Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1995, Page 34
58
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1995
Afmæli
Gunnar Bjarnason
Gunnar Bjarnason ráðunautur,
Dalbraut 27, Reykjavík, er áttræð-
ur í dag.
Starfsferill
Gunnar fæddist á Húsavík.
Hann lauk gagnfræðaprófi frá MA
1933, búfræðiprófi frá Hvanneyri
1936, B.Sc.-prófi frá Den kongelige
Veterinær- og Landbohojskole
1939, var í starfsþjálfun við
hrossadóma og kynbótaskipulag á
Norðurlöndum 1939, sótti nám-
skeið í Sviss hjá OECD í kennslu-
tækni og kynbótafræði 1962 og
stundaði nám í alifugla- og svina-
rækt við Búnaðarháskólann i
Kaupmannhöfn 1962-63.
Gunnar var ráðunautur Búnað-
arfélags íslands í hrossarækt og
hestaverslun 1940-61, í alifugla- og
svínarækt 1963-78 og í hestaút-
flutningi hjá landbúnaðarráðu-
neytinu og Búnaðarfélagi íslands
1965-87, hafði yfirumsjón með fóð-
urbirgðafélögum landsins 1942-47,
forstöðumaður Fóðureftirlits rík-
isins 1973-80, var kennari við
Bændaskólann á Hvanneyri
1944-45, 1947-61 og 1963-72, og
skólastjóri Bændaskólans á Hól-
um 1961-62.
Gunnar sat í tilraunaráði bú-
fjárræktar Atvinnudeildar HÍ
1946-55, var upphafsmaður að
hönnun járnristaflóra á Hvann-
eyri 1955 er olli byltingu í fjósa-
gerð erlendis, stofnaði fyrsta
tamninga- og reiðskóla hérlendis
á Hvanneyri 1951, einn stofnenda
Landssambands hestamannafélaga
1949, vann að stofnun hrossarækt-
arsambanda 1949-56, stofnaði
Intemational Pony-Breeders
Federation í Köln 1951 og
Deutscher Pony Klub í Bonn 1958,
(seinna Deutsche Islanpferde
Zuchter-und Besitzervereinigung),
stofnaði Föderation Europas-
ischer Islandpferd-Freunde 1969,
sat í flokksráði og skipulagsnefnd
Sjálfstæðisflokksins um árabil og
formaður landbúnaðarnefndar til
1978 og i framboði fyrir flokkinn.
Bækur Gunnars: Á fáki (með
Boga Eggertssyni), kennslubók í
tamningum og hestamennsku
1953; Búfjárfræði, kennslubók
1966; Ættbók og saga íslenska
hestsins á 20. öld, I - VII. bindi,
1968-91, og Líkaböng hringir,
ádeilurit 1982. Út var að koma
ævisaga Gunnars, Kóngur um
stund, eftir Örnólf Árnason.
Gunnar er heiðursfélagi Félags
tamningamanna; Landssambands
hestamannafélaga; hestamannafé-
laganna Faxa í Borgarnesi, Grana
á Hvanneyri, Fáks í Reykjavík,
Deutscher Pony-Klub í Bonn;
landssambands Þýskalands um ís-
lenska hestinn, Austurríkis og
Kanada, fyrsti heiðursforseti Al-
þjóðasamtaka um íslenska hest-
inn og var sæmdur riddarakrossi
íslensku fálkaorðunnar 1980.
Fjölskylda
Gunnar kvæntist 5.8. 1938,
Svövu Halldórsdóttur, f. 8.6. 1916,
d. 26.9. 1988, húsmóður. Foreldrar
Svövu voru Halldór Vilhjálmsson,
skólastjóri á Hvanneyri, og k.h.,
Svava Þórhallsdóttir húsmóðir.
Gunnar og Svava skildu 1962.
Synir Gunnars og Svövu eru
Halldór, f. 14.1. 1941, prestur í
Holti undir Eyjafjöllum, kvæntur
Margréti Kjerúlf; Bjarni, f. 25.7.
1948, verkfræðingur og meðeig-
andi verkfræðiskrifstofunnar Hnit
í Reykjavík, kvæntur Guðrúnu
Helgu Kristinsdóttur.
Gunnar kvæntist, 14.2. 1963,
Guðbjörgu Jónu Ragnarsdóttur, f.
3.2. 1930, húsmóður. Hún er dóttir
Ragnars Guðmundssonar, stór-
kaupmanns í Reykjavík, og k.h.,
Regínu Magnúsdóttur. Gunnar og
Guðbjörg skildu.
Börn Gunnars og Guðbjargar
eru Gunnar Ásgeir, f. 3.5.1964,
svínab. á Hýrumel i Hálsasveit,
kvæntur Ingibjörgu Konráðsdótt-
ur kennara; Regína Sólveig, f. 1.7.
1969, háskólanemi.
Systkini Gunnars: Ásgeir, f.
10.6. 1910, d. 1978, sparisjóðsstjóri;
Ragnheiður, f. 20.12. 1912, hús-
móðir; Stefán, f. 5.7. 1914, d. 1982,
verkfræðingur; Vernharður, f.
16.6. 1917, verslunarmaður;
Regína, f. 16.9. 1918, d. 1994, hús-
móðir; Kristín, f. 6.9. 1920, d. 1995,
húsmóðir; Ásta, f. 16.2. 1922, hús-
móðir; Bryndís, f. 1.10.1923, hús-
Gunnar Bjarnason.
móðir; Þórdís, f. 23.4. 1925, hús-
móðir; Hansína Margrét, f. 13.7.
1926, húsmóðir; Rannveig Kar-
ólína, f. 2.6. 1928, húsmóðir; Bald-
ur, f. 27.3. 1932, útvarpsvirki. Fóst-
ursystir Gunnars er Þóra Ása
Guðjohnsen, f. 17.3. 1930, húsmóð-
ir.
Foreldrar Gunnars voru Bjarni
Benediktssoh, f. 27.9. 1877, d. 25.6.
1964, kaupmaður og útgerðarmað-
ur á Húsavík, og k.h., Þórdís Ás-
geirsdóttir, f. 30.6. 1889, d. 23.4.
1965, hótelstjóri og bóndi.
Gunnar heldur upp á daginn
með fjölskyldunni.
Eyvindur Pétur Eiríksson
Eyvindur Pétur Eiríksson rit-
höfundur, Holtagerði 43, Kópa-
vogi, er sextugur í dag.
Starfsferill
Eyvindur fæddist í Hnífsdal en
ólst upp í Hornvík og Hlöðuvík á
Homströndum. Hann hóf reglu-
bundna skólagöngu á ísafirði við
tólf ára aldur, lauk stúdentsprófi
frá MA 1955, stundaði nám í
læknisfræði við HÍ í eitt ár, lauk
BA-prófum í dönsku og ensku og
mennsku, smíðar og skrifstofu-
störf, stundaði kennslu við gagn-
fræðaskóla á ísafirði og í Reykja-
vík 1961-72, var stundakennari
við KÍ, Tækniskóla íslands og
kvöldskóla 1972-79, við HÍ 1977-79,
íslenskukennari við MK og lektor
við Helsingforsháskóla 1979-80 og
við Kaupmannahafnarháskóla
1980-86 en hefur síðan einkum
stundað ritstörf auk kennslu öðru
hvoru við MÍ 1987, KHÍ 1991-93 og
FVÍ frá 1995. Þá hefur hann kennt
prófi í uppeldis- og kennslufræði við HÍ og síðar BA-prófi í is- lensku og málvísindum og cand. mag.-prófi í íslenskri málfræði frá HÍ. Þá hefur hann sótt nokkur námskeið, m.a. í finnsku og rúss- nesku. Á sumrin og eftir stúdentspróf var Eyvindur m.a, við sjó- á íslenskunámskeiðum fyrir út- lendinga, m.a. við HÍ og á vegum Norræna hússins. Eyvindur hefur gegnt ýmsum félagsstörfum, sat í stjóm Æsku- lýðsfylkingarinnar og Félags rót- tækra stúdenta á námsárunum og er nú í stjórn Ásatrúarfélagsins. Ritverk Eyvindar: Hvenær, ljóð
Tll hamingju með afmælið 13. desember
90 ára Knstjan Magnusson, Gautsdal, Reykhólahreppi.
Þóra Sigurðardóttir, Urriðaá, Ytri-Torfustaðahreppi.
50 ára
Bára Gísladóttir, Fornuströnd 14, Seltjamarnesi. Guðmundur Bjömsson, Langholti 5, Keflavík. Guðrún Hanna Guðmundsdóttir, Teigaseli 7, Reykjavík. Hún er að heiman. Arnór Þórhallsson, Reynihlíð 5, Reykjavík. Þorbjörg Þórðardóttir,
85 ára
Elín A.R. Jónsdóttir, Einholti 9, Reykjavík.
80 ára
Björn Gunnlaugsson, Brimnesbraut 39, Dalvík.
75 ára Hrísateigi 43, Reykjavík. Óli G. Jóhannsson,
Björn Ásgrímsson, Suðurgötu 14, Sauðárkróki. Guðbjörg Jóna Guðmundsdótt- ir, Lönguhlíð 3, Reykjavík. Aðalsteinn Þórðarson, Gunnarssundi 9, Hafnarfirði. Múlasíðu 1 A, Akureyri. Brandur Sveinsson, Viðarási 97, Reykjavík. Kristín Guðmundsdóttir, Sunnubraut 8, Gerðahreppi. 40 ára
Helga Ragnheiður Jónsdóttir, Árkvörn, 2B, Reykjavík. Tómas Magni Bragason,
70 ára
Guðný Laxdal, Drápuhlíð 35, Reykjavík. Ingibjörg Þorsteinsdóttir, Stangarholti 9, Reykjavík. Guðjón Högni Pálsson, Bræðraborgarstíg 19, Reykjavík. Jón Jakob Friðbjörnsson, Fjólugötu 6, Akureyri. Skúlagötu 11, Stykkishólmi. Gisli Grétar Sigurðsson, Heiðarhrauni 52, Grindavik. Sigurborg Matthíasdóttir, Mjóuhlíð 12, Reykjavík. Þorleifur Jóhannesson, Hverabakka . II, Hrunamanna- hreppi. Ingólfur Ingólfsson,
60 ára Einigrund 17, Akranesi. Sigurjóna Matthíasdóttir, Breiðabólstað, Skaftárhreppi.
Ragnar Lárusson, Vesturbergi 102, Reykjavík.
1974; Hvaðan - þaðan, ljóð, 1978;
Sér er nú hver, verðlaunaþáttur
MFA, 1983; Messi, lesfluttur leik-
þáttur í Jónshúsi, 1985; Ronni,
skáldsaga, lesin í útvarp, 1987; P-
Árbók, ljóð og laust mál, 1988;
Múkkinn, skáldsaga, 1988; Viltu,
Ijóð, 1989; Árin sýna enga mis-
kunn, Ijóðaþýðingar úr finnsku,
1993; Kolskeggi, barnasaga í út-
varp, 1992; Á háskaslóðum, ung-
lingasaga, 1993; Meðan skútan
skríður, unglingasaga, 1995; Bát-
ur, útvarpsleikrit, 1995. Þá hefur
hann þýtt tvær unglingasögur og
eina skáldsögu auk þess sem
hann á leikverk, sögur og ljóð í
handritum.
Fjölskylda
Eyvindur kvæntist 13.7. 1961
Margréti P. Guðmundsdóttur, f.
6.2. 1940, sérkennara. Hún er dótt-
ir Guðmundar B. Magnússonar,
sem nú er látinn, leigubílstjóra í
Reykjavík, og Svövu Bernharðs-
dóttur húsmóður.
Börn Eyvindar og Margrétar
eru Eiríkur Guðmundur, f. 31.10.
1961, viðskiptalögfræðingur í
Kaupmannahöfn, en kona hans er
Harpa Birgisdöttir og er dóttir
þeirra Sóley Freyja; Rósa, f. 1.7.
1967, framkvæmdastjóri í Reykja-
vík, en maður hennar er Hrannar
B. Arnarsson og er dóttir þeirra
Særós Mist; Eyjólfur Bergur, f.
22.9. 1975, háskólanemi í Noregi;
Erpur Þórólfur, f. 29.8= 1977,
menntaskólanemi.
Systkini Eyvindar: Guðný
Anna, f. 1.1. 1938, dó þriggja mán-
aða; Guðjón, f. 26.6. 1939, bifvéla-
meistari í Reykjavík.
Foreldrar Eyvindar: Eirikur A.
Guðjónsson, f. 25.11. 1908, bóndi,
Eyvindur Pétur Eiríksson.
sjómaður og verkamaður, nú á
dvalarheimilinu Hlíf á Isafirði, og
Gunnvör Rósa Samúelsdóttir, f.
15.7. 1905, d. 2.5. 1967, húsmóðir.
Eyvindur er að heiman á af-
mælisdaginn.
Gísli S. Einarsson
Gísli Sveinbjörn Einarsson al-
þingismaður, Esjubraut 27, Akra-
nesi, varð fimmtugur í gær.
Starfsferill
Gisli fæddist í Súðavík. Hann
lauk gagnfræðaprófl frá Gagn-
fræðaskóla Akraness 1962, er vél-
virki frá Iðnskólanum á Akranesi
1968, vélstjóri frá Fjölbrautaskól-
anum á Akranesi 1982 og sótti
verkstjóranámskeið hjá Verk-
stjórnarfræðslunni 1979 og 1982.
Gísli var verkamaður hjá Sem-
entsverksmiðju ríkisins 1963,
nemi á vélaverkstæði 1964-68, var
vélvirki á Akranesi 1969-77, vél-
virki hjá Álborg Portland 1977-78
og verkstjóri hjá Sementsverk-
smiðjunni frá 1979.
Gísli var aðaltrúnaðarmaður í
Sementsverksmiðju ríkisins
1974-76, sat í stjórn Sveinafélags
málmiðnaðarmanna á Akranesi
1974-76, er formaður Golfklúbbs-
ins Leynis á Akranesi frá 1989,
bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins á
Akranesi frá 1986, formaður bæj-
arráðs Akraness frá 1990, forseti
bæjarstjórnar frá 1991, sat í fjölda
nefnda og stjórna á vegum Akra-
nessbæjar, í flokksstjórn Alþýðu-
flokksins frá 1987, formaður kjör-
dæmisráðs Alþýðuflokksins frá
1989, varð varaþingmaður 1991
fyrir Vesturlandskjördæmi og er
þingmaður þar frá 1993.
Fjölskylda
Gísli kvæntist 12.12. 1964 Ólöfu
Eddu Guðmundsdóttur, f. 9.7.1946,
húsmóður. Hún er dóttir Guð-
mundar Jónssonar, fyrrv. verk-
stjóra, og Ólafar Egggertsdóttur
húsmóður.
Börn Gísla og Eddu eru Einar
Kristinn, f. 18.5.1964, vélvirki;
Ólafur Þór, f. 21.12. 1965, sölumað-
ur og vélvirki; Erla Björk, f. 1.11.
1983, nemi.
Systkini Gísla: Kristín Sesselja,
f. 28.11. 1943, fulltrúi; Rögnvaldur,
f. 27.2. 1947, kennari; Elísabet
Halldóra, f. 15.9. 1951, skólaritari;
Droplaug, f. 1.10. 1954, banka-
starfsmaður; Rósa, f. 22.5. 1956,
Gísli S. Einarsson.
kennari.
Foreldrar Gísla: Einar Kristin
Gíslason, f. 19.2. 1921, d. 1.10. 1979,
skipstjóri, og Elísabet Svein-
björnsdóttir, f. 5.10. 1917, d. 24.1.
1995, ljósmóðir.
Gísli og Edda eru að heiman á
afmælisdaginn.
903 • 5670 ••
Aðeins 25 kr. mínútan. Sama verð fyrir alla landsmenn.