Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1996, Qupperneq 15
33^' LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1996
15
er ekki ljóst en þó er nokkuð víst
að eigendumir hafa haft nokkuð
upp úr krafsinu þegar þeir lánuðu
hvalinn í myndina. Þetta minnir
reyndar á þegar glæpamenn selja
sjálfsævisögu sína þar sem ekkert
er dregið undan. Sýndur var sár-
þjáður einstaklingur sem á við það
að stríða að allt hans atferli er
fénýtt til hins ýtrasta. Sem betur
fer fyrir Villa er þó heimurinn
ekki alvondur og drengurinn vin-
ur hans tekst á hendur að bjarga
honum. Hann fær til þess aðstoð
vina og vandamanna og eftir að ill-
mennin, eigendur hans, höfðu ver-
ið á hælum þeirra svo sem hálfa
myndina stökk Villi sér til lífs.
Sagan hugljúfa endar svo á því að
þau synda saman inn í framtíðina
og vinur hans segir yes og gefur
five.
Heim á Islandsmið
Til að undirstrika áhrif kvik-
myndarinnar láta eigendur Villa
keika þau boð út ganga að næsta
mál á dagskrá sé að fara með hann
heim á íslandsmið þar sem heit-
mey hans bíður væntanlega enn í
festum. Síðan var honum skutlað í
sundlaugina aftur þar sem hann
dvaldi enn um árabil. Hvort sem
það var fyrir áhrif myndarinnar
eða innbyggt vandamál þá fór svo
að Keikó fékk í alvörunni sálar-
truflanir og tók að léttast óðfluga
auk þess sem bakuggi hans lagðist
út af og hann hentaði þar með
ekki lengur til sýninga. Þá endur-
nýjuðu eigendur hans fyrri yfir-
lýsingar og lýstu yfir af mann-
gæsku sinni að hvalurinn ætti að
fara heim og taka upp normal líf.
Fyrst þurfi bara að kæla hann nið-
ur sv.o hann nái að aðlagast ís-
lenskum veruleika. Góðar fréttir
af æðisgenginni þorskgengd á ís-
landsmiðum boðuðu að Villi ætti
sældarlíf fyrir höndum þar sem
hann gæti samkeppnislítið étið
eins og hann lysti af þessu gnægta-
brunni. Áhyggjur af samkeppni
um fóðrið væru ástæðulitlar því
frá því hann yfirgaf íslandsmið
höfðu stjórnvöld friðað þorskinn
af manngæsku sinni, enda ófor-
svaranlegt að drepa meiri þorsk
en orðið var.
Hundurog
gullfiskar í gíslingu
Þegar fjölskyldan á norðurhjara
hafði lokið við að þurrka sér um
augun og jafnvægi var komið á
hrærða huga hófust hringborðs-
umræður. Það lá fyrir að beggja
kynslóða mati að sjaldan hafði
saga annarar eins fúlmennsku
verið skráð hvað þá fest á filmu.
Fólk er óðamála og fordæmingin á
athæfmu er algjör. Þegar mestu
hughrifin eru liðin hjá er eins og
sprengju sé varpað inn í fjöl-
skyldulífið þegar yngsti fjölskyldu-
meðlimurinn tekur til við að
naflaskoða fjölskylduna sjálfa.
„Hvað með hundinn og gullfisk-
ana?“ spyr hann og horfir á for-
eldra sína og systkini. Það verður
dauðaþögn eitt andartak en svo
spyr móðir hans: „Hvað meinarðu,
krakki?" Sá stutti er ekki á því að
liggja á sinni uppgötvun og hann
lýsir því yfir af þunga og festu að
fjölskyldunni beri að líta í eigin
barm haldandi bæði hundi og gull-
fiskum í gíslingu fjarri eðlilegu
umhverfi dýra. „Við verðum að
sleppa bæði hundinum og fiskun-
um. Annars erum við illmenni
eins og þeir sem leiddu Villa í
gildru," segir hann. Honum vex
ásmegin þegar hann sér að afgang-
urinn af fjölskyldunni er kjaft-
stopp og hann lítur á föður sinn:
„Pabbi, við getum farið með Snata
upp í Bláfjöll á morgun og sleppt
honum. Við þurfum svo að ákveða
hvernig við sleppum gullfiskunum
í framhaldi af því. Það er hægt að
byrja að kæla þá niður strax áður
en við sleppum þeim í Tjörnina."
Það er fátt um svör á heimilinu
og greinilegt að röksemdafærsla
drengsins hefur slegið fólk út af
laginu. Það er svo móðirim sem
tekur af skarið. „Það er best að
drífa í að skila þessari spólu. Ætli
við leigjum ekki bara teikni-
myndaspólu næst.“
„Við verðum að sleppa bæði hundinum og fiskunum. Annars erum við illmenni eins og þeir sem leiddu Villa í gildru,“ segir drengurinn við foreldra
sína. „Pabbi, við getum farið með Snata upp í Bláfjöli á morgun og sleppt honum. Við þurfum svo að ákveða hvernig við sleppum gullfiskunum í
framhaldi af því.“ Hér má sjá íslenska háhyrninginn Keikó sem lék aðalhlutverkið í myndinni Free Willy.
Háhyrningur, hundur
og nokkrir gullfiskar
Það sjást blika tár á hvarmi og
einhver spyr um þurrku. Hinn
hugnæmi boðskapur myndarinnar
um háhyrninginn Villa hefur
snortið áhorfendurna djúpt og það
var augljóst að öllum létti gífur-
lega þegar smáhvelið stökk sér til
lífs; frá illmennunum sem ekkert
vildu með hann hafa annað en að
sýna hann í þeim tilgangi að
græða á honum peninga.. „Hvílík
illmennska og hvílík grimmd,"
sagði einhver. Yngsta barninu á
heimilinu var greinilega misboðið:
„Af hverju hjálpaði ekki einhver
hvalnum þegar ljótu karlarnir
veiddu hann hérna,“ spyr hann
foreldra sína.
(slenskur í báðar ættir
Það var vídeókvöld hjá fjöl-
skyldunni og Free Willy sá boð-
skapur sem ákveðið var að með-
taka, bæði til skemmtunar og fróð-
leiks. Það skemmdi ekki að Villi
sjálfur var íslenskur í báðar ættir
og því vel til þess fallinn að ýta
undir þjóðrembinginn sem þó var
nánast í hágöngu vegna þeirrar
staðreyndar að Björk, Kristján Jó-
hannsson og Garðar Hólm eru og
voru öll meira og minna heims-
fræg. Nú bættist Villi við þó
reyndar hefði hann verið vatni
ausinn og nefndur Keikó. Það var
því að gefnu tilefni sem íslenska
fjölskyldan horfði á Keikó stökkva
sér til lífs í gervi Villa.
Narraður í gildru
Nefndur Keiko mun hafa verið
narraður í gildru veiðimanna á ís-
landsmiðum fyrir rúmum áratug
- út af Austfjörðum. í framhaldi af
því fólskuverki var hann fluttur
til Mexikó þar sem óvildarmenn
hans komu honum fyrir í sund-
laug sem þó var á mörkum þess að
rísa undir nafni. Sumir vildu
reyndar halda því fram að þarna
væri um hálfgerðan drullupoll að
ræða. Þarna skilur fyrst og fremst
milli hans og annarra heims-
frægra íslendinga. Björk og Krist-
ján eru talin búa við sæmilegan
kost og gott lífsrými auk þess að
hafa fullt ferðafrelsi eftir því sem
best er vitað.
Laugardagspistill
Reynir Traustason
Myndin hefst á því að ungur
drengur af amerísku kyni þvælist
þangað sem Keiko í hlutverki
Villa hefur eytt lífi sínu i fjötrum.
Það kviknar vinátta með drengn-
um og háhyrningnum sem leiðir
til þess að Vili hlýðir engum öðr-
um.
Unnustan
utan girðingar
Þunglyndi hrjáir hvalinn og
hann langar heim á miðin aftur.
Hversu undarlega sem það hljóm-
ar þá skyldi hann eftir heitmey
þegar illmennin gómuðu hann og
um miðbik myndarinnar er
unnustan búin að finna sundlaug
Villa og breimar ákaflega í svo
sem einnar sjómílu flarlægð. Þetta
fer verulega í pirrurnar á Villa
sem vill komast til sinnar
heittelskuðu og taka upp eðlilegt
flölskyldulíf. Það virtist þó ekki
mögulegt þar sem pollurinn var
vandlega afgirtur og þar með vik
milli elskenda.
Glæpamenn selja
sjálfsævisögu
Eignarhaldið á aðalleikaranum