Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1996, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1996, Síða 29
MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 1996 29 Einn Verslunarskólaneminn í hlutverki sínu í Cats. Vinsælasti söngíeikur allra tíma Það hafa margir undrað sig á því að stóru leikhúsin skuli ekki hafa sett upp vinsælasta söngleik allra tíma, Cats, eftir Andrew Lloyd Webber, sem hann gerði eftir ljóðum T.S. Elliot, Old Possums Book of Practical Cats. Hverju um er að kenna er ekki vitað en Verslun- arskólinn var ekkert að hika við aö flytja söngleikinn og er hann nemendasýning hans í ár. Er sýning á þessum fræga söngleik í Loftkastalanum í kvöld. Tónlistin í Cats er einstaklega vel heppnuð og mörg góð lög sem heyra má þótt eitt hafi orð- ið frægast, Minning eða Memories, sem margir söngvar- Leikhús ar hafa reynt við. Leikstjóri uppfærslu Verslun- arskólanema er Ari Matthías- son. Tónlistarstjóri er Þorvald- ur Bjarni Þorvaldsson en hann hefur aðstoðað Verslunarskóla- nema áður og Danshöfundar eru Selma og Bima Bjömsdætur. Með helstu hlutverk fara Val- gerður Guðnadóttir, Bjartmar Þórðarson, Þórunn Egilsdóttir og Árni Georgsson. Leifur heppni - Hvað þorum við að fullyrða? er nafh á fyrirlestri sem Helgi Skúli Kjartansson dósent Qytur kl. 16.15 í dag í stofu M-301 í Kennaraháskóla íslands. Er hann öllum opinn. ITC Korpa, Mosfellsbæ Fundur í kvöld kl. 20.00 í safn- aðarheimilinu. Allir velkomnir. Stimulae - örvun er nafn á fyrirlestri á vegum MHÍ í Norræna húsinu kl. 20.00 í kvöld. Fyrirlesari er listamað- urinn og arkitektinn illur (Dlugi Eysteinsson). Samkomur ITC Fífa, Kópavogi Fundur í kvöld kl. 20.15 að Digranesvegi 12. Fundurinn er öllum opinn. Gítartónleikar í Borgarneskirkju Einar Kristján Einarsson gít- arleikari heldur tónleika í Borg- arneskirkju í kvöld kl. 20.30. Kaffi Reykjavík Dúettinn Siguröur og Birgir skemmta í Kaffi Reykjavík í kvöld. Kvikmyndatónleikar í Háskólabíói: Sýning doktors Caligari og Sinfónían Lokasýningin og hápunkturinn í tilefni aldarafmælis kvikmyndanna er sýning á þöglu kvikmyndinni Sýning doktors Caligari (Das Kab- inet des Doktor Caligari) í Háskóla- bíói í-kvöld kl. 20.00, við undirleik Sinfóníhljómsveitar Islands. Tón- listin, sem Qutt verður, er eftir Giuseppe Becce og hljómsveitar- stjóri er dr. Mark-Andreas Schling- ensiepen. Sýning doktors Caligari, sem gerð var árið 1919, er ein þekktasta kvik- mynd Þjóðverja frá tímabilinu í kringum fyrri heimsstyrjöldina og þykir hún tímamótaverk í kvik- Tónleikar myndasögunni. Hún hafði djúpstæð áhrif á marga af þekktustu kvik- myndaleikstjórum sögunnar, má þar nefna Orson Welles, Alfred Hitchcock og Michelangelo Anton- ioni. Myndin segir frá hugarburði geðsjúklings en hann segir öðrum sjúklingi frá dularfullum sýningar- manni að nafni doktor Caligari sem ferðast milli borga í Þýskalandi og sýnir listir sínar þar á torgum. Hljómsveitarstjórinn dr. Mark-Andreas Schlingensiepen hefur stjórnað tón- listarflutningi við þöglar kvikmyndir bæði í Evrópu og í Bandaríkjunum. Hann notar svefngengil til að fremja fyrir sig morð og eftir að hafa látið myrða besta vin sögumanns og nema ástmey hans á brott kemur í ljós að doktor Caligari er í rauninni forstöðumaður geöveikrahælis. Tónskáldið Giuseppe Becce hefur stundum verið nefndur Toscanini kvikmyndatónlistarinnar. Ekki tókst að Qnna nema hluta af upp- runalegri tónsmíð Becces við Sýn- ingu doktors Caligari en bætt hefur verið úr því meö að nota tónlist úr • tónverkum eftir Wagner, Schubert og Richard Strauss. Xríó Eddu Borg á Kringlukránni: Djassperlur liðinna tíma í kvöld leikur djasstríó Eddu Borg á Kringlukránni. Tríóið skipa auk Eddu Borg, sem syngur, Björn Thoroddsen á gít- ar og Bjami Sveinbjömsson á kontrabassa. Tríóið leikur djassperlur liðinna tíma í eig- in útsetningum, lög eftir Gerswin, Ell- ington, Monk, Rodgers/Hart og Qeiri. Edda Borg snýst í miklu þessa dagan, auk þess sem hún starfrækir djasstríó sitt þá er hún i danshljómsveitinni Havana og syngur með söngkvartettinum Java Jive, sem vakiö hefur athygli fyrir góöan og . Skemmtanir skemmtilegan Qutning, en auk Eddu em í honum Erna Þórarinsdóttir, James Olsen og Valdimar Másson. Þá æfir Edda Borg þessa dagana með Stórsveit Reykjavíkur fyrir tónleika sem haldnir verða í Borgar- leikhúsinu næstkomandi þriðjudagskvöld og er hún ein fjögurra söngkvenna sem syngur með Stórsveitinni. Tríóið hefúr leik í Kringlukránni kl. 22.00. Tríó Eddu Borg skemmtir fyrir gesti á Kringlukránni í kvöld. Þungfært á Bláfjalla- vegi Sunnanlands og vestan- er þung- fært um Mosfellsheiði og BJáfjalla- veg en ófært um Bröttubrekku. Á Færð á vegum Vestfjörðum er ófært um Klettsháls í Austur-Barðastrandarsýslu og ver- ið að moka Steingrímsfjarðarheiði. Austanlands er hafmn mokstur um MöðrudalsöræQ, Fjarðarheiði og Oddsskarð. Annars eru Qestir vegir landsins færir en víða er hálka. m Hálka og snjór án tyrirstööu Lokaö 0 Vegavinna-aögát @ Öxulþungatakmarkanir Q] Þungfært © Fært fjallabílum Petra Iris Leifsdóttir LiQa stúlkan á myndinni fæddist á fæðingardeQd Landspítalans 11. janúar. Hún var við fæðingu 3590 Barn dagsins grömm og 50 sentímetra löng. For- eldrar hennar eru Leifur Runólfs- son og Jóhanna Rósa Kolbeins. Petra íris á einn bróður, Hannes Ragnar, sem er þriggja ára. Whitney Houston og Lela Roch- an leika tvær af fjórum vinkonum í Waitin to Exhale. Vinkonur á tímamótum Regnboginn sýnir þessa dag- ana Waiting to Exhale sem byggð er á samnefndri metsölu- bók Terrys McMillans. Fjallar hún um fjórar vinkonur sem all- ar standa á tímamótum; annað- hvort eru þær að stofna til ástar- sambanda eða slíta þeim. Eigin- menn, kærastar og karlmenn eru rauði þráðurinn í samskipt- um vinkvennanna, þær ýmist dásama karlmenn eða finna þeim allt til foráttu. Með aðalhlutverkin í mynd- inni fara Whitney Houston, Ang- ela Bassett, Loretta Devine og Lela Rochan. Þær tvær fyrst- Kvikmyndir nefndu eru mun þekktari en hin- ar tvær en allar þykja þær sýna góðan leik í myndinni. Þetta er önnur kvikmyndin sem hin dáða söngkona Whitney Houston leikur í en áður hafði hún leikið á móti Kevin Costner í The Bodyguard. Leikstjóri er hinn kunni leikari, Forest Whitaker, og er þetta önnur mynd hans sem hann leikstýrir. Nýjar myndir Háskólabíó: Frönsk kona Háskólabíó: Land og frelsi Laugarásbíó: Seven Saga-bió: Eitthvað til að tala um Bíóhöilin: Peningalestin Bióborgin: Frelsum Willy 2 Regnboginn: Waiting to Exhale Gengið Almennt gengi LÍ nr. 28 7. febrúar 1996 kl. 9.15 Eíníng____Kaup Sala Tollnengi Dollar 66,320 66,660 67,300þþ Pund 101,970 102,490 101,150þþ Kan. dollar 48,320 48,620 48,820þþ Dinsk kr. 11,6140 11,6750 11,6830þ Norsk kr. 10,2920 10,3490 10,3150þ Sénsk kr. 9,4670 9,5190 9,598Qþ Fi. mark 14,5860 14,6720 14,7830þ Fra. franki 13,0770 13,1520 13,1390þ Belg. franki 2,1849 2,1981 2,1985þ Sviss. franki 55,0300 55,3300 55,5000þ Holl. gyllini 40,1100 40,3500 40,3500þ göskt mark 44,9400 45,1700 45,1900þ •t. I°ra 0,04206 0,04232 0,04194 Aust. sch. 6,3870 6,4270 6,4290þ Port. escudo 0,4327 0,4353 0,4343þ SpÝ. peseti 0,5327 0,5361 0,5328þ Jap. yen 0,62660 0,63030 0,63150 •rskt pund 105,010 105,670 104,990þþ SDR 96,93000 97,51000 97,83000 ECU 82,4200 82,9200 82,6300þ Símsvari vegna gengisskráningar 5623270 Krossgátan 2 1 V- u ¥ T~ J lo J r mmmt a r 0 )5 1 T" )2 j rr~ |20 Lárétt: 1 ös, 6 dýpi, 8 róleg, 9 kven- mannsnafn, 10 tré, 11 brún, 13 aftur- kallar, 15 ofna, 16 ánægju, 17 meidd, 19 léleg, 21 til, 22 blása. Lóörétt: 1 þrjóskur, 2 skurðirnir, 3 blað, 4 höfnuöu, 5 sjá, 6 utan, 7 bætt, 12 spónamat, 14 þungi. 15 mynni, 18 leiðsla, 20 skóli. Lausn á síðustu krossgátu. Lárétt: 1 stáss, 6 ha, 8 víra, 9 ker, 10 eða, 11 leið, 12 ristils, 15 tæla, 17 nam, 18 skærar, 19 ái, 20 ginna. Lóðrétt: svert, 2 tíði, 3 ára, 4 saltari, 5 skeinan, 6 heilar, 7 arð, 13 slæg, 1,4 smáa, 16 æki, 18 sá.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.