Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1996, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1996, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1996 JLlV fréttir Sérstætt sakamál upplýst og refsing dæmd í Héraösdómi Austurlands: Klæðskiptingur í fangelsi fyrir nærfataþjófnaði - fór inn til Qölda kvenna á öllum tímum sólarhrings og stal frá þeim nærklæðum Nærbuxur, brjóstahaldarar, kor- selet, samfellur, nælonsokkar, blúndutoppar, silkitoppar, undir- kjólar og margt fleira tengt nær- klæðum var þýfið sem 29 ára karl- maður hefur nú verið dæmdur í fangelsi fyrir að hafa stolið frá 13 konum. Þær búa í tveimur sjávar- plássum á landsbyggðinni en mað- urinn fór inn til þeirra allra á nán- ast öllum tímum sólarhrings á fimm ára tímabili og stal frá þeim veru- Stórfelld innbrotamál: Tveir menn í gæslu- varðhald Að kröfu RLR voru tveir ménn úrskurðaðir í gæsluvarð- hald vegna stórfelldra innbrota- mála á höfuðborgarsvæðinu. Um tvö aðskilin mál er aö ræða. Annars vegar var einn síbrota- maður úrskm-ðaður í 45 daga gæsluvarðhald vegna gruns um innbrot í íbúðarhús í Reykjavík þar sem nánast öllu innbúi var stolið. Hins vegar er um að ræða 18 ára ungling, höfuðpaur þjófa- gengis, sem grunað er um fjölda innbrota á heimili og fyrirtæki undanfamar vikur. -bjb Skipverji á Hásteini: Slasaöist í andliti Skipveiji á Hásteini ÁR frá Þorlákshöfn slasaðist á andliti þegar hann hrasaði um borð í skipinu skammt úti fyrir Þor- lákshöfn í gærmorgun. Komið var með manninn til hafnar síð- degis en meiðsl hans reyndust ekki alvarleg. -bjb Kveikt í tveimur ruslatunnum Slökkviliðið í Reykjavík var kallað að gamla Sjómannaskó- lanum við Öldugötu um miðjan dag í gær vegna elds í tveimur ruslatunnum. Engin hætta skap- aðist þar sem tunnumar voru í hæfilegri fjarlægð frá húsbygg- íngum. Liklegast er að eldur hafi verið lagður að tunnunum en meintir brennuvargar náðust ekki. -bjb í legu magni af ýmsum „flíkum". Engin kvennanná stóð manninn að verki þvi hann sætti lagi að fara inn í híbýli þeirra á meðan þær voru fjarverandi eða sofandi. Því má segja að málið hafi komist upp fyrir algjöra tilviljun þegar böndin bárust að viðkomandi manni fyrir réttu ári. Eftir að málsmeðferð hófst á síð- asta ári skýrði sakbomingurinn geðlækni ffá hinum síendurteknu nærfatastuldum sínum - hann hefði verið að þessu til að komast yfir nærföt til að klæðast sjálfur. Lækn- irinn komst að þeirri niðurstöðu aö athæfi hans benti eindregið til að hann væri með afbrigöilega kyn- hegðun af klæðskiptingsgerð (trans- vestism). Brotin hefðu því ekki ver- ið framin í auðgunarskyni. Dómurinn komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að um þjófnaði og húsbrot hefði verið að ræða. Þegar málið upplýstist var hald lagt á hluta þess sem maðurinn stal en umtalsverðu magni hafði hann hreinlega hent. Þeim hluta þýfisins sem enn var fyrir hendi átti því að skila til kvennanna. Engin kvenn- anna vildi hins vegar fá nærfot og klæðnað sinn aftur frá manninum - þess í staö kröfðust konumar skaða- bóta. Héraðsdómur Austurlands taldi refsingu mannsins hæfilega 6 mán- aða fangelsi en 5 mánuðir em skil- orðsbundnir í fjögur ár. Maðurinn hafði áður verið sakfelldur fyrir þjófnaði og reyndar önnur auðgim- arbrot. Maðurinn er einnig dæmdur til að greiða tíu kvennanna samtals um 250 þúsund krónur í skaðabætur fyr- ir hin stolnu nærfót. Aðrar kröfur voru ekki teknar til greina fyrir dómi. Ólafur Börkur Þorvaldsson héraðsdómari kvað upp dóminn.-Ótt stuttar fréttir Ómar til Tansaníu Ómar Valdimarsson blaða- maður hefur verið ráðinn til starfa sem sendifulltrúi Rauða kross íslands i Tansaníu. Forvarnarverölaun Ingibjörg Pálmadóttir heil- brigðisráðherra hefur ákveðið að veita árlega sérstök forvam- arverðlaun þeim aðila sem með aðgerðum sínum hefur vakið athygli á mikilvægi forvama fyrir heilsufar fólks. Jafnréttisráö fagnar Jafnréttisráö hefur lýst yfir ánægju sinni með greinargerð starfshóps á vegum fjármála- ráðuneytisins þar sem fjallað var um jafhrétti kynjanna í ráðuneytinu og undirstofnun- um þess. Edda hættir Edda Helgason er hætt sem framkvæmdastjóri verðbréfa- fyrirtækisins Handsals eftir að hópur fjárfesta keypti hlut fjöl- skyldu Sigurðar Helgasonar og fleiri í fyrirtækinu. ESB-skýrslur á bók Háskólaútgáfan hefur gefið út bókina ísland og Evrópusam- bandið. Birtar em skýrslur fiögurra stofnana Háskólans sem könnuðu kosti og galla að- Odar íslands að ESB. íslenskt hugvit Hugvitsmaður á Akranesi, David Butt, hefúr fengiö viður- kenningu bandarísku umhverf- ismálastofnunarinnar vegna svokallaðs brennsluhvata sem tengdur er á milli elds- neytistanks og vélar í bílum og skipum. Bylgjan greindi frá þessu. Fámennasta sóknin Fámennasta sóknin í landinu 1. desember sl., samkvæmt töl- um frá Hagstofunni, var Ábæj- arsókn í Skagafirði þar sem er aðeins eitt sóknarbam. Þetta kom fram á Bylgjunni. Álftárós fékk steypuna Verktakafyrirtækið Álftárós bauð lægst í steypuvinnu vegna grunns að nýjum kerskála ál- versins í Straumsvík. Sam- kvæmt RÚV hljóðaði tilboð Álftáróss upp á 737 milljónir króna en kostnaðaráætlun nam 850 milljónum. Engar athugasemdir Embætti ríkissaksóknara gerir engar athugasemdir við aðgerðir Selfosslögreglunnar 14. október i haust þegar þrennt fórst í umferðarslysi skammt frá Hveragerði. Þetta kom fram á RÚV. -bjb Þúsundum jólatrjáa hefur nú verið safnað saman í Reykjavík og þessa dagana er verið að kurla þau hjá Sorpu. Eitt helsta tákn jólanna breytist því mold þegar sól tekur að hækka á lofti. DV-mynd BG Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráöherra: Kvótinn ekki aukinn á þessu fiskveiöiári - vísbendingar um aö verndunarstefnan sé að skila árangri „Það er nú ekki venja að hlaupa fram og til baka með kvótann á miðju fiskveiðiári. Þótt komið hafi skot hér og þótt ekkert veiðist þar þá hafa menn nú ekki verið að hringla með kvótann. Mér sýnist, og heyrist á sjómönnum, að þeir séu sammála um að þorskgengd sé vax- andi á íslandsmiðum. Ég held að það sé vísbending um að sú vemd- unarstefna sem við höfum fylgt sé að byrja að skila árangri. Þess vegna bíður það næsta kvótaárs að taka ákvarðanir um breytingar á kvótanum sé talin ástæða til. Ég tel enda ekkert hafa komið fram enn þá sem réttlætir endurskoðun á kvót- anum á þessu fiskveiðiári," sagði Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráð- herra vegna frétta af stóraukinni þorskgengd á miðunum allt í kring- um landið. Alveg síðan í októober í haust hefur verið fádæma mikill þorskur á Vestfiarðamiðum. Reyndustu tog- arasjómenn segjast ekki hafa séð annað eins þar um slóðir í áratugi. Og nú upp á síðkastið berast fréttir af óvenju mikilli þorskgengd á allri slóð umhverfis landið. Sjávarútvegsráðherra segir að nauðsynlegt sé að fara að öllu með gát enda þótt fréttir berist af auk- inni þorskgengd. „Við þurfum að fá meiri upplýs- ingar, svo sem hvaða árgangar hér eru á ferðinni og fleira, áður en ein- hverjar ákvarðanir eru teknar. Þá er það mjög mikilvægt að fá sem mest af hrygingarfiski á hrygningar- slóðina í vor,“ sagði Þorsteinn Páls- son sjávarútvegsráðherra. -S.dór Dagpeningar ríkisins: Hvati til ónauðsyn- legra ferðalaga - segir Ríkisendurskoðun Þrír menn voru handteknir með látum í Austurstræti um miðjan dag í gær, grunaðir um aðild að ávísanafölsun. Á myndinni eru lögreglumenn að taka einn mannanna. Upphaf málsins var að einn þremenninganna reyndi að leggja falsaða ávísun upp á 170 þúsund krónur inn á bók hjá Búnaðarbank- anum í Austurstræti. Þegar upp komst um fölsunina hljóp maðurinn út og upp í bíl fyrir utan bankann. Skömmu síðar sást sami bíll fyrir utan ÁTVR í Austurstræti og var þá leitað til lögreglunnar sem lét til skarar skríða. DV-mynd S Ferðakostnaður ráðuneytanna árið 1994 jókst um tæp 20% frá ár- inu 1993 eða um 33,4 milljónir króna. Alls nam kostnaðurinn 211 milljónum króna. Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu Rík- isendurskoðun um endurskoðun ríkisreiknings 1994. 'Ríkisendur- skoðun telur brýna þörf á að endur- skoða fyrirkomulag á greiðslu á ferðakostnaði. „Sumir fá bæði greidda dagpen- inga og útlagðan kostnað skv. reikn- ingi. Dagpeningar eru við þær að- stæður aö hluta til launauppbót og eru skattlagðir sem slíkir. Að mati Ríkisendurskoðunar er slíkt fyrir- komulag óeölilegt þar sem það gefur ranga mynd af raunverulegum ferða- og launakostnaði ráðuneyt- anna, auk þess að geta hugsanlega virkað sem hvati til ónauðsynlegra ferðalaga," segir m.a. í skýrslunni. -bjb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.