Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1995, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1995, Page 14
14 veran ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 1995 Er nauðsyn að halda saman hjónabandi eða sambúð? Osætti foreldranna við skilnað bitnar venjulega mest á börnunum segir Nanna K. Sigurðardóttir fálagsráðgjafi Margt hefur verið rætt og ritað um hjónabandið. Námskeið eru haldin til að reyna að halda því sam- an og bækur hafa verið skrifaðar til að bæta sambönd og hjónabönd en samt fjölgar hjónaskilnuðum og þeim sem ganga í það heilaga fækk- ar. Hjá Hagstofu tslands fengust þær upplýsingar að árið 1984 voru 1.413 hjónavígslur á íslandi en 449 lög- skilnaðir. Tíu árum síðar, árið 1994, voru hjónavígslur 1.310 en lögskiln- aðir 489. Tilveran leitaði til Nönnu K. Sig- urðardóttur félagsráðgjafa, sem hef- ur unnið að fjölskyldu- og hjónaráð- gjöf um árabil, til að ræða hverjar helstu ástæður hjónaskilnaða væru og hvers vegna ástæða væri til að reyna að halda hjónabandi saman, ef þær væru þá nokkrar. Vandasöm umræða Nanna sagði að öll umræða um þessi mál væri vandasöm og ekki væri hægt að svara ákveðið hverjar ástæður hjónaskilnaða væru þar sem þær væru svo margar. Það væri óvarlegt að gefa út einhverja eina ástæðu. „Hjónabönd nútímans eiga mögu- leika á að verða miklu lengri, þar sem fólk lifir lengur en áður. Þá var fólk heldur ekki eins mikið að brjóta heilann um tilfinningalega þáttinn. Fólk heldur oft að það sé lausn að skilja. Það er langtimaá- kvörðun að skilja, fólk skilur aldrei við foreldrahlutverkið. Staðgenglar foreldra geta komið til en þeir koma ekki í stað foreldra. Rannsókn, sem gerð var á barna- Hún benti á að ákjósanlegustu skilyrði fyrir barn til að alast upp við væru þau að þau fengju að njóta beggja foreldra sinna. Það væri þó ekki nóg, til að aðstæður væru góð- ar þyrfti foreldrunum að koma vel saman. Stundum væru hjónabönd og sambúðir fólks þannig að skiln- aður væri nauðsyn. Það væri ekki heppilegt fyrir börn að alast upp við mikið ósætti foreldra. Hamingjan fólgin í öryggi „Hjónabönd nútímans eiga möguleika á að verða miklu lengri,” segir Nanna Sigurðardóttir félagsráðgjafi. fjölskyldum á íslandi nýlega í tilefni af ári fjölskyldunnar, sýnir meðal annars að það er að sumu leyti erf- iðara fyrir börn að ganga gegnum skilnað foreldra en að missa for- eldri. Þegar barn missir foreldri standa þeir sem barnið annast sam- an sem oft er ekki þegar fólk skilur. Við skilnað getur barnið lent í því að verða bitbein foreldranna. Samt hefur orðið mikil breyting á þessu á síðari árum með aukinni þekkingu og umræðu um þessi mál. Foreldrar reyna meira til að standa uppbyggi- lega að skilnaði barnanna vegna og skilja mikilvægi þess að vinna sam- an. Ósætti foreldranna við skilnað bitnar venjulega mest á börnunum." Námskeið fyrir hjón og pör í Skálholti: Fræðsla og uppbygging - samvera með öðrum hjónum - segir séra Þorvaldur Karl Helgason sem aðallega hefur leiðbeint á námskeiðunum „Því hefur ekki verið komið á að halda námskeiðin á ákveðnum tím- um. Við höfum safnað saman nöfn- um þeirra sem sýnt hafa þessu áhuga og haldið námskeiðin þegar nægum fjölda hefur verið náð,“ sagði séra Þorvaldur Karl Helgason hjá Fjölskylduþjónustu kirkjunnar sem staðið hefur að námskeiðum fyrir pör og hjón í Skálholti. Leið- beinendur ásamt honum hafa verið prestarnir Birgir Ásgeirsson og Jón Dalbú Hróbjartsson. Oftast hefur Þorvaldur Karl þó verið eini leið- beinandinn. Hann hefur masters- próf frá bandarískum háskóla þar sem hann sérhæfði sig í sálgæslu- fræðum með áherslu á fjölskyldu- ráðgjöf. „Ég byrjaði með svona nám- skeið sjálfur haustið 1985 þegar ég var prestur í Njarðvík," sagði séra Þorvaldur Karl. Uppbyggileg og gagnleg Þessi námskeið hafa verið haldin í samvinnu við Skálholtsskóla. Þau standa frá því um kvöldmatarleytið á fóstudegi til klukkan tvö á sunnu- degi. Þátttakendur hafa aðeins þurft að greiða útlagðan kostnað í Skál- holti. Síðasta námskeiðið nú í haust, með fullu fæði, tveggja manna her- bergi með sturtu, kostaði 9 þúsund krónur. „Þessi námskeið hafa verið upp- byggileg og gagnleg. Þau hafa verið fámenn, við viljum ekki hafa fleiri en 9-10 pör í senn og ég gæti trúað að 150-200 manns hefðu verið allt í allt á námskeiðunum." Aðspurður hvers konar hjón eða pör kæmu aðallega sagði séra Þor- valdur Karl að þar sem ekki væri tekið á málum einstakra para væri þetta ekki vettvangur fyrir alvarleg vandamál. Þá þyrftu annars konar aðstoð. „Á námskeiðunum í Skálholti er annars vegar um að ræða fræðslu og uppbyggingu fyrir hjón og pör og hins vegar samveru með öðrum hjónum og pörum. Við leggjum áherslu á yngra fólk sem hefur búið saman einhvern tíma en vantar kannski einhvern kraft. Við höfum ekki gert upp á milli giftra og ógiftra. Fólk hefur verið ánægt á nám- skeiðunum og talið sig hafa haft gagn af. Sumir hafa lagt heilmikið á sig til að koma og komið af Vest- fjörðum alla leið og austan af landi, svo dæmi séu nefnd.“ -ÞK Lútersk hjónahelgi á hóteli Haldin hafa verið undanfarin tíu ár námskeið fyrir hjón á hótelum í Reykjavík. Þetta hefur verið kallað lútersk hjónahelgi. Rúmlega tveir sólarhringar fara í hvert námskeið, hjónin eru þar alla helgina og fara ekkert út. Allmargir, eða um 800 hjón í allt, hafa sótt slíkt námskeið. Um það bil 30 hjón hafa verið á hverju námskeiði sem hafa verið haldin þrisvar á ári síðan 1985. Greiðslur eru frjálsar, þeir sem geta setja greiðslu í umslag, þeir sem ekki hafa efni á því sleppa því. Þetta er gert til að enginn þurfi að hætta við vegna kostnaöarins. Þessi námskeið eru ekki hugsuð til að leysa úr vanda einstakra hjóna heldur til að efla samskipti og gera góð hjónabönd betri. Nám- skeiðin eru eingöngu ætluð hjónum. Leiðbeinendur hafa verið hjón en Ólafur Jóhannsson, sóknarprestur í Laugameskirkju, og Þóra Harðar- dóttir, eiginkona hans, eru í for- svari fyrir námskeiðunum. Ólafur sagði að fern hjón leið- beindu á hverju námskeiði, þar af ein prestshjón. Ólafur sagði að áhersla væri lögð á almenn tjá- skipti. Hann vissi til að mörg hjón hefðu haft gott af þessum námskeið- um og samböndin hefðu endurnýj- ast. -ÞK „Hamingja barna er fólgin í ör- yggi og því að finna væntumþykju og ást foreldra og að finna að allt sé í lagi. Börn eru mjög næm á að finna hvernig ástandið er. Fólk þarf einnig að gera sér grein fyrir að ekki verður bæði sleppt og haldið. Það fylgir því mikil ábyrgð að eignast börn, það er 20 ára vinna fyrir hvert barn. Þegar fólk fer síð- an eftir skilnað inn í aðra sambúð þarf að hugsa dæmið upp á nýtt, þá eru allir í nýjum hlutverkum. Fólk vill oft afneita þessu. Þó að nýr maki komi til sögunnár er það for- eldri sem barnið býr ekki hjá (oft faðirinn) enn í mikilvægu hlutverki fyrir barnið. Það er liðin tið að fað- irinn sé út úr myndinni þó að for- eldrarnir búi ekki saman eins og oft var áður fyrr, karlmenn skilgreina föðurhlutverkið á annan hátt. Flest- ir feður nútímans hafa verið við- staddir fæðingu barna sinna og tengst þeim tilfmningalega á annan hátt en áður,“ sagði Nanna K. Sig- urðardóttir. -ÞK Karlar hverfa inn í helli sinn og konur tala Einn helsti munurinn á körlum og konum eru viðbrögð þeirra við álagi. Karl- ar verða einbeittir og einangra sig en þaö þyrmir yfir konumar og þær verða mjög tilfmningasamar. Á slíkum stundum hafa karlar aðrar þarfir en konur tU að þeim líði vel. Karlmanninum líður betur þegar hann leysir mál en konunni finnst betra að tala um vandamálin. Ef þessi munur á þeim nýtur ekki skiln- ings og viðurkenningar skapast óþarfa ósamlyndi í samband- inu. Rifrildi karla Algengast er að karlmenn stofni til rifrildis með því að gera lítið úr tilfinningum konu eða skoðunum hennar. Þeir gera sér ekki ljóst hve mikið það er sem þeir eru að van- virða. Rifrildi kvenna Algengast er að konur stofni óvart til rifrUdis þegar þær tala ekki afdráttarlaust um tilfinn- ingar sínar. í stað þess að segja berum orðum að þeim mislíki eða þær séu vonsviknar spyrja konur spurninga sem krefjast ekki svara og óvitandi (eða vit- andi) senda þær frá sér boð um vanþóknun. Jafnvel þótt þetta séu ekki aUtaf boðin sem konan vill koma tU skila eru það þau sem karlmaðurinn nemur. Herra viðgerðarmaður Sú kvörtun sem konur bera oftast fram um karlana er að þeir hlusti ekki. Annaðhvort virðir karlmaðurinn konuna ekki viðlits þegar hún talar við hann eða hann hlust- ar litla stund, átt- ar sig á hvað það er sem angrar hana, setur stoltur upp við- gerðar- húfuna og kemur með úr- ræði tU þess að henni líði betur. Hann veit ekki hvaðan á sig stend- ur veðrið þegar hún kann ekki að meta þennan ástarvott. Það er sama hversu oft hún segir honum aö hann hlusti ekki, hann skilur það ekki og er enn við sama heygarðshornið. Hún viU hluttekningu en hann held- ur að hún vilji lausnir. Umbótanefnd heimilisins Það sem karlar kvarta mest yfir í fari kvenna er að konan sé aUtaf að reyna að breyta þeim. Þegar kona elskar mann finnst henni hún bera ábyrgð á að aöstoða hann við að þroskast og reyriir að hjálpa honum að bæta sig . Hún stofnar umbóta- nefnd heimUisins og hann verð- ur aöalviðfangsefniö. Einu gUd- ir hve mikið hann berst gegn því, hún gefur sig ekki og bíður eftir tækifæri tU að hjálpa hon- um eða segja honum tU. Hún heldur að hún beri velferð hans fyrir brjósti en honum finnst að verið sé að ráðskast með sig. Hann viU aðeins að hún sam- þykki hann eins og hann er. Úr bókinni Karlar eru frá Mars, konur eru frá Venus

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.