Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1996, Qupperneq 30
34
erlent fréttaljós
LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1996 JjV
undir sig Bandaríkin
Rússneska mafían er á fullri ferð
með að hertaka Bandaríkin. Eða að
minnsta kosti þann hluta þeirra
sem stjómað er af skipulögðum
glæpasamtökum. En rússnesku
mafíósamir reyna ekki bara að ná
yfirráðum í undirheimum Banda-
ríkjanna heldur í allri alþjóðlegri
glæpastarfsemi.
í rússnesku mafíunni em bæði
venjulegir glæponar og hámenntað
fólk með innsýn í og reynslu af
stjórnarstarfi. Margir fyrrverandi
embættismenn og félagar úr sov-
éska kommúnistaflokknum era
farnir út á glæpabrautina, að sögn
rithöfundarins og Rússlandssér-
fræðingsins Stephens Handelmans.
Handelman hefur skrifað bókina
Comrade Criminal sem vakti alþjóð-
lega athygli þegar hún kom út fyrir
nokkrum mánuðum. Handelman
starfar nú við Harrimanstofnunina
við Columbiaháskólann í New York
og hefur í mörg ár verið fréttaritari
Toronto Stars í Moskvu.
Ráða yfir
gífurlegum fjármunum
„Rússneska mafian er enn ekki
jafn fjölmenn og gamla sikileyska
mafían eða Cali kókaínhringm’inn i
Kólumbíu. En á hátæknitímum er
það einnig rangt að nota slíkar við-
miðanir þegar áhrif era mæld.
Rússamir hafa yfir að ráða gífurleg-
um fjármunum. Þeir kaupa banka,
era með umsvif á alþjóðlegum fjár-
málamörkuðum og era stórir fast-
eignabraskarar á Manhattan," segir
Handelman.
í Comrade Criminal lýsir hann
því hvemig fyrrverandi félagar í
kommúnistaflokknum hafi tekið
þátt í upplausn Sovétríkjanna. Það
era fjármunir frá þeim tíma og tekj-
ur rússnesku mafíunnar í Rússlandi
og Austur-Evrópu sem notuð era til
fjárfestingar og hvítþvotts í Banda-
ríkjunum.
Fyrrum fjandmenn
vinna saman
Umsvif rússnesku mafíunnar
hafa aukist gífurlega frá 1991 og þau
hafa valdið miklum taugatitringi
hjá bandarískum yfirvöldum.
í janúar 1994 ákvað bandaríska
dómsmálaráðuneytið aö setja rann-
sókn á umsvifum rússnesku maf-
íunnar efst á forgangslista. í maí
1994 ákvað bandaríska alríkislög-
reglan, FBI, að setja á laggimar sér-
staka rússneska mafíudeild í New
York þar sem starfa rússneskumæl-
andi menn sem margir koma frá
leyniþjónustunni. Og í ágúst sama
ár opnaði FBI fyrstu skrifstofuna
sína í Moskvu. Fyrrum fjandmenn-
imir, Bandaríkin og Rússland,
reyna nú í sameiningu að sigrast á
vandanum.
„Við eram að opna rússneska
mafiuskrifstofu í Los Angeles. Það
er margt sem bendir til að samtökin
hafi hreiðrað um sig um öll Banda-
ríkin og að þau séu sérstaklega virk
á vesturströndinni,“ segir yfirmað-
ur New Yorkskrifstofunnar,
Raymond C. Kerr.
Hann er þó þeirrar skoðunar að
Brighton Beach í Brooklyn hverfmu
í New York, sem kallað er Litla
Odessa, sé aðalmiðstöð rússnesku
mafiunnar í Bandaríkjunum. í þess-
um borgarhluta búa yfir 50 þúsund
innflytjendur frá Sovétríkjunum
fyrrverandi en alls eru þeir um 200
þúsund í og í kringum New York.
skipta með kjamaofn í Jekaterin-
burg í Rússlandi sem einn af helstu
sérfræðingum Bandaríkjanna í
glæpastarfsemi Rússa og rússneska
réttarkerfinu, Louise Shelley, pró-
fessor við Ameríska háskólann í
Washington DC, telur vera aðalmið-
stöð rússnesku glæpastarfseminnar.
í samvinnu við sjónvarpsþáttinn 60
Minutes uppljóstraði tímaritið að
rússneska mafían hefði staðið á bak
við söluna á notuðum, rússneskum
tilraunakjamaofni frá bænum Ob-
ninsk.
Háttsettir
embættismenn
í vitorði
Ofninn, sem tekinn hafði verið í
sundur, var fluttur í gegnum bæinn
Jekaterinburg til Vilníus í Litháen.
Þaðan átti að senda hann með flutn-
ingavél til Zúrich í Sviss. Það er
fullyrt, en hefur ekki verið sannað,
að ákvörðunarstaður hafi verið
Norður-Kórea. Yfirvöld fengu
ábendingu um viðskiptin og var ofn-
inn kyrrsettur i Vilníus.
Það sem vekur athygli er að ekki
hefur verið hægt að taka ofiiinn
sundur og selja hann án vitneskju
og aðstoð háttsettra embættismanna
í því ráðuneyti í Rússlandi sem fer
með kjarnorkumál.
Mafíósar
með doktorstitla
„Heimurinn stendur frammi fyrir
alþjóðlegum glæpasamtökum sem
menn hafa ekki kynnst áður. Úm er
að ræða hámenntað, siðfágað fólk
sem náð hefur fótfestu í Bandaríkj-
unum. Það vora rússneskir mafiós-
ar með doktorstitla sem stóðu á bak
við sjúkratryggingasvindlið mikla í
Kaliforníu. Hið sama er að segja um
svindlið með bensínskattana í Penn-
sylvaníu. Og við höfum séð önnur
dæmi í Chicago og miðvesturríkjun-
um,“- segir Shelley.
Afskornar hendur
í bjórkrúsir
Hún lýsir því sem b'yrjendavanda-
máli þegar rússnesku glæpasamtök-
in í Bandaríkjunum grípa annað
slagið til ógeðslegra verka eins og
þegar rússneskir mafíósar skára
hendurnar af einu fómarlamba
sinna og settu þær í fullar bjórkrús-
ir til þess ekki væri hægt að þekkja
þau af fingraforum. „Rússarnir
keppa um markaði við rótgróin
glæpasamtök. Þeir færa sig inn á
svæði annarra og þess vegna þykir
þeim skelfilegt ofbeldi nauðsynlegt.
Það óhugnanlega er að þessir há-
menntuðu og siðfáguðu tölvuglæpa-
menn skirrast ekki við að beita
grimmilegu ofbeldi," segir Shelly.
Það hafa komið sannanir fyrir
því að Rússarnir hafi tengsl við
bæði sikileysku mafíuna og Cali-
hringinn og að þeir séu byrjaðir að
taka að sér milligöngu í stóram
fíkniefnaviðskiptum.
Rússamir hafa reyndar gerst sek-
ir um allar tegundir afbrota, morð,
fjárkúgun, mannrán, fikniefnavið-
skipti, vændi og svo „finni" afbrot
eins og fjársvik, tölvusvindl, skjala-
fals og peningaþvott.
Byggt á Politiken.
Enginn man eftir því að hafa séð
nokkum skapaðan hlut. Lögreglan
í New York er þó fuUviss um að
skipanir um morðin komi að
minnsta kosti í sumum tilfellum frá
Moskvu.
Tímaritið US News & World
Report gaf nýlega í skyn að tengsl
séu á milli eins morðanna og við-
Um 50 þúsund innflytjendur frá Sov-
étríkjunum sálugu búa í Brighton
Beach.
Óll skilti í Brighton Beach eru á rússnesku.
Það tekur um 40 mínútur að ferð-
ast með neðanjarðarlest frá Man-
hattan til Brighton Beach. Við
fyrstu sýn er ekkert sem bendir til
að þama sé miðstöð alþjóðlegrar
glæpastarfsemi. Öll skilti eru á
rússnesku og þar ríkir suðaustur-
evrópsk basarstemning. Hægt er að
kaupa ávexti, fisk, skó og rússnesk
dagblöð og bækur sem era til sölu
við borð á gangstéttum.
Skipanir
koma frá Moskvu
En þama hafa verið framin morð
sem ekki hefur tekist að upplýsa.
Brighton Beach f Brooklyn í New York er talið vera aðalmiðstöð rússnesku
mafíunnar í Bandaríkjunum. Þar er hægt að kaupa blöð og bækur á rúss-
nesku sem seld eru frá borðum á gangstéttunum.
Rússneska mafían leggur