Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1996, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1996, Blaðsíða 46
'50 fmæli LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1996 Edda Bergmann, húsmóðir og saumakona, Hverfisgötu 29, Reykjavík, er sextug í dag. Starfsferill Edda fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í Skerjafirðinum. Hún lauk gagnfræðaprófi frá Gagn- fræðaskóla Vesturbæjar. Auk húsmóðurstarfa hefur Edda unnið mikið við saumaskap. Hún vann m.a. ull um árabil hjá Ver- inu og hjá Andrési Andréssyni klæðskera en starfar nú eingöngu við saumaskap og fatahönnun heima við. Edda stofnaði trimmklúbbinn Eddu 1987 og hefur stýrt honum síðan. Hún var formaður IFR um árabil og hefur setið í ýmsum nefndum á vegum Sjálfsbjargar í Reykjavík. lil hamingju með afmælið 13. janúar 75 ára Sofiía Einarsdóttir, Bergstaðastræti 54, Reykjavík. 70 ára Gunnar Guðmundsson, Skúlagötu 40, Reykjavík. Emilía Kristbjörnsdóttir, Vorsabæ II, Skeiðahreppi. Hún er að heiman. 60 ára Guðmundur E. Erlendsson, Langagerði 20, Reykjavík. Sif Aðils, Miklubraut 56, Reykjavík. Anna Helgadóttir, Skagabraut 4, Akranesi. 50 ára Hulda Kristín Brynjólfsdóttir, Hófgerði 12, Kópavogi. Þorvarður Þórðarson, Eyjahrauni 29, Þorlákshöfii. Þóra Hafdís Þorkelsdóttir, Sæunnargötu 7, Borgarnesi. Halldór Jónsson, Kringlunni 91, Reykjavík. Jose Coelho Da Branca, Ártúni, Táknafjarðarhreppi. Alice Björg Árnadóttir, Yrsufelli 42, Reykjavík. 40 ára Jóhann Guðmundsson, Skólatúni 5, Bessastaðahreppi. Eiginkona hans er Elin Oddný Kjartansdóttir. Þau taka á móti gestum í hátíðar- sal íþróttahússins í Bessastaða- hreppi á Álftanesi í kvöld milli kl. 19.00-22.00. Júlíus Þór Jónsson kaupmaður, Malarási 14, Reykjavík. Kona hans er Agnes Viggósdóttir. Þau taka á móti gestum í Veislu- salnum að Dugguvogi 12, 2. hæð, í kvöld kl. 18.00-20.00. Stefanía Hrönn Guðmundsdótt- ir, Boðagranda 3, Reykjavík. Sigríður Júlía Wíum Hansdótt- ir, Breiðumörk 11, Hveragerði. Ómar Ingi Jóhannesson, Ásklifi 10, Stykkishólmi. Gísli Þórörn Júlíusson, Hvammstangabraut 31, Hvamms- tanga. Anna Laxdal Þórólfsdóttir, Laugavegi 46A, Reykjavík. Þóra Sigurðardóttir, Hvassaleiti 53, Reykjavík. Jón Bjöm Hjálmarsson, Fagrahvammi 6, Hafnarfirði. Edda Berymann Edda giftist 16.2. 1963 Kristjáni Ólafssyni, f. 18.2. 1928, húsverði og bílstjóra Danska sendiráðsins í Reykjavík. Hann er sonur Ole Han- sen og Önnu Hansen sem búa í Danmörku. Dóttir Eddu og Kristjáns er Gróa, f. 6.7. 1963, starfsstúlka við leikskóla, búsett á Seltjarnarnesi, gift Þorvaldi Þorvaldssyni, versl- unarstjóra hjá Markinu, og eru börn þeirra Kristján Þór Þorvalds- son, f. 8.2. 1983, og Edda Sif Þor- valdsdóttir, f. 14.9. 1986. Systkini Eddu eru Ragna Berg- mann f. 1933, formaður Verka- kvennafélagsins Framsóknar, bú- sett í Reykjavík; Hulda Bergmann, f. 1934, húsmóðir í Reykjavík; Ólaf- ia Bergmann, f. 1939, sjúkraliði í San Diego í Bandaríkjunum; Ey- steinn Bergmann, f. 1941, verslun- arstjóri, búsettur í Kópavogi; Sig- urður Bergmann, f. 1944, fyrrv. bU- stjóri í Reykjavík; Rósmary Berg- mann, f. 1951, kaupmaður í Reykja- vík; Björn Bergmann, f. 1955, bif- vélavirki á Seltjamarnesi; Hilmar Bergmann, f. 1958, viðskiptafræð- ingur og fjármála- og starfsmanna- stjóri hjá Landsbréfum. Foreldrar Eddu voru Guðmund- ur Bergmann Björnsson, f. 6.3. 1909, d. 1988, umsjónarmaður hjá Flugmálastjórn, og k.h., Gróa Skúladóttir, f. 21.10. 1908, d. 1971, húsmóðir. Ætt Guðmundur var sonur Björns Bergmann, sjómanns í Gálutröð í Eyrarsveit og síðast í Látravík, bróður Ingibjargar, móður Jóns Bergmanns skálds. Björn var son- ur Jóns Bergmanns, b. í Mýrarhús- um í Eyrarsveit, og Jódísar Jóns- dóttur. Móðir Guðmundar var Jós- efína Ragnheiður Jóhannesdóttir frá Krossnesi. Gróa var dóttir Skúla, b. að Norður-Fossi í Mýrdal, Unasonar, b. að Syðri-Kvíhólma, Runólfsson- ar, b. og skálds í Skagnesi, Sigurðs- sonar, prests á Ólafsvöilum, bróður Sæmundar, fóður Tómasar Fjölnis- manns, en systir Sigurðar var Guð- ríður, langamma Þorsteins Erlings- sonar skálds og amma Jóns, afa Er- lends Einarssonar, fyrrv. forstjóra SÍS. Sigurður var sonur Ögmund- ar, prests að Krossi, Presta-Högna- sonar, á Breiðabólstað, Sigurðsson- ar. Móðir Sigurðar á Ólafsvöllum var Salvör Sigurðardóttir, systir Jóns, afa Jóns Sigurðssonar for- seta. Móðir Gróu var Þorbjörg, Edda Bergmann. dóttir Ólafs, b. í Berjanesi undir Eyjafjöllum, Magnússonar og Elín- ar Árnadóttur. Edda dvelur á Flórída um þessar mundir ásamt fjölskyldu sinni. Símanúmer hennar þar er 813-360- 1748. Björg Óskarsdóttir Björg Óskarsdóttir hárgreiðslu- meistari, Bakkavör 32, Seltjarnar- nesi, er fertug í dag. Starfsferill Björg fæddist á Seltjarnarnesinu en ólst upp í Reykjavík. Hún stund- aði nám við Húsmæðraskólann að Löngumýri veturinn 1973, lærði hárgreiðslu og lauk sveinsprófi í þeirri grein 1975 og öðlaðist síðan meistararéttindi. Björg starfaði á hárgreiðslustof- unni Permu á Hallveigarstíg 1 til 1985 en hefur starfrækt eigin stofu á Eiðistorgi á Seltjamarnesi undir nafninu Permu sl. tíu ár. Björg var í öðru sæti í ísland- skeppninni í hárgreiðslu 1991 og 'varð íslandsmeistari 1994. Hún sat í stjórn Iðnnemasambands íslands, sat í stjórn Hárgreiðslumeistarafé- iags íslands 1990 og hefur verið meðiimur í Intercoiffure sem eru alþjóðasamtök hárgreiðslumeist- ara. Fjölskylda Björg giftist 20.4. 1978 Sigurði Rúnari Jakobssyni, f. 11.5. 1952, tæknimanni. Hann er sonur Jak- obs Sigurðssonar og Ingibjargar Pétursdóttur. Börn Bjargar og Sigurðar Rún- ars eru Jakob Sigurðsson, f. 21.10. 1979, nemi; Óskar Sigurðsson, f. 14.2.1981, nemi. Systkini Bjargar: Óli Þ. Óskars- son, f. 28.3. 1952, b. í Flatey í Aust- ur- Skaftafellssýslu, kvæntur Jón- ínu Sigurjónsdóttur; Lára Óskars- dóttir, f. 1.10. 1960, hárgreiðslu- meistari i Reykjavík, gift Gísla Birgissyni; Helgi Rúnar Óskars- son, f. 31.7. 1967, viöskiptafræðing- ur í Reykjavík, kvæntur Ásdísi Erlingsdóttur. Foreldrar Bjargar eru Óskar Ólason, f. 13.4. 1923, málarameist- ari á Seltjarnamesi, og Arnfríður ísaksdóttir, f. 8.7. 1930, hár- greiðslumeistari. Ætt Óskar er sonur Óla Þorleifsson- ar Jónssonar, b. á Eyri við Reyðar- fjörð, og k.h., Láru Guðjónsdóttur húsfreyju, frá Vopnafirði. Arnfríður er dóttir ísaks Kjart- ans Vilhjálmssonar, b. að Bjargi Björg Óskarsdóttir. við Nesveg á Seltjarnarnesi, og k.h., Helgu S. Runólfsdóttur hús- freyju. Björg er í útlöndum á afmælis- daginn. Sigurður Ólafsson Sigurður Ólafsson, fyrrv. póst- og símstöðvarstjóri í Borgarnesi, Hrísmóum 1, Garðabæ, er sjötug- ur í dag. Starfsferill Sigurður fæddist að Varmá í Mosfellssveit en ólst upp í Reykja- vík. Hann lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskólanum í Reykjavík 1944, lauk loftskeytaprófi frá Loft- skeytaskólanum 1946 og sím- virkjameistaraprófi skömmu síð- ar. Sigurður starfaði á Radíóverk- stæði Landssímans um skeið að loknu loftskeytaprófi og var jafn- framt loftskeytamaður til sjós á togurum. Sigurður var símvirkjameistari við loftskeytastöðina á Rjúpnahæð 1946-81 en var auk þess í afleys- ingum sem símstöðvarstjóri á Hvolsvelli og í Neskaupstað um skeið. Hann var síðan póst- og símstöðvarstjóri í Borgarnesi 1981-96 er hann hætti fyrir aldurs sakir. Fjölskylda Sigurður kvæntist 1.12. 1947 Guðbjörgu Þorleifsdóttur, f. 1.12. 1924, húsmóður. Hún er dóttir Þor- leifs Ásmundssonar, útvegsb. í Neskaupstað, og k.h., Maríu Ara: dóttur húsmóður. Börn Sigurðar og Guðbjargar eru Sigurborg, f. 29.1. 1947, flug- freyja í Garðabæ, gift Ljóti Inga- syni og eiga þau tvö börn; Svan- hvít, f. 8.9. 1949, skrifstofumaður í Reykjavík, gift Ragnari Jörunds- syni og eiga þau þrjú börn; María, f. 25.9. 1951, varðstjóri í Reykjavík, og á hún þrjú börn; Halldór Ólafur, f. 17.5. 1953, rekstrarhagfræðingur í Reykjavík, kvæntur Margréti Hjaltested og eiga þau þrjú börn; Þóra, f. 14.7. 1954, skrifstofumaður í Reykjavík, og á hún tvö börn; Ingvar Eggert, f. 22.11. 1963, leikari í Reykjavík. Systkini Sigurðar: Sigrún, f. 1928, skrifstofumaður í Reykjavík; Birgir, f. 1931, d. 1972, trésmíða- meistari í Reykjavík; Einar, f. 1935, framkvæmdastjóri í Bandaríkjun- um. Foreldrar Sigurðar: Ólafur Jóns- son, f. 24.3. 1903, d. 1983, símamað- ur, búsettur í Reykjavík, og k.h., Sigurður Ólafsson. Halldóra Bjarnadóttir, f. 8.10. 1905, húsmóðir. Sigurður og Guðbjörg eru að heiman á afmælisdaginn. Álfheiður Steinþórsdóttir sál- fræðingur, Ljósheimum 7, Reykja- vík, er fimmtug í dag. Starfsferill Álfheiður fæddist í Reykjavík en ólst upp á Seltjarnarnesi og í Kópavogi. Hún lauk stúdentsprófi frá MR 1966, embættisprófi í sál- fræði frá Háskólanum í Uppsölum í Svíþjóð 1975 og er sérfræðingur í klíniskri sálfræði frá 1993. Álfheiður starfaöi við Klepps- spítalann 1975-79, við Félagsmála- stofnun Reykjavíkurborgar 1979-83 og við Foreldraráðgjöfina 1979-84. Hún hefur, ásamt Guð- finnu Eydal sálfræðingi, rekið eig- Álfheiður Steinþórsdóttir in stofnun, Sálfræðistöðina, frá 1983. Þá hefur Álfheiður sinnt stundakennslu við HÍ frá 1979. Álfheiður átti sæti í Barna- vemdarráði íslands 1979-83. Rit eftir hana eru Nútímafólk í einka- lífi og starfi, 1986 (meðhöfundur G. Eydal); meðhöfundur að Sálfræði- bókinni 1993; Barnasálfræði, frá fæðingu til unglingsára, 1995 (með- höfundur G. Eydal). Auk þess hef- ur hún skrifað fjölda greina um sálfræðileg efni í blöð og tímarit. Fjölskylda Álfheiður giftist 15.8.1987 seinni manni sínum, Vilhjálmi Rafns- syni, f. 29.8. 1945, yfirlækni. Hann er sonur Rafns Jónssonar tann- læknis og Huldu Olgeirsdóttur húsmóður. Fyrri maður Álfheiðar var Björn Arnórsson, f. 16.1. 1945, hag- fræðingur. Þau skildu. Synir Álfheiðar og Björns eru Arnór, f. 6.5. 1966, í doktorsnámi í klíniskri sálfræði í Boulder í Colorado í Bandaríkjunum; Andri Steinþór, f. 11.1. 1973, nemi í sál- fræði við HÍ. Bræður Álfheiöar eru Sigurður Gunnar, f. 25.3. 1947, gullsmíða- meistari í Reykjavík; Magnús, f. 30.7. 1949, hóteleigandi að Manor House í Torquay á Englandi; Steinþór, f. 7.11. 1951, tölvunar- Alfheiður Steinþórsdóttir. fræðingur í Reykjavík. Foreldrar Álfheiðar: Steinþór Sæmundsson, f. 28.11. 1922, d. 19.10. 1984, gullsmíðameistari í Reykjavík, og Sólborg Sigurðar- dóttir, f. 12.1. 1926, verslunarmað- ur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.