Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1995, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1995
Fréttir
Lögreglumaðurinn sem slasaðist í „kókameftirförinni“ árið 1992:
Gefur milljon i liknar-
sjóð lögreglumanna
- fékk örorkubætur og gat því gefið peningana, segir Jóhannes Sturla Guðjónsson
„Félagar mínir í lögreglunni hafa
alla tíð staðið þétt að baki mér. Þeir
söfnuðu peningum til aö styrkja
mig eftir slysið, gáfu að auki hjálp-
artæki, sem kom mér að notum á
endurhæflngardeildinni, og styrktu
fjölskylduna. Mér fannst því eðlilegt
að ég gæfi eitthvað til baka úr því
að ég hafði efni á,“ segir Jóhannes
Sturla Guðjónsson, lögreglumaður-
inn sem slasaðist alvarlega í „kókaí-
neftirfórinni" sumarið 1992, í sam-
tali við DV.
Fyrir skömmu afhenti hann Líkn-
ar- og hjálparsjóði lögreglumanna
eina miUjón króna að gjöf með
þakklæti fyrir stuðninginn sem
hann fékk eftir slysið. Sjóðurinn
var stofnaður árið 1992 og styrkir
lögreglumenn sem lenda í slysum
eða veikindum og einnig ungmenni
sem þurfa á aðstoö að halda.
Slasaðist alvarlega
Kókaínmálið var mjög umtalað á
sínum tíma en Jóhannes slasaðist
mjög alvarlega þegar maður reyndi
að komast undan með kókaín í bíl
sínum. Barst eftirfórin upp í Mos-
fellsbæ þar sem sá sem eftirfórin
var veitt ók á ofsahraða aftan á lög-
reglubíl Jóhannesar. Áverkar Jó-
hannesar voru svo alvarlegir að
hann var frá vinnu að mestu í
Jóhannes Sturla Guðjónsson.
meira en þrjú ár.
Nú er Jóhannes kominn til starfa
á ný í umferðardeild lögreglunnar
og vinnur þar við skrifstofustörf.
Hann fékk fasta stöðu á ný nú þann
1. nóvember en hafði áður verið við
ígripavinnu á lögreglustöðinni.
Vegna örorku sinnar getur hann
ekki sinnt almennum lögreglustörf-
um.
Tapaði minni í tæpt ár
„Ég man nánast ekkert eftir mér
í nærri því heilt ár eftir slysið. Það
var ekki fyrr en eftir að ég útskrif-
aðist af endurhæfingardeildinni og
fór á Reykjalund að ég fór að muna
eitthvað," segir Jóhannes.
Hann segist vera betur á sig kom-
inn líkamlega en áður. Hann fer
allra sinna ferða í bíl og lamaðiét
ekki þrátt fyrir mikla áverka á
hálsi. „Ég hef æft mjög mikið og ðr
því stæltari en áður,“ segir Jóhann-
es.
„Ég fékk örorkubætur og gat því
endurgreitt stuðninginn. Ég var
metinn 75% öryrki. Sjóðurinn er
mjög þarfúr þannig að ég tel að pen-
ingarnir séu vel komnir þar. Þetta
er um það bil sú upphæð sem ég
fékk frá félögum mínum eftir slys-
ið,“ segir Jóhannes. -GK
Stuttar fréttir
Loksins síld
i nétina
DV, Aknreyri:
„Síldin kom upp á 60 faðma í
nótt en svo grunnt hefur hún
ekki verið lengi," sagði Þórður
Sigurðsson, stýrimaður á Þórs-
hamri frá Grindavik, í nótt.
Nótabátamir fengu loksins síld í
nótt austur af landinu eftir lang-
an tíma sem ekkert hefur geng-
ið.
Þórshamar hafði 300 tonn í
fjórum köstum, og Þórður vissi
um afla hjá fleirum, s.s. Húna-
röst og Gígju. Þá sagði hann að
sumir hefðu gripið til þess ráðs
að skipta nótinni út og taka troll
um borð og freista þess að ná
síldinni í trollið neðar en hægt
.er að koma nótinni. Þær veiðar
munu hafa skilað einhverju í
nótt einnig, -gk
Erna Arnardóttir:
Leitin árangurslaus
Leitin að Ernu Amardóttur,
sem fór að heiman frá sér að-
faranótt 6. desember, hefur enn
engan árangur boriö. Leitað var
i gær eins og síðustu daga en
ekkert kom fram sem skýrt gæti
afdrif hennar.
Leitin hefur einkum beinst að
Sundahöfn en hundur rakti spor
Ernu þangað. Leit verður haldið
áfram. -GK
Geysilega mikill reykur gerði slökkviliðsmönnum erfitt fyrir við slökkvistarf að bænum Grjótgarði í gærmorgun.
DV-mynd gk
Um 100 kindur brunnu inni
DV, Akureyri:
„Þetta er auðvitað tilfinnanlegt
tjón en það er of snemmt að vera að
ræða þetta nokkuð," sagði Sigríður
Þ. Mahon, húsfreyja að bænum
Grjótgarði í Glæsibæjarhreppi í
Eyjafirði, þar sem eldur kom upp í
hlöðu í gærmorgun.
Hlaðan var sambyggð fjósi og fjár-
húsi og var um gamlar byggingar að
ræða. í fjárhúsinu voru 100 kindur
sem allar brunnu inni, en 13 kúm og
7 kálfum, sem voru í fjósinu, tókst
að bjarga út. Telja má fullvíst að
byggingarnar séu ónýtar.
Eldsupptök eru ókunn. Þó sagði
Sigríður fullvíst að eldurinn hefði
ekki komið upp í heyinu í hlöðunni,
og bærust böndin því að rafmagni í
því sambandi. -gk
Ólöglegar aðgerðir á vinnumarkaði:
Verkalýösfélögin geta
ekki staðið fyrir þeim
- heldur yröu einstaklingar innan þeirra að skipuleggja þær
Nokkuð víst þykir að verkalýðsfé-
lögin sem höfnuðu því að draga
uppsögn kjarasamninganna til baka
muni tapa málinu fyrir félagsdómi.
Sigurður T. Sigurðsson, formaður
Verkamannafélagsins Hlífar í Hafn-
arfirði, hefur sagt opinberlega að
fari svo sé ekki um annað að ræða
en ólöglegar aðgerðir.
Menn eru nú ófáanlegir til að
ræða þetta mál undir nafni vegna
þess að verkalýðsfélögin eða stjóm-
armenn þeirra geta ekki staðið fyr-
ir ólöglegum aðgerðum. Ef þeir
gerðu það væri viðkomandi verka-
lýðsfélag ábyrgt og skaðabótaskylt.
Hins vegar ef einstaklingar skipu-
leggja aðgerðir er erfiðara að festa
hendur á því hverjir það eru, menn
geta alltaf sagst ekki hafa komið ná-
lægt neinu.
Þeir verkalýðsforingjar sem DV
ræddi við um þetta mál segja að það
muni reyna á innri styrk þeirra
verkalýðsfélaga sem reyna að fara
út í ólöglegar aðgerðir á vinnu-
markaði. Verkfallsvarsla gæti ekki
átt sér stað og því muni reyna mjög
á hvern einasta mann í félaginu.
Menn em flestir aö komast á þá
skoðun að þetta sé allt að veröa hið
erfiðasta mál að leysa ef foringjar
þeirra félaga sem neituðu að draga
uppsögn kjarasamninganna til baka
eiga að halda andlitinu, eins og sagt
er. Eins þykir víst að foringjar
vinnuveitenda vilji komast hjá
hvers konar ólöglegum aðgerðum,
ekki síst í ljósi þess sem gerst hefur
í Frakklandi undanfarið. Þar hefur
komið í ljós að ólögleg verkföll geta
borið árangur.
„Ég fæ ekki séð á þessari stundu
hvernig menn ætla að leysa þetta
mál þannig að allir komist frá því
með sæmilegri sæmd,“ sagði einn af
verkalýðsforingjunum í samtali við
DV í gær. -S.dór
Samningur um göng?
Lokasamningur um gerð
Hvalfiarðarganga verður undir-
ritaður öörum hvomm megin!
við áramót. Framkvæmdir hefj-
ast snemma á næsta ári og gert
er ráð fyrir að hægt verði að aka
um göngin eftir 3 ár. Sjónvarpið
greindi frá.
Vilja kaupa banka
Hópur fyrirtækja og fjárfesta
hefur í undirbúningi að kaupa
stóran hlut í Búnaðarbankan-
um. Skv. Viöskiptablaðinu er
um að ræða Olíufélagið, Sjóvá-
Almennar, VÍS, Samvinnulífeyr-
issjóðinn og Samvinnusjóðinn
auk þess sem rætt hefur verið
við Hagkaup og fleiri fyrirtæki.
Undirbúa skaðabótamál
Norrænu verktakamir, sem
buðu í gerð Hvalfjarðarganga
ásamt Hagvirki-Kletti, telja að
útboðsreglur hafi verið brotnar
og búa sig undir að höfða skaða-
bótamál. RÚV greindi frá.
Þjóðarvandi
Fíkniefnaneysla er einn helsti
heilbrigðisvandi þjóðarinnar.
Sjónvarpið hafði þetta eftir heil-
brigðisráðherra.
Brostnar forsendur
Taki Reykjavíkurborg ekki
þátt í rekstri Listaháskólans em
þær forsendur sem lágu að stofh-
un skólans brostnar. Sjónvarpið
hafði þetta eftir mennatamála-
ráðherra. Borgarstjóri segir það
hins vegar vera á verksviði rík-
isins að reka skóla á háskóla-
stigi.
Styðja uppsögn
Kjaramálanefnd lönnemasan'
bandsins styður þau verkalýðs
félög sem sagt hafa upp kjars
samningum.
Öil prestaköll auglýst
Safnaðarstjórnir verða fram-
vegis að auglýsa prestaköll laus
til umsóknar samkvæmt frum-
varpi sem kirkjumálaráðherra
kynnti í ríkisstjóm i gaer. Að-
eins verður heimilt að kaUa
prest til starfa ef auglýsing ber
ekki árangur. Sjónvarpið
greindi frá.
Reka lifeynssjoðí saman
■ ASI og VSI hafa gert með sér \
nýjan kjarasamning um lífeyris-!
mál. Skv. Sjónvarpinu eru aðUar I
sammála um að halda áfram að :
reka saman lífeyrissjóöi á
grundvelli skyldutryggingar
með víðtækri samtryggingu og
sjóðssöfnun. .^aa