Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1996, Blaðsíða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 1996
Viðskipti
Skýrsla Haralds Líndals Haraldssonar um vsk-númer og hlutafélög:
Fjolgun numera langt um
fram veltu 1990-1994
- ellefti hver íslendingur í atvinnurekstri
Fjöldi VSK-númera
-1990 og 1994 eftir atvinnugreinum -
Rsk- og
matvælaiönaður
Byggingarstarfsemi
Annariönaöur
Fasteignarekstur og
þjón. viö atvrekstur
Önnur þjónusta
Önnur starfsemi
11084
10000
15000
DV
Skipting MutaQár í hlutafélögum
- samkvæmt skráningu í júlí 1995 í þús. kr. -
Hlutafé ótilgreint || 107
10000 og meira f •
4000 - 10000 g
2000 - 4000 g
1000 - 2000
500 - 1000 I
100-500 ;
minna en 100 B
|768
674
1 725
822
1041
2525
,2162
500
1000
1500
2000 2500 3000
inra==^
Auka þarf tengsl
iðnaðar og
sjávarutvegs
Nefhd á vegum iönaöar- og við-
skiptaráðuneytisins hefur, eftir
nærri 4 ára starf, skilað af sér
skýrslu um tengsl iðnaðar og sjávar-
útvegs. Helsta niðurstaða nefndar-
innar er að auka þurfi tengslin til
muna svo ísland standi ekki langt að
baki nágrannaþjóðum sínum á þessu
sviði. Tengslin til þessa hafl þó ver-
ið eðlileg miðað við starfsumhverfi
greinanna og efnahagsástandið í
landinu.
Eitt af því sem fram kemur í
skýrslunni er að á árunum 1987-1991
fækkaði ársverkum í iðnaði tengd-
um sjávarútvegi um 25% eða úr 4100
í 3100. Umsvif iðnaðar sem tengist
sjávarútvegi, miðað viö umsvif í
sjávarútvegi, hafa dregist mikið
saman síðan 1987. Á árinu 1987 var
hlutfaU rekstrartekna í iðnaðar-
greinunum 20% af tekjum sjávarút-
vegs. Þetta hlutfaU var komið niður
í 15% árið 1991. Reiknað er með að
viðskipti iðnaðar sem tengist sjávar-
útvegi hafi numið 12-16 mUljörðum
króna árið 1991. Nefndin telur mikil-
vægt aö etla vöruþróun, markaðs-
sókn og nánara samstarf fyrirtækja í
atvinnulífi með markvissum stuðn-
ingsaðgerðum stjórnvalda.
Gróði hjá Fisk-
markaöi Vest-
mannaeyja
Rúmlega 11 mUljóna króna hagn-
aður varð af rekstri Fiskmarkaðar
Vestmannaeyja á síðasta ári. Það er
talsvert betri afkoma en árið 1994
þegar hagnaðurinn nam um 1,4
miUjónum og árið 1993 var tap upp
rúmar 4 miUjónir. Rekstrartekjur
síðasta árs námu 74 miUjónum og
gjöldin 56 mUljónum. Landaður afli
á fiskmarkaðnum var um 12.500
tonn í fyrra að verðmæti 885 miUjón-
ir króna. Árið áður var 7 þúsund
tonnum landað fyrir 508 milljónir.
Aðalskoðun bauð
lægst í eftirlit raf-
og leikfanga
Aðalskoðun átti lægsta tUboð í út-
boði Ríkiskaupa á markaðseftirliti
með raffóngum og leikfóngum. Til-
boð Aðalskoðunar hljóðaði upp á
tæpar 23 miUjónir króna. Þetta er í
fyrsta sinn sem markaðseftirlit af
þessu tagi er boðið út en bjóðendur
voru sex talsins. TUgangur eftirlits-
ins er að koma í veg fyrir að hættu-
legar framleiðsluvörur séu á mark-
aði. -bjb
Fundir ög ráðstefiiur
Höfum
sali sem
henta
fyrir alla
fundi og ráðstefnur
HÓTEL flLÁND
5687111
Árið 1994 voru rúmlega 33 þús-
und virðisaukaskattsnúmer (vsk-
númer) í notkun, þar af um 23 þús-
und hjá einstaklingum. Það bendir
til þess að ellefti hver Islendingur
hafi verið í sjálfstæðum atvinnu-
rekstri árið 1994. Árið 1990, þegar
virðisaukaskattur var tekinn upp,
voru vsk-númerin rösklega 26 þús-
und. Aukningin á fjórum árum er
því um 25%, þar af um 70% í þjón-
ustugreinum og um 19% í bygging-
arstarfsemi. Á sama tíma, þ.e. frá
1990 til 1994, jókst heildarvelta allra
atvinnugreina, samkvæmt virðis-
aukaskattsskýrslum, aðeins um
2,4%. Um það bil 32 íslendingar
voru um hvert hlutafélag eða einka-
hlutafélag sem var skráð í júlí á síð-
asta ári, sem alls voru 8.800. Á árun-
um 1985 til og með 1994 voru 2.500
hlutafélög skráð gjaldþrota. Rúm-
lega helmingur þeirra var yngri en
5 ára.
Þetta er meðal þess helsta sem
lesa má í skýrslum Haralds Líndals
Haraldssonar hagfræðings sem
hann vann fyrir Aflvaka hf. um
smæð íslensks þjóðfélags og gjald-
þrot á íslandi.
Sem skýringar á ijölgun vsk-núm-
era einstaklinga bendir Haraldur
m.a. á þá nýbreytni vinnuveitenda
að ráða til sín einstaklinga sem und-
irverktaka 1 stað launþega. Með því
móti komi viðkomandi rekstraraðil-
ar sér undan að greiða ýmis launa-
tengd gjöld. Þá hafl hækkandi stað-
greiðsluhlutfall skapað tilhneigingu
hjá einstaklingum til að vera með
vsk-númer þar sem það gefi mögu-
leika á að telja ýmis útgjöld til frá-
dráttar tekjum. Þannig hafi mynd-
ast lægri tekjustofn til álagningar
tekjuskatts en ella. Haraldur bendir
einnig á að með auknu atvinnuleysi
hefji einstaklingar einyrkjurekstur
frekar en að vera án vinnu. Einstak-
lingurinn væri ella launþegi ef næg
atvinna væri fyrir hendi.
Skiptingu hlutafjár í hlutafélög-
um má sjá á meðfylgjandi grafi. Þar
kemur fram að helmingur hlutafé-
Hlutabréfaviðskipti í síðustu viku
um kerfl Verðbréfaþings íslands,
VÞÍ, og Opna tilboðsmarkaðarins,
OTM, námu 207 milljónum króna.
Upplýsingar um utanþingsviðskipti
í vikunni höfðu ekki borist þegar
þetta var ritað.
Af viðskiptunum um kerfi VÞÍ og
OTM var mest höndlað með bréf
Skagstrendings, eða fyrir tæpar 74
milljónir. Næst komu bréf íslands-
banka með 54,5 mOljóna viðskipti.
Svipuð viðskipti áttu sér stað með
bréf Eimskips, Skeljungs og Marels,
eða fyrir 13-16 milljónir í hverju tU-
viki fyrir sig.
Hlutabréfaverð fór lækkandi í
síðustu viku en hefur siðan hækkað
laga er með minna en 500 þúsund í
hlutafé og aðeins 8% félaga með
meira en 15 milljóna hlutafé. Skipt-
á ný ef marka má þingvísitölu
hlutabréfa. Vísitalan náöi sögulegu
hámarki sl. mánudag þegar hún fór
í 1494,96 stig, bætti gamla metið um
0,58 stig. Þingvísitala húsbréfa hélt
áfram aö sveiflast upp og niður, tal-
an var í 143,58 stigum sl.. mánudag.
Álverð á heimsmarkaði hefur
hækkað síðustu daga eftir nokkra
lægð í ársbyrjun. Staðgreiðsluverð-
ið var komið í 1594 dollara tonnið
þegar viðskipti hófust í London í
gærmorgun. Sérfræðingar spá enn
hærra verði á næstu dögum en slð-
an geti það lækkað lítillega á ný.
Skagfirðingur SK hefur einn ís-
lenskra togara landað í Þýskalandi
síðustu daga, samkvæmt upplýsing-
ingu vsk- númera eftir atvinnu-
greinum má einnig sjá á meðfylgj-
andi grafi. -bjb
um Aflamiðlunar LÍÚ. Alls voru
seld 184 tonn upp úr togaranum fyr-
ir 19 milljónir króna í fyrradag.
Gámasalan í Englandi í siðustu
viku var upp á 167 tonn og fyrir þau
fengust 26,5 mUljónir.
Sterlingspund og japanskt jen
hafa hækkaö í verði síðustu daga á
meðan dollarinn hefur lækkað.
Sölugengi dollars var 66,46 krónur
þegar bankar voru opnaðir í gær-
morgun, gengi pundsins var komið
í 102,24 krónur og jensins í 0,6317
krónur. Þýska markið er sem fyrr
stöðugt, mældist 45,26 krónur í gær-
morgun eða sama gengi upp á aur
og á þriðjudag í síðustu viku.
-bjb
Lfflegur hlutabréfamarkaður
Þorsteinn Ólafs
til Handsals
Þorsteinn
Ólafs hefur
verið ráðinn
framkvæmda-
stjóri Hand-
sals í stað
Eddu Helga-
son sem hætti
í byrjun árs-
ins. Þorsteinn
er 38 ára, lauk viðskiptafræði-
prófi 1982 og er löggiltur verð-
bréfamiðlari. Eftir að hafa starf-
að rúm tvö ár hjá Pósti og síma
vann Þorsteinn fyrir Pjárfest-
ingafélag íslands til 1987. Síðan
hefur hann starfað sem forstöðu-
maður Samvinnubréfa Lands-
bankans. Þorsteinn er kvæntur
Láru Kristjánsdóttur og eiga
þau fjögur börn.
Edda ráðin
markaðsstjóri
ísaga
Edda Magn-
úsdóttir hefur
verið ráðin
markaðsstjóri
Isaga hf.
Starfssvið
hennar er um-
sjón með sölú
á ýmsum
gastegundum,
s.s. kolsýru, köfnunarefni og
súrefni, til matvælagerðar og
fiskeldis. Jafnframt mun hún
veita tæknilega þjónustu í sam-
bandi við nýja möguleika á
notkun gass við framleiðslu og
pökkun matvæla.
Edda lauk mastersnámi í mat-
vælafræði frá Oregon State Uni-
versity í Bandaríkjunum á síð-
asta ári. Áður en hún fór í fram-
haldsnám að loknu BS-prófi í
matvælafræði frá Háskóla ís-
lands árið 1984 starfaði hún um
skeið hjá Nóa-Síríusi en síðan
hjá Rannsóknastofnun fiskiðn-
aðarins uns hún hélt utan árið
1992.
500 milljóna
skuldabréf SP-
Fjármögnunar
Landsbréf hafa nú hafið sölu á
nýjum 'skuldabréfaflokki SP-
Fjármögnunar, samtals að nafn-
verði 500 milljónir króna. Bréfin
eru til 5 ára og bera 6,2% fasta
vexti. Þetta er annað útboð á
skuldabréfum SP-Fjármögnunar
en því fyrsta á síðasta ári var
vel tekið.
SP-Fjármögnun er eignaleigu-
fyrirtæki í eigu stærstu spari-
sjóða landsins, stofnað fyrir ári.
Stofnhlutafé er 120 milljónir og
þrír stærstu eigendur eru Spari-
sjóðabanki íslands, SPRON og
Sparisjóður vélstjóra.
13 milljarða
vöruskiptaaf-
gangur í fyrra
Vöruskiptin í sl. desember
voru hagstæð um 1,1 milljarð
króna. Þá voru fluttar inn vörur
fyrir 8,9 milljarða króna en út
fyrir 10 milljarða. Til saman-
burðar má geta þess að afgang-
urinn í desember 1994 nam 2,2
milljörðum. Samkvæmt bráða-
birgðatölum fyrir árið 1995 voru
alls fluttar út vörur fyrir 116,6
milljarða á árinu en inn fyrir
103,3 milljarða. Afgangur af við-
skiptunum var því 13,3 milljarð-
ar á síðasta ári en var 19,4 millj-
arðar árið 1994, miðað við fast
gengi.
Verðmæti vöruútflutningsins
jókst um 4% á síðasta ári. Þar
munar mestu um stóraukið
verðmæti áls og kísiljáms. Verð-
mæti innflutnings jókst um
11%. Á árinu jókst innflutning-
ur á bílum um 38% og innfluttar
mat- og drykkjarvörur voru 14%
algengari en árið 1994. -bjb
DV