Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1995, Page 3
MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 1995
31
íþróttír
Vllhjálmur Amason lögfræðingur náði draumahögginu í goifinu:
78 ára og fór holu í
höggi í Graf arholti
- 63 kylíingar fóru holu í höggi á árinu. Elías vann afrekið tvívegis
„Þetta gerðist í Grafarholtinu á holu
númer tvö. Ég náði þessu drauma-
höggi með jámi númer sex sem er
eðlilegt fyrir menn sem komnir eru
á minn aldur,“ sagði Vilhjálmur
Árnason, lögfræðingur og meölimur
í GR, en hann var einn 63 íslenskra
kylfmga sem náðu draumahöggi
allra kylfinga á árinu sem senn er
liðið og hafa þeir aldrei verið fleiri.
Afrek Vilhjálms er sérstakt fyrir
þær sakir aö hann er 78 ára gamall
og án efa elsti íslendingurinn sem
farið hefur holu í höggi. Vilhjálmur
er ákafur kylfmgur og stundar
íþróttina af miklu kappi: „Ég stunda
golfið mjög stíft. Þetta er óskaplega
skemmtileg íþrótt og ég skemmti mér
eins og krakki í golfinu. Það er svolít-
ið misjafnt hve ég spila oft enda vinn
ég enn þá á fullu. Ég spila eins oft
og ég get og reyni að komast til Eng-
lands eða Skotlands einu sinni eða
tvisvar á ári,“ sagði Vilhjálmur viö
DV í gær en hann er bróðir Tómasar
Árnasonar, fyrrverandi ráðherra og
seðlabankastjóra. „Ég er ekki bróðir
Tómasar, hann er bróöir minn. Tóm-
as er sex árum yngri en ég og hefur
aldrei fariö holu í höggi," sagöi Vil-
hjálmur enn fremur.
Elías fórtvívegis
holu í höggi
Listinn yflr þá kylfmga sem náöu
draumahögginu var birtur um helg-
ina. Þar kemur fram að Elias Kristj-
ánsson, GS, fór tvívegis holu í höggi
í sumar. Aðrir kylfmgar sem fóru
holu í höggi í sumar voru þessir:
Pálmi Sveinbjömsson, GK, Jón Hall-
dórsson, GK, Bryndís Hólm, GHH, Jón
H. Guðlaugsson, GKJ, Bjöm Þórhalls-
son, GR, Om Bragason, GK, Ófeigur
Guðjónsson, GR, Þorsteinn Snædal,
GR, Runar S. Gíslason, GR, Steinar
Birgisson, GOB, Ólafur Steinarsson,
GR, Sigríður Máthiesen, GR, Ásgeir
Guðbjartsson, GK, Arnór Guömunds-
son, GS, Einar Guöberg, GS; Sigurður
Lúðvíksson, GS, Martin Agústsson,
GR, Kristin Zoega, GR, Öm B. Jóns-
son, GKG, Hrafn Sabir Khan, GKG,
Anna J. Sigurbergsson, GK, Jakob
Tryggvason, GR, Elías Kristjánsson,
GS, Guðmundur Sveinbjörnsson, GK,
Friðjón Þorleifsson, GS, Guðbjörn
Garðarsson, GA, Amar Már Ólafsson,
GK, Dóra Guðleifsdóttir, GR, Sigurður
Hafsteinsson, GR, Reynir Þorsteins-
son, GL, Lýður Vignisson, GMS, Sig-
urður B. Öddsson, NK, Baldvin Jó-
hannsson, GK, Bjöm Þór Hilmarsson,
GR, Jón Pétursson, GG, Finnur Guö-
mundsson, GB, Bragi Jónsson, GR,
Sigurpáll G. Sveinsson, GA, Davíð
Viöarsson, GS, Bergur Sverrisson,
GOS, Sveinn Sveinsson, GR, Friðrik
Sigfússon, GR, Gunnar K. Gunnlaugs-
son, GR, Elliöi Aðalsteinsson, GV,
Gunnlaugur Sigurðsson, GR, Þröstur
Eggertsson, GÖ, Haraldur M. Stefáns-
son, GB, Sigurbjörg Á. Jónsdóttir, Ari
F. Guðmundsson, GR, Páll Kristins-
son, Guðlaugur B. Gíslason, GR, Sig-
urður Sigurðsson, GO, Hans Kristins-
son, GR, Sigurður Siguijónsson, GR,
Pétur Ingi Hilmarsson, Þyrí Þorvalds-
dóttir, GR, Kristján Guðjónsson, GH,
Róbert Rúnarsson, GB, Þórdís Geirs-
dóttir, GK, Vilhjálmur Ámason, GR,
Jónína Pálsdóttir, GKJ, Björgvin Snæ-
bjömsson, GO.
Þeir kylfingar sem ná að fara holu
í höggi hafa meö sér félag sem heitir
Einhetji. Félagiö sér til þess að allir
kylfingar í íslenskum golfklúbbi fái
viðurkenningarskjal. Er það jafnan
afhent milli jóla og nýárs í sérstöku
hófi og svo verður einnig nú.
Handbolti:
„Rögnvald
og Stefán
eru bestir “
Rögnvald Erlingsson og Stefán
Amaldsson dæma þessa dagana
á heimsmeistaramóti kvenna í
handknattleik en mótið fer að
þessu sinni fram í Austurríki og
Ungverjalandi.
Þeír félagar dæmdu leik Aust-
urrikis og Noregs á laugardag og
fengu mjög góða dóma fyrir
frammistöðuna. Þulur einka-
stöðvarinnar TV 2 í Noregi sagði
að íslenska dómarapariö væri í
toppformi og þar væri á feröinni
besta dómaraparið á Norðurlönd-
um í dag.
-SK
Knattspyma:
JafnthjáEyjóffi
Eyjólfur Sverrisson og félagar í
Hertha Berlín gerðu um helgina
markalaust jafntefli gegn Ueter-
haging í 1. deild þýsku knatt-
spyrnunnar.
Hertha Berlín er í 9. sæti í deild-
inni með 25 stig eftir 19 leiki. Hlé
verður nú gert á keppninni í 1.
deild fram í febrúar.
-SK
Leevarbestur
í nóvember
Robert Lee, leikmaður Newc-
astle, hefur verið valinn leikmað-
ur nóvembermánaðar í ensku
úrvalsdeildinni.
Lee hefur átt stóran þátt í vel-
gengni Newcastle í vetur og Ke-
vin Keegan, íramkvæmdastjóri
liðsins, sagöi í viðtali við breska
fjölmiðla að meöan Lee væri i
svona ham væri líklegt að hann
kæmist í enska landsliðið sem
leikur í úrslitakeppni EM á næsta
ári.
Frank Clark, framkvæmda-
stjóri Nottingham Forest, var val-
inn framkvæmdastjóri liðins
mánaðar.
-SK
„SteveStoneer
ekki til sölu“
Eins og greint var frá í DV í
síðustu viku hefur Alex Fergu-
son, framkvæmdastjóri Man.
Utd, fengið rúman milljarð króna
til að kaupa nýja leikmenn.
í breskum tjölmiðlum um helg-
ina var greint irá því aö Ferguson
heföi Steve Stone, enska landsl-
iðsmamúnn hjá Nottingham For-
est, í sigtinu. Ef marka má um-
mæli Franks Clarks, fram-
kvæmdastjóra Forest, í gær eru
ekki miklar líkur á að Ferguson
kaupi Stone frá Forest. Clark
sagði: „Ferguson væri bara að
eyða peningum í símtal meö því
að spyrjast fyrir um Stone. Hann
er ekki til sölu og er á tveggja ára
samningi hjá okkur.“
; -SK
Þeirskoramest
íenskaboltanum
Tveir markahæstu leikmenn
ensku úrvalsdeildarinnar í knatt-
spyrnu voru ekkl á skotskónum
um helgina.
Alan Shearer, Blackbum Ro-
vers, er markahæstur með 22
mörk. Les Ferdinand, Newcastle,
kemur næstur með 20 mörk og í
þriðja sæti er Teddy Sheringham
hjá Tottenham en hann skoraði
14. mark sitt á laugardag sem
dugðí Tottenham til sigurs gegn
QPR ura helgina.
-SK
• Vilhjálmur Arnason (ór holu i höggi á holu númer tvö á golfvellinum I
Grafarholti. Þessi 78 ára lögfræðingur stundar golfið stift. DV-mynd S
Stjarnan heppin að ná stigi gegn Haukum
Helga Sjgmundsdóttir skníar:
Stjörnusttilkur voru heppnar að
sleppa með jafntefli frá leik sínum
gegn Haukum í 1. deild kvenna i
handbolta í gærkvöldi. Lokatölur
urðu 18-18 eftir 11-9 í leikhléi fyrir
Haukum.
• Mörk Hauka: Auður 6, Judith
5, Thelraa 3, Hulda 1, Harpa 1, Krist-
ín 1.
• Mörk Stjömunnar: Margrét 5,
Nína 5, Herdís 3, Inga 3, Sigrún 1,
Guðný 1.
Fram fékk ÍBV í heimsókn í
Framhúsið á laugardag og sigraði
25-24.
• Mörk Fram: Guðríður 14, Haf-
dís 4, Arna 2, þórunn 2, Berglind
2, Steinunn.
• Mörk ÍBV: Andrea 10, Ingi-
björg 8, Stefania 2, Katrín 2, Dögg
1, Malin 1.
Fylkir og Valur áttust við í Fylk-
ishúsi á laugardae.
• Mörk Fylkis. Anna E. 8, Rut 7,
Anna H. 4, Irína 4, Helena 2, Lilja. 1.
• Mörk Vals: Gerður 5, Kristjana
5, Björk 5, Dagný 4, Sonja 2, Hafrún
2, Eivor 1.
í KA-húsinu áttust á laugardag við
ÍBA og KR og KR vann 19-31.
• Mörk ÍBA: Ragnheiöur 5, Valdís
4, Sólveig 4, Anna 3, Elín 1, Dóra l,
þóra 1.
• Mörk KR. Helga 15, Brynja 4,
Sæunn 3, Anna 3, Ólöf 3 , Thelma
1, Harpa 1, Sigríöur 1.
• Jonathan Edwards, bestur á meðal karla 1995.
Gwen Torrance best kvenna í frjálsum 1995.
Edwards og Torrance best í frjálsum íþróttum 1995
Breski þrístökkvarinn
Jonathan. Edwards og
bandaríska hlaupadrottn-
ingin Gwen Torrance voru
um helgina útnefnd frjáls-
íþróttamenn ársins fyrir
árið 1995.
Niðurstaðan kom ekki á
óvart því bæði hafa þau
náö frábærum árangri á
þessu ári. Edwards bætti
heimsmetið þrívegis í þrí-
stökki og Torrance hefur
verið svo til ósigrandi í
spretthlaupunum. Bæði
eru þau líkleg til mikilla
afreka á ólympíuleikunum
sem fram fara í Atlanta í
Bandaríkjunum á næsta
ári. -SK