Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1995, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1995, Qupperneq 28
32 ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 1995 Fréttir Roseanne Barr, leikkonan þétt- holda sem giftist og eignaðist barn með fyrrum lífverði sínum, rétt eins og ónefnd prinsessa suð- ur í Evrópu, hefur áhuga á að auka blaðrið i amerísku sjón- varpi og stjórna blaðurþætti. Að vísu aðeins ef núverandi þáttur hennar fær að syngja sitt síðasta á þessum vetri. Áhöld eru um hvort sé verra fyrir bandarísku þjóðina. Johnny Depp sem Jói Jóns Johnny Depp hefur leikið alls kyns furðufugla upp á síðkastið, svo sem koMikkaðan gæja sem heldur að hann sé kvennabósínn Don Juan og kvikmyndasóðann Ed Wood. En nú hefur hann loks fengið að leika ósköp venjulegan mann í myndinni Á síðustu stundu, mann sem verður fyrir því að dóttur hans er rænt tií að þvinga hann til að myrða stjórn- málamann. „Mér fannst kominn tími til að breyta aðeins til,“ seg- ir Depp. Roseanne vill auka blaðrið Hin brjóstgóða Anna Nicole Smith í afvötnun: Bruddi valíumtöflur eins og brjóstsykur Hin brjóstgóða fyrirsæta, Anna Nicole Smith, var lögð in á Betty Ford stofnunina með leynd á dögun- um. í byrjun nóvember var hún hætt komin vegna ofneyslu áfengis og róandi lyfja og var vart þekkjan- leg þegar komið var með hana á bráðadeild sjúkrahúss i Hollywood. Samkvæmt læknum var ástand Önnu mjög alvarlegt. Var óttast að hún hefði orðið fyrir varanlegum heilaskemmdum og þyrfti margra mánaða endurhæfingu. En þegar Ijóst var að Anna mundi lifa ósköpin af var hún strax lögð inn til afvötnunar. Ástandið var þó ekki betra en svo að hún gat vart gengið og var henni ekið rakleiðis í einkaherbergi í hjólastól. Stuttu síðar var hún sett í afeitr- un. En hún var svo illa farin að það liðu fimm dagar áður en árangur fór að koma í ljós. Hún fékk róandi til að sofna en hafði byggt upp svo mik- ið lyfjaþol að starfsfólk stofnunar- innar hélt að lyfín ætluðu aldrei að virka. Hún á langt í land og mun ekki geta gert neitt hjálparlaust. Anna Nicole hefur verið bundin við hjólastól vegna ofneyslu lyfja. Anna Nicole Smith leiddist út í ofneyslu áfengis og róandi lyfja. Þarf starfsfólk stofnunarinnar að fæða hana og klæða í bókstaflegum skilningi. Það hefur mikið mætt á Önnu Nicole undanfarið. Hún missti eig- inmann sinn, níræðan olíukóng og milljarðamæring frá Texas, í sumar. Síðan hefur hún tekist á við tengda- fjölskylduna um arfinn. Þá þurfti hún að greiða 50 milijónir króna í miskabætur til fyrrum barnfóstru sinnar sem kærði hana fyrir kyn- ferðislega áreitni og misnotkun. Þá hefur hún fengið óblíða meðferð í viðtalsbókum þar sem fyrrum elsk- hugar hennar láta gamminn geisa og fullyrða að hún sé fyrir bæði kynin, samkynhneigð. Og í fyrra viðurkenndi Anna að hún væri háð valíum. Fór hún að bryðja val- íumtöflur eins og brjóstsykiu' í kjöl- far brjóstaaðgerðar og linnti ekki látum fyrr en sláttumaðurinn gerði vart við sig í byrjun nóvember. Redford lét gott af sér leiða Robert Redford hefur aUtaf látið sér annt um óháða kvik- myndagerð i Bandaríkjunum, utan vel troðinna slóða hug- myndaleysingjanna í Hollywood. Hann stofnaði sérstaka kvik- myndahátíð um svona myndir, Sundance hátíðina í Utah. Óháð kvikmyndagerð hefur verið í mikilli sókn að undanfómu, ef marka má þann fjölda sem viU komast að á hátíðinni í janúar næstkomandi. Umsóknir eru 35 prósent fleiri nú en í fyrra. Frikki í kaffi og vínarbrauð Friðrik krónprins af Dan- mörku fékk sér kaffi og vínar- brauð í ráðhúsinu í Kaupmanna- höfn einn kaldan dag fyrir skömmu og tókst að ná úr sér hroUinum á svipstundu. Friðrik var þangað kominn tíl að sitja fund nefndarinnar sem sér um endurbætur á frelsisstyttunni. Jólalðikur Skoðaðu Jólagjafahandbók sem fylgdi ll 25. nóvember og hringdu í s. 904-1750 og taktu þátt í jólaleiknum. i útvarpstæki með segulbandi, hvert að verðmæti kr. 3.990. IMöfn vinningshafa verða birt daglega í DV til 23. desember. Jólaleikur Bónus Radíó - Hringdu í 904-1750 - Verð 39,90 mínútan Og aðalvinningurinn dreginn verður út Þorláksmessu: AfflHBTY 930 GSfí1: símar, hver að verðmæti kr. 54.890. Þetta eru öflugir símar með 60 númera símaskrá með nöfnum, 15 mismunandi hringingum, dagsetningu og klukku, 5 styrkstillingar o.fl. OK4860XVfOO fullbúin marg- miðlunartölva með 8 MB vinnsluminni, 540 MB hörðum diski. Tölvunni fylgir PCI skjákort, 16 bita hljóðkort, innbyggt 4 hraða geisladrif CD-RÓM, tveir 40 vatta hátalarar, Samsung 17" Gli Sync Master S-VGS lágútgeislunar litaskjár, 28800 bps modem, Internet- tenging í 1 mánuð, 2 raðtengi, 1 hliðtengi, 1 leikja tengi, straumlínulaga mús, músarmotta og Windows 95. Tískuhönnuðurinn Gianni Versace er hér með fyrirsætunni Naomi Campbell en þau sóttu bæði afhendingu svonefndra VH1-verðlauna, sem eru tísku- og tónlistarverðlaun, í New York um síðustu helgi. Versace fór ekki tómhentur heim. Hann hefur hannað föt á fjölda rokkstjarna og vann til svonefndra „Frock-n-Rock“ verðlauna. Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.