því að við yrðum að láta
undan þrýstingi, til dæmis fyrir
kröfum um veiðiheimildir í staðinn
fyrir viðskiptakjör. Þess vegna vil
ég stíga afar gætilega til jarðar í
þessum efnum.“
Svanfríður Jónasdóttir, full-
trúi í sjávarútvegsnefnd
„Ég hef tekið
eftir því að þau
hagsmunasam-
tök, sem hafa
fjallað um þessa
hugmynd, hafa
mjög varað við
henni. Ég vil taka
undir það því ég
óttast þetta. Við
erum að fara hér inn á nýja braut.
Ef við erum illa stödd og þurfum að
taka lán þykir mér betra aö við tök-
um það lán í peningum. Annars
erum við hér að innleiða nýja hluti
sem við sjáum ekki fyrir endann á.
Ég óttast líka að með þessu séum
við að binda úthafsveiðamar við
þau skip sem hafa kvóta í íslenskri
landhelgi. Ég sé ekki hvernig siðan
á að skila til baka ef menn ekki
tengja þetta saman. Það held ég að
sé mjög varasamt vegna þess að við
íslendingar erum búnir að fjárfesta
í veiðiskipum sem eru að gera það
gott fyrir okkar hönd og afla okkur
veiðiréttar á úthöfunum. Ég held að
við eigum að virða það sem þau
hafa verið að gera og að þau fái
njóta þess.“
Sighvatur Björgvinsson, full-
trúi í sjávarútvegsnefnd
„Ég held að
þama sé verið að
koma að málinu
úr mjög óvæntri
átt. Hingað til
hafa menn verið
sammála um það
að hleypa ekki út-
lendingum inn í
islenska fisk-
veiðilögsögu. Ég
vil líka spyrja á móti. Er Halldór þá
að hugsa um að gera svona samn-
inga við aðrar þjóðir? Er hann tilbú-
inn til að gera svona samninga við
Evrópusambandið? Bara svo ég
nefni dæmi. Eða hvaða leið er hann
að opna með þessu? Það er alveg
ljóst að ef svona samningar, um
gagnkvæmar veiðiheimildir og
skipti á þeim, verða gerðar við
Rússa og Norðmenn koma margir
aðrir á eftir.“
Kristín Ástgeirsdóttir,
Kvennalista
„Hugmyndin
sem slík er at-
hyglisverð og er
þess virði að
skoða hana. Hins
vegar bendi ég á
að það hefur ver-
ið grundvallar-
regla í okkar sögu
síðustu áratugina
að hleypa nánast engum inn í ís-
lenska fiskveiðilögsögu. Við höfum
þvert á móti verið að koma erlend-
um skipum út úr henni með örfáum
undantekningum. Þess vegna boðar
þessi hugmynd algera stefnubreyt-
ingu hjá okkur. Ég tel því að það
þurfi að fara varlega í þessum efn-
um og skoða hugmyndina vandlega.
Ég vil benda á að við íslendingar
getum ekki ætlast til aö við fáum að
veiða innan lögsögu annarra þjóða,
fáum allt hjá öðrum en veitum ekk-
ert á móti. Ég endurtek að hug-
myndin er athyglisverð en þarfnast
nákvæmrar skoðunar. Og við meg-
um heldur aldrei gleyma aðalatrið-
inu, því sem öllu skiptir, að ganga
ekki of nærri fiskistofnunum."
Guðmundur Hallvarðsson,
fulltrúi í sjávarútvegsnefnd
„Þessi hug-
mynd er ekki frá-
leit að mínum
dómi. Það eru
ekki mörg ár síð-
an verið var að
ræða um það að
hleypa rússnesk-
um verksmiðju-
skipum inn í ís-
lenska landhelgi
svo íslensk fiskiskip gætu selt sild-
ina beint um borð í þá. Einhverra
hluta vegna varð ekkert af þessu. Ég
man að það urðu geysilega hörð við-
Þrír án atvinnu á Höfn
Júlía Imsland, DV, Höfn:
Atvinnuástand hefur verið gott á
löfn í haust og það sem af er vetri.
/largt aðkomufólk er í vinnu hér,
ðallega í fiskvinnslu. Samkvæmt
ipplýsingum frá Verkalýðsfélaginu
ökli eru aðeins þrír á atvinnuleys-
sskrá, einn þeirra nýfluttur á stað-
inn.
Verkamannadeild Jökuls hélt ný-
lega fund þar sem skorað var á
launanefndina að segja upp samn-
ingum en stjóm og trúnaðarráð hef-
ur heimild til þess ef launanefndin
gerir það ekki. Búið er að boða fund
hjá verslunar- og skrifstofufólki nk.
mánudagskvöld.
brögð við þessu að hálfu sjómanna-
samtakanna og verkalýðsfélaganna.
Ég tel að þau mótmæli hafi verið
borin fram að óathuguðu máli. Það
var miklu skynsamlegra að landa
síldinni um borð í rússneskt verk-
smiðjuskip, þótt þau væru innan
efiiahagslögsögunnar, og fá þannig
miklu hærra verð fyrir hana til
manneldis en setja hana alla í gú-
anó. Mér þykir hugmynd utanríkis-
ráðherra ekki fráleit. Málið er hins
vegar afar viðkvæmt og því þarfnast
hugmyndin mjög nákvæmrar skoð-
unar. Það er fráleitt að segja já og
amen án þess að skoða málið alveg
ofan í kjölinn."
-S.dór
Forsala aðgöngumiða
G.BEN.&LL ttU
Bóka
HK
Verð
ritfangaversluninni VEDU
rottahúsi
kr
500
og
og
s---
.
yktýí/
* *
* *
30ARA
Fjölskyldutonleikar í Iþröttahúsi HK
laugardaginn 25. növember 1995 kl. 17:00
Með Ríó koma fram:
Skólahljómsveit Kópavogs yngri deild
Kór Kársnesskóla • Karnivala
Hljómsveitin Saga Class • Szymon Kuran fiðluleikari
Reynir Jónasson harmonikuleikari
Björn Thoroddsen gítarleikari