Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1995, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1995, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1995 Fréttir Regin Grímsson skipasmiður gæti hugsað sér að flytja með fjölskylduna til Trinidad: Maður yngist upp með svona mörg börn - verðmæti framléiðslu á íslenskum bátum í Kanada mun nema hátt í milljarð „Þegar maður er með svona mörg börn yngist maður upp. Fjölskyldan hefur gert það að verkum að ég hafði þrautseigju til að ganga í gegnum mín umfsvif í Kanada og Trinidad og nú er ég að uppskera gríðarlega mikið. Þetta varð mjög hvetjandi að láta þetta takast. Vissulega hefur þetta verið viss línudans í fjármálum og án allrar aðstoðar. Ég hef gert þetta algjör- lega sjálfur," sagði Regin Grímsson, sjö barna faðir, sem er að gera það gott í Kanada því íslensk smábáta- hönnun hans, hraðskreiðir hand- færabátar, er nánast að slá í gegn ytra. Hann hefur nú fengið pantanir á um 70 smábátum sem seldir eru á 10 milljónir hver. Fleira er í pottin- um og því er ljóst að hann mun að líkindum velta hátt i einum mOlj- arði krcna við framleiðslu sína í Kanada á næstu misserum. Þrátt fyrir umsvifin erlendis býr Regin í Hafnarfirði með fjölskyldu sinni - eiginkonunni Ellen Björns- dóttur, fimm dætrum þeirra og ný- fæddum syni. Regin á einnig upp- kominn son frá fyrra hjónabandi. „Ég byrjaði á að ráða ritara og svo karla til að vinna fyrir mig, suma góða, aðra afleita og svo fram- vegis,“ sagði Regin. „Þetta hefur tekið á og stundum var eins og allt snerist á móti mér. En nú er kannski tími til kominn að ég ráði mér framkvæmdastjóra til að ég geti sjálfur verið með fjölskyldunni - hvort sem það verður hér eða ann- ars staðar. Fjölskyldan sér fram á að hagur vænkist og það verði jafn- vel hægt að búa á sama stað og at- vinnureksturinn er. Grundvöllur- inn er nú fyrir hendi. Þetta er rosa- lega spennandi. Því meira sem maður kynnist öðrum þjóðum því meiri íslending- ur verður maður. En ef það er ekki pláss fyrir mann með sína kunnáttu Regin með dætur sínar fimm og hinn nýfædda son, Davíð. Frá vinstri: Dagbjört, 17 ára, Sólrún, 12 ára, feðgarnir, Asa, 10 ára, og Sara, 20 ára, með Gabríelu, sem er tveggja ára. DV-mynd Sveinn hér verður að fara annað með fram- leiðsluna. Hins vegar er kannski hægt að stýra framkvæmdum héðan með háþróaðri samskiptatækni. Síð- an munu Flugleiðir hefja ílug til Halifax á næsta vori. Þá verða ekki nema 4 tímar á milli í stað 2 daga núna því þegar ég fer til Kanada þarf jafnvel að fjúga um London eða New York. Með beina fluginu verð- ur hægt að skreppa heim um helg- ar.“ Hvað varðar umsvif í Trinidad, þar sem áform eru um að gera út a.m.k. tíu íslenska smábáta, sagði Regin að hann gæti jafnvel hugsað sér að flytja þangað með fjölskyldu sina. „Þvi ekki það. Þar er afslappað samfélag. Þetta gæti kannski gerst á 2-3 árum að fara þangað með börn- in,“ sagði Regin Grímsson. Fjárlagafrumvarpið: Dýru páfagaukarnir komnir í leitirnar: Lokaafgreiðslan að hefjast á Alþingi Önnur umræða um fjárlagafr- umvarpið hefst á Alþingi í dag eða á morgun, fimmtudag. Þessi umræða átti að fara fram 5. des- ember en fjárlaganefnd var þá ekki tilbúin með niðurskurðartil- lögur sínar í heilbrigðiskerfinu og „bandormsfrumvarpið" var held- ur ekki tilbúið þá. Þaö var sam- dóma álit þingmanna sem DV hef- ur rætt viö að ekki sé búist við miklum átökum við afgreiðslu fjárlagafrumvarpsins að þessu sinni. „Önnur umræöa um frumvarp- ið er nú á svipuðum tíma og vana- lega og ég held að það hafi verið mikil bjartsýnisáætlun að halda að umræðan gæti farið fram 5. desember eins og gert var ráð fyr- ir í starfsáætlun þingsins,“ sagði Jón Kristjánsson, formaður fjár- laganefndar. Hann sagöi að það væru erfið- leikar við að ná endum saman í heilbrigðiskerfinu vegna þess hve mikill niðurskurður verður þar. Hann sagði að enn hefði ekki tek- ist að leysa hina miklu fjárþörf ríkissjjítalanna. „Þar er um hundruð milljóna að ræða og menn eiga eftir að krækja saman endum þar. Eins þarf að skoða niðurskurðarliðina upp á nýtt þar sem hætt var við að taka upp innritunargjald á sjúkrahúsin. Gert var ráð fyrir að það skilaði 80 milljónum króna. Þessi mál veröa ekki tilbúin við 2. umræðu um fjárlögin, því miður, en koma inn við 3. umræðu," sagði Jón Kristjánsson. Savar Gestsson, formaður þing- flokks Alþýðubandalagsins, sagði í samtali við DV að það væru eng- in stór átakamál í gangi. Þó væri Ijóst að sfjórnarandstaðan vildi að ekki yrði hætt að tekjutengja tryggingabætur og að ekki yrði farið út í að skeröa bætur tO þolenda afbrota eins og nú er gert ráð fyrir. Sömuleiðis er andstaða gegn afnámi feðra- og mæðra- launa. -S.dór Sömdum um skilin gegn því að segja ekki frá - segir Jón Ólafsson, annar eigandi fuglanna „Við vitum hverjir það voru sem tóku páfagaukana en sömd- um um að segja ekki til þeirra gegn því að fá fuglana aftur heila á húfi,“ segir Jón Ólafs- son, annar eigandi Gæludýra- hússins, en um helgina var það- an stolið tveimur verðmætum páfagaukum af tegundinni Alba Cockatoo. Páfagaukarnir eru nú komn- ir í leitirnar. Þeim var skilað samkvæmt samningi í öskutunnugeymslu hér í borg- inni. Samkomulag varð um að engin eftirmál yrðu vegna ráns- ins á fuglunum. „Þeir voru illa haldnir þegar við náðum í þá í öskutunnu- geymsluna. Þeir voru slæptir og þreyttir og höfðu greinilega ekki fengið of mikið að éta. Þetta eru matvandir fuglar,“ segir Jón. Hann sagði að páfagaukar af þessari ætt væru með afbrigðum langræknir og hefnigjarnir. Því væri líklegt að þjófarnir fengju að finna illa fyrir goggum þeirra ef til endurfunda kæmi. Alba Cockatooar Jón Ólafsson með páfagaukana sem nú eru komnir í leitirnar, þreyttir og slæptir. DV-mynd GS eru taldir hafa 700 kílóa bitkraft. Jón sagði að fuglarnir yrðu að- eins í versluninni fram til jóla en þá annaðhvort sendir úr landi að nýju eða teknir í heimahús. Hann taldi að frásagnir fjölmiðla af ráninu hefðu ráðið úrslitum um að engin leið var að selja fuglana á svörtum markaði hér og því ekkert annað að gera en að skila þeim. -GK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.