Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1995, Page 40

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1995, Page 40
.Æ 'Ci FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. ■Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER Frjálst,óháð dagblað MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1995 Kjaradeilan: Vinnuveit- endasam- Jbandiö opnar sáttaleið Vinnuveitendasamband íslands opnaði í gær sáttaleið í þeirri deilu sem nú er uppi við stóru verkalýðs- félögin sem neita að draga uppsögn kjarasamninganna til baka. Þetta var gert með því að fram- kvæmdastjórn sambandsins sam- þykkti að mæla með því við aðildar- fyrirtæki VSÍ að þau greiddu félags- mönnum þeirra félaga sem höfnuðu samkomulagi um hækkun desemb- eruppbóta óskerta uppbót nú í des- ember. Samkvæmt heimildum DV mátu vinnuveitendur stöðuna þannig að —Tff Félagsdómur dæmdi uppsögn kjarasamninganna ólöglega aðgerð væri falin mikil sprengihætta í stöð- unni og sárindi hjá því fólki sem ekki fengi desemberbæturnar. Þór- arinn V. Þórarinsson, framkvæmda- stjóri VSÍ, var spurður hvort það væri ekki rétt að VSÍ væri með þessu að koma í veg fyrir að allt færi í bál og brand. „Að hluta til erum við að horfa til þess. I ljósi þess að yfirgnæfandi meirihluti félaga ASÍ féllst á mat launanefndar að forsendurnar hafi „ ^taðist og að niðurstaða Félagsdóms J^erði með sama hætti, teljum við að ' það séu engin skynsamleg rök, frá sjónarmiði félagsmanna okkar og -félagsmanna þessa hluta stéttarfé- laga, aö þeir njóti ekki þessara greiðslna líka. Þær hefðu ekki kom- ið sjálfkrafa, jafnvel þótt Félagsdóm- ur hefði úrskurðað að samningarnir væru bundnir," sagði Þórarinn Við- ar. -S.dór Suðurnes: Enn finnast reykblys DV, Suðurnesjum: Enn eru að finnast stórhættuleg reykblys á Suðurnesjum. Karlmað- ur hafði samband við lögregluna í Keflavík eftir að hann hafði lesið í mánudagsblaði DV frétt um stór- hættuleg reykblys sem fundust ná- lægt Saltverksmiðjunni. Hann sagði lögreglumönnunum frá því að hann hefði fundið mörg reykblys á leiðinni frá Höskuldar- völlum í átt að Djúpavatni í landi Grindavíkur. Þau hafa nú verið tek- in úr umferð en að sögn sprengju- sérfræðinga geta þessi reykblys valdið miklum skaða komist þau í hendur fólks sem ekki kann með ~15au að fara. Sum þeirra er enn virk. ÆMK L O K I Verkalýðsfélagið með starfsmenn Hvammstangahrepps í „gíslingu“: Þetta eitrar allt og vinnufriöurinn enginn - segir Guðrún Bjarnadóttir leikskólastjóri „Verkalýðsfélagið hefur ekki staðið sig og samningar eru enn lausir fyrir starfsmenn hreppsins. Við skiljum ekki hvers vegna við megum ekki fá Félagi opinberra starsmanna samningsumboðið. Verkalýðsfélagið hefur gengið svo langt að hóta því að sjá til þess að okkur yrði sagt upp. Þetta eru óþolandi vinnubrögð. Okkur er í raun haldið í gíslingu, þetta eitrar allt og vinnufriðurinn er enginn," segir Guðrún Bjarnadóttir, leik- skólastjóri á Hvammstanga. Veruleg óánægja er meðal starfsmanna Hvammstangahrepps vegna þess að þeir eru skikkaðir til að borga tO verkalýðfélagsins Hvatar án þess þó að eiga aðild að því. Alls 15 starfsmenn hreppsins eru nú félagsmenn í Félag opin- berra starfsmanna í Húnavatns- sýslu (FOSHÚN) en þrátt fyrir ít- rekuð tilmæli starfsfólksins hefur hreppurinn neitað að greiða fé- lagsgjöld þangað. Þess í stað er lögbundnum félagsgjöldum skilað tO verkalýðsfélagsins Hvatar und- ir heitinu „vinnuréttindagjald". Af hálfu hreppsins hefur verið borið við að hann sé skuldbund- inn verkalýðsfélaginu um að láta félagsmenn þess njóta forgangs í störf. Verkalýðsfélagið hefur ekki viljað rifta samningsumboði sínu við hreppinn vegna þeirra fjár- muna sem í húfi eru. Ekki einu sinni þeir starfsmenn hreppsins sem annars staðar á landinu eru innan vébanda BSRB hafa losnað undan gjaldtöku verkalýðsfélagsins. Þetta á meðal annars við leikskólakennara á leikskólanum. Fyrir aðflutta starfsmenn hefur þetta meðal ann- ars haft í för með sér tiifærslu mOli lífeyrissjóða með tilheyrandi réttindamissi. Að sögn Guðmundar Guð- mundssonar, sveitarstjóra á Hvammstanga, mun sveitarstjórn- in ekki semja við FOSHÚN vegna starfsmanna hreppsins meðan samningsumboðið er í höndum verkalýðsfélagsins Hvatar. Að- spurður segir hann engin áform uppi um uppsögn á samninginum við Hvöt. Þá hafi sveitarstjórnin í umfjöOun sinni um þessi mál látið bóka að ekki komi til greina að starfsmennirnir fari í Lífeyrissjóð opinberra starsmanna. „Slíkt myndi kaOa á stighækk- andi fjárskuldbindingar sem sveit- arstjórn telur að hreppurinn hafi ekki ráð á,“ segir Guðmundur. -kaa Stekkjarstaur var sem endranær fyrstur jólasveinanna að koma til byggða, börnum á öllum aldri til ómældrar ánægju. Þjóðminjasafnlð heldur þeim góða sið að taka vel á móti þessum fornu vinum okkar með aðstoð æskunnar sem erfir landið. Þótt ófrýnilegur sé hann, staurinn sá, þá átti. hann ekki í erfiðleikum með að ná til saklausrar barnssálarinnar. DV-mynd GS Skurðaðgerö á Hrafnhildi Thoroddsen hófst í morgun: Móðirin vinnur sjálf við upp- skurð dótturinnar „Ég verð sjálf að vinna við upp- skurðinn sem hjúkrunarkona. Það er mitt starf á Landspítalanum," segir Auður Guðjónsdóttir, skurð- hjúkrunarfræðingur og móðir Hrafnhildar Thoroddsen, stúlkunn- ar sem lamaðist fyrir sex árum og lagðist undir skurðarhnífinn klukk- an átta í morgun í von um bata. Það er kínverski skurðlæknirinn Shaocheng sem stjórnar aðgerðinni en með honum verða sjö í aðstoðar- liðinu, þrír íslenskir læknar og hjúkrunarfólk. Aðgerð af þessu tagi hefur aldrei áður verið reynd hér á landi og raunar ekki á Vesturlönd- um. Kínverski læknirinn hefur hins vegar bætt lömun fólks undanfarin tíu ár með skurðaðgerðum og í sum- um tilvikum náð undraverðum ár- angri. Hrafnhildur er lömuð frá nára og niður úr. Hún verður því að vera í hjólastól og er lítt sjálfbjarga. Von þeirra mæðgna er að það verði nokkur bót á þótt líkur á fullum bata séu hverfandi. -GK Skolarnir verða að halda uppi eftirliti - segir Björn Bjarnason menntamálaráðherra „Það hefur ekki komið upp á mitt borð. Skólarnir leysa þetta hjá sér,“ sagði Björn Bjarnason menntamála- ráðherra þegar hann var spurður hvað hann vildi segja um það sem komið hefði upp undanfarið, annars vegar í Háskóla Islands varðandi prófsvindl og hins vegar Iðnskólan- um í Reykjavík varðandi tölvu- svindl og greint hefur verið frá í DV. - Hefurðu ekki áhyggjur af þessu? „Áhyggjur, það er annað mál. Það er verst ef þetta bitnar á þeim sem eru saklausir þegar verið er að rannsaka þessi mál. Skólarnir verða að halda uppi eftirliti hjá sér. -ÞK Veðrið á morgun: Rigning eða súld Á morgun verður suðvestan- kaldi eða stinningskaldi. Rign- ing eða súld víða sunnanlands og vestan en annars viðast þurrt. Hiti 2-9 stig. Veðrið í dag er á bls. 60 Grensásveoi 11 Sími: 5 886 886 Fax: 5 886 888 Grœnt númer: 800 6 886 j L#TT# alltaf á Miðvikudögum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.