Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1995, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1995, Page 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 1995 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjómarformaður og úfgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Aðstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON Ritstjóm, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLT111, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLT114,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingan 550 5727 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 6272. Áskrift: 800 6270 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjóm: dvritst@ismennt.is- Auglýsingar: dvaugl@ismennt.is. - Dreifing: dvdreif@ismennt.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1550 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., helgarblaö 200 kr. m. vsk. Byrjar Evrópa hér? Til skamms tíma hafa margir íslenzkir stjómmála- menn vonað, að Norðurlönd Evrópusambandsins mundu ekki gerast aðilar að Schengen-samkomulaginu um sam- eiginleg ytri landamæri, án þess að um leið yrði varð- veitt gamla Norðurlandasamstarfið á sama sviði. Nú er hins vegar að koma í ljós, að Danmörk, Finnland og Svíþjóð munu ekki bíða eftir íslandi og Noregi. Ríkin þrjú í Evrópusambandinu telja sig hafa svo mikilla hags- muna að gæta á meginlandi Evrópu, að þau geti ekki lengi neitað sér um aðild að samkomulaginu. Meira máli skiptir fyrir Danmörku, Finnland og Sví- þjóð að hafa sameiginleg landamæri með Evrópusam- bandinu öllu heldur en að hafa samning um vegabréfa- frelsi við ísland og Noreg. Þetta mál sýnir í hnotskum meira aðdráttarafl evrópsks en norræns samstarfs. Á öllum hagkvæmnissviðum er norrænt samstarf dauðans matur öðruvísi en sem norrænt samstarf innan Evrópu. Hnignunareinkennin hafa lengi verið ljós á norrænu samstarfi, því að fátt merkilegt hefur gerzt á því sviði á meðan evrópskt samstarf geysist fram. Til þess að leysa máhð hefur íslandi og Noregi verið boðin aðild að tilraunum til að fínna leið fyrir þessi tvö lönd til að vera innan sameiginlegra landamæra Evrópu- sambandsins. Það þykir fysilegur kostur, en kostar um- fangsmiklar breytingar á flugstöð Keflavíkurvallar. Við þurfum að sjá um, að óæskilegt fólk komist ekki á Keflavíkurvelli inn fyrir hlið Evrópu, gerast aðilar að upplýsingakerfi Schengen-samkomulagsins um hættu- legt fólk og að aukinni lögreglusamvinnu á þessu sviði. Þetta kostar nýjar framkvæmdir og aukinn rekstur. Við þurfúm að koma upp sérstakri og aðskilinni að- stöðu til að taka við fólki, sem kemur inn fyrir landa- mæri Evrópu á Keflavíkurvelli, einkum fólki í áætlunar- flugi frá Norður-Ameríku. Þetta fólk kemur flest á skömmu tímabili snemma morguns á degi hverjum. Við stöndum því andspænis tveimur kostum. Annars vegar missum við núverandi hagræði af norrænu vega- bréfafrelsi. Hins vegar þurfum við að borga hundruð milljóna í framkvæmdir og tugi milljóna í árlegan rekst- ur aðildar að nýju og meira samgöngufrelsi í Evrópu. Danir, Finnar og Norðmenn efast ekki um, að það henti þeim að fóma norræna vegabréfasamstarfinu og leggja í kostnað við að taka að sér gæzlu ytri landamæra Evrópu. Við munum eiga erfiðara með að gera upp hug okkar, því að okkur vex kostnaðurinn í augum. Þjóðir eins og Danir eiga auðvelt með að sjá haginn af opnum landamærum til suðurs, af því að þeir em góðir kaupsýslumenn. Við erum hins vegar lélegir kaupsýslu- menn og sjáum fyrst og fremst kostnaðinn af því að hrekjast inn fyrir sameinuð landamæri Evrópu. Við munum smám saman þurfa að taka fleiri ákvarð- anir af þessu tagi. Hvenær sem gamalt samstarf Norður- landa rekst á við nýtt samstarf Evrópu, mun norræna samstarfið verða að víkja. Við munum velja um aukna einangrun eða dýra aðild að auknu Evrópusamstarfi. Meðan við erum enn svo einangrunarsinnuð, að við treystum okkur ekki til að taka áhættu af tækifærunum við að vera í Evrópusambandinu, getur aðild að samn- ingum á borð við Schengen brúað bilið fram að ákvörð- un og gert okkur gjaldgenga aðila í fyllingu tímans. En þjóðarsátt er hér á landi um einangrunarstefnu, sem ríkisstjómin fylgir eindregið. Því er hætta á, að við verðum að sinni að kúldrast utan landamæra Evrópu. Jónas Kristjánsson. „Þess vegna á ég svo bágt með að skilja löngun manna til að kaupa sér tap fremur en að leggja i púkkið,“ seg- ir Hjálmar m.a. í grein sinni. Tap óskast keypt! Nú þegar dregur að jólum má sjá mörg hefðbundin einkenni þess í hvunndagslífinu, auglýsing- ar í verslunum, jólahlaðborð, glögg og fleira í þeim dúr. Frá jól- um er stutt til áramóta. Þá búa fyr- irtæki sig undir að loka ársreikn- ingum. Þá kemur líka í ljós hvort fyrirtæki hafi verið rekin með hagnaði eða tapi á árinu 1995. Til allrar hamingju virðast mörg fyrirtæki ætla að koma vel undan árinu. En hvemig verja þau ágóða sínum? Mörg fyrirtæki nota hann til aö stækka, leggja í frekari landvinninga, ráða fleira fólk o.s.frv. Önnur fyrirtæki kjósa að umbuna starfsfólki sinu með ein- hvers konar bónus, enda gróðinn væntanlega byggður á traustu framlagi starfsfólksins. Þess vegna birtast eins og skrattinn úr sauðarleggnum þess- ar einkennilegu auglýsingar þar sem fyrirtæki óska eftir því að kaupa taprekstur annarra fyrir- tækja. Eða einhverjir harðir bók- haldarar bjóðast til að útvega vel stæðum fyrirtækjum taprekstur. Hvað merkir þetta? Skattur - tap - launauppbót Ég get ekki að því gert, en þgss- ar tapauglýsingar hafa lengi vald- ið mér angri. í þeim felst nefnilega sú hugsun að fyrirtæki megi ekki sýna hagnað. Menn kjósa m.ö.o. frekar að kaupa sér tap fremur en að borga bara tekjuskatt af fyrir- tækinu eða verðlauna starfsfólk með uppbót einhvers konar. Þetta er umhugsunarvert. Það getur varla talist eðlilegt eða réttlátt ef stjómendur slíkra fyrirtækja vilja í lengstu lög forðast að leggja ein- hvem skerf hagnaðar til samfé- lagsins. Þjóðin er sammála um að verja Xjailarinn Hjálmar Árnasc n alþingismaður staðið. Stjórnendur fyrirtækja hljóta líka að horfa til framtíðar. Hagnaðurinn á að .nýtast inn í framtíðina. Þar eru ýmsar leiðir. Hagnaði er skynsamlega varið til nýsköpunar og áhættu í því skyni að efla fyrirtækið. Hagnaði er líka skynsamlega varið ef starfsfólkið nýtur góðs af með einum eða öðr- um hætti. Og hagnaði hlýtur líka að vera skynsamlega varið ef af honum er greiddur eðlilegur skatt- ur. Þannig styrkir fyrirtækið vel- ferðarkerfið og leggur sitt til að skapa öruggt og traust umhverfi fyrir sjálft sig og starfsfólkið. Þess vegna er mér óskiljanleg viðleitni manna til að vilja fremur „henda“ hagnaðinum í aðkeypt og tilgang- lítið tap. Skattsvik eru talin nema yfir 10 „Menn kjósa nL.ö.o. frekar að kaupa sér tap en að borga bara tekjuskatt af fyrir- tækinu eða ve rðlauna starfsfólk með upp- bót einhvers l .onar. Þetta er umhugsunar- vert.“ velferðarkerfið. Við viljum halda uppi góðri menntun, traustri heil- sugæslu og styðja þá sem hjálpar eru þurfi. Þannig hygg ég að hjarta þjóðarinnar slái. Én til þess þarf að borga. Þess vegna á ég svo bágt með að skilja löngun manna til að kaupa sér tap fremur en að leggja í púkkið. Þama er ýmislegt að í skattalögum en þó fyrst og fremst í vitund manna Hver græðir til lengdar? Eðli fyrirtækja er að þrifast vel og skila hagnaði. Gróði í árslok ber vott um að vel hafi gengið og skynsamlega hafi verið að rekstri milljörðum króna. Menntakerfið, heilbrigðiskerfið og félagsmálin eru veikt sem því nemur. Ofan á þetta bætast svo hin furðulegu tap- kaup. Þama þarf að verða á mikil breyting. Nokkrir þingmenn hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar um aðgerðir gagnvart skattsvik- um. Ekki virðist síður mikilvægt að endurskoða skattalög með hlið- sjón af því sem hér hefur verið rit- að. Aðalatriðið hlýtur þó að vera breytt hugarfar. í annarri grein verður fjallað um hin merkilegu „göt“ sem gert er út á í skattakerf- inu. Hjálmar Ámason Skoðanir annarra Island og Schengen „Þeir sem hafa efasemdir um aðildina að Scheng- en hafa fyrst og fremst litiö til þess kostnaðar er hún hefði í for með sér. Það má þó færa rök fyrir því að sá kostnaður sé veigalítill í samanburði við þá kosti er aðildin hefði í för með sér. Telja til dæmis þeir er leggja mikla áherslu á að viðhalda vegbréfa- frelsi á Norðurlöndum ekki rétlætanlegt að leggja í einhvem kostnaö til að tryggja að svo verði? Þá blasir við að auðveldara verður að laða hingað ferðamenn frá Evrópu, ef ísland er aðili að Schengen.“ Úr forystugreinum Mbl. 2. des. Bókaafsláttur í Bónusi „Samkeppnisstofnun setti aldrei neinar reglur. Þeir lögðu bara blessun sína yfir samkomulagið sem áður hafði verið gert en ég hef ekki komið nálægt þvi og það gilda almennar samkeppnisreglur þess utan . . . Ef þetta hefði verið úrskurður Samkeppn- isstofnunar hefði ég hlýtt því . . . Ég held að bóka- kaupendur ættu aö bíða átekta þangað til þeir sjá hvað við gerum. Ég er með hreinan skjöld, ég er ekki vondi kallinn í þessu máli, heldur góði kallinn að vanda.“ Jóliannes Jónsson í Tímanum 2. des. Skylduaöild að lífeyrissjóðum „Hvers vegna eiga vinnuveitendur og verkalýðs- leiðtogar að geta samið um það sín í milli, að ákveð- in einstaklingur skuli vera í ákveðnu stéttarfélagi? . . . Greiðslur í lífeyrissjóði af launum starfsmanna em ekkert annað en spamaður þeirra til efri ára. Þá gildir einu, hvort um er að ræða svonefnt framlag vinnuveitandans eöa launþegans ... Kjarni málsins er sá, að öll upphæðin er hluti þeirra kjara, sem vinnuveitandinn hefur samþykkt að greiða starfs- manni sínum ... Baráttan fyrir rétti einstaklingsins gagnvart þessum einokunarveldum stendur enn yfir en einstaklingurinn mun ber sigur úr býtum í þeim átökum eins og öðrum. Úr Reykjavíkurbréfi Mbl. 3. des.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.