Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1995, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1995, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1995 Fréttir Smuguveiðarnar mjög svipaðar og á siðasta ári: Fimm skip með yfir 1000 tonn í einni veiðiferð - heildaraflaverðmæti úr Smugunni á fjórða milljarð króna DV, Akureyri: Landanir íslenskra skipa, annarra en svokallaðra hentifánaskipa, úr Smugunni eru orðnar um 33.500 tonn á árinu sem er mjög svipað og kom á land þaðan allt síðasta ár en þá var aflinn 35 þúsund tonn. Fjölmörg skip víðs vegar af landinu hafa stundað þessar veiðar en nokkur þeirra hafa einungis farið eina veiðiferð og sum þeirra þá aflað geysilega vel. Alls hafa fimm skip komið með yfir 1000 tonna afla úr veiðiferð og mesti aflinn í einni veiðiferð er 1.301 tonn sem Akureyrin kom með í síð- asta mánuði og var aflaverðmæti um 120 milljónir króna. Miðað er við ó- slægðan afla en fullvíst má telja að heildaraflaverðmæti Smuguveið- anna sé á fjórða milljarð króna. Akureyrin hefur farið tvær ferðir í Smuguna á árinu og aflað samtals 2.254 tonna. Önnur skip, sem hafa fengið yfír 1000 tonn í veiðiferð, eru Málmey SK, Freri RE, Haraldur Kristjánsson HF og Rán hf. Segja má að Smuguveiðunum sé lokið á þessu ári, Sléttanes ÍS, sem hefur landað 1.817 tonna þaðan á árinu, er þó í Smugunni og má telja líklegt að skip- ið nái meiri heildarveiði en Akureyr- in þegar upp verður staðið, en úr þremur veiðiferðum. Þorskveiðin í Smugunni ber ægis- hjálm yfir aðrar úthafsveiðar ís- lenskra skipa og er sem fyrr sagði um 33.500 tonn. Af úthafskarfa hafa veiðst 8 þúsund tonn, um 1.300 tonn af rækju en sáralítið af öðrum teg- undum. -gk Akureyrin EA er með mestan afla íslenskra skipa úr Smugunni það sem af er árinu. Myndin er tekin þegar skipið kom úr lengingu og endurbótum fyrr á þessu ári. DV-mynd Gylfi Úthafskarfaveiði 1995 - afmhæstu skipin - Fýlgir jólatré frá Noregi Um næstu helgi verða sett upp voru höggvin í skógi við Fredrik- á Flateyri tvö jólatré sem skógar- stað og fylgir blaðamaður staðar- bændur í Noregi hafa gefið. Trén blaðsins sendingunni. -GK Dagfari Það fer að verða spurning hvers virði þessar háskólagráður eru sem langskólagengnir eru að veifa framan í ómenntaðan almúgann. Nú er nefnilega komið á daginn að innan Háskóla íslands taka menn próf án þess að mæta í próf og þeir sem á annað borð mæta í prófin láta sér nægja að skrifa svörin eft- ir þeim fáu sem hafa lagt það á sig að lesa sér til í fræðunum. Þetta ku ekki síst viðgangast í viðskipta- fræðideildinni sem er kannski skiljanlegt með tilliti til þess að í viðskiptum eru menn oft ekki allir þar sem þeir eru séðir. Því er það ekki að furða þó nemendur hafi ekki einu sinni sést í prófunum sem þeir tóku í deildinni. Ingjaldur Hannibalsson, formaður viðskipta- skorar, telur hins vegar í viötali við DV að þeir sem mæti i próf en skrifi svörin eftir öðrum hljóti að vera jafnaðarmenn. Hér sé meiri jafnaðarmennska en í Ameríku þar sem fyrirmyndarnemendur leggja hönd yfir prófverkefnin svo að slóðarnir geti ekki kíkt. Hér séu þeir taldir óalmennilegir sem vilja ekki hjálpa náunganum og sýna jafnaðarmennsku. Amerískir við- skiptafræðinemar hafa hins vegar tileinkað sér samkeppnishugsun- ina og sýna enga hjálpsemi eða jafnaðarmennsku. En eins og al- þjóð veit hefur það jafnan verið aö- alsmerki jafnaðarmanna hér á landi að rétta flokksbróður hjálpar- hönd og aðstoða hann við að kom- ast í þægilegt gæti á kostnað ríkis- ins hvenær sem tækifæri gefst. Þá hefur það komið í ljós þarna í viðskiptadeild Háskólans að kenn- arar eru helteknir af þessari jafn- aðarmennsku nemenda og segja ekkert óeðlilegt við það að nemend- ur séu að kíkja á blöðin hver hjá öðrum meðan á prófum stendur. Menn eigi að vinna saman að lausn verkefna í stað þess að kúldrast hver í sínu horni og falla svo á prófunum. Hins vegar sé það held- ur lakara þegar nemendur eru að taka próf fyrir hvern annan og menn sem liggja heima í sófa standist próf með glans sem þeir mættu aldrei í. En í viðskiptafræð- inni er fleira sem ekki þótti góð lat- ína í MR meðan Guðni réð þar rikj- um heldur en það að nemendur kíkja á úrlausnir hvers annars eða láta aðra taka próf fyrir sig. Upp hefur komist að kennurum stendur ógn af því stússi að semja ný próf á hverju ári. Þess vegna hafa þeir til hægðarauka notað sömu prófin ár eftir ár. Glöggir nemendur og til- vonandi stórforstjórar voru ekki lengi að átta sig á þessu. Þeir skoða einfaldlega krossaprófin frá því í fyrra og skrifa hjá sér rétt svör. Með þetta upp á vasann koma þeir svo galvaskir í prófin og endurrita gömlu krossaprófin. Það eru bara trassamir sem ekki hafa fattað þessa vinnuhagræðingu og eru því að burðast við að svindla með því að kíkja á blöðin hjá þeim sem hafa viðskiptavitið í lagi. Nemendur Iðnskólans hafa ekki yfir að ráða sömu akademisku prófgáfunni og háskólastúdentar. Þeir hafa ekki mátt taka prófin í sameiningu heldur orðið að leysa þær þrautir hver í sinu lagi með misjöfnum árangri eins og gengur. Þá hafa iðnnemar ekki komist upp með að láta aðra mæta fyrir sig í skólann og því umsvifalaust skrif- að skróp hjá þeim sem ekki nenna í tíma. Allt hefur þetta verið fært inn á tölvur Iðnskólans og um stund sáu nemendur fátt til bjargar sínum sóma. En iðnaðarmenn deyja sjaldnast ráðalausir eins og alþjóð veit og það læra þeir snemma á lífsleiðinni. Þeir sem voru með lélegar einkunnir og slæmar mætingar brutust einfald- lega inn í tölvukerfið og hækkuðu einkunnir og strikuðu út skrópin. Þessu vill skólameistari ekki una og hótar hörðu. Það bendir til að hann sé ekki jafnaðarmaður og er illt til afspurnar. Þetta dæmi sýnir enn einu sinni að iðnmenntun er ekki metin til jafns við háskóla- göngu og greinilegá tímabært að stofna Hollvinafélag Iðnskólans. Dagfari Heildverslunih BJARKEY S: 567 4151 V—X Smoby húsið er fallegt en þú ættir að sjá eldhúsin, þvottavélina og VÖNpUp ElKFÖNG GeRA grænmetismarkaðinn. GÆFUMLJNI N

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.