Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1996, Qupperneq 17
16
MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR
íþróttir
Knattspyma:
16-ára liðið
á mót
í Portúgal
U-16 ára landslið drengja í
knattspyrnu tekur þátt í elþjóð-
legu knattspymumóti sem fram
fer í Portúgal dagana 16.-22. febr-
úar. Gústaf Björnsson landsliðs-
þjálfari hefur valið leikmanna-
hóp til fararinnar sem er þannig
skipaður:
Konráð Konráðsson ............ÍR
Níels Reynisson.............UMFA
Eggert Stefánsson...........Fram
Bjami Pétursson ............Fram
Björgvin Vilhjálmsson.........KR
Hans Sævarsson ...........Þrótti
Jens Sævarsson............Þrótti
Jóhann Hreiðarsson...........Ægi
Tryggvi Björnsson .......Víkingi
Reynir Leósson................ÍA
Þorleifur Árnason.............KA
Ingi Heimisson............Þór A.
Jóhann Þórhallsson .......Þór A.
Stefán Gíslason ..........Austra
Guöm. Steinarsson ......Keflavík
Þórarinn Kristjánss.....Keflavík
Auk íslendinga taka Portúgal-
ar, Austurríkismenn og Norð-
menn þátt í mótinu. -GH
Hrafnhildur
tilFH
Kvennalið FH í handknattleik
hefur fengið góðan liðsstyrk fyr-
ir baráttuna sem framundan er í
1. deildinni. Hrafnhildur Ó.
Skúladóttir er gengin til liðs við
FH en hún hefur leikið með
danska félaginu Östjysk HK en
lék áður með ÍR. Hrafnhildur
leikur sinn fyrsta leik með FHI
kvöld þegar liðið fær KR i heim-
sókn í Kaplarkrika og hefst leik-
urinn klukkan 20.
-GH
Mick McCarthy
njósnar um
Islendinga
Fyrsta verkefni Micks
McCarthys, hins nýskipaða þjálf-
ara írska landsliðsins í knatt-
spyrnu, er að njósna um íslenska
landsliöið á æfingamótinu sem
hefst á Möltu í dag. McCarthy
hélt til Möltu i morgun og mun
fylgjast með íslenska landsliðinu
í leik gegn Slóvenum en eins og
kunnugt er leika írar í riðli með
íslendingum í forkeppn. HM.
-GH
Skíði:
Kristinn varð
í öðru sæti
Kristinn Björnsson, skíða-
kappi úr Leiftri, varð í öðru sæti
á stórsvigsmóti í Bad
Kleinkirchheim í Austurrríki í
fyrradag. Fyrir það fékk hann
25,66 punkta sem dugði honum
þó ekki til að bæta stööu sína á
heimslistanum.
Haukur Arnórsson úr Ár-
manni varð í 10, sæti. Þetta er
besti árangur Hauks en hann
bætti punktastöðuna um 11% og
fékk 40,91 FlS-punkt. Þá varð
Amór Gunnarsson, Skíðafélagi
Ísaíjarðar, í 13. sæti.
Þessir kappar skipa karla-
landsliðið í alpagreinum og eru
þeir að undirbúa sig fyrir heims-
meistaramótið sem fram fer í
Nevada á Spáni um næstu helgi.
-GH
Ferð til Liverpool
Liverpool-klúbburinn á ís-
landi skipuleggur ferð á leik
Liverpool gegn Chelsea á Anfield
Road. Einnig verður farið á
Leeds-Everton. Lagt verður af
stað 15. mars og komið heim 18.
mars. Nánari upplýsingar í sím-
um 5656150 og 5870115.
-SK
Butt á enn í vandræðum
Nicky Butt, hinn ungi
knattspyrnumaöur 1
Manchester United, virð-
ist eiga í verulegum
vandræðum í einkalífinu
ef marka má síðustu „af-
rek“ hans.
Butt, sem bíður eftir
því að mæta fyrir rétti í
Manchester vegna lík-
amsárásar í október á
síðasta ári, komst enn í
fréttir um síðustu helgi.
Eftir sigur Manchester
United á Wimbledon brá
Butt sér á næturklúbb á
laugardagskvöldið. Um
nóttina réðst hann á bif-
reiö fyrir utan skemmti-
staðinn og skemmdi eina
hurðna á bOnum. Lög-
reglan var kölluð á stað-
inn og eftir yfirheyrslur
var Butt látinn laus gegn
tryggingu. Hann þarf að
mæta fyrir rétti þann 11.
mars. Skemmdirnar eru
metnar á 30 þúsund krón-
ur.
1 október réðst Butt á
mann fyrir utan kín-
verskan veitingastað í
Manchester og um helg-
ina varð saklaus bifreið
fyrir barðinu á þessum
efnilega leikmanni sem
verður að taka sig saman
í andlitinu ef ekki á illa
að fara.
-SK
„Gæti orðið einn
besti leikarinn
í Frakklandi"
- faguryröum rignir yfir nýjan og breyttan Eric Cantona
Franski knattspyrnumaðurinn
Eric Cantona er nýr og breyttur
maður. Fyrir um ári missti hann
stjórn á skapi sínu og réðst á tryllt-
an áhanganda á heimavelli Crystal
Palace, Selhurst Park, eftir að hann
hafði svívirt móður Cantona á lúa-
legan hátt.
Cantona tók út sitt langa leik-
bann. Hann hefur nú leikið 21 leik
með liði United og hefur ekki feng-
ið svo mikið sem tiltal frá dómur-
um leikjanna.
Fyrirmynd annarra knatt-
spyrnumanna
Mönnum ber saman um að Can-
tona sé í dag orðinn fyrirmynd
annarra knattspyrnumana. Hann
röflar ekki lengur við dómara, róar
félaga sína ef þeir eru ósáttir við
dóma og kemur fram á leikvellin-
um sem sannur foringi.
Alex Ferguson, framkvæmda-
stjóri Man. Utd er hrifinn af Can-
tona og er ekki einn um það. „Can-
tona hefur alltaf verið hljóðlát per-
sóna og er það enn. Það hefur ver-
ið sagt að slæm atvik geti leitt eitt-
hvaö gott af sér og kannski hefur
það gerst í tilviki Cantona. Ef til
vill hefur viðhorf hans til óréttlæt-
is breyst. Síðan hann kom aftur
inn í liðið hafa skotið upp kollinum
dómar á leikvellinum sem hann
hefur ekki verið sammála. Hann
hefur hins vegar kosið að láta þetta
eiga sig. Ég hef margoft séð Can-
tona ganga frá atvikum sem hefðu
kallað fram öðruvísi viðbrögð hér
áður fyrr.“
George Best hreifst mjög af
Cantona
George Best þekkir vel vandamál
knattspyrnumanna en þessi
fyrrum snillingur fylgdist með
Cantona í leik Man. Utd og
Wimbledon sl. laugardag. Eftir
leikinn sagði Best: „Cantona var í
mjög erfiðri aðstöðu og það var
erfitt fyrir hann að koma aftur á
Selhurst Park eftir það sem þar
gerðist fyrir ári. f þessum leik
sannaði hann hins vegar í hverju
hann er bestur. Hann var svo sann-
arlega til fyrirmyndar í þessum
leik.“
Myndlist, leiklist, skáld-
skapur og heimspeki
Ferguson segir að Cantona eigi
enn eftir að ná sinu besta formi en
telur að það geri hann mjög fljót-
lega: „Cantona hefur verið stór-
kostlegur á æfingum undanfarið
eins og hann hefur raunar verið frá
því hann kom fyrst til okkar“.
Cantona verður þrítugur í maí.
Sparksérfræðingar telja hann eiga
mörg ár eftir í fremstu röð, 6-8 ár.
Hann virðist eiga bjarta framtíð
fyrir sér eftir að knattspyrnuferlin-
um lýkur.
Cantona hefur mikinn áhuga á
myndlist, skáldskap, heimspeki og
ekki síst leiklist. Nýlega lék hann í
fyrsta skipti í kvikmynd í Frakk-
landi og þar virðast möguleikar
hans vera miklir.
Elskulegur, kurteis, vin-
gjarnlegur og giæsilegur
Leikkonan Sabine Azuma leikur
með Cantona í myndinni og hún
ber honum vel söguna: „Cantona
gæti átt fyrir höndum glæsilegan
feril sem leikari eftir að hann hætt-
ir í knattspyrnunni. Hann er elsku-
legur maður, kurteis, vingjarnleg-
ur og glæsilegur. Hann er mjög
góður leikari og gæti auðveldlega
orðið einn besti leikarinn í Frakk-
landi,“ segir Azuma.
-SK
Eric Cantona hefur fengið að reyna ýmislegt frá því hann kom til Manchester United frá Leeds. Langt leikbann
í kjölfar árásar á áhorfanda hefur breytt Cantona og hann hefur ekki svo mikið sem fengið gult spjald í 21 leik
með Manchester United. Batnandi mönnum er best að lifa. Símamynd Reuter
Eric Cantona hefur áhuga á fleiru en knattspyrnu:
Körfubolti kvenna:
Við erum
langbestar
„Eins og staðan er í dag erum
við langbestar, það er engin
spurning. Þessi sigur var mjög
mikilvægur fyrir okkúr í topp-
baráttunni í deildinni. Margir
af leikjunum okkar í vetur hafa
ekki verið spennandi en ég átti
þó von á KR-ingunum sterkari.
Við spiluðum virkilega vel og þá
sérstaklega í fyrri hálfleik. Við
erum að leika betur núna en í
upphafi móts og þá skiptir
miklu að hafa fengið Veronicu
til liðs við okkur,“ sagði Björg
Hafsteinsdóttir, leikmaður
Keflavíkur, eftir sigurleik gegn
KR í Hagaskóla í gærkvöldi,
57 76.
Það var útlit fyrir spennandi
leik á upphafsmínútunum en
um miðjan fyrri hálfleik, þegar
staðan var 1212, settu bikar-
meistararnir í fluggír og breyttu
stöðunni í 16 36. Þær bættu síð-
an við í síðari hálfleik og sigr-
uðu örugglega, 57J76.
Með sigrinum kemst Keflavík
upp að hlið Breiðabliks á toppi
deildarinnar en Breiðablik á
leik til góða, gegn Val í kvöld kl.
20. Keflavík og Breiðablik mæt-
ast í síðustu umferö deUdarinn-
ar í Keflavík og þá getur ráðist
hvort liðið verður deildarmeist-
ari.
Veronica Cook var stigahæst
í liði Keflavíkur með 27 stig,
Björg Hafsteinsdóttir skoraði 13
og Anna María Sveinsdóttir
skoraði 12 stig.
Guðbjörg Norðfjörð var stiga-
hæst í liði KR með 17 stig, Helga
Þorvaldsdóttir skoraði 16 og
Majenica Rupe 8 stig.
-ih
Stórbikarinn:
Jafntefli hjá
Zaragoza og Ajax
Spænska liðið Real Zaragoza
og Ajax frá Hollandi áttust við í
fyrri leiknum í Super Cup á
Spáni í gærkvöldi. í þessari
keppni mætast liðin sem unnu
meistara- og bikarkeppnina í
fyrra.
Zaragoza komst yfir í leiknum
með marki frá Xavier Aguado á
29. mínútu. Það var svo enginn
annar en Patrick Kluivert sem
jafnaði fyrir Ajax á 71. mínútu
og það urðu lyktir leiksins.
Síðari leikur liðanna verður í
Amsterdam eftir hálfan mánuð.
-JKS
Branco skrifar
undir hjá Boro
Allar líkur eru á þvi að brasU-
íski landsliðsmaðurinn Branco
skrifi undir samning við Midd-
lesbrough. Bryan Robson, fram-
kvæmdastjóri Middlesbrough,
var bjartsýnn á að hægt yrði að
ganga frá samningum í dag.
Branco lék með Brasilíu-
mönnum sem tryggðu sér heims-
meistaratitilinn 1994. Hann er 31
árs og er með lausan samning
hjá ítalska liðinu Genoa.
-JKS
I kvöld
Handbolti - 1. deild kvenna:
Fylkir-Stjarnan..........20.00
FH-KR ...................20.00
Valur-lBV................20.00
Víkingur-Fram............20.00
Körfubolti - 1. deild kvenna:
Breiðablik-Valur ........20.00
MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 1996
17
íþróttir
Kínversku knattspyrnukonurnar komast ekki til Breiðabliks:
Kyrrsettar bak
við Kínamúrinn
- tvívegis vísað frá íslenska sendiráðinu i Beijing
Kínversku knattspyrnukonurnar,
Yinge Zhun og Jienen Gua, sem ætl-
uðu að ganga til liðs við íslandsmeist-
ara Breiðabliks, hafa enn ekki fengið
grænt Ijós frá íslenska útlendingaeft-
irlitinu. Samkvæmt upplýsingum frá
Valgeiri Ólafssyni, framkvæmda-
stjóra knattspyrnudeildar Breiða-
bliks, hefur deildin gert ítrekaðar til-
raunir til að fá vegabréfsáritun fyrir
Eitthvað er Chicago-vélin að hiksta
þessa dagana en í nótt tapaði liðiö öör-
um leik sínum í röð og sínum fimmta
á keppnistímabilinu.
Það voru Charles Barkley og félagar
hans í Phoenix sem gerðu sér lítið fyr-
ir og sigruðu Chicago með 10 stiga
mun á heimavelli sínum. Barkley átti
stórleik, skoraði 35 stig, tók 10 fráköst
og „stal“ boltanum í tvígang á mikil-
vægum augnablikum undir lokin.
„Charles sýndi frábæran karakter í
þessum leik og sýndi og sannaði að
hann er frábær körfuknattleiksmaður.
þær en án árangurs.
„Þaö hefur gengið mjög erfiðlega
að fá samband við þann mann innan
útlendingaeftirlitsins sem hefur með
þetta mál að gera. Við höfum gert alit
sem í okkar valdi stendur til að koma
þessum leikmönnum til landsins.
Við höfum m.a. sent fax til íslenska
sendiráðsins í Beijing þar sem við
staðfestum að þær séu að koma hing-
Hann hefur trú á sjálfum sér og liði
sínu og ég dái hann fyrir það,“ sagði
Michael Jordan eftir leikinn en hann
skoraði 28 stig fyrir Chicago og Scottie
Pippen 19. Kevin Johnson skoraði 20
stig fyrir Phoenix en fór meiddur út af
þegar 4 mínútur voru eftir. Úrslitin:
Orlando-Sacramento 112-102
Charlotte-SA Spurs 102-109
Cleveland-Boston 91-73
Milwaukee-Dallas 114-111
Denver-LA Lakers 78-99
Phoenix-Chicago 106-96
Seattle-Houstoú 99-94
að til að leika knattspyrnu en það
hefur ekki dugað," sagði Valgeir
Ólafsson í samtali við DV.
„Við höfum hins vegar ekki gefið
upp alla von og ætlum aö hafa
samband við útlendingaeftirlitið á
morgun (í dag) og vonandi fáum við
þá frekari upplýsingar um gang
málsins."
Samkvæmt upplýsingum DV hafa
Lakers vann góðan útisigur á Den-
ver og endurkoma Magic Johnson
virðist hafa góð áhrif á liðið. Magic
skoraði 16 stig en Cedric Ceballos var
með 27. Hjá Denver var Dikembe
Mutombo með 20 stig.
Orlando vann 32. sigur sinn í röð á
heimavelli, þar af 25 á þessu tímabili
þar sem Penny Hardaway skoraði 24
stig og Shaquille O’Neal 22. Mitch
Richmond skoraði 25 stig fyrir Sacra-
mento.
Meistarar Houston máttu þola tap
gegn Seattle. Shawn Kemp og Gary
kínversku stúlkurnar tvívegis farið í
íslenska sendiráðið í Beijing til að fá
vegabréfsáritun en verið vísað frá í
bæði skiptin. Stúlkurnar yrðu gríöar-
legur styrkur fyrir Blikana en þær
hafa báðar leikið landsleiki fyrir
Kína og voru m.a. í landsliðshópi
Kínverja á fyrsta heimsmeistaramót-
inu sem fram fór í Kína árið 1992.
Payton voru með 22 stig hvor hjá
Seattle en hjá meisturunum, sem tap-
að hafa sjö af 10 síðustu leikjum sín-
um, var Clyde Drexler með 24 stig og
Hakeem Olajuwon 22.
David Robinson og Sean Elliot voru
með 23 stig hvor fyrir SA Spurs en hjá
Charlotte var Larry Johnson atkvæða-
mestur með 21 sig.
Vin Baker var maðurinn á bakvið
sigur Milwaukee á Dallas. Hann skor-
aði 36 stig og skoraði sigurkörfuna 19
sek. fyrir leikslok.
-GH
Anton Björn
til Fram á ný
Anton Bjöm Markússon knatt-
spymumaður er genginn til liðs
við Fram á ný eftir árs fjarveru.
Hann lék með Val í fyrra en spil-
aði reyndar aðeins sex leiki í
deild og bikar. Anton var með
Fram 1994, ÍBV árið á undan en
Fram til þess tíma. Hann er 24
ára og á 56 leiki að baki í 1.
deild.
Þá mun Hólmsteinn Jónasson
leika áfram með Fram en allt
benti til þess á tímabili að hann
gengi til liðs við Víking. -VS
Rekinn frá
Leyton Orient
Enski knattspyrnumaðurinn
Roger Stanislaus, sem leikið hef-
ur með Leyton Orient í 3. deild-
inni og var á dögunum dæmdur
í eins árs bann fyrir að neyta
kókaíns, var í gær rekinn frá fé-
laginu.
Leikmaður Wolves
í 5 ára fangelsi
James Kelly, 22 ára leikmaður
með enska 1. deildar liðinu
Wolves, var í gær dæmdur í 5
ára fangelsi fyrir að verða
manni að bana í september síö-
astliöinn. Kelly sparkaði í höfuð
26 ára gamals manns fyrir utan
hótel í Liverpool með þeim af-
leiðingum að maðurinn lést.
Kelly á að baki sex leiki með
Wolves og einhver bið verður á
að þeim fjölgi á næstunni.
Asprilla segist
fara til
Newcastle
Kólumbíski knattspyrnumað-
urinn Faustino Asprilla segist
vera á leið til Newcastle eftir allt
saman. Asprilla og Kevin Keeg-
an, stjóri Newcastle, ræddust við
í síma í gær og þar ítrekaði
Keegan aö hann vildi fá Asprilla
til Newcastle.
„Mér líður eins og brúðu sem
hefur verið hent fram og til
baka,“ sagði Asprilla við frétta-
menn í gær en á dögunum hljóp
snurða á þráðinn í félaga-
skiptum hans frá Parma til
Newcastle vegna leyndra hné-
meiðsla kappans sem eru ekki
eins alvarleg og haldið var í
fyrstu.
ABIt á kafi í snjó
á Englandi
Fjórum leikjum af fimm, sem
fram áttu að fara í ensku bikar-
keppninni í knattspyrnu í gær-
kvöldi, var frestað en mikið
fannfergi og kuldi ráða nú ríkj-
um á Bretlandseyjum, eins og
víðar. Huddersfield vann
Peterborough, 2-0, í eina
leiknum sem fram gat farið.
Helgi þjálfar Njarðvík
Helgi Amarson hefúr verið ráð-
inn þjálfari 4. deildar liðs Njarð-
víkur í knattspyrnu en hann
þjáifaði Hvöt á Blönduósi í fyrra.
Þorramót Gróttu
Þorramót Gróttu í innanhúss-.
knattspyrnu fyrir 30 ára og eldri
og 40 ára og eldri verður haldið
helgina 24.-25. febrúar í íþrótta-
húsinu á Seltjarnarnesi. Þátt-
taka tilkynnist til Garöars í síma
567-4526 Og 581-3500.
Firmakeppni HK
Firmakeppni HK í innanhúss-
knattspyrnu fer fram í Digra-
nesi helgina 10.-11. febrúar.
Leikið er á stór mörk, fimm
leikmenn í liði. Þátttaka tilkynn-
ist í síma 568-7171 (Sigvaldi) á
daginn og 554-4241 (Bogi) á
kvöldin.
-ih
ísland mætir Slóveníu í dag:
Þeir yngri
fá tækifæri
- í fyrsta byrjunarliði Loga
Helgi Sigurðsson, leikmaður með Stuttgart, er í byrjunarliði Islands gegn Slóveníu í
dag en hann lék ekkert með landsliðinu í fyrra.
Fyrsta byrjunarlið
Loga Ólafssonar
| Birkir Kristinsson
Lárus Orri Sigurösson Sigursteinn Gíslason
Ólafur Adolfsson Þorsteinn Guðjónsson
Sigurður Jónsson Rúnar Kristinsson
Ólafur Þórðarson
Þórður Guðjónsson Haraldur Ingólfsson
Helgi Sigurðsson
Logi Ólafsson, landsliðsþjálfari í
knattspyrnu, tilkynnti í morgun
byrjunarliðið í sínum fyrsta leik
með liðið. Sá er gegn Slóvenum og
er opnunarleikurinn á alþjóðlegu
móti sem hefst á Möltu í dag. Hann
byrjar klukkan 15.30 en síðan mæt-
ast Rússland og Malta.
í byrjunarliðinu eru tveir leik-
menn með aðeins einn A-Iandsleik á
bakinu, varnarmennirnir Lárus
Orri Sigurðsson og Þorsteinn Guð-
jónsson, og þá byrja inni á þeir
Helgi Sigurðsson og Þórður Guð-
jónsson en hvorugur lék með lands-
liðinu í fyrra. Á meðan sitja reynd-
ir menn á borð við Arnór Guðjohn-
sen, Eyjólf Sverrisson og Arnar
Grétarsson á varamannabekknum.
Bjarki Gunnlaugsson var veikur í
gær og getur líklega ekki spilað í
dag. Byrjunarliðið sést hér til
vinstri en Logi beitir leikaðferöinni
4-3-3, sem færist yfir í 4-5-1 þegar lið-
ið er í vörn.
Fullur tilhlökkunar
Logi sagði í spjalli við DV að
hann væri alls ekki kvíðinn fyrir
þennan fyrsta landsleik. „Nei, ég er
fullur tilhlökkunar enda er ég búinn
að bíða eftir því að fá að senda liðið
inn á völlinn síðan ég var ráðinn
sem þjálfari. Nú er komið aö því og
leikurinn leggst vel í mig. Slóvenar
eru meö gott lið, þeir unnu Mexíkó
á útivelli á dögunum og stóðu sig
vel í Evrópukeppninni. En við ætl-
um ekki að velta okkur of mikið
upp úr mótherjunum heldur byggja
fyrst og fremst á því sem við gerum
sjálfir. Við erum með góðan og sam-
stilltan hóp og ég held að allir muni
gefa sig í þetta verkefni," sagði Logi.
Leyfilegt er að hafa sjö varamenn
og nota fimm þeirra. I hópnum, auk
þeirra sem þegar hafa verið nefndir,
eru Kristján Finnbogason, Ágúst
Gylfason, Helgi Kolviðsson, Rútur
Snorrason og Guðmundur Bene-
diktsson.
Malta er svo sunnarlega að vetr-
arhörkurnar í Evrópu hafa ekki náð
þangað. Hins vegar er veðrið ekki
upp á það besta. Að sögn Loga var
hráslagalegt í gær, rigning og nokk-
ur vindur. Hann taldi þó að aðstæð-
ur á Ta Qali, þjóðarleikvangi Möltu,
yrðu góðar.
Island og Slóvenía hafa aldrei
mæst áður í A-landsleik. Slóvenar
stóðu sig • þokkalega í riölakeppni
EM og gerðu þar meðal annars jafn-
tefli við ítali.
ísland leikur við Rússa á fóstudag
og Möltubúa á sunnudag.
-VS
NBA-körfuboltinn í nótt:
Annað tap Chicago í röð