Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1996, Qupperneq 12
LAUGARDAGUR 13. JANLJAR 1996 Jj"V
12 erlend bóksjá
Utlagi fær rússnesk
bókmenntaverðlaun
Metsölukiljur
••••••••••••##•
Bretland
Skáldsögur:
1. Wilbur Smith:
The Seventh Scroll.
2. Olck Francls:
Wlld Horses.
3. Doug Naylor:
The tast Human.
4. Terry Pratchett:
Interesting Times.
5. David Guterson:
Snow Falllng on Cedars.
6. Danlelle Steel:
The Gift.
7. Maeve Binchy:
The Glass Lake.
8. Catherine Cookson:
The Tinker’s Glrl.
9. Penny Vincenzi:
Forbldden Places.
10. Sebastian Faulks:
Birdsong.
Rit almenns eölis:
1. S. Nye & P. Dornan:
The A-Z of Bahaving Badly.
2. Alan Bennett:
Writing Home.
3. S. Birtwistle & S. Conklin:
The Maklng of Pride and Prejudice.
4. Gary Larson:
The Far Side Gallery 5.
5. Nelson Mandela:
Long Walk to Freedom.
6. N.E. Genge:
The Unofficial Z-Flles Companion.
7. Carl Glles:
Glles 1996.
8. Andy McNab:
Bravo Two Zero.
9. lan Botham:
Botham: My Autoblography.
10. Viz Comic:
Top Tlps 2.
(Byggt á The Sunday Times)
Danmörk
1. Llse Norgaard:
De sendte en dame.
2. Jung Chang:
Vilde svaner.
3. Kirsten Thorup:
Elskede ukendte.
4. Robert J. Waller:
Broerne I Madison County.
5. Jostein Gaarder:
Sofies verden.
6. Bret Easton Ellis:
Uskrevne regler.
7. Peter Hoeg:
De máske egnede.
(Byggt á Polltiken Sondag)
„Um þessar mundir vilja Rússar
lesa bækur sem hafa eitthvað að
segja þjóð sem tekst á við sársauka-
fulla breytingu yfir í kapitalisma
eftir hrun kommúnismans. Framúr-
stefna í bókmenntum fellur ekki í
kramið vegna þess að hún tekst
ekki á við þau mál sem alltaf hafa
skipt mestu í rússneskum bók-
menntum,“ segir Georgí Vladimov,
nýjasti handhafi Booker-verðlaun-
anna í Rússlandi.
Breska menntamálaráðið sér um
skipulag og framkvæmd verðlaun-
anna sem færa vinningshafanum
12.500 bandaríska dali í aðra hönd.
Þau á að veita fyrir eitt tOtekið
skáldverk.
Gagnrýni
Á hverju ári er skipuð ný dóm-
nefnd sem fær til lestrar um fimm-
tíu skáldsögur nýliðins árs. Fyrst
velur nefndin allt að sex verk sem
koma helst til greina. Niðurstaðan
er svo kynnt í veislu sem haldin er
undir lok ársins.
Fyrsti rússneski Bookerinn var
afhentur árið 1992. Mark
Kharitonov hét sigurvegarinn en
skáldsaga hans náði ekki vinsæld-
um; hún þótti ólæsileg.
Árið 1993 fékk Vladimir Makanin
Bookerinn fyrir skáldsögu sem
gagnrýnendur voru sammmála um
að væri langt í frá hans besta verk.
Það sama átti við árið 1994; þá var
annar kunnur rússneskur höfund-
ur, Bulat Okudzjava, heiðraður fyr-
ir skáldsögu sem margir töldu vart
verðlaunahæfa.
Fyrri dómnefndir hafa því verið
gagnrýndar harðlega í Rússlandi
fyrir að velja ekki bestu skáldsögu
Georgí Vladimov er fremst á mynd-
inni ásamt konu sinni og dóttur.
Umsjón
Elías Snæland Jánsson
ársins heldur heiðra kunna höfunda
sem slíka. Einn þeirra, sem þar
gekk hvað harðast fram, var Stan-
islav Rassadin, kunnur rithöfundur
og gagnrýnandi. Breska mennta-
málaráðið sá sér því leik á borði í
fyrra og skipaði Rassadin formann
dómnefndarinnar fyrir árið 1995!
Hann lagði strax áherslu á að
verkin ættu að tala en ekki höfund-
ar þeirra: „Textinn á ekki að hafa
neinn stuðning af ferli eða örlögum
höfundarins. Hann á að vera varn-
arlaus!“ sagði hann í blaðaviðtali.
Saga af smersh
Það vakti strax deilur þegar úr-
valslisti nefndarinnar var lagður
fram. Á honum voru aðeins þrjár
skáldsögur en ekki sex. Afstaða
nefndarinnar var sú að fleiri hefðu
ekki átt það skilið að koma til álita
á lokasprettinum. Úrslitin voru svo
tOkynnt við hátíðlega athöfn rétt
fyrir jól. Verðlaunin hlaut skáld-
saga sem gerist í síðari heimsstyrj-
öldinni: Hershöfðingi og herinn
hans. Höfundurinn, Georgí Vla-
dimov, er 64 ára að aldri og hefur
verið flóttamaður í Þýskalandi frá
árinu 1983. Sagan segir frá svo-
nefndri smersh-deild sem hafði það
verkefni að myrða andstæðinga
Stalíns. Hún er reyndar einkum
kunn á Vesturlöndum úr sögunum
um James Bond. Vladimov var
fimmtán ár að semja söguna.
Vladimov vakti fyrst verulega at-
hygli sem rithöfundur árið 1975 með
stuttri skáldsögu sem einnig gerist í
rússneska hernum. En hann lenti í
andstöðu við sovéska kerfið og varð
að lokum að velja á milli útlegðar
og fangavistar. Síðan hefur hann
búið í Þýskalandi við mikla fátækt
en samt haldið áfram að skrifa á
rússnesku. Verðlaunin koma hon-
um því í góðar þarfir, auk þess sem
þau vekja athygli á verkum hans
heima fyrir og almennt í Evrópu.
vísindi
Tölvuleikir til aðstoðar
börnum með málerfiðleika
Persónuleikapróf
fyrir kettlinga
Kettir eru sjálfsagt jafn mis-
jafnir og þeir eru margir, svona
rétt eins og við mennirnir. Og
kattaeigendur sækjast ekki allir
eftir sömu eiginleikum í eftirlæt-
isdýri sínu. Þess vegna eru dýra-
læknar í Bandaríkjunum að þróa
persónuleikapróf fýrir kettlinga.
„Sumir vilja dýr sem horfir á
þá vinna. Aðrir vOja kött sem
veiðir mýs,“ segir Soraya Juarbe-
Diaz við CorneU-háskólann í
tímaritinu New Scientist.
Prófin eiga að meta hvernig
kettlingar bregðast við gælum.
Kettlingunum verða einnig sýnd-
ar skuggamyndir af hundum og
köttum og viðbrögð þeirra við
upptökum af gelti og mjálmi
verða skráð. Með þessu er ætlun-
in að spá fyrir um hvers konar
kettir kettlingarnir muni verða.
Efnasmokkar í
prófun
Breskir vísindamenn eru um
þessar mundir að gera tOraunir
með „efnafræðilega smokka“ sem
gæti komið i veg fyrir að konur
smituðust af alnæmisveirunni en
þær gætu engu að síður orðið
ófrískar. Veirubanar þessir eru
settir í leggöng konunnar og eru
hugsaðir fyrir þær konur sem
eiga maka sem neita að stunda
öruggt kynlíf.
Umsjón
Guðlaugur Bergmundsson
Vísindamenn við
Kaliforníuháskóla í San
Francisco hafa þróað og
prófað tölvuleiki og
hljóðupptökur, sem sér-
staklega er ætlað að að-
stoða böm með málerf-
iðleika sem geta verið
undanfari lestrarerfið-
leika (dyslexíu).
Tölvuleikirnir og upp-
tökurnar voru sérhönn-
uð fyrir börn sem áttu í
erfiðleikum með að
greina á milli ákveðinna
samhljóða og rannsókn-
ir benda til að gagn
megi hafa af þeim.
„Ef börnin voru beðin
um að benda á dreng og
urðu að velja á milli
tveggja mynda, drengs
(boy) og leikfangs (toy),
rugluðu þau þeim sam-
an,“ segir Paula Tallal,
aðstoðarforstjóri sam-
einda- og atferlistaugavísindamið-
stöðvar Rutgers-háskólans, en hún
var einn vísindamannanna sem
stóðu að rannsóknunum.
Tallal gerði tvær aðskildar rann-
sóknir á börnum á aldrinum fimm
tO tíu ára.
í einum tölvuleiknum getur barn,
sem á ekki í neinum erfiðleikum í
tengslum við málþroska, heyrt tvo
tóna sem hvor um sig varir í 75
mdlísekúndur og eru með tíu
millísekúndna millibili. Aftur á
móti þarf barn með skertan mál-
þroska 200 til 300 millísekúndur á
milli sömu tóna til að nema þá rétt,
að sögn Tallal.
„Tilgangurinn var að kanna
hvort okkur tækist að auka hrað-
ann hjá þeim með bara stífri þjálf-
un,“ segir hún.
Eftir þjálfun í einn mánuð gátu
þessi börn unnið úr upplýsingunum
á minna en 100 millísekúndum.
Annar tölvuleikur sýnir þrjá
trúða á tölvuskjá. Einn trúðurinn
segir „ba“ og hinir trúðarnir segja
síðan „ba“ og „da“ og þarf barnið að
snerta þann trúð sem segir hið
sama og sá fyrsti.
Til viðbótar við tölvu-
leikina voru einnig not-
aðar hljóðupptökur þar
sem tölva hafði breytt
hlutum ákveðins sam-
hljóða.
„Við heQum þjálfunina
með því að breyta þess-
um hljóðpm svo að sér-
hvert barn geti heyrt
einstaka hluta orðsins,1*
segir Michael Merzen-
ich, prófessor við Kali-
forníuháskóla í San
Francisco, sem einnig
tók þátt í rannsóknun-
um.
„í hvert skipti sem
börnin gera rétt verður
verkefnið aðeins erfið-
ara og okkur tekst með
þessari aðferð að bæta
frammistöðu þeirra svo
að hún verður nokkurn
veginn eðlileg,“ segir
hann.
Sjö börn voru prófuð í fyrstu
rannsókninni árið 1994, og ellefu af
22 börnum í seinni rannsókninni
sumarið 1995 fengu svipaða þjálfun,
á meðan hin fengu venjulega tal-
þjálfun, segir Tallal.
í grein í tímaritinu Science segj-
ast vísindamennirnir hafa komist
að þeirri niðurstöðu að málskilning-
ur hafi batnað og orðið eðlilegur,
næstum eðlilegur eða meiri en hjá
öllum nema einu af börnunum sjö í
fyrstu fjögurra vikna rannsókninni
og hjá öUum nema einu af ellefu
börnum í hinni síðari.
Metsölukiljur
I **•****♦♦♦«•*»•»«•♦•
Bandaríkin
Skáldsögur:
1. Rlchard Paul Evans:
The Chrlstmas Box.
2. David Guterson:
Snow Falling on Cedars.
3. Terry McMillan:
Waitlng to Exhale.
! 4. Mary Higgins Clark:
The Lottery Winner.
1 5. V.C. Andrews:
Hlddel Jewel.
6. James Patterson:
Kiss the Glrls.
7. Tom Clancy & Steve Pieczenik:
Mirror Image.
í 8. Jude Deveraux:
The Heiress.
9. Richard North Patterson:
Eyes of a Chlld.
10. Dean Koontz:
Dark Rivers of the Heart.
1 11. Tami Hoag:
Night Sins.
12. Judlth Plnsker:
Robln's Diary.
13. Nora Roberts:
Born In Shame.
14. Jonathan Kellerman:
Self-Defense.
15. Carol Shields:
The Stone Dlaries.
Rit almenns eölis:
1. Tim Allen:
Don't Stand to Close
To a Naked Man.
2. David Wild:
Friends.
| 3. Paul Reiser:
Copplehood.
4. B.J. Eadie & C. Taylor:
Embraced by the Light.
5. H. Johnson & N. Rommelmann:
The Real Real World.
6. Mary Pipher:
Reviving Ophelia.
7. Brian Lowry:
The Truth Is out there.
8. Rlchard Preston:
! The Hot Zone.
9. Dorls Kearns Goodwin:
No Ordlnary Tlme.
10. Tom Clancy:
Flghter Wing.
11. Joe Montana & Dick Schaap:
Montana.
12. Judith Pinsker:
Robin's Dlary.
13. Delany, Delany & Hearth:
Having Our Say.
14. Clarissa Plnkola Estés:
Women Who Run wlth the Wolves.
15. M. Scott Peck:
The Road Less Travelled.
(Byggt á New York Tlmes
Book Review)
Mirra gegn
verkjunum
Mirran sem vitringarnir þrír
færðu Jesúbarninu að gjöf á sín-
| um tíma hefur ekki bara þá eig-
inleika að Uma vel, heldur er
hún líka kvalastillandi, að sögn
I ítalskra vísindamanna.
| Piero Dolara og starfsbræður
hans við lyíjafræðideUd háskól-
ans í Flórens tóku til að rann-
| saka mirruna, náttúrulegt efna-
[ samband sem runnar gefa frá
( sér, fyrir forvitni sakir og vegna
margra vísana í mirru í Biblíu-
1 textum.
TUraunirnar sem hópurinn
j gerði byggðu á því að músum var
gefin mirra og þær svo settar
ofan á 52 stiga heita málmplötu.
Síðan var kannaö hve langur
tími leið þar til þær byrjuðu að
sleikja loppurnar tU að deyfa
sársaukann. Mýsnar sem fengu
I mirru entust í 20 mínútur en þær
1 mirrulausu í 14,4 mínútur, segir
í tímaritinu Nature.
Einn krabbavaldur til
Lyf sem eru mikið notuð í bar-
1 áttunni við of hátt kólesteról í
j blóði valda krabbameini í rottum
| og músum séu þau gefin í mjög
stórum skömmtum.
Ekki er hins vegar ljóst hvort
1 mönnum stafar hætta af lyíjum
þessum þar sem ekki liggja nægi-
leg gögn fyrir, segja vísinda-
mennirnir sem starfa við Kali-
forníuháskóla í San Francisco.
| Þeir telja þó ráðlegra að gera
ekki of lítið úr niðurstöðum
I rottutilraunanna.