Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1995, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1995, Side 22
26 ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 1995 Menning_________________________________________ Þolfimimeistarinn Magnús Scheving meö bókina og plötuna, Áfram Latibær: Menn með titla eiga að skila einhverju frá sér - segir Magnús sem útilokar ekki framhald á skriftum Magnús Scheving ákvað að halda útgáfuhóf vegna bókarinnar Áfram Latibær á Barnaspítala Hringsins fyrir heigi. Myndin er tekin við það tækifæri. Magnús fór á kostum og var vei tekið af börnunum. Hann valdi þennan stað ekki síst til að leggja áherslu á nauðsyn byggingar sérstaks barnaspítala. DV-mynd BG Ég hef haldið fyrirlestra fyrir krakka í 10 ár og farið í nánast flesta skóla landsins frá leikskólum og upp í framhaldsskóla. Ég fæ mik- ið af bréfum og símhringingum heim til mín um hin og þessi mál- efni. Ég ákvað að taka allt þetta efn: saman í eina bók og skrifa skemmti- lega sögu með skýrum skilaboðum. í bókinni koma fyrir margar skemmtilegar persónur sem við ætt- um öll að kannast við í kringum okkur, t.d. Sigga sælgætisstrák sem étur 70 karamellur, Halla hrekkju- svín og Sollu stirðu. Einnig er ég stoltur af því að enda árið sem íþróttamaður ársins og skila ein- hverju svona frá mér. Menn með titla eiga að skila einhverju frá sér,“ sagði Magnús Scheving, þolfimi- meistari og íþróttamaður ársins 1994, í samtali við DV, en hjá Æsk- unni er komin út bók eftir hann sem nefnist Áfram Latibær. Bókinni fylgir samnefnd geislaplata með tón- list Mána Svavarssonar. Halldór Baldursson myndskreytir bókina. Á plötunni eru hreyflæfingar sett- ar fram með skemmtilegum hætti. Magnús sagði að lítið efni væri á boðstólum fyrir börn sem fengi þau til að hreyfa sig meira. Hann tók sérstaklega fram að hér væri ekki um leikfimiplötu að ræða. Hann sagði plötuna hafa fengið góða reynslu í leik- og grunnskólum. Enda væri það vitað að besta for- vörn gegn fíkniefnanotkun og sjúk- dómum væri hreyfing. í bókinni er sagt frá lífinu í Lata- bæ sem hefur hlotið það uppnefni þar sem bæjarbúarnir nenna ekki að hreyfa sig. Það er haldin íþrótta- hátíð um land allt og bæjarstjóri Latabæjar, sem er sá eini sem nenn- ir að hreyfa sig, veit ekki hvernig hann á að fá börnin tU að taka þátt í hátíðinni. Þá kemur „iþróttaálfur- inn“ til sögunnar og gefur holl og góð ráð. Skrifaði fyrstu söguna 14 ára - Er þolfimimeistarinn að kalla fram rithöfundinn í sjálfum sér? „Ég skrifaði mína fyrstu sögu þeg- ar ég var 14 ára og hef sett saman fjöldann allan af teiknimyndasyrp- um. Einnig skrifaði ég leikrit þegar ég var í skóla í Noregi. Síðan lenti maður í þessum íþróttum og hefur ekki haft neinn tíma fyrir skriftir. Bókin er meira hugsuð sem skila- boð tU barna og unglinga, sett fram á skemmtilegan hátt, frekar en út- pælt bókmenntaverk. Sagan er skrifuð fyrir börn á aldrinum 2-11 ára og hugsuð þannig t.d. að krakk- ar skilji hvað gerist ef þau fá of mik- inn sykur í líkamann. Einnig hef ég í fyrirlestrum mínum reynt að gera krökkunum grein fyrir muninum á leik og ofbeldi. Ef þetta er sett fram á réttan hátt skUja börnin um hvað málið snýst.“ Magnús sagðist hafa lesið upp úr bókinni fyrir fjölda krakka og feng- ið góðar viðtökur, svo góðar að nokkur börn hafa sent Magnúsi handskrifaðar frumsamdar bækur. „Krakkar eru greinilega vel með á nótunum að taka við þessu efni. Þau hafa sest niður og skrifað mér bók með forsíðu og öUu. Þetta finnst mér mjög skemmtilegt," sagði Magnús. Aðspurður sagði Magnús ómögu- legt að fuUyrða hvort hann myndi skrifa fleiri bækur í framtíðinni. „Eins og ég sagði áður hef ég gam- an af því að skrifa sögur. Það getur vel verið að ég haldi þessu áfram.“ -bjb Tilnefningar til bókmenntaverðlauna 1995: 7 af 12 bókum frá Máli og menningu - bækur um málfræði og garðblóm meðal tilnefninga Tilnefningar til íslensku bók- menntaverðlaunanna 1995 voru tU- kynntar við hátíðlega athöfn í Lista- safni íslands síðdegis í gær. Tólf bækur voru tilnefndar, sex úr flokki fagurbókmennta og sex úr flokki annarra íslenskra ritverka. Athygli vekur að Mál og menning gefur út sjö af þeim tólf bókum sem fengu tU- nefningu en til þessa hafa verið til- nefndar tíu bækur. Félag íslenskra bókaútgefenda stendur að verðlaun- unum í samráði við Háskóla ís- lands, Rithöfundasambandið, Rann- sóknarráð ríkisins og Hagþenki. í flokki fagurbókmennta, þ.e. frumsaminna íslenskra skáldsagna og ljóða, hlutu eftirfarandi bækur tilnefningu: Híbýli vindanna, skáldsaga eftir Böðvar Guðmundsson í útgáfu Máls og menningar, Hjartastaður, skáld- saga eftir Steinunni Sigurðardóttur I útgáfu Máls og menningar, Dyrnar þröngu, skáldsaga eftir Kristínu Ómarsdóttur í útgáfu Máls og menn- ingar, Ljóðlínuskip, ljóðabók eftir Sigurð Pálsson í útgáfu Forlagsins, Það talar í trjánum, ljóðabók eftir Þorstein frá Hamri í útgáfu Iðunn- ar, og Höfuð konunnar, ijóðabók eft- ir Ingibjörgu Haraldsdóttur í útgáfu Máls og menningar. í flokki annarra íslenskra rit- verka hlutu eftirfarandi bækur til- nefningu: Milli vonar og ótta, sagnfræðirit eftir Þór Whitehead í útgáfu Vöku- Helgafells, Barnasálfræði, fræðirit eftir Guðfinnu Eydal og Álfheiði Steinþórsdóttur i útgáfu Máls og menningar, Bókmenntakenningar síðari alda, fræðirit eftir Árna Sig- urjónsson í útgáfu Máls og menn- ingar, Ströndin í náttúru íslands, fræðirit eftir Guðmund P. Ólafsson í útgáfu Máls og menningar, Hand- bók um málfræði, kennslubók eftir Höskuld Þráinsson í útgáfu Náms- gagnastofnunar, og íslenska garð- blómabókin, skrifuð af Hólmfríði A. Sigurðardóttur í útgáfu íslensku bókaútgáfunnar. Dómnefnd í flokki fagurbók- mennta skipuðu uagný Kristjáns- dóttir, Jón Ormur Halldórsson og Vigdís Grímsdóttir en í hinni nefnd- inni sátu Sigríður Th. Erlendsdóttir, Sverrir Tómasson og Þorsteinn VO- hjálmsson. Formenn nefndanna voru Jón Ormur og Sigriöur. íslensku bókmenntaverðlaunin verða síðan afhent af forseta íslands í byrjun febrúar á næsta ári. Þá verður valin ein bók úr hvorum flokki af þriggja manna dómnefnd. -bjb Bókastríðið: Bóksalar vilja afgreiðslubann á Bónus og KÁ Félag bóka- og rifangaversl- ana hefur sent Félagi íslenskra bókaútgefenda bréf þar sem far- ið er fram á afgreiðslubann til þeirra verslana sem ekki fóru eftir samkomulagi um 15% há- marksafslátt af bókum. Þótt bók- salar nefni ekki verslanirnar í umræddu bréfi er ljóst að þeir eiga við verslanir Bónuss og Kaupfélag Árnesinga á Selfossi. Eftir að nokkrar bókaverslan- ir auglýstu 15% afslátt í síðustu viku bauð Bónus 20% afslátt. Á fóstudag kom síðan tilkynning frá Selfossi um 25% afslátt í verslunum kaupfélagsins á Suð- urandi. Bónus bauö þá sem fyrr betur og fór í 30% afslátt um helgina. Þessu una bóksalar ekki. -hjb Strengjasveit með 22 hljóðfæraleikurum, aðallega úr Sinfóníuhijómsveitinni, var hóað saman í annað sinn til tón- leikahalds á íslandi síðastliðinn laugardag. Tcnleikarnir fóru fram í Listasafni ísiands og tókust mjög vel. Hijóm- sveitarstjóri var Lan Shui, hljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Detroit-borgar. Einleikari og konsertmeistari var Zheng Rong Wang. Flutt voru verk eftir Jón Leifs, Bach og Dvorák. Á myndinni er verið að fagna Wang og Lan Shui í tónleikalok. -bjb/DV-mynd TJ Einstæð Ijós- myndabók um harðindaárin 1882-1888 - eftir Frank Ponzi Frank Ponzi, Mosfellsbæ, hefur unnið að því síðustu 8 ár af gera ljós- myndabók um harðindaárin á íslandi 1882- 1888. Frank komst yfir safn einstæðra ljósmynda í fornbóka- verslun í London árið 1987 sem teknar voru á þessum árum af Bretunum Maitland James Bur- nett og Walter H. Trevelyan. Myndirnar, sem teknar voru á glerplötu, eru meðal þeirra fyrstu sem teknar voru af íslend- ingum og íslandi og hafa flestar aldrei komið fyrir almennings- sjónir áður. Að auki fann Frank dagbók á safni í Skotlandi 1989 sem hjálpaði honum að tengja texta við margar myndanna. Dagbókin var einmitt skrifúð af Burnett. Bókin er nú á lokastigi prent- unar og ætlar Frank að efna til sýningar af þessu tilefni í Kjarna í Mosfellsbæ dagana 9. til 13. desember nk. Myndirnar voru flestar teknar I Mosfells- sveit, Kjós og á Kjalamesi og eru ómetanleg heimild um þá erfiðu tíma sem forfeður okkar upp- lifðu undir lok 19. aldar. Fimmtungur myndlistar- manna eingöngu í myndlist Tæplega fimmtungur mynd- listarmanna hefur myndlist ein- göngu sem atvinnu þrátt fyrir að hafa menntað sig til slíkra starfa. Flestir myndlistarmenn stunda því listina sem auka- vinnu. Þetta er meðal niður- staðna könnunar um stöðu myndlistarmanna í Sambandi ís- lenskra myndlistarmanna, SÍM, sem unnin var af nemendum í félagsvísindadeild Háskólans. Við niðurstöður af spuming- um varðandi tekjur og kostnað af ýmsu tagi kom í ljós að 25-30% myndlistarmanna virt- ust hafa tapað af myndlist sinni þau ár sem spurt var um, þ.e. 1993 og 1994, en útlagður kostn- aður hjá þeim var meiri en tekj- ur fyrir seld verk. Tekjur rúm- lega 45% þátttakenda af mynd- list árið 1993 var undir 100 þús- und krónum og hjá tæpum 40% þátttakenda árið 1994. Töluverð- ur meirihluti þátttakenda hafði 750 þúsund krónur eða minna í tekjur af öðru en myndlist. Könnunin var póstkönnun, gerð í mars á þessu ári. Spurninga- listar voru sendir til 348 félaga í SÍM og var svörunin 57 prósent. Spurt var um kjör þátttakenda og vinnuaðstöðu. Einnig var spurt um bakgrunn listamanns- ins svo og menntun, vinnutil- högun, vinnutíma, styrki, starfs- laun, sýningar og umfjöllun í fjölmiðlum. Þá var spurt um af- stöðu til SÍM, sem almennt var jákvæö. Leiðrétting: Sigríður rit- dæmdi Máva- hlátur Bókagagnrýni um skáldsöguna Mávahlátur var vitlaust merkt í DV í gær. Dómurinn var rang- lega merktur Silju Aðalsteins- dóttur en hið rétta er að Sigríð- ur Albertsdóttir ritaði dóminn. Beðist er velvirðingar'á þessum mistökum blaðsins. -bjb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.