Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1996, Side 19
JjV LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1996
19
Sýning á verkum Louisu Matthíasdóttur í Flórída:
Hressandi andblær
íslenskra listaverka
DV, Hórida:____________________
Það var svo sannarlega hressandi
andblær yfir hinum litsterku.mynd-
um Louisu Matthíasdóttur á sýn-
ingu á verkum hennar í Kendall
Campus Art Gallery í Miami Dade
háskólanum i Miami á Flórída. Á
sýningunni eru fjörutíu og sex lista-
verk sem spanna yfir langan tíma í
ævi listakonunnar. Elsta myndin er
frá 1937 og sú yngsta var máluð á sl.
ári. Sýningin var opnuð sl. föstudag.
Aðalhvatamaður að sýningunni
er Robert J. Sindelir, forstöðumaður
listasafns háskólans. Hann sagðist
lengi hafa þekkt til Louisu Matthí-
asdóttur og verið einlægur aðdá-
andi hennar.
í mjög vandaðri og smekklegri
sýningarskrá fer Steven Harvey,
verndari sýningarinnar, mjög lof-
samlegum orðum um Louisu og
verk hennar. Á fimmtíu ára lista-
mannsferli sínum hefur Louisa þró-
að sinn eigin sérstæða stíl sem hitti
beint í mark.
Búsett í Bandaríkjunum
Louisa hefur verið búsett í
Bandaríkjunum síðan árið 1941 að
hún kom þangað með annarri ís-
lenskri listakonu, Nínu Tryggva-
dóttur, og þær hófu listnám i Hans
Hofmann listaskólanum. Þar hitti
hún bandarískan listamann, Leland
Bell, og árið 1944 gengu þau í hjóna-
band. Þau eignuðust eina dóttur,
Robert J. Sindelier stendur þarna
við yngstu mynd Louisu á sýning-
unni. Kyrralífsmynd máluð á sl. ári.
Temmu. Fjölskyldan var í nokkur
ár við nám og störf í París en árið
1954 fluttu þau til New York þar sem
Louisa býr enn í sama húsinu og
þau keyptu upphaflega. Leland Bell
lést fyrir tveimur árum og hefur
Louisa ekki ferðast út fyrir heima-
borg sína eftir það. Louisa er fædd á
íslandi árið 1920 og er því 75 ára.
Við opnun sýningarinnar var
boðið upp á rausnarlegar veitingar,
þó ekki inni í sýningarsalnum þar
sem bannað er að vera með mat eða
drykk. Veitingarnar voru framborn-
ar á stéttinni utan við dyrnar þar
sem er að finna steypt borð og
bekki, ætlað fyrir nemendur til þess
að borða við. Þótt kalt hafi verið í
Flórída undanfarið var það ekki of
svalt til þess að njóta veitinganna
utan dyra undir fullu nýárstungli.
Margir gestir
Ekki stóð á gestunum, margir
voru við opnun sýningarinnar,
bæði íslendingar, sem búsettir eru í
nágrenninu og einnig annað listaá-
hugafólk. Sýningin verður opin til
26. janúar. Eftir það fer sýningin á
fleiri staði: í október verður hún í
The American University í Washing-
ton DC, að ári í Sordoni Art Gallery,
Wilkes University, Wilkes-Barre,
Pennsylvaniu, í mars og apríl á
næsta ári í New York Studio School
of Drawing, Painting and Sculpture í
New York og sumarið 1997 verður
sýningin í Nordic Heritage Museum,
Seattle Washington.
Glæsileg sýningarskrá var gefin
út fyrir þessa sýningu og var hún
kostuð af Scandinavian American
Foundation. í henni eru litmyndir
af 12 þeirra verka sem á sýningunni
eru. í sýningarskránni kemur fram
að Louisa Matthíasdóttir hefur
haldið 33 einkasýningar frá 1948 og
tekið þátt í 32 samsýningum. Mynd-
irnar á sýningunni voru fengnar að
láni frá átta almenningssöfnum, þar
á meðal Listasafni Reykjavíkur-
borgar og Listasafni Kópavogs,
einnig frá listasöfnun níu fyrir-
tækja, þar á meðal Flugleiða. A.Bj.
Meðal gesta við opnun sýningarinnar voru m.a. Elísabet Sveinbjörnsdóttir
leikskólastjóri, Þorsteinn Steingrímsson fasteignasali og Þórir Gröndal,
ræðismaður íslands í Flórída.
„Reykjavíkurhöfn"
lenskum litum.
er einstaklega „hressandi"
mynd í tærum og skýrum ís-
DV-myndir A.Bj.
,, ■%
Brooke Shields þurfti að draga í land eftir að hafa hótað Agassi samveruslitum
giftist hann henni ekki á seinasta ári.
Brooke Shields situr eftir með
sárt ennið eftir að hennar heitt-
elskaði til nokkurra ára, Andre
Agassi, neitaði að verða við afar-
kostum hennar að giftast henni
á liðnu ári eða þau slitu samvist-
um ella.
Brooke hefur ákveðið að gef-
ast ekki upp þótt á móti blási og
hefur látið hafa eftir sér að hún
muni giftast Agassi þó að hún
þurfi að draga hann öskrandi
upp að altarinu.
„Andre sagði mér að Brooke
væri að blekkja og myndi draga
í land með yfirlýsingarnar.
Hann sagðist jafnframt elska
hana en væri hreinlega ekki til-
búinn að stíga skrefið til fulls og
giftast henni. Þetta er ástæða
þess að hún varð að kyngja fyrri
yfirlýsingum," segir vinur
þeirra skötuhjúa.
Tímaritið Forbes greindi frá
því á dögunum að Andre væri
eirtn ríkasti íþróttamaðurinn í
heimi - hefði litlan mUljarð í
tekjur árlega. Bæði njóta Brooke
og Andre blessunar foreldra
sinna til að ganga í það heilaga
og eftir að hafa sótt brúðkaup
bróður Andre var Brooke
ákveðnari en fyrr í að giftast
tennisleikaranum. Nú reynir
hún nýtt herbragð til að festa
Andre í vefnum. Þessa dagana
dembir hún afsökunum vegna
þess að hún geti ekki verið með
honum yfir hann í þeirri von að
hann átti sig á því að hún sé sú
eina rétta og best sé að giftast
henni.
Á dögunum þurfti Agassi til
dæmis að taka þátt í tennismóti í
Moskvu.
Viti menn, Brooke gat ekki farið
með því hún þurfti að lesa yfir kvik-
myndahandrit. Agassi saknaði
hennar vitanlega og þegar hann
kom heim beið hún hans í ástar-
hreíðrinu.
Vinir Brooke eru vissir um að
herbragð hennar heppnist í þetta
skiptið og innan skamms verði
Brooke Shields frú Andre Agassi.
Auglýsing
um styrki úr Fræðslusjóði brunamála
í samræmi við reglugerð nr. 1380/1993, skv. 24. gr. laga nr.
41/1992, er hér með auglýst eftir umsóknum um styrki úr
Fræðslusjóði brunamála.
Fræðslusjóður brunamála starfar innan Brunamálastofnunar rík-
isins. Markmið sjóðsins er að veita þeim sem starfa að bruna-
málum styrki til náms á sviði brunamála. Sjóðurinn greiðir styrki
til rannsókna- og þróunarverkefna, námskeiðsgjöld, ferða- og
dvalarstyrki, laun á námsleyfistíma og styrki vegna námskeiða
og endurmenntunar. Frá árinu 1993 hafa verið veittir 64 styrkir.
Til úthlutunar í ár eru samtals 3,5 milljónir króna.
Auk styrkja til stakra verkefna mun sjóðurinn á þessu ári styrkja
yfirmenn slökkviliða til að sækja námskeið sem Brunamála-
stofnun skipuleggur í samvinnu við þjálfunarmiðstöðvar slökkvi-
liða í Svíþjóð og Finnlandi. Styrkir til námskeiðanna verða veittir
viðkomandi slökkviliðum og skulu slökkviliðsstjórar sækja um
fyrir hönd þeirra manna sem þeir hyggjast senda á námskeiðin.
Umsóknir um styrki skal senda Brunamálastofnun ríkisins,
Laugavegi 59, 101 Reykjavík, fyrir 1. mars 1996.
Nánari upplýsingar um styrkveitingar og starfsemi sjóðsins veitir
Árni Árnason verkfræðingur. Upplýsingar um yfirmannanám-
skeiðin veitir Guðmundur Haraldsson skólastjóri.
Sími Brunamálastofnunar er 552-5350. Grænt númer 800-6350.
Reykjavík, 11. janúar 1996
Brunamálastofnun ríkisins